Frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 98/2004, um jöfnun kostnaðar við dreifingu raforku (verðlagshækkun jöfnunargjalds raforku)
Með frumvarpinu er lögð til verðlagshækkun á jöfnunargjaldi raforku, frá upptöku þess 2015. Frumvarpið er, ásamt sérstöku framlagi á fjárlögum, liður í aukinni jöfnun dreifikostnaðar raforku í dreifbýli.
Ferill í Samráðsgátt
- Birt í Samráðsgátt (S-208/2020)
- Umsagnarfrestur hefst · til 20. október 2020
- Umsagnarfresti lýkur · 1 umsögn barst
- Lagt fram á Alþingi (151. þing, mál 336)
- Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (15. desember 2021)
Frumvarp lagt fram á Alþingi og afgreitt sem lög 2020
- Frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 98/2004, um jöfnun kostnaðar við dreifingu raforku (verðlagshækkun jöfnunargjalds raforku)
- Áform um lagasetningu
Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (1)
- #1Sveitarfélagið Skagafjörður
Byggðarráð Sveitarfélagsins Skagafjarðar fagnar mikilvægu skrefi sem felst í frumvarpi um aukið framlag til jöfnunar dreifikostnaðar raforku á milli dreifbýlis og þéttbýlis. Mikilvægt er að þessi framlög aukist verulega samhliða því sem unnið verði að því að tryggja afhendingaröryggi raforku og átaki í þrífösun rafmagns á landinu öllu. Byggðarráð Sveitarfélagsins Skagafjarðar leggur mikla áherslu á þörf er á að ganga enn lengra í þessa átt og að unnið verði markvisst að því að ná fullum jöfnuði á kostnaði við dreifingu raforku á milli dreifbýlis og þéttbýlis og að lögum verði breytt í því sky… Lesa alla
Byggðarráð Sveitarfélagsins Skagafjarðar fagnar mikilvægu skrefi sem felst í frumvarpi um aukið framlag til jöfnunar dreifikostnaðar raforku á milli dreifbýlis og þéttbýlis. Mikilvægt er að þessi framlög aukist verulega samhliða því sem unnið verði að því að tryggja afhendingaröryggi raforku og átaki í þrífösun rafmagns á landinu öllu. Byggðarráð Sveitarfélagsins Skagafjarðar leggur mikla áherslu á þörf er á að ganga enn lengra í þessa átt og að unnið verði markvisst að því að ná fullum jöfnuði á kostnaði við dreifingu raforku á milli dreifbýlis og þéttbýlis og að lögum verði breytt í því skyni. Fyrir hönd byggðarráðs Sveitarfélagsins Skagafjarðar, Sigfús Ingi Sigfússon, sveitarstjóri
Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.