Beint í efni
Alviti
← Samráðsgátt
S-195/2020 · Félags- og húsnæðismálaráðuneytið

Frumvarp til laga um fæðingar- og foreldraorlof

Félagsmálaráðuneytið kynnir til umsagnar drög að nýjum heildarlögum um fæðingar- og foreldraorlof ásamt skilabréfi samstarfshóps sem vann að heildarendurskoðun laga um fæðingar- og foreldraorlof, nr. 95/2000.

Í tilefni þess að árið 2020 eru tuttugu ár liðin frá gildistöku laga nr. 95/2000, um fæðingar- og foreldraorlof skipaði félags- og barnamálaráðherra samstarfshóp í september 2019 sem hafði það hlutverk að vinna að heildarendurskoðun laga nr. 95/2000, um fæðingar- og foreldaorlof. Formaður samstarfshópsins var skipaður án tilnefningar og var hann jafnframt fulltrúi félags- og barnamálaráðherra í hópnum en auk hans áttu sæti fulltrúar frá Alþýðusambandi Íslands, Bandalagi háskólamanna, BSRB, Sambandi íslenskra sveitarfélaga, félagsmálaráðuneyti, fjármála- og efnahagsráðuneyti, Samtökum atvinnulífsins og Vinnumálastofnun. Samkvæmt skipunarbréfi var hlutverk samstarfshópsins að endurskoða lög nr. 95/2000 um fæðingar- og foreldraorlof í heild sinni og vinna að frumvarpi þess efnis. Jafnframt var gert ráð fyrir að í frumvarpinu yrði kveðið á um lengingu á samanlögðum rétti foreldra til fæðingarorlofs í tólf mánuði vegna barna sem fæðast, verða ættleidd eða tekin í varanlegt fóstur 1. janúar 2021 eða síðar. Er það í samræmi við stefnu stjórnvalda þess efnis að efla fæðingarorlofskerfið en í stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar er meðal annars gert ráð fyrir að samanlagður réttur foreldra til fæðingarorlofs verði lengdur. Hópurinn hefur nú lokið störfum og unnið að gerð frumvarps þar sem meðal annars hafa verið útfærðar þær efnislegu breytingar sem hópurinn leggur til að gerðar verði á lögunum. Í tillögum hópsins eru lagðar til ýmsar breytingar á gildandi lögum, bæði á formi og efni og því leggur hópurinn til að lagt verði fram frumvarp til nýrra heildarlaga. Í frumvarpinu eru helstu breytingarnar sem lagðar eru til á gildandi lögum eftirfarandi: Skýrsla um stöðu Fæðingarorlofssjóðs og nýtingu réttinda innan kerfisins.Lagt er til að Vinnumálastofnun verði skylt að gefa árlega út skýrslu um stöðu Fæðingarorlofssjóðs og hvernig nýtingu réttinda foreldra innan kerfisins er háttað. Skipting fæðingarorlofs/fæðingstyrks á milli foreldra. Lagt er til að skipting fæðingarorlofsréttar verði sem jöfnust á milli foreldra þannig að foreldrar geti nýtt sex mánuði hvort um sig en þó verði heimilt að framselja einn mánuð á milli foreldra sé þess óskað í því skyni að koma til móts við aðstæður fjölskyldna. Heildarlengd tímabils til nýtingar á rétti foreldra til fæðingarorlofs/fæðingarstyrks. Lagt er til að stytt verði það tímabil sem foreldrar hafa til þess að nýta rétt sinn til töku fæðingarorlofs/fæðingarstyrks. Samkvæmt gildandi lögum er þetta tímabil 24 mánuðir en lagt er til að það verði stytt í 18 mánuði. Er það meðal annars lagt til með það að markmiði að foreldrar nýti orlofið fyrstu mánuðina í lífi barns þegar það þarf á mikilli umönnun foreldra að halda. Þá er lagt er uppi með það að foreldrar nýti rétt sinn til fæðingarorlofs á því tímabili frá því að barn fæðist og þangað til því býðst dagvistun. Fram til ársins 2009 höfðu foreldrar 18 mánuði til þess að nýta rétt sinn til orlofs en árið 2009 var þessi tími lengdur í 36 mánuði. Með lagabreytingum árið 2012 var þetta tímabil stytt í 24 mánuði en í frumvarpinu er lagt til að hann verði færður aftur til fyrra horfs. Yfirfærsla fæðingarorlofs/fæðingarstyrks milli foreldra í tengslum við barnalög og barnaverndarlög. Lagt er til að frekari heimildir til yfirfærslu réttinda til fæðingarorlofs/fæðingarstyrks milli foreldra þegar annað foreldrið getur ekki af nánar tilgreindum ástæðum nýtt rétt sinn innan kerfisins. Er í fyrsta lagi um að ræða þegar ekki hefur reynst mögulegt að feðra barn samkvæmt barnalögum fyrir sýslumanni eða dómara. Þessari tillögu er meðal annars ætlað að koma til móts við aðstæður foreldra þegar sannarlega einungis eitt foreldri er til staðar. Í öðru lagi er um að ræða þau tilvik þegar foreldri er gert að sæta nálgunarbanni og/eða brottvísun af heimili samkvæmt lögum um nálgunarbann og/eða brottvísun. Lagt er til að í framangreindum tilvikum færist réttur til fæðingarorlofs/fæðingarstyrks til hins foreldrisins á fyrstu 18 mánuðum barnsins. Er hér um að ræða sambærileg sjónarmið og eru í gildandi lögum um fæðingar- og foreldraorlof hvað varðar fangelsisvist, sjúkdóma eða afleiðingar slyss. Réttur til fæðingarorlofs/fæðingarstyrks vegna andvanafæðingar eða fósturláts. Í gildandi lögum er sjálfstæður réttur hvors foreldris um sig til fæðingarorlofs/fæðingastyrks þrír mánuðir vegna andvanafæðingar eftir 22 vikna meðgöngu en ef um er að ræða fósturlát eftir 18 vikna meðgöngu eiga foreldrar sameiginlegan rétt í tvo mánuði. Lagt er til að í staðinn fyrir sameiginlegan rétt foreldra til fæðingarorlofs/fæðingastyrks eftir fósturlát verði um sjálfstæðan rétt hvors foreldris um sig að ræða. Tilkynning til atvinnurekanda um töku fæðingarorlofs. Samkvæmt gildandi lögum ber foreldrum að láta vinnuveitanda vita hafi þeir í hyggju að nýta sér rétt til fæðingarorlofs/fæðingarstyrks með að lágmarki átta vikna fyrirvari fyrir áætlaðan fæðingardag barns. Hins vegar er ekki er kveðið á um tímafresti og framkvæmd ef starfsmaður tilkynnir fyrst um töku fæðingarorlofs eftir að barn er fætt. Lagt er til að tilkynning til vinnuveitanda skuli einnig berast með átta vikna fyrirvara ef fyrsta tilkynning um töku fæðingarorlofs kemur eftir að barn er fætt. Í þeim tilvikum geti vinnuveitandi þó frestað töku fæðingarorlofsins um nokkrar vikur ef nauðsyn ber til en þó er gert ráð fyrir tilteknum undantekningum frá því, svo sem ef foreldri hyggst nýta sér rétt sinn í kjölfar veikinda barns. Tölulegar upplýsingar um nýtingu foreldraorlofs. Lagt er til að afrit af tilkynningum til vinnuveitenda um nýtingu á rétti til foreldaorlofs verði skilað til Vinnumálastofnunar svo unnt verði að fá tölulegar upplýsingar um nýtingu foreldra á þeim rétti en engar slíkar upplýsingar eru til í dag. Í frumvarpinu er jafnframt gert ráð fyrir tilteknum breytingum á gildandi lögum um fæðingar- og foreldraorlof meðal annars með það að markmiði að koma til móts við álit Umboðsmanns Alþingis, sem gert hefur ýmsar athugasemdir við lögin á undanförnum árum. Þá hafa verið lagðar til orðalagsbreytingar, ásamt breytingum á uppsetningu laganna með það að markmiði að auka á skýrleika laganna.

S-195/2020· Drög að frumvarpi til laga· Félags- og húsnæðismálaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 23. sep. 2020 – 7. okt. 2020· 253 umsagnir

Frumvarp til laga um fæðingar- og foreldraorlof

Félagsmálaráðuneytið kynnir til umsagnar drög að nýjum heildarlögum um fæðingar- og foreldraorlof ásamt skilabréfi samstarfshóps sem vann að heildarendurskoðun laga um fæðingar- og foreldraorlof, nr. 95/2000.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-195/2020)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 7. október 2020
  3. Umsagnarfresti lýkur · 253 umsagnir bárust
  4. Lagt fram á Alþingi (151. þing, mál 323)
  5. Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (13. janúar 2021)

Niðustaða málsins í stuttu máli er sú að frumvarpið tók talsverðum breytingum eftir samráðið sem má finna í endanlegu frumvarpi. Þá var það mat ráðuneytisins að sú tilhögun á skiptingu fæðingarorlofsréttar milli foreldra sem lögð er til í frumvarpinu sé til þess fallin að koma til móts við þau ólíku sjónarmið sem fram koma í framangreindum umsögnum auk þess að vera í samræmi við markmið laga um fæðingar- og foreldraorlof um að tryggja barni samvistir við báða foreldra og að gera bæði konum og körlum kleift að samræma fjölskyldu- og atvinnulíf.

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (253)
  • #1Eyjólfur Eyfells
    Sem tveggja barna faðir tel ég það æskilegast að setja ákvörðun í hendur foreldra varðandi skiptingu fæðingarorlofs. Með því að halda ennþá þrem mánuðum til skiptanna gæti því móðir barns haft það heima og á brjósti í a.m.k. fyrstu níu mánuði barnsins sem er einnig mikilvægasti tíminn fyrir móðurmjólkina. Einnig tel ég rétt að halda tveimur árum áfram sem tímabili til rétt á fæðingarorlofs. Aðstæður fólks geta verið mismunandi og því rétt að setja þá ákvörðun einnig í hendur foreldranna. Með öðrum orðum, hafa þetta sem sveigjanlegast og opnast, þannig foreldrarnir sjálfir geti ákveðið sín á mi… Lesa alla

    Sem tveggja barna faðir tel ég það æskilegast að setja ákvörðun í hendur foreldra varðandi skiptingu fæðingarorlofs. Með því að halda ennþá þrem mánuðum til skiptanna gæti því móðir barns haft það heima og á brjósti í a.m.k. fyrstu níu mánuði barnsins sem er einnig mikilvægasti tíminn fyrir móðurmjólkina. Einnig tel ég rétt að halda tveimur árum áfram sem tímabili til rétt á fæðingarorlofs. Aðstæður fólks geta verið mismunandi og því rétt að setja þá ákvörðun einnig í hendur foreldranna. Með öðrum orðum, hafa þetta sem sveigjanlegast og opnast, þannig foreldrarnir sjálfir geti ákveðið sín á milli hvernig sé best að haga sínum málum.

  • #2Heiðdís Geirsdóttir
    Samkvæmt grein (https://kjarninn.is/skyring/2017-04-05-enn-faerri-fedur-taka-faedingarorlof/) sem skirfuð var af blaðamanni Stundarinnar árið 2017 þá tóku feður að meðaltali 75 daga í fæðingarorlof árið 2016 og aðeins 11% feðra tóku fæðingarorlof í meira en þrjá mánuði. Þegar sú grein var rituð þá voru 90 dagar eða þrír mánuðir fyrir hvort foreldri og þrír mánuðir sem mátti skipta eftir því sem hentaði hverri fjölskyldu. Einnig var hámarksupphæð greiðslna mun lægri en í dag. En það eru ekki aðeins tekjur sem hafa áhrif á töku fæðingarorlofs, aðrir þættir eins og atvinnustaða, tegund starfs, áb… Lesa alla

    Samkvæmt grein (https://kjarninn.is/skyring/2017-04-05-enn-faerri-fedur-taka-faedingarorlof/) sem skirfuð var af blaðamanni Stundarinnar árið 2017 þá tóku feður að meðaltali 75 daga í fæðingarorlof árið 2016 og aðeins 11% feðra tóku fæðingarorlof í meira en þrjá mánuði. Þegar sú grein var rituð þá voru 90 dagar eða þrír mánuðir fyrir hvort foreldri og þrír mánuðir sem mátti skipta eftir því sem hentaði hverri fjölskyldu. Einnig var hámarksupphæð greiðslna mun lægri en í dag. En það eru ekki aðeins tekjur sem hafa áhrif á töku fæðingarorlofs, aðrir þættir eins og atvinnustaða, tegund starfs, ábyrgð í starfi, fjöldi barna, brjóstagjöf og svo ótal margt fleira getur haft raunveruleg áhirf á ákvarðanir um töku fæðingarorlofs. Það er deginum ljósara að stór hluti feðra er ekki að nýta sinn orlofsrétt til fulls, þó nýjustu tölur sem hafa komið fram í fjölmiðlum séu síðan 2016. Það er barninu fyrir bestu að orlofsréttur beggja foreldra sé nýttur til fulls, það er barninu fyrir bestu að báðir foreldrar taki fæðingarorlof sem hentar þeirra fjölskyldu, atvinnu og aðstæðum. Það að setja foreldrum svo fastar skorður um töku fæðingarorlofs get ég ekki séð að skili neinu öðru en lengingu orlofs kvenna, sem þýðir að konur munu fá ennþá lægri mánaðarlegar tekjur í fæðingarorlofi og feður muni ekki fullnýta rétt sinn þó einn mánuður verði framseldur til móður, þar sem þeir eru margir ekki að ljúka sínum þriggja mánaða rétti. Halda þarf þessum þremur mánuðum fyrir hvort foreldri og hvetja feður til töku fæðingarorlofs á sama tíma. Foreldrar eiga að fá að ráða hversu lengi hvort foreldri tekur fæðingarorlof, að minnsta kosti helming orlofstímans eða í sex mánuði. Ég hvet alla foreldra, verðandi foreldra, fólk sem hefur hugsað sér að verða foreldrar og aðstandendur til að skrifa umsögn við þetta frumvarp þar sem stórkostlega er verið að skreða frelsi foreldra til að haga sínu fjölskyldulífi eins og þeim best hentar.

  • #3Björg Árdís Kristjánsdóttir
    Góðan dag Það er frábært að lengja fæðingarorlof feðra í 6 mánuði en samkvæmt ráðleggingum landlæknisembættisins á barn að vera á brjósti til 12 mánaða aldurs, að pumpa sig er heljarinnar vesen og bras og tekur tíma. Svo hvernig á að koma til móts við mæður með það? Fá þær auka styrk til að kaupa brjostapumpu, því þær eru fok dýrar. Að stytta tímann í 18 mánuði finnst mér mjög knappur tími til að taka orlofið, eins fer það eftir hvenær árs barnið er fætt hvenær hentar best að taka orlof þar sem margar vinnur hafa álags punkta á ákveðnum tímum en svo er auðveldara að vera í orlofi á öðrum… Lesa alla

    Góðan dag Það er frábært að lengja fæðingarorlof feðra í 6 mánuði en samkvæmt ráðleggingum landlæknisembættisins á barn að vera á brjósti til 12 mánaða aldurs, að pumpa sig er heljarinnar vesen og bras og tekur tíma. Svo hvernig á að koma til móts við mæður með það? Fá þær auka styrk til að kaupa brjostapumpu, því þær eru fok dýrar. Að stytta tímann í 18 mánuði finnst mér mjög knappur tími til að taka orlofið, eins fer það eftir hvenær árs barnið er fætt hvenær hentar best að taka orlof þar sem margar vinnur hafa álags punkta á ákveðnum tímum en svo er auðveldara að vera í orlofi á öðrum tímum. Eins eru margir leikskólar t.d í Vesturbænum þar sem við búum sem taka aðeins við börnum frá 24 mánaða, þó að það sé gefið út að þau taki frá 18 mánaða þá hefur ekki verið pláss og mannskapur til að taka við börnum á þessum aldri. Mér finnst vanta meiri sveigjanleika í þessa tillögu, ég hefði vilja sjá 3 mánuði á hvort foreldri og 6 mánuði á milli, við eru öll mismunandi og eigum mismunandi líf - það hentar t.d manninum mínum ekki að taka mikið fæðingarorlof fyrsta árið hjá yngra barninu okkar þar sem hann var ný byrjaðir í vinnu þegar ég varð ólétt á meðan ég er atvinnulaus og hefði því vel þegið þessa mánuði. Á öðrum heimilum hentar það mömmunni að fara aftur í vinnu eftir 4 mánuði og makinn verður heima þangað til barnið fer á leikskóla. Kveðja Tveggja barna móðir úr Vesturbænum

  • #4Svala Jónsdóttir
    Ég tel að stytting sameiginlegra mánaða niður í einn mánuð sé afturför sem bitnar m.a. á börnum einstæðra mæðra. Nú er það einfaldlega svo að hluti foreldra, sérstaklega feðra, ýmist getur ekki eða vill ekki taka langt fæðingarorlof, og jafnvel ekkert orlof. Þá fá þau börn mun styttri tíma með foreldrum sínum heima en önnur börn, sem skapar misrétti og gefur börnum misgóða byrjun í lífinu. Það verður að finna jafnvægi á milli jafnréttissjónarmiða og sjónarmiða um réttindi og heilbrigði barnsins. Ef skipting 12 mánaða fæðingarorlofs væri t.d. 4-4-4, þar sem hvort foreldri ætti 4 mánuði og svo m… Lesa alla

    Ég tel að stytting sameiginlegra mánaða niður í einn mánuð sé afturför sem bitnar m.a. á börnum einstæðra mæðra. Nú er það einfaldlega svo að hluti foreldra, sérstaklega feðra, ýmist getur ekki eða vill ekki taka langt fæðingarorlof, og jafnvel ekkert orlof. Þá fá þau börn mun styttri tíma með foreldrum sínum heima en önnur börn, sem skapar misrétti og gefur börnum misgóða byrjun í lífinu. Það verður að finna jafnvægi á milli jafnréttissjónarmiða og sjónarmiða um réttindi og heilbrigði barnsins. Ef skipting 12 mánaða fæðingarorlofs væri t.d. 4-4-4, þar sem hvort foreldri ætti 4 mánuði og svo mætti deila fjórum mánuðum, myndi það tryggja jafnréttissjónarmið og einnig tryggja öllum börnum að minnsta kosti átta mánuði heima. Stytting nýtingartímans niður í 18 mánuði er líka skref aftur á bak. Því fer mjög fjarri að öll börn komist inn á leikskóla 18 mánaða. Mörg börn komast ekki inn á leikskóla fyrr en tveggja ára eða rúmlega tveggja ára. Fjölskyldur þurfa að púsla saman tímanum fram að því, og þeim á að vera treystandi til að ákveðna hvenær best er fyrir þau að taka sitt orlof. Foreldrar ættu að mega taka fæðingarorlof á fyrstu tveimur æviárum barnsins og jafnvel lengur.

  • #5Þorgeir Auðunn Karlsson
    Þessi tillaga er því miður mikil afturför í réttindum barna og foreldra þeirra. Ísland ætti að feta í fótspor Svíðþjóðar þegar kemur að fæðingarorlofi. Svíðþjóð býður hvoru foreldri 3 mánuði og að deila 10 mánðum á milli sín ( https://sweden.se/quickfact/parental-leave/ ). Ransóknir hafa gefið til kynna að þessi sveigjanleiki hafi jákvæði áhrif á þáttöku beggja kynja ( https://link.springer.com/article/10.1007/s11113-020-09574-y ). Eins og staðan er hjá mörgum fjölskyldum er annað foreldrið tekjuhærra en hitt. Það getur orðið mikil skerðing á innkomu við fæðingarorlof og því hentar ekk… Lesa alla

    Þessi tillaga er því miður mikil afturför í réttindum barna og foreldra þeirra. Ísland ætti að feta í fótspor Svíðþjóðar þegar kemur að fæðingarorlofi. Svíðþjóð býður hvoru foreldri 3 mánuði og að deila 10 mánðum á milli sín ( https://sweden.se/quickfact/parental-leave/ ). Ransóknir hafa gefið til kynna að þessi sveigjanleiki hafi jákvæði áhrif á þáttöku beggja kynja ( https://link.springer.com/article/10.1007/s11113-020-09574-y ). Eins og staðan er hjá mörgum fjölskyldum er annað foreldrið tekjuhærra en hitt. Það getur orðið mikil skerðing á innkomu við fæðingarorlof og því hentar ekki öllum fjárhagslega að báðir foreldrar fullnýti orlofstímann sinn. Ef foreldrar geta ekki hliðrað tímanum sjálfir til og frá eftir þeirra hentusemi s.s. vegna brjóstagjafar, launaskerðingar og/eða annara aðstæðna þá er verið að skerða á réttindi barnanna. Til að hafa hagsmuni barnins í leiðarljósi er besta að foreldri sé með því fram að leikskólagögnu. Því miður þá er mikil bið eftir leikskólaplássi, þá sérstaklega á höfuðborgarsvæðinu ( https://www.frettabladid.is/frettir/bidin-eftir-plassi-leikskola-mun-lengri-i-hofudborginni/ ). Sem dæmi sé ég ekki fram á að dóttir mín komist inn á leikskóla fyrr en um 20-23 mánaða. Þessi tillaga að stytta tímablilið niður í 18 mánuði kemur sér afar illa á meðan ástandið er svona.

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.

S-195/2020: Frumvarp til laga um fæðingar- og foreldraorlof · Alviti