Drög að frumvarpi til laga um breytingu á lyfjalögum og lögum um landlækni og lýðheilsu (ávísanaheimild hjúkrunarfræðinga og ljósmæðra)
Óskað er eftir athugasemdum við drög að frumvarpi til laga um breytingu á lyfjalögum og lögum um landlækni og lýðheilsu sem heimilar hjúkrunarfræðingum og ljósmæðrum, að tilteknum skilyrðum uppfylltum, að ávísa hormónate
Ferill í Samráðsgátt
- Birt í Samráðsgátt (S-130/2018)
- Umsagnarfrestur hefst · til 24. september 2018
- Umsagnarfresti lýkur · 5 umsagnir bárust
- Lagt fram á Alþingi (149. þing, mál 266)
- Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (28. nóvember 2018)
Alls bárust fimm umsagnir um frumvarpið og var tekið tillit til þeirra eftir atvikum eins og greint er frá í frumvarpinu sem er nú í vinnslu á Alþingi: https://www.althingi.is/thingstorf/thingmalalistar-eftir-thingum/ferill/?ltg=149&mnr=266
Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (5)
- #1Salóme Ásta Arnardóttir
Er kynheilbrigðisþjónustu kvenna þannig háttað í landinu að það sé nauðsynlegt að leggja út í grundvallar breytingu á lyfsölu lögum og leggja fé í endurmenntun hjúkrunarfræðinga og ljóðmæður í lyfjafræði og lögum um lyfseðilsskyld lyf? Eru hjúkrunarfræðingar og ljósmæður í landinu ekki störfum hlaðnar nú þegar? Konur á Íslandi hafa greiðan aðgang að heimilislæknum auk þess sem fjöldi skráðra kvensjúkdómalækna í Læknafélagi Íslands eru 85 eða 1 læknir á hverjar 2000 konur í landinu. Allir heimlislæknar auk kvensjúkdómalækna bjóða upp á kynheilbrigðisþjónustu fyrir konur og skrifa út getnaðarva… Lesa alla
Er kynheilbrigðisþjónustu kvenna þannig háttað í landinu að það sé nauðsynlegt að leggja út í grundvallar breytingu á lyfsölu lögum og leggja fé í endurmenntun hjúkrunarfræðinga og ljóðmæður í lyfjafræði og lögum um lyfseðilsskyld lyf? Eru hjúkrunarfræðingar og ljósmæður í landinu ekki störfum hlaðnar nú þegar? Konur á Íslandi hafa greiðan aðgang að heimilislæknum auk þess sem fjöldi skráðra kvensjúkdómalækna í Læknafélagi Íslands eru 85 eða 1 læknir á hverjar 2000 konur í landinu. Allir heimlislæknar auk kvensjúkdómalækna bjóða upp á kynheilbrigðisþjónustu fyrir konur og skrifa út getnaðarvarnir. www.heilsuvera.is hefur stólega bætt aðgang að endurnýjunum á lyfseðils skyldum lyfjum. Ísland sker sig ekki út hvað varðar fjölda fóstureyðinga á Norðurlöndum. (https://thl.fi/sv/web/thlfi-sv/statistik/statistik-efter-amne/sexuell-och-reproduktiv-halsa/aborter/aborter-i-norden Á þessari mynd sést að tíðni fóstureyðinga á 1000 fædd börn er hæst í Svíþjóð en þar er löng hefð fyrir að ljósmæður sjái um getnaðarvarnir og skrifa út lyfseðla fyrir pillunni. Því miður er ekki ljóst hvaða þörf er verið að mæta með þessari grundvallar breytingu á lyfseðlaskrifum í landinu. Með kveðju Salome Arnardóttir heimilislæknir
- #2Dagný Sigurbjörg Jónsdóttir
Ég tel að það væri mun heppilegra að nota hér þekkingu og aðgengi að lyfjafræðingum sérstaklega í ljósi þess að þeir eru klárlega sú fagstétt sem óumdeilanlega hefur þessa þekkingu eftir 5 ára háskólanám. Lyfjafræðingar eru mjög vannýttur starfskraftur í ísl heilbrigðiskerfi og það er tímabært að breyta því. Þeir hafa menntunina og vilja axla ábyrgð og taka þátt í að byggja upp gott heilbrigðiskerfi þar sem þeirra fagþekking kemur að notum. Öllum sem að þessum málum koma má vera ljóst að störf þeirra inni á spítölum eru velmetin og hafa sýnt sig í að skila sér í betri og réttari notkun lyfja,… Lesa alla
Ég tel að það væri mun heppilegra að nota hér þekkingu og aðgengi að lyfjafræðingum sérstaklega í ljósi þess að þeir eru klárlega sú fagstétt sem óumdeilanlega hefur þessa þekkingu eftir 5 ára háskólanám. Lyfjafræðingar eru mjög vannýttur starfskraftur í ísl heilbrigðiskerfi og það er tímabært að breyta því. Þeir hafa menntunina og vilja axla ábyrgð og taka þátt í að byggja upp gott heilbrigðiskerfi þar sem þeirra fagþekking kemur að notum. Öllum sem að þessum málum koma má vera ljóst að störf þeirra inni á spítölum eru velmetin og hafa sýnt sig í að skila sér í betri og réttari notkun lyfja, það sama má hugsa sér að gerðist ef þeirra starfskraftar væru nýttir inni á heilsugæslustöðvum og öðrum hjúkrunar og læknastöðvum. Varðandi heilsugæsluna og aðkomu lyfjafræðinga að henni þá var nýlega unnin doktorsritgerð þar sem sannarlega var sýnt fram á hagkvæmni í að hafa lyfjafræðinga þar inni og almenn ánægja lækna, og annars starfsfólks heilsugæslunnar og það að ávísa getnaðarvarnapillum gæti akkúrat verið fyrsta skrefið í að koma lyfjafræðingum inn á allar heilsugæslustöðvar. Í dag hafa Lyfjafræðingar neyðarrétt til að afhenda lyf í minnstu pakkningu án lyfseðils og bera þá ábyrgð á því. Ég tel að rétt væri að útvíkka þetta þannig að lyfjafræðingar gætu ávísað getnaðarvarnarlyfjum eftir ákveðnum fyrirfram skilgreindum reglum.
- #3Helena Líndal Baldvinsdóttir
Lyfjafræðingar hafa neyðarrétt til að afhenda lyf í minnstu pakkningu án lyfseðils og bera þá ábyrgð á því. Tel ég að rétt væri að útvíkka þennan neyðarrétt þannig að lyfjafræðingar gætu ávísað getnaðarvarnarlyfjum eftir ákveðnum fyrirfram skilgreindum reglum. Lyfjafræðingar eru sérfræðingar um lyf og ætti að nýta þá sérfræði þekkingu betur
- #4Sóley Sesselja Bender
Velferðarráðuneytið Skógarhlíð 6 105 Reykjavík Reykjavík, 24. september 2018 Umsögn um frumvarp til laga um breytingar á lyfjalögum og lögum um landlækni og lýðheilsu Eins og fram kemur í greinargerð með frumvarpinu þá hefur í langan tíma verið unnið að þessu mikilvæga máli að heimila hjúkrunarfræðingum og ljósmæðrum að ávísa hormónagetnaðarvörnum. Það er mikilvægt fyrir íslenskt samfélag að aðgengi að getnaðarvörnum sé greitt og að hugað sé vel að faglegri ráðgjöf um getnaðarvarnir sem stuðlað getur að kynheilbrigði fólks. Eftirfarandi athugasemdir eru gerðar við breyting… Lesa alla
Velferðarráðuneytið Skógarhlíð 6 105 Reykjavík Reykjavík, 24. september 2018 Umsögn um frumvarp til laga um breytingar á lyfjalögum og lögum um landlækni og lýðheilsu Eins og fram kemur í greinargerð með frumvarpinu þá hefur í langan tíma verið unnið að þessu mikilvæga máli að heimila hjúkrunarfræðingum og ljósmæðrum að ávísa hormónagetnaðarvörnum. Það er mikilvægt fyrir íslenskt samfélag að aðgengi að getnaðarvörnum sé greitt og að hugað sé vel að faglegri ráðgjöf um getnaðarvarnir sem stuðlað getur að kynheilbrigði fólks. Eftirfarandi athugasemdir eru gerðar við breytingar á lyfjalögum 1. Lagt er til að setningin í a. lið verði umorðuð og hljóði svo: Hjúkrunarfræðingur eða ljósmóðir, sem hlotið hefur sérstakt leyfi landlæknis (lyfjaávísun hormónagetnaðarvarna) og starfar þar sem heilsugæslu- , kvenlækninga- eða fæðingarþjónusta er veitt, er heimilt að ávísa hormónagetnaðarvörnum. 2. Í a. lið er fjallað um að ráðherra geti sett reglugerð um skilyrði til leyfisveitingar. Þar kemur fram að viðbótarnám er sett sem skilyrði til leyfis. Við gerð slíkrar reglugerðar er mikilvægt að hafa í huga að hér á landi gætu verið einstaklingar með sérnám á sviði fjölskylduáætlunar sem er mun meira nám en fjallað er um í greinargerð frumvarpsins. Í þeim tilvikum þarf að taka tillit til fyrri starfsreynslu og sérnáms á þessu sérsviði. Þegar slíkt er fyrir hendi ætti ekki að vera þörf á viðbótarnámi. Virðingarfyllst, Sóley S. Bender, prófessor Sérfræðingur í kynheilbrigði Hjúkrunarfræðideild Háskóli Íslands Eirberg Eiríksgata 34 101 Reykjavík s. 525 4980 ssb@hi.is
- #5Margrét R Kristjánsdóttir
Verð að segja að maður verður fyrir mikilum vonbrygðum að sjá svona tillögu þar sem heilli stétt er úthýst þrátt fyrir 5 ára háskólanám ásmat starfsnámi er sleppt og hefur sennilega mun meiri þekkingu en umræddar heilbrigðisstéttir af lyfjum. Hvar eru lyfjafræðingar innan heilbrigðiskerfisins ? Þetta er sú stétt sem eisaklingar eiga sennilega auðveldast með að ná til og auðvelt fyrir þá að koma upplýsingum um ávísun til heimilislækni einstaklings í gegnum gáttir. Fer þess á leit að þessu verði breytt svo hljóðandi eftir 2. mgr. kemur ný málsgrein, 3. mgr., svohljóðandi: Lyfjaávísun lyfja… Lesa alla
Verð að segja að maður verður fyrir mikilum vonbrygðum að sjá svona tillögu þar sem heilli stétt er úthýst þrátt fyrir 5 ára háskólanám ásmat starfsnámi er sleppt og hefur sennilega mun meiri þekkingu en umræddar heilbrigðisstéttir af lyfjum. Hvar eru lyfjafræðingar innan heilbrigðiskerfisins ? Þetta er sú stétt sem eisaklingar eiga sennilega auðveldast með að ná til og auðvelt fyrir þá að koma upplýsingum um ávísun til heimilislækni einstaklings í gegnum gáttir. Fer þess á leit að þessu verði breytt svo hljóðandi eftir 2. mgr. kemur ný málsgrein, 3. mgr., svohljóðandi: Lyfjaávísun lyfjafræðings,sem hlotið hefur sérstakt leyfi landlæknis til lyfjaávísunar hormónatengdra getnaðarvarna og starfar í apóteki. Lyfjafræðingar hafa nú þegar neyðarrétt til að afhenda lyf í minnstu pakkningu án lyfseðils og bera þá ábyrgð á því. Teljum við að rétt væri að útvíkka þennan neyðarrétt þannig að lyfjafræðingar gætu ávísað getnaðarvarnarlyfjum eftir ákveðnum fyrirfram skilgreindum reglum. Einnig mætti bæta þjónustu á heilsugæslu með því að útvíkka starfsvið lyfjafræðings og setja þá inn á heilsugæslustöðvar. Líklegast væri hægt að spara dágóðan pening í heilbrigðiskerfinu með því að hafa lyfjafræðinga inn á heilsugæslustöðvum sem færu yfir lyfjaávísanir og notkun lyfja hjá viðkomandi einstaklingum á heilsugæslustöðvum. Með von um að þeirri stétt sem hefur hvað lengsta háskólanámið er varðar þekkingu um lyf og milliverkanir þeirra sé ekki úthýst í reglugerð sem þessari.
Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.