Beint í efni
Alviti
← Samráðsgátt
S-212/2020 · Heilbrigðisráðuneytið

Áform um frumvarp til laga um breytingu á sóttvarnalögum, nr. 19/1997 (opinberar sóttvarnaráðstafanir)

Áformað er að leggja til breytingu á sóttvarnalögum, nr. 19/1997. Frestur til að skila inn umsögnum er til og með 21. október nk.

Áform um lagasetningu sem hér eru til kynningar og samráðs eru samin af starfshópi heilbrigðisráðherra sem falið er að skrifa drög að frumvarpi til laga um breytingu á sóttvarnalögum nr. 19/1997. Frestur til að skila inn umsögnum er til og með 21. október nk. Á þingmálaskrá heilbrigðisráðherra fyrir 151. löggjafarþing er áætlað að leggja fram frumvarp til laga um breytingu á sóttvarnalögum, nr. 19/1997. Ráðherra áætlar að mæla fyrir frumvarpinu í janúar 2021. Tilgangur frumvarpsins er endurskoðun á IV. kafla laganna um opinberar sóttvarnaráðstafanir, og eftir atvikum á öðrum ákvæðum laganna, á grundvelli fenginnar reynslu. Lagt verður til að skýra betur þau úrræði sem sóttvarnalæknir og ráðherra geta gripið til vegna hættu á farsóttum til eða frá Íslandi, innan lands og hættu á útbreiðslu smits frá einstaklingum, sem og að tryggja betur réttaröryggi borgaranna, svo sem með rétti til að kæra ákvarðanir til æðra stjórnvalds og fá úr þeim skorið hjá dómstólum. Um þessi atriði og fleiri er fjallað í álitsgerð Páls Hreinssonar, dags. 20. september 2020, um valdheimildir sóttvarnalæknis og heilbrigðisráðherra til opinberra sóttvarnaráðstafana (sjá fylgiskjal með áformum). Gert er ráð fyrir að álitsgerðin verði lögð til grundvallar vinnu starfshópsins. Frestur til að skila inn umsögnum er til og með 21. október nk.

S-212/2020· Áform um lagasetningu· Heilbrigðisráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 7. okt. 2020 – 21. okt. 2020· 0 umsagnir

Áform um frumvarp til laga um breytingu á sóttvarnalögum, nr. 19/1997 (opinberar sóttvarnaráðstafanir)

Áformað er að leggja til breytingu á sóttvarnalögum, nr. 19/1997. Frestur til að skila inn umsögnum er til og með 21. október nk.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-212/2020)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 21. október 2020
  3. Umsagnarfresti lýkur · 0 umsagnir bárust
  4. Lagt fram á Alþingi (151. þing, mál 329)
  5. Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (26. nóvember 2020)

Samráði lokið. Engar athugasemdir bárust og málinu lokið í ráðuneytinu. Ráðherra mælti fyrir frumvarpinu þann 25. nóvember 2020, sjá 329. mál á Alþingi: https://www.althingi.is/thingstorf/thingmalalistar-eftir-thingum/ferill/?ltg=151&mnr=329

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt

Engar umsagnir hafa borist.

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.

S-212/2020: Áform um frumvarp til laga um breytingu á sóttvarnalögum, nr. 19/1997 (opinberar sóttvarnaráðstafanir) · Alviti