Beint í efni
Alviti
← Samráðsgátt
S-98/2018 · Dómsmálaráðuneytið

Frumvarp til nýrra heildarlaga um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka

Um er að ræða drög að frumvarpi til nýrra heildarlaga um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka. Frumvarpið er innleiðing á fjórðu peningaþvættistilskipun Evrópusambandsins 2015/849/EB.

Frumvarpið er samið af starfshópi sem dómsmálaráðherra skipaði til innleiðingar á fjórðu peningaþvættistilskipun Evrópusambandsins (2015/849/EB) og valin ákvæði úr fimmtu peninga-þvættis¬tilskipun Evrópusambandsins (2018/843/EB). Fjórða peningaþvættistilskipunin tók gildi í Evrópusambandinu 27. júlí 2017 og verður tekin upp í EES-samninginn í október 2018. Tilskipunin er heildarendurskoðun á tilskipun 2005/60/EB með síðari breytingum um sama efni. Fimmta peningaþvættistilskipunin, sem var birt í stjórnartíðindum Evrópusambandsins þann 19. júní 2018, breytir nokkrum ákvæðum fjórðu tilskipunarinnar. Þótti tilefni til að taka einstök ákvæði hennar upp við þessa heildarendurskoðun á gildandi lögum um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka nr. 64/2006. Þrátt fyrir að um heildarskoðun laganna sé að ræða byggja þau á grunni eldri laga. Meginefni laganna snýr að skyldu tilkynningarskyldra aðila til að framkvæma áreiðanleikakönnun, haga innra skipulagi með þeim hætti að þeim sé kleift að greina grunsamlegar færslur og tilkynna til skrifstofu fjármálagreiningu lögreglu allar grunsamlegar færslur eða viðskipti. Til að tryggja að einstök ákvæði frumvarpsins séu ekki of íþyngjandi fyrir litla tilkynningarskylda aðila sem stunda einsleita starfsemi er gert ráð fyrir því að tekið sé tillit til til stærðar, eðlis og umfangs tilkynningarskyldra aðila og margbreytileika starfseminnar.

S-98/2018· Drög að frumvarpi til laga· Dómsmálaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 25. júl. 2018 – 14. ágú. 2018· 3 umsagnir

Frumvarp til nýrra heildarlaga um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka

Um er að ræða drög að frumvarpi til nýrra heildarlaga um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka. Frumvarpið er innleiðing á fjórðu peningaþvættistilskipun Evrópusambandsins 2015/849/EB.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-98/2018)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 14. ágúst 2018
  3. Umsagnarfresti lýkur · 3 umsagnir bárust
  4. Lagt fram á Alþingi (149. þing, mál 314)
  5. Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (9. apríl 2019)

Frumvarpið var sett á vef Stjórnarráðsins og birt í Samráðsgáttinni til kynningar fyrir almenningi. Þrjár umsagnir bárust í gegnum gáttina, frá Neytendastofu, Samtökum iðnaðarins og Félagi íslenskra gullsmiða og Samtökum fjármálafyrirtækja (SFF). Í umsögn Neytendastofu komu m.a. fram tillögur um breytingar á orðalagi á viðskiptum með reiðufé sem teknar voru til greina auk þess sem lagt var til að fjölga skráningarskyldum aðilum. Ekki þótti tilefni til að ganga lengra varðandi kröfu um skráningu en frumvarpið kveður á um að sinni. Í umsögn Samtaka iðnaðarins og Félags íslenskra gullsmiða voru gerðar athugasemdir við skráningarskyldu gullsmiða. Var það mat umsagnaraðila að kröfurnar væru of íþyngjandi og gætu takmarkað atvinnufrelsi gullsmiða. Komið var til móts við umsögnina með því að draga úr skilyrðum skráningar og samræma þær að mestu leyti við kröfur laga um einkahlutafélög. SFF taldi í umsögn sinni að með heimildum eftirlitsaðila til að leggja á stjórnvaldssektir væri gengið mun lengra en gerð er krafa um samkvæmt tilskipuninni. Ákvæði tilskipunarinnar hvað varðar viðurlög kveður á um þann lágmarksramma sem þarf að taka upp í landslög og aðildarríkjum falið að sjá um nánari útfærslu í takt við lagahefðir í hverju ríki fyrir sig. Við athugun á útfærslu viðurlagaákvæði í nokkrum aðildarríkjum kom í ljós að viðurlagakafli frumvarpsins hefur ekki verið innleiddur með samræmdum hætti. Stjórnvaldssektaákvæði frumvarpsins er í samræmi við sambærileg viðurlagaákvæði á fjármálamarkaði og ekki talið tilefni til að víkja frá því fyrirkomulagi í þessu frumvarpi. Mælt var fyrir frumvarpinu á Alþingi 7. nóvember 2018 sjá hér á vef Alþingis https://www.althingi.is/thingstorf/thingmalalistar-eftir-thingum/ferill/?ltg=149&mnr=314

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (3)
  • #1Neytendastofa

    Meðfylgjandi er að finna umsögn Neytendastofu um drög að frumvarpi til laga um peningaþvætti.

  • #2Arna Arnardóttir
    Góðan dag, Ég sendi hér inn fyrirspurn fyrir hönd Félags íslenskra gullsmiða. Við vorum fyrst að frétta af þessu furmvarpi núna í fréttum í morgun. Við höfum því miður ekki náð að kynna okkur þetta furmvarp. Lögfræðingur okkar er í fríi fram í miðjan ágúst. Er möguleiki að við getum fengið að koma með athugasemdir þegar lögfræðingur okkar er búinn að lesa þetta yfir, þeas ef einhverjar eru? Okkar félagmenn versla mikið með gull og eðalmálma. Við viljum gjarna kynna okkur hvaða áhrif þetta frumvarp hefur á okkar starfsemi. Með von um skjót svör. Fyrir hönd Félags íslenskra gull… Lesa alla

    Góðan dag, Ég sendi hér inn fyrirspurn fyrir hönd Félags íslenskra gullsmiða. Við vorum fyrst að frétta af þessu furmvarpi núna í fréttum í morgun. Við höfum því miður ekki náð að kynna okkur þetta furmvarp. Lögfræðingur okkar er í fríi fram í miðjan ágúst. Er möguleiki að við getum fengið að koma með athugasemdir þegar lögfræðingur okkar er búinn að lesa þetta yfir, þeas ef einhverjar eru? Okkar félagmenn versla mikið með gull og eðalmálma. Við viljum gjarna kynna okkur hvaða áhrif þetta frumvarp hefur á okkar starfsemi. Með von um skjót svör. Fyrir hönd Félags íslenskra gullsmiða, Arna Arnardóttir formaður

  • #3Jóna Björk Guðnadóttir
    Fyrir hönd Samtaka fjármálafyrirtækja (SFF) þakka ég fyrir tækifærið til að koma á framfæri athugasemdum við frumvarpið að nýju. SFF sendu ráðuneytinu umsögn um frumvarpið dags. 25. maí síðastliðinn og hefur verið tekið tillit til hluta þeirra athugasemda sem þá voru settar fram. SFF vilja nota þetta tækifæri og ítreka athugasemd við 46. gr. frumvarpsins sem fjallar um stjórnvaldssektir. Samkvæmt 1. mgr. 46. gr. geta eftirlitsaðilar lagt stjórnvaldssektir á hvern þann sem brýtur gegn ákvæðum laganna. SFF telja að ákvæðið sé of almennt orðað og þar sé gengið lengra en gert er í tilkipun ESB þ… Lesa alla

    Fyrir hönd Samtaka fjármálafyrirtækja (SFF) þakka ég fyrir tækifærið til að koma á framfæri athugasemdum við frumvarpið að nýju. SFF sendu ráðuneytinu umsögn um frumvarpið dags. 25. maí síðastliðinn og hefur verið tekið tillit til hluta þeirra athugasemda sem þá voru settar fram. SFF vilja nota þetta tækifæri og ítreka athugasemd við 46. gr. frumvarpsins sem fjallar um stjórnvaldssektir. Samkvæmt 1. mgr. 46. gr. geta eftirlitsaðilar lagt stjórnvaldssektir á hvern þann sem brýtur gegn ákvæðum laganna. SFF telja að ákvæðið sé of almennt orðað og þar sé gengið lengra en gert er í tilkipun ESB þar sem viðurlagaheimildir eru afmarkaðar við brot sem eru alvarleg, ítrekuð og kerfisbundin. Mikilvægt er að við innleiðingu á EES-gerðum sé samræmis gætt við EES-réttinn og ekki verði settar séríslenskar íþyngjandi reglur nema brýna nauðsyn beri til.

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.

S-98/2018: Frumvarp til nýrra heildarlaga um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka · Alviti