Áform um frumvarp til breytingu á lögum um skilameðferð lánastofnana og verðbréfafyrirtækja (forgangsröð krafna við skila- og slitameðferð)
Fjármála- og efnahagsráðherra áformar að leggja fram frumvarp til laga um breytingu á lögum, nr. 70/2020, um skilameðferð lánastofnana og verðbréfafyrirtækja (forgangsröð krafna við skila- og slitameðferð). Frumvarpið mun innleiða tilskipun (ESB) 2017/2399 um rétthæð ótryggðra skuldagerninga við meðferð vegna ógjaldfærni.
Ferill í Samráðsgátt
- Umsagnarfrestur hefst · til 8. október 2020
- Birt í Samráðsgátt (S-199/2020)
- Umsagnarfresti lýkur · 1 umsögn barst
- Niðurstöður samráðs birtar
- Lagt fram á Alþingi (151. þing, mál 570)
Niðurstöður samráðs (11. nóvember 2020)
Ein umsögn barst um áformin frá Hagsmunasamtökum heimilanna þar sem lagt er til að kröfur sem Tryggingarsjóður innstæðueigenda og fjárfesta kann að eignast, komi til greiðslu úr sjóðnum, ásamt öllum kröfum neytenda á hendur föllnu fjármálafyrirtæki njóti lögveðsréttar. Fjármála- og efnahagsráðherra svaraði fyrirspurn um sambærilegt efni og fram kemur í umsögninni á 149. löggjafarþingi (þingskjal 1986 – 742. mál). Gert verður grein fyrir viðbrögðum ráðuneytisins í 5. kafla greinargerðar frumvarpsins sem birt verður í samráðsgáttinni innan skamms.
Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (1)
- #1Hagsmunasamtök heimilanna
Sjá viðhengi.
Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.