Áður en mál kemur til Alþingis
Frumvörp og þingsályktunartillögur sem ráðuneyti hafa kynnt í Samráðsgátt stjórnvalda: hvað er til umsagnar, hverjir sendu umsagnir, og hvað hefur komið til Alþingis og hvað ekki.
1.236 mál · 5 til umsagnar núna · sótt 28. október 2026
- Komið til AlþingisS-227/2020· Drög að frumvarpi til laga· Fjármála- og efnahagsráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 23. okt. 2020 – 9. nóv. 2020· 3 umsagnir
Drög að frumvarpi um breytingu á lögum um virðisaukaskatt og lögum um fjársýsluskatt (fjármálaþjónusta o.fl.)
Í frumvarpinu er lagðar til breytingar á lögum um vsk og lögum um fjársýsluskatt. Breytingarnar fela m.a. í sér afmörkun á undanþágu vsk vegna sölu á fjármálaþjónustu, framlengingu á 100% endurgreiðslu vsk af vinnu við íbúðarhúsnæði, frístundahúsnæði o.fl.
- Komið til AlþingisS-226/2020· Áform um lagasetningu· Fjármála- og efnahagsráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 23. okt. 2020 – 13. nóv. 2020· 3 umsagnir
Áform um frumvarp til laga um gjaldeyrismál
Fjármála- og efnahagsráðherra birtir til umsagnar áform um lagasetningu ásamt frumdrögum að frumvarpi.
- Komið til AlþingisS-223/2020· Drög að frumvarpi til laga· Innviðaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 22. okt. 2020 – 4. nóv. 2020· 7 umsagnir
Frumvarp til laga um breytingar á ýmsum lögum vegna póstmála (flutningur póstmála frá Póst- og fjarskiptastofnun til Byggðastofnunar).
Birt eru til umsagnar drög að frumvarpi til laga um breytingar á ýmsum lögum vegna tilfærslu póstmála frá Póst- og fjarskiptastofnun til Byggðastofnunar.
- Komið til AlþingisS-222/2020· Áform um lagasetningu· Fjármála- og efnahagsráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 20. okt. 2020 – 28. okt. 2020· 0 umsagnir
Áform um frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum á vátryggingamarkaði
Fjármála- og efnahagsráðherra áformar að leggja fram frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum á vátryggingamarkaði (hæfis- og hæfniskilyrði, atkvæðisréttur, réttarstaða við ógjaldfærnimeðferð, búsetuskilyrði, eftirlitsheimildir o.fl.).
- Komið til AlþingisS-221/2020· Drög að frumvarpi til laga· Utanríkisráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 20. okt. 2020 – 3. nóv. 2020· 0 umsagnir
Drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um ráðstafanir í kjölfar samnings við Bandaríkin um skil á varnarsvæðinu á Keflavíkurflugvelli, nr. 176/2006
Með frumvarpinu eru m.a. lagðar til breytingar á ákvæðum lögum nr. 176/2006 varðandi hlutverk Þróunarfélags Keflavíkurflugvallar.
- Komið til AlþingisS-220/2020· Drög að frumvarpi til laga· Innviðaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 19. okt. 2020 – 16. nóv. 2020· 13 umsagnir
Frumvarp til laga um loftferðir
Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið kynnir til umsagnar drög að frumvarpi til nýrra heildarlaga um loftferðir. Í frumvarpinu eru lagðar til veigamiklar breytingar frá núgildandi lögum einkum í því skyni að taka mið af þjóðréttarlegum skuldbindingum sem Ísland hefur undirgengist og stefnu stjórnvalda á sviði flugsamgangna.
- Ekki komið til AlþingisS-219/2020· Áform um lagasetningu· Heilbrigðisráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 15. okt. 2020 – 29. okt. 2020· 5 umsagnir
Áform um breytingar á lögum um málefni aldraðra
Samræma lög nr. 125/1999, um málefni aldraðra, þeirri niðurstöðu vinnuhóps um mat á InterRAI-mælitækjum og færni- og heilsumati, að betur færi að ein færni- og heilsumatsnefnd fari yfir álitamál á landsvísu en ekki séu starfandi færni- og heilsumatsnefndir í öllum heilbrigðisumdæmum landsins.
- Komið til AlþingisS-216/2020· Drög að frumvarpi til laga· Fjármála- og efnahagsráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 13. okt. 2020 – 27. okt. 2020· 0 umsagnir
Drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um afleiðuviðskipti, miðlæga mótaðila og afleiðuviðskiptaskrár, nr. 15/2018
Fjármála- og efnahagsráðherra birtir til umsagnar drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um afleiðuviðskipti, miðlæga mótaðila og afleiðuviðskiptaskrá, nr. 15/2018. Frumvarpinu er ætlað að innleiða svokallað EMIR Refit reglugerð í íslenskan rétt.
- Ekki komið til AlþingisS-215/2020· Drög að frumvarpi til laga· Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 9. okt. 2020 – 25. okt. 2020· 1 umsögn
Drög að frumvarpi til laga um föngun, flutning og varanlega geymslu koldíoxíðs neðanjarðar.
Markmið frumvarpsins er að tryggja örugga föngun, flutning og niðurdælingu koldíoxíðs í jarðlög hér á landi í því skyni að draga úr áhrifum loftslagsbreytinga.
- Komið til AlþingisS-214/2020· Áform um lagasetningu· Heilbrigðisráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 9. okt. 2020 – 26. okt. 2020· 1 umsögn
Áform um frumvarp til laga um breytingu á lögum um sjúklingatryggingu, nr. 111/2000 (tryggingavernd í klínískum lyfjarannsóknum á heilbrigðisstofnunum).
Áformað er að leggja fram frumvarp til laga um breytingu á lögum um sjúklingatryggingu, nr. 111/2000, í því skyni að tryggingavernd laganna nái til þátttakenda í klínískum lyfjarannsóknum á heilbrigðisstofnunum.
- Komið til AlþingisS-212/2020· Áform um lagasetningu· Heilbrigðisráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 7. okt. 2020 – 21. okt. 2020· 0 umsagnir
Áform um frumvarp til laga um breytingu á sóttvarnalögum, nr. 19/1997 (opinberar sóttvarnaráðstafanir)
Áformað er að leggja til breytingu á sóttvarnalögum, nr. 19/1997. Frestur til að skila inn umsögnum er til og með 21. október nk.
- Komið til AlþingisS-211/2020· Áform um lagasetningu· Fjármála- og efnahagsráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 6. okt. 2020 – 13. okt. 2020· 1 umsögn
Áform um frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum um skatta og gjöld (tryggingagjald, skattalegt heimilisfesti, tollafgreiðsla, bifreiðagjald, aukatekjur ríkissjóðs o.fl.)
Áformuð er tímabundin lækkun tryggingagjalds auk ýmissa annarra breytinga og leiðréttinga á skattalöggjöf sem og orkuskiptum í samgöngum.
- Komið til AlþingisS-208/2020· Drög að frumvarpi til laga· Atvinnuvegaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 6. okt. 2020 – 20. okt. 2020· 1 umsögn
Frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 98/2004, um jöfnun kostnaðar við dreifingu raforku (verðlagshækkun jöfnunargjalds raforku)
Með frumvarpinu er lögð til verðlagshækkun á jöfnunargjaldi raforku, frá upptöku þess 2015. Frumvarpið er, ásamt sérstöku framlagi á fjárlögum, liður í aukinni jöfnun dreifikostnaðar raforku í dreifbýli.
- Ekki komið til AlþingisS-207/2020· Drög að frumvarpi til laga· Innviðaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 6. okt. 2020 – 20. okt. 2020· 1 umsögn
Drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um farþegaflutninga og farmflutninga á landi (vanrækslugjald)
Tilefni frumvarpsins er að opna fyrir og styðja við skilvirkari lausnir við greiðslu fargjalda í almenningssamgöngum með það að markmiði að efla þjónustu við notendur án þess að því fylgi verulegt tekjutap flutningsaðila.
- Komið til AlþingisS-206/2020· Drög að frumvarpi til laga· Dómsmálaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 2. okt. 2020 – 14. okt. 2020· 4 umsagnir
Drög að frumvarpi til laga um þjóðkirkjuna (heildarlög)
Dómsmálaráðuneytið kynnir til samráðs drög að frumvarpi til nýrra þjóðkirkjulaga sem fela í sér aukið sjálfstæði þjóðkirkjunnar og einföldun alls lagaumhverfis um hana,
- Komið til AlþingisS-205/2020· Drög að frumvarpi til laga· Fjármála- og efnahagsráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 1. okt. 2020 – 16. okt. 2020· 3 umsagnir
Drög að frumvarpi til laga um reglubundna og viðvarandi upplýsingaskyldu útgefenda verðbréfa
Fjármála- og efnahagsráðuneytið birtir til umsagnar drög að nýjum heildarlögum um reglubundna og viðvarandi upplýsingaskyldu útgefenda verðbréfa. Með frumvarpinu eru viðkomandi ákvæði laga um verðbréfaviðskipti, nr. 108/2007, felld brott.
- Komið til AlþingisS-204/2020· Drög að frumvarpi til laga· Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 29. sep. 2020 – 13. okt. 2020· 5 umsagnir
Frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir (menntun og þjálfun, eftirlit með starfsemi og athöfnum o.fl.).
Frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir, varðandi menntun og þjálfun, eftirlit með starfsemi og athöfnum o.fl.
- Komið til AlþingisS-203/2020· Áform um lagasetningu· Fjármála- og efnahagsráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 29. sep. 2020 – 13. okt. 2020· 6 umsagnir
Áform um frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum um skatta og gjöld (Skattalegir hvatar vegna starfsemi til almannaheilla - þriðji geirinn)
Áform um breytingar á ýmsum lögum um skatta og gjöld með það að markmiði að efla og styrkja starfsemi þeirra lögaðila sem starfa til almannaheilla og falla undir þriðja geirann.
- Komið til AlþingisS-202/2020· Drög að frumvarpi til laga· Atvinnuvegaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 28. sep. 2020 – 9. okt. 2020· 45 umsagnir
Drög að frumvarpi til laga um opinberan stuðning við nýsköpun
Frumvarpið felur í sér viðamiklar breytingar á opinberum stuðningi við nýsköpun í landinu. Leitast er við að forgangsraða verkefnum, draga úr yfirbyggingu og auka sveigjanleika. Af frumvarpinu leiðir að Nýsköpunarmiðstöð Íslands verði lögð niður sem sérstök ríkisstofnun og flestum verkefnum hennar fundið annað heimili.
- Komið til AlþingisS-201/2020· Drög að frumvarpi til laga· Atvinnuvegaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 28. sep. 2020 – 9. okt. 2020· 9 umsagnir
Drög að frumvarpi til laga um Tækniþróunarsjóð
Með frumvarpi þessu eru ákvæði um Tækniþróunarsjóð flutt í sérlög þar sem til stendur að fella brott lög nr. 75/2007 þar sem kveðið er á um Tækniþróunarsjóð í II. kafla.
- Komið til AlþingisS-200/2020· Drög að frumvarpi til laga· Dómsmálaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 28. sep. 2020 – 12. okt. 2020· 147 umsagnir
Frumvarp til breytinga á áfengislögum, sala á framleiðslustað
Með frumvarpinu eru lagðar til breytingar á áfengislögum sem fela í sér undanþágu frá einokun Áfengis- og tóbaksverslunar ríkisins á smásölu áfengis til neytenda þannig heimilaðar verði innlendar vefverslanir með áfengi í smásölu til neytenda og sala á framleiðslustað með þeim takmörkununum sem í frumvarpinu greinir.
- Komið til AlþingisS-199/2020· Áform um lagasetningu· Fjármála- og efnahagsráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 24. sep. 2020 – 8. okt. 2020· 1 umsögn
Áform um frumvarp til breytingu á lögum um skilameðferð lánastofnana og verðbréfafyrirtækja (forgangsröð krafna við skila- og slitameðferð)
Fjármála- og efnahagsráðherra áformar að leggja fram frumvarp til laga um breytingu á lögum, nr. 70/2020, um skilameðferð lánastofnana og verðbréfafyrirtækja (forgangsröð krafna við skila- og slitameðferð). Frumvarpið mun innleiða tilskipun (ESB) 2017/2399 um rétthæð ótryggðra skuldagerninga við meðferð vegna ógjaldfærni.
- Ekki komið til AlþingisS-198/2020· Drög að frumvarpi til laga· Innviðaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 24. sep. 2020 – 8. okt. 2020· 20 umsagnir
Frumvarp til laga um breytingu á umferðarlögum
Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið birtir til umsagnar drög að frumvarpi til laga um breytingu á umferðarlögum.
- Komið til AlþingisS-196/2020· Áform um lagasetningu· Fjármála- og efnahagsráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 24. sep. 2020 – 8. okt. 2020· 11 umsagnir
Áform um frumvarp til laga um stafrænt pósthólf
Með frumvarpi til laga um birtingu gagna í stafrænu pósthólfi er gert ráð fyrir að heimila stjórnvöldum að senda gögn til einstaklinga og lögaðila með stafrænum hætti. Sú aðferð að senda gögn á vegum hins opinbera með rafrænum hætti mun hafa sömu réttaráhrif og þegar bréf er í dag sent á lögheimili viðkomandi.
- Komið til AlþingisS-195/2020· Drög að frumvarpi til laga· Félags- og húsnæðismálaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 23. sep. 2020 – 7. okt. 2020· 253 umsagnir
Frumvarp til laga um fæðingar- og foreldraorlof
Félagsmálaráðuneytið kynnir til umsagnar drög að nýjum heildarlögum um fæðingar- og foreldraorlof ásamt skilabréfi samstarfshóps sem vann að heildarendurskoðun laga um fæðingar- og foreldraorlof, nr. 95/2000.
- Komið til AlþingisS-194/2020· Drög að frumvarpi til laga· Dómsmálaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 21. sep. 2020 – 5. okt. 2020· 0 umsagnir
Frumvarp til laga um breytingu á almennum hegningarlögum og lögum um meðferð sakamála (kynferðisleg friðhelgi).
Með frumvarpinu er lagðar til breytingar á almennum hegningarlögum og lögum um meðferð sakamála í því skyni að styrkja réttarvernd einstaklinga gegn brotum á kynferðislegri friðhelgi þeirra.
- Ekki komið til AlþingisS-193/2020· Drög að frumvarpi til laga· Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið· Niðurstöður í vinnslu· frestur 19. sep. 2020 – 3. okt. 2020· 5 umsagnir
Drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum nr. 52/1989 um ráðstafanir gegn umhverfismengun af völdum einnota umbúða fyrir drykkjarvörur
Umhverfis- og auðlindaráðuneytið óskar eftir umsögnum um drög að frumvarpi til breytinga á lögum nr. 52/1989 um ráðstafanir gegn umhverfismengun af völdum einnota umbúða fyrir drykkjarvörur.
- Komið til AlþingisS-192/2020· Drög að frumvarpi til laga· Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið· Niðurstöður í vinnslu· frestur 18. sep. 2020 – 2. okt. 2020· 5 umsagnir
Drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum nr. 49/1997 um varnir gegn snjóflóðum og skriðuföllum (markmiðsákvæði, endurskoðun hættumats, sektir o.fl.)
Umhverfis- og auðlindaráðuneytið óskar eftir umsögnum um drög að frumvarpi til breytinga á lögum nr. 49/1997 um varnir gegn snjóflóðum og skriðuföllum.
- Komið til AlþingisS-190/2020· Drög að frumvarpi til laga· Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 17. sep. 2020 – 1. okt. 2020· 17 umsagnir
Drög að frumvarpi til laga um breytingu á skipulagslögum nr. 123/2010
Frumvarpið felur í sér tillögu til einföldunar á stjórnsýslu við gerð skipulagsáætlana og útgáfu framkvæmdaleyfa vegna framkvæmda í flutningskerfi raforku. Þá felur frumvarpið í sér tillögu til einföldunar á skipulagsbreytingum og ákvæði um stafræna málsmeðferð.
- Ekki komið til AlþingisS-189/2020· Drög að frumvarpi til laga· Atvinnuvegaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 14. sep. 2020 – 24. sep. 2020· 4 umsagnir
Frumvarp til laga um breytingu á lögum um tímabundnar endurgreiðslur vegna hljóðritunar á tónlist, nr. 110/2016.
Í frumvarpinu er lögð til ívilnandi breyting á skilyrði fyrir endurgreiðslu fyrir útgáfu hljóðrita.
Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi. Hlekkur getur vantað þegar heiti málsins breyttist mikið á leiðinni; ritstjóri getur staðfest eða hafnað tengingu.
Hér eru frumvörp, áform um lagasetningu og drög að þingsályktunartillögum. Drög að reglugerðum og önnur mál fara ekki til Alþingis og eru á vef gáttarinnar. Alviti hefur þingmál Alþingis frá 8. september 2015; um eldri samráðsmál sem ekki finnast þar er sagt „óvíst“.
Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda (island.is) · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)