Beint í efni
Alviti
← Samráðsgátt
S-205/2020 · Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Drög að frumvarpi til laga um reglubundna og viðvarandi upplýsingaskyldu útgefenda verðbréfa

Fjármála- og efnahagsráðuneytið birtir til umsagnar drög að nýjum heildarlögum um reglubundna og viðvarandi upplýsingaskyldu útgefenda verðbréfa. Með frumvarpinu eru viðkomandi ákvæði laga um verðbréfaviðskipti, nr. 108/2007, felld brott.

Með frumvarpi þessu er lagt til að sett verði ný heildarlög um reglulega upplýsingaskyldu útgefenda verðbréfa. Frumvarpið byggir á tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2004/109/EB frá 15. desember 2004 (hér eftir tilskipun 2004/109/EB eða gagnsæistilskipunin) með síðari breytingum. Tilskipunin mælir einkum fyrir um samræmingu reglna um birtingu reglulegra upplýsinga um útgefendur verðbréfa sem tekin hafa verið til viðskipta á skipulegum verðbréfamarkaði og um birtingu upplýsinga um breytingu á verulegum hlut atkvæðisréttar í slíkum útgefendum. Markmið tilskipunarinnar er að samræma kröfur um skyldu útgefenda til að veita upplýsingar og stuðla með því að raunverulegum innri markaði og víðtækri vernd fyrir fjárfesta. Gagnsæistilskipunin hefur þegar verið innleidd sem hluti af annars vegar lögum um verðbréfaviðskipti, nr. 108/2007 og hins vegar lögum um ársreikninga, nr. 3/2006. Með hliðsjón af þeim öru breytingum sem hafa átt sér stað á lagaumhverfi fjármálamarkaðar er talið heppilegra að fella viðkomandi ákvæði verðbréfaviðskiptalaga brott og setja ný heildarlög um reglulega upplýsingaskyldu útgefanda verðbréfa í stað þess að leggja fram frumvarp til breytinga á lögum verðbréfaviðskipti. Ekki var talið tilefni til að gera breytingar á þeim ákvæðum gagnsæistilskipunarinnar sem innleidd voru með lögum um ársreikninga, nr. 3/2006.

S-205/2020· Drög að frumvarpi til laga· Fjármála- og efnahagsráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 1. okt. 2020 – 16. okt. 2020· 3 umsagnir

Drög að frumvarpi til laga um reglubundna og viðvarandi upplýsingaskyldu útgefenda verðbréfa

Fjármála- og efnahagsráðuneytið birtir til umsagnar drög að nýjum heildarlögum um reglubundna og viðvarandi upplýsingaskyldu útgefenda verðbréfa. Með frumvarpinu eru viðkomandi ákvæði laga um verðbréfaviðskipti, nr. 108/2007, felld brott.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-205/2020)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 16. október 2020
  3. Umsagnarfresti lýkur · 3 umsagnir bárust
  4. Lagt fram á Alþingi (151. þing, mál 341)
  5. Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (16. júní 2021)

Tekin var afstaða til þeirra umsagna sem bárus og er um það fjallað í 5. kafla greinargerðar með lögum nr. 20/2021 um reglubundna og viðvarandi upplýsingaskyldu útgefenda verðbréfa og flöggunarskyldu.

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (3)

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.

S-205/2020: Drög að frumvarpi til laga um reglubundna og viðvarandi upplýsingaskyldu útgefenda verðbréfa · Alviti