Beint í efni
Alviti
← Samráðsgátt
S-196/2020 · Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Áform um frumvarp til laga um stafrænt pósthólf

Með frumvarpi til laga um birtingu gagna í stafrænu pósthólfi er gert ráð fyrir að heimila stjórnvöldum að senda gögn til einstaklinga og lögaðila með stafrænum hætti. Sú aðferð að senda gögn á vegum hins opinbera með rafrænum hætti mun hafa sömu réttaráhrif og þegar bréf er í dag sent á lögheimili viðkomandi.

Í stefnulýsingu ríkisstjórnarinnar, dags. 30. nóvember 2017, kemur m.a. fram að byggja skuli upp stafræna þjónustugátt þar sem landsmenn geti á einum stað nálgast þjónustu hins opinbera og sinnt þeim erindum sem beinast að stjórnvöldum og er ísland.is vísir að því. Á fundi ríkisstjórnar í maí 2018 var staðfest sú stefna að árið 2020 skuli stafræn þjónusta verða megin leið samskipta á milli hins opinbera, almennings og fyrirtækja. Þá segir enn fremur í þingsályktun nr. 22/150 frá 29. janúar 2020 að Alþingi feli fjármála- og efnahagsráðherra að stórefla vinnu er varðar tæknilega innviði Stjórnarráðsins. Með frumvarpi laga um birtingu gagna í stafrænu pósthólfi er gert ráð fyrir að heimila stjórnvöldum að senda gögn til einstaklinga og lögaðila með stafrænum hætti. Meginmarkmið fyrirhugaðs frumvarps er að lagaheimild sé til staðar svo einstaklingar sem hafa íslenska kennitölu og lögaðilar sem skráðir eru í fyrirtækjaskrá eigi sitt pósthólf. Sú aðferð að senda gögn á vegum hins opinbera með rafrænum hætti mun hafa sömu réttaráhrif og þegar bréf er í dag sent á lögheimili viðkomandi. Þegar gögn hafa verið gerð aðgengileg í pósthólfi viðtakanda teljast gögnin þar með hafa verið komið á framfæri við viðtakanda. Með áformum að frumvarpi er verið að auka þjónustu við almenning og fyrirtæki þar sem stefnt er að því að hægt verði að nálgast öll skjöl frá stjórnvöldum á einum stað sem leiðir til einföldunar, aukins hagræðis og tímasparnaðar fyrir samfélagið í heild.

S-196/2020· Áform um lagasetningu· Fjármála- og efnahagsráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 24. sep. 2020 – 8. okt. 2020· 11 umsagnir

Áform um frumvarp til laga um stafrænt pósthólf

Með frumvarpi til laga um birtingu gagna í stafrænu pósthólfi er gert ráð fyrir að heimila stjórnvöldum að senda gögn til einstaklinga og lögaðila með stafrænum hætti. Sú aðferð að senda gögn á vegum hins opinbera með rafrænum hætti mun hafa sömu réttaráhrif og þegar bréf er í dag sent á lögheimili viðkomandi.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-196/2020)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 8. október 2020
  3. Umsagnarfresti lýkur · 11 umsagnir bárust
  4. Lagt fram á Alþingi (151. þing, mál 625)
  5. Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (14. september 2021)

Alls bárust ellefu umsagnir, frá Grafíu, stéttarfélagi í prent- og miðlunargreinum, Hagsmunasamtökum heimilanna, Sambandi íslenskra sveitarfélaga, Þjóðskrá Íslands og frá fimm einstaklingum. Helst snéru athugasemdirnar að rafrænni auðkenningu og aðgengi fatlaðra og aldraðra einstaklinga að pósthólfinu. Farið yfir þær umsagnir og ábendingar sem bárust og þau atriði sem þörfnuðust skýringa hafa verið skýrð betur í greinargerð með drögum að frumvarpi til laga um stafrænt pósthólf sem birt var í samráðsgátt stjórnvalda 23.11.2020 sem mál nr. 253/2020.

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (11)
  • #1Guðmundur Gíslason

    Góðan dag. Hef verulegar áhyggjur fyrir hönd þeirra sem komnir eru á aldur og hafa aldrei tileinkað sér tölvur. Þó margir geta beðið börn eða vina til að aðstoða er bara ekkert víst að fólk vilji að aðrir séu að hnísast í sín mál og allir eiga rétt á einkamáum sínum.. Hittt atriðið er prenthlutinn. Kem sjálfur úr þeim geira og veit að þar er viðkvæm staða. Takk fyrir

  • #2Grafía-stéttarfélag í prent- og miðlunargreinum
    Reykjavík, 6. október 2020. Efni: Umsögn vegna áforms um frumvarps um stafrænt pósthólf GRAFÍA stéttarfélag í prent- og miðlunargreinum mótmælir fyrirhugaðri breytingu á útsendingu bréfasendinga á vegum stjórnvalda. Lagt er til að heimila stjórnvöldum að birta tilkynningar í stafrænu pósthólfi einstaklinga og lögaðila í stað hefðbundinna bréfasendinga og fara í stafrænt pósthólf með bréf á vegum stjórnvalda. Þrátt fyrir að eðlilegt sé að nýta tæknina og hagræða þar sem möguleiki er teljum við að ekki sé tímabært að leggja af bréfasendingar á vegum stjórnvalda. Það er sjálfsagður… Lesa alla

    Reykjavík, 6. október 2020. Efni: Umsögn vegna áforms um frumvarps um stafrænt pósthólf GRAFÍA stéttarfélag í prent- og miðlunargreinum mótmælir fyrirhugaðri breytingu á útsendingu bréfasendinga á vegum stjórnvalda. Lagt er til að heimila stjórnvöldum að birta tilkynningar í stafrænu pósthólfi einstaklinga og lögaðila í stað hefðbundinna bréfasendinga og fara í stafrænt pósthólf með bréf á vegum stjórnvalda. Þrátt fyrir að eðlilegt sé að nýta tæknina og hagræða þar sem möguleiki er teljum við að ekki sé tímabært að leggja af bréfasendingar á vegum stjórnvalda. Það er sjálfsagður réttur landsmanna að hafa val um að fá bréfpóst eða rafræna sendingu. Mikið atvinnuleysi er í prentiðnaði þessi misserin og hefur samdráttur aukist jafnt og þétt. Af 603 starfandi félagsmönnum eru 53 eða tæp 9% í atvinnuleit og þiggja 100% atvinnuleysisbætur auk þess sem 90 félagsmenn fá 50% atvinnuleysisbætur í svokallaðri hlutabótaleið stjórnvalda sem er um 7% atvinnuleysi til viðbótar og er því atvinnuleysi u.þ.b. 16,2% um þessar mundir. Þessi ráðstöfun bætir ekki stöðuna og hætt við að þessi breyting auki atvinnuleysi í greininni sem aftur skilar sér í aukunum útgjöldum ríkisins. Þannig er vandséð að breytingin skili þeirri hagræðingu sem áætluð er. Með félagskveðju, Georg Páll Skúlason, formaður GRAFÍA stéttarfélag í prent- og miðlunargreinum aðildarfélag Rafiðnaðarsambands Íslands

  • #3Tryggingastofnun - rekstur

    Meðfylgjandi er umsögn Tryggingastofnunar um áform Fjármála- og efnahagsráðuneytisins um frumvarp til laga um stafrænt pósthólf, sjá viðhengi.

  • #4Þjóðskrá Íslands

    Meðfylgjandi er umsögn Þjóðskrár Íslands vegna áforma frumvarps til laga um stafrænt pósthólf.

  • #5Sigurvin Ólafsson

    Umsögn skilað inn fyrir hönd Umslags ehf. og Burðargjalda ehf., sjá viðhengi.

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.

S-196/2020: Áform um frumvarp til laga um stafrænt pósthólf · Alviti