Beint í efni
Alviti
← Samráðsgátt
S-200/2020 · Dómsmálaráðuneytið

Frumvarp til breytinga á áfengislögum, sala á framleiðslustað

Með frumvarpinu eru lagðar til breytingar á áfengislögum sem fela í sér undanþágu frá einokun Áfengis- og tóbaksverslunar ríkisins á smásölu áfengis til neytenda þannig heimilaðar verði innlendar vefverslanir með áfengi í smásölu til neytenda og sala á framleiðslustað með þeim takmörkununum sem í frumvarpinu greinir.

Áform um þessa lagasetningu voru birt á samráðsgátt í desember 2019. Í febrúar 2020 var birt frumvarp til breytinga á áfengislögum þar sem lagt var til að heimilaður yrði rekstur innlendra vefverslana með áfengi í smásölu til neytenda og boðað var að áfram yrði unnið að frumvarpi til breytinga í þá vegu að heimila minni áfengisframleiðendum sölu á eigin framleiðslu á framleiðslustað. Frumvarp þetta er því að mestu óbreytt hvað varðar vefverslun með áfengi til neytenda og er vísað til birtingar í febrúar sbr. mál 35/2020 hvað það varðar. Nú hefur bæst við, svo sem boðað var í áformaskjalinu, að lagt er til að smærri brugghúsum verði gert kleift að selja áfengt öl í smásölu á framleiðslustað. Við gerð frumvarpsins var m.a. horft til lagasetningar í Norðurlöndunum en í nágrannalöndum Íslands er smærri brugghúsum almennt heimilt að selja áfengt öl í smásölu, þó með mismunandi takmörkunum. Sérstaklega var horft til lagasetningar í Finnlandi en árið 2018 tóku gildi lög þar í landi sem heimila sölu áfengs öls á framleiðslustað í smásölu til neytenda með ákveðnum takmörkunum. Á undanförnum áratug hefur átt sér stað mikil fjölgun smærri brugghúsa, svokallaðra handverksbrugghúsa, um allt land. Handverksbrugghús eru brugghús sem eru í eðli sínu smá og leggja áherslu á minni framleiðslu, gæði og sjálfstæði. Árið 2018 voru stofnuð Samtök íslenskra handverksbrugghúsa og eru á þriðja tug smærri brugghúsa meðlimir í samtökunum. Samhliða auknum vexti innlendra brugghúsa hefur eftirspurn og áhugi almennings á innlendri áfengisframleiðslu aukist. Endurspeglast það m.a. í umtalsverðri fjölgun á íslenskum áfengisafurðum, þá sérstaklega áfengu öli. Með frumvarpinu er leitast við að styðja við áframhaldandi vöxt og þróun á rekstrarumhverfi smærri brugghúsa á Íslandi. Smærri brugghús hafa á síðastliðnum árum byggt upp ferðamennsku í kringum rekstur sinn. Á það sérstaklega við á landsbyggðinni en flest störf í tengslum við smærri brugghús eru utan höfuðborgarsvæðisins. Algengt er að brugghús bjóði upp á skipulagðar kynnisferðir um framleiðslustaði gegn gjaldi. Í slíkum ferðum eru afurðir kynntar og er gestum boðið að kaupa áfengi á grundvelli vínveitingarleyfis til neyslu á staðnum. Aftur á móti mega sömu gestir ekki kaupa sér áfengi í smásölu, þ.e. í neytendaumbúðum, frá brugghúsinu til þess að taka með sér heim. Í frumvarpinu er lagt til að slík sala verði heimil. Enn fremur hefur borið á því að erfitt sé fyrir smærri brugghús að fá vörur sínar seldar í verslunum Áfengis- og tóbaksverslunar ríkisins, jafnvel nærri framleiðslustað. Þá geti það verið sérstaklega erfitt í tilviki áfengistegunda sem eru framleiddar einungis tímabundið eða í litlu magni. Smærri brugghús eru oft með fjölbreytt úrval öltegunda sem framleiddar eru í litlu magni eða tímabundið. Hefur það skapað samkeppnisumhverfi þar sem hallar á smærri brugghús, sem eiga umtalsvert erfiðara með að selja vörur sínar til neytenda en stærri samkeppnisaðilar. Þannig kann rekstur áfengisframleiðanda að standa og falla með því að fá vörur sínar seldar í verslunum Áfengis- og tóbaksverslunar ríkisins. Með frumvarpinu er leitast til við að jafna stöðu smærri brugghúsa við þau stærri hvað þetta varðar. Þrátt fyrir að á þriðja tug brugghúsa séu meðlimir í Samtökum íslenskra handverksbrugghúsa þá er áfengisframleiðsla téðra brugghúsa ekki stórt hlutfall af heildaráfengisframleiðslu framleiðsluleyfishafa á Íslandi. Þessi undanþága frá einkaleyfi Áfengis- og tóbaksverslunar ríkisins á smásölu áfengis er því þröng og mun fela í sér tiltölulega litla aukningu á áfengisútsölustöðum. Gera má ráð fyrir að sala á grundvelli framleiðslusöluleyfis eigi sér fyrst og fremst stað í tengslum við ferðaþjónustu hjá leyfishafa. Í frumvarpinu er lagt til að smásala áfengs öls verði heimiluð á framleiðslustað að tilteknum skilyrðum uppfylltum og gilda aldurstakmörk sbr. 18. áfengislaga um sölu á áfengi á framleiðslustað eins og annarsstaðar. Þeir handhafar framleiðsluleyfa, sem framleiða minna en 500.000 lítra af áfengi á almanaksári, munu geta fengið framleiðslusöluleyfi. Framleiðslusöluleyfi mun gera handhafa leyfisins kleift að selja áfengt öl, gerjað úr möltuðu eða ómöltuðu korni, sem inniheldur ekki meira en 12% af hreinum vínanda að rúmmáli, á framleiðslustað. Markmið þessarar breytingar er að styðja við smærri brugghús og jafna samkeppnisstöðu þeirra við stærri áfengisframleiðendur. Talið er að sanngjarnasta leiðin til þess að skilja að á milli smærri og stærri brugghúsa sé að miða við heildarframleiðslu áfengis á almanaksári.

S-200/2020· Drög að frumvarpi til laga· Dómsmálaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 28. sep. 2020 – 12. okt. 2020· 147 umsagnir

Frumvarp til breytinga á áfengislögum, sala á framleiðslustað

Með frumvarpinu eru lagðar til breytingar á áfengislögum sem fela í sér undanþágu frá einokun Áfengis- og tóbaksverslunar ríkisins á smásölu áfengis til neytenda þannig heimilaðar verði innlendar vefverslanir með áfengi í smásölu til neytenda og sala á framleiðslustað með þeim takmörkununum sem í frumvarpinu greinir.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-200/2020)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 12. október 2020
  3. Umsagnarfresti lýkur · 147 umsagnir bárust
  4. Niðurstöður samráðs birtar
  5. Lagt fram á Alþingi (151. þing, mál 504)
Niðurstöður samráðs (2. desember 2020)

Alls bárust 147 umsagnir við frumvarpið. Frumvarpið fór til frekari vinnslu í ráðuneytinu.

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (147)
  • #1Helgi Sigurðsson
    Við erum á Borgarfirði eystri og rekum KHB Bruggús. Hér erum við að framleiða sterkt áfengi, þeas Landa og Gin, og svo hefja framleiðslu á bjór á vormánuðum 2021. Sterka áfengið er 38-40%. Þetta er handverksáfengi, þeas við framleiðum ALLT frá grunni. Við erum ekki að flytja inn 96% etanól líkt og mörg fyrirtæki eru að gera og breyta því svo í sína drykki. Allt unnið frá grunni og Landinn framleiddur eftir gamallri Borgfirskri uppskrift. Það er afskaplega mikilvægt fyrir okkur og okkar framleiðslu að hafa möguleika á að selja gestum og viðskiptavinum vöruna okkar beint og milliliðalaust. Þett… Lesa alla

    Við erum á Borgarfirði eystri og rekum KHB Bruggús. Hér erum við að framleiða sterkt áfengi, þeas Landa og Gin, og svo hefja framleiðslu á bjór á vormánuðum 2021. Sterka áfengið er 38-40%. Þetta er handverksáfengi, þeas við framleiðum ALLT frá grunni. Við erum ekki að flytja inn 96% etanól líkt og mörg fyrirtæki eru að gera og breyta því svo í sína drykki. Allt unnið frá grunni og Landinn framleiddur eftir gamallri Borgfirskri uppskrift. Það er afskaplega mikilvægt fyrir okkur og okkar framleiðslu að hafa möguleika á að selja gestum og viðskiptavinum vöruna okkar beint og milliliðalaust. Þetta er sannkallað "beint frá býli" dæmi. Heima-afurð byggð á aldragamallri uppskrift. Það er erfitt að koma framleiðslunni okkar á framfæri og markaðurinn á þessum sterka áfengis-markaði þeim mun harðari en léttöls markaðurinn. Með von um góðar viðtökur, Helgi Sigurðsson

  • #2Emil Bjarni Karlsson
    Við samþykkt laga um heimild til póstverslunar með áfengi er mikilvægt að huga að stöðu lítilla dagvöruverslana í strjálbýli. Það yrði mikil lyftistöng fyrir litlar verslanir á landsbyggðinni að fá heimild til að annast milligöngu um pöntun og afhendingu áfengis fyrir íbúa þeirra staða sem ekki hafa Vínbúð. Litlar dreifbýlisverslana berjast oft í bökkum til að lifa af við að þjónusta íbúa staðanna og þessi viðbótarþjónusta myndi styrkja rekstrargrunn þeirra. Í athugasemdum um frumvarpið er vísað til þess að fara sömu leið og hinar Norðurlandaþjóðirnar í þessum efnum. Þar hefur einmitt… Lesa alla

    Við samþykkt laga um heimild til póstverslunar með áfengi er mikilvægt að huga að stöðu lítilla dagvöruverslana í strjálbýli. Það yrði mikil lyftistöng fyrir litlar verslanir á landsbyggðinni að fá heimild til að annast milligöngu um pöntun og afhendingu áfengis fyrir íbúa þeirra staða sem ekki hafa Vínbúð. Litlar dreifbýlisverslana berjast oft í bökkum til að lifa af við að þjónusta íbúa staðanna og þessi viðbótarþjónusta myndi styrkja rekstrargrunn þeirra. Í athugasemdum um frumvarpið er vísað til þess að fara sömu leið og hinar Norðurlandaþjóðirnar í þessum efnum. Þar hefur einmitt verið hugað að styrkingu dreifbýlisverslana. Í Svíþjóð, þar sem ríkið hefur einkaleyfi á sölu áfengis líkt og hér á landi, hafa stjórnvöld heimilað Vínbúðinni (Systembolaget) að póstsenda áfengi til viðskiptavina rétt eins og netverslanir gera. Heimildin tók gili 1. júlí 2019. Í heimildinni felst einnig að einstaklingar geta sótt áfengið til umboðsaðila. Þannig geta litlar verslanir á landsbyggðinni haft umsjón með pöntun áfengis fyrir íbúa byggðalagsins og aðra þá einstaklinga sem kjósa að panta frá áfengisversluninni og sækja pöntunina í verslun staðarins. Þessi ákvörðun sænskra yfirvalda byggir á tilraunaverkefni sem stóð yfir í nokkur ár og þótti hafa jafnað rétt þeirra sem búa í fámennum byggðalögum við þá sem búa í þéttbýli og hafa auðveldara aðgengi að Vínbúðum. Niðurstöður úttektar á tilraunaverkefninu voru þær að einkar vel hafi tekist til. Þess vegna var skrefið verið tekið til fulls með heimild áfengiseinkasölunnar um að selja ekki aðeins áfengi í smásölu í Vínbúðum heldur að heimila einnig sendingu á vörum þannig að aðstaða kaupenda sé jöfnuð hvar sem þeir búa í landinu. Undirritaður hefur um árabil unnið að ráðgjöf og stuðningsverkefnum við litlar verslanir, bæði sem fyrrum forstöðumaður Rannsóknaetur verslunarinnar og í seinni tíð í samvinnu við Byggðastofnun. Í þessari vinnu hefur komið fram að til að hægt sé að halda úti þessum litlu verslunum er nauðsynlegt að færa sem flestar stoðir undir reksturinn því ekki nægir að reka verslun í byggðalögum með nokkrum tugum íbúa aðeins með því að selja brýnustu matvörur. Fleira þarf að koma til. Þannig væri milliganga um pöntun og afhendingu á áfengi kærkomin viðbót við sölu þessara verslana. Að mínu mati væri eðlilegt að í þessum tilvikum pantaði viðkomandi landsbyggðaverslun áfengi á heildsöluverði frá ÁTVR og hefði sömu álagningu og Vínbúðin. Þannig fengju viðskiptavinir á landsbyggðinni áfengi á sama verði og þeir sem versla í Vínbúðum, og dreifbýlisverslunin fengi álagninguna í sinn hlut.

  • #3Geir Bjarnason
    5. október 2020 Umsögn Foreldrafélags gegn áfengisauglýsingum 150. löggjafarþing 2019–2020. Þingskjal x — x. mál. Stjórnarfrumvarp. Frumvarp til laga um breytingu á áfengislögum, nr. 75/1998, með síðari breytingum (vefverslun með áfengi). Áfengisneysla hefur mikil áhrif á líf fólks á Íslandi. Samkvæmt skýrslu Evrópuskrifstofu Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar er áfengisneysla á meðal þeirra 10 þátta sem hafa mest áhrif á dánartíðni Íslendinga. Í Evrópuskýrslu Alþjóðaheilbrigðismálastofnunar eru birtar mælingar á áhrifum ólíkra aðferða við að draga úr vandamálum tengdum áfeng… Lesa alla

    5. október 2020 Umsögn Foreldrafélags gegn áfengisauglýsingum 150. löggjafarþing 2019–2020. Þingskjal x — x. mál. Stjórnarfrumvarp. Frumvarp til laga um breytingu á áfengislögum, nr. 75/1998, með síðari breytingum (vefverslun með áfengi). Áfengisneysla hefur mikil áhrif á líf fólks á Íslandi. Samkvæmt skýrslu Evrópuskrifstofu Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar er áfengisneysla á meðal þeirra 10 þátta sem hafa mest áhrif á dánartíðni Íslendinga. Í Evrópuskýrslu Alþjóðaheilbrigðismálastofnunar eru birtar mælingar á áhrifum ólíkra aðferða við að draga úr vandamálum tengdum áfengisneyslu. Þar kemur fram að heildaráfengisneysla þjóðar hefur áhrif á heilbrigði og sjúkdóma. Aukning eða minnkun áfengisneyslu hefur bein áhrif á tíðni ákveðinna sjúkdóma og dauðsfalla. Stjórnun á aðgengi og eftirlit með framboði áfengis hafa, samkvæmt Evrópuskýrslunni, reynst árangursríkustu og hagkvæmustu leiðirnar til þess að koma í veg fyrir skaða af völdum þess. Margar rannsóknir ýta undir það að álagning skatta, takmörkun fjölda sölustaða og takmarkaður sölutíma virki einna best. Aldurstakmarkanir á áfengiskaupum virðist vera leið sem hefur dregið úr unglingadrykkju auk breyttra viðhorfa í samfélaginu. Norðurlönd utan Danmörku hafa sambærilega stefnu varðandi sölu á áfengi sem snýr að samfélagslegri ábyrgð. Á þessum stöðum eru einkasala ríkisins sem hefur það meðal annars að markmiði að takmarka aðgengi og draga úr skaða af völdum neyslunnar. Í þessum löndum eru reglugerðir sem koma í veg fyrir sölu áfengis til ungs fólk. Sala áfengis snýst ekki um að hámarka hagnað. Áfengiseinokunarsölurnar sýna hlutleysi í markaðssetningu og almennt er spornað gegn auglýsingum og almennri markaðssetningu. Þetta fyrirkomulag hefur gengið ágætlega og ríkir almenn sátt um það. Því er óljóst hvaða samfélagslegi ávinningur felst í því að breyta þessu fyrirkomulagi og byrja að selja áfengi í vefverslunum? Í okkar þjóðfélagi er eðlilegt að aðgengi að hættulegum vörum sé takmarkað. Lyf, byssur, eitur, sprengjur, gas og tóbak eru meðal annars vörur sem við getum ekki keypt í næsta stórmarkaði. Það er eflaust einhver hópur sem vill aukið aðgengi að þessum vörum en aukið aðgengi landsmanna að þessum vörum mun trúlega þýða aukna misnotkun og jafnvel takmarkaðra vöruúrval. Er ekki eðlilegt að vörur sem eru hættulegar lúti reglum sem takmarkar aðgengi að þeim? Áfengi er hættulegt, það er misnotað, það hefur áhrif á fleiri aðila en þann sem neytir þess. Það liggur alveg fyrir og allir átta sig á því að aukið aðgengi að vörum þýðir að öðru jöfnu aukna neyslu. Því mun frumvarpið, ef það verður samþykkt auka neyslu landsmanna á áfengi og því mælum við gegn því að það verði samþykkt. Ætla má að auglýsingar og önnur markaðssetning á áfengi muni aukast til muna. Því miður sanna dæmin að margir framleiðendur og söluaðilar áfengis hafa ekki virt þau lög eða teygt á þeim sem gilda varðandi auglýsingabann. Með harðnandi samkeppni og auknu aðgengi sem lögin fela í sér má auðveldlega ætla að öll markaðssetning verði aukin. Fleiri auglýsingar, hvort sem þær eru beinar eða óbeinar munu á einhvern hátt beinast að saklausum börnum, unglingum og þeim sem eru áhrifagjarnir. Varla þarf að minna á þann árangur sem náðst hefur varðandi unglingadrykkju. Slíkan árangur þarf að viðhalda og halda þarf áfram með öflugt fyrirbyggjandi starf fyrir eldri aldurshópa milli 16 og 19 ára. Áfengi er ekki vara eins og matvara heldur sem efni sem við þurfum að umgangast með aðgát. Lög okkar eiga að leggja áhersla á að takmarka aðgengi að áfengi og vernda sérstaklega hópa eins og börn og unglinga. Foreldrafélag gegn áfengisauglýsingum telur því fátt mæla með því að breyta fyrirkomulagi varðandi sölu áfengis og leggst gegn frumvarpinu. Fyrir hönd stjórnar Geir Bjarnason Gjaldkeri Foreldrasamtaka gegn áfengisauglýsingum

  • #4Samtök íslenskra handverksbrugghúsa
    Samtök íslenskra handverksbrugghúsa eru hagsmunasamtök 22 handverksbrugghúsa um land allt. Brugghúsin eru smá, hafa gæði og frumleika að markmiði og þau leitast við að gera úrvals vörur í nánu samstarfi við sitt nærumhverfi. Þau skapa atvinnu fyrir allt að 200 manns, auka lífsgæði í sínu héraði og stuðla að aukinni ferðamennsku með því að laða til sín gesti sem vilja heimsækja brugghús og upplifa vörur gerðar á þeim svæðum sem þeir sækja heim. Íslensk handverksbrugghús búa nú við mun strangari skorður til að koma vöru sinni á markað heldur en tíðkast í löndum sem við viljum berum okkur saman… Lesa alla

    Samtök íslenskra handverksbrugghúsa eru hagsmunasamtök 22 handverksbrugghúsa um land allt. Brugghúsin eru smá, hafa gæði og frumleika að markmiði og þau leitast við að gera úrvals vörur í nánu samstarfi við sitt nærumhverfi. Þau skapa atvinnu fyrir allt að 200 manns, auka lífsgæði í sínu héraði og stuðla að aukinni ferðamennsku með því að laða til sín gesti sem vilja heimsækja brugghús og upplifa vörur gerðar á þeim svæðum sem þeir sækja heim. Íslensk handverksbrugghús búa nú við mun strangari skorður til að koma vöru sinni á markað heldur en tíðkast í löndum sem við viljum berum okkur saman við. Þau mega eingöngu selja vörur sem ekki á að neyta á veitingastað eða bar í gegnum ríkisverslun með áfengi. Á öðrum Norðurlöndum hefur sú leið verið farin að leyfa litlum framleiðendum að selja beint til neytenda, þrátt fyrir að almennt sé áfengissala í öllum þessum löndum utan Danmerkur með svipuðu fyrirkomulagi og á Íslandi. Ráðherra hyggst leggja fram frumvarp sem mun heimila litlum brugghúsum sem framleiða áfengi úr möltuðu eða ómöltuðu korni, allt að 500 þúsund lítra á ári, að selja áfengi allt að 12% alc/vol beint til kaupenda með sérstöðu framleiðslusöluleyfi. Einnig að heimila innlendum aðilum að selja áfengi í póstverslun. Samtök íslenskra handverksbrugghúsa fagnar þessum skrefum í megindráttum, vísar þar í umsögn um Mál nr. 296/2019 Birt: 29.11.2019. Í núverandi frumvarpi er sjónarmiðum Samtakanna sem þar koma fram vel gerð skil, enda eru Samtökin í megin dráttum sammála þessu frumvarpi, en hafa ábendingar um frekari útfærslu einstakra atriða. Samtök íslenskra handverksbrugghúsa setja 3 skilyrði fyrir aðild: stærð, eignarhald og áherslu á gæði. Handverksbrugghús starfa af ástríðu, leggja metnað og kraft í að gera vandaða vöru og því hafa þau öll gæði að leiðarljósi. Við stærð er miðað við að framleiðandi hafi leyfi til áfengisframleiðslu og framleiði innan við eina milljón lítra af bjór á ári, eða samsvarandi af öðru áfengi, sem ætla má að sé um 3,5% ársframleiðslu bjórs á Íslandi. Þá miðar eignarhald við að félagið geti að hámarki verið 25% í eigu stærri áfengisframleiðanda. Í reynd eru allir aðilar að Samtökunum sjálfstæðir framleiðendur sem tengjast ekki stórum innlendum eða erlendum framleiðendum. Af 22 aðilum í Samtökunum eru 19 brugghús sem framleiða bjór úr möltuðu eða ómöltuðu korni. Samanlögð árleg framleiðsla þeirra er áætluð um 1,25 milljón lítra af bjór, sem samsvarar um 4% af bjórmarkaði á Íslandi. Áætluð meðalstærð brugghúsana er 66 þúsund lítrar og miðgildi 30 þúsund lítrar á ári. Allir þessir 19 bjórframleiðendur framleiða minna en 125 þúsund lítra á ári fyrir utan Bruggsmiðjuna Kalda á Ársskógssandi, sem framleiðir meira en 500 þúsund lítra á ári. Kaldi er frumkvöðull á innlendum markaði, elsta sjálfstæða handverksbrugghúsið á Íslandi sem enn er starfandi, og lang stærst af öllum óháðu handveksbrugghúsunum, með um helming allrar framleiðslu litlu brugghúsanna. Ef mörk fyrir útgáfu framleiðslusöluleyfis eru miðuð við 500 þúsund lítra myndi það útiloka þennan eina aðila Samtakanna frá því að fá leyfið á grundvelli stærðar. Auk þessara 19 bjórframleiðenda eru 3 framleiðendur sem framleiða annars konar áfengi; einn framleiðir mjöð úr hunangi, einn framleiðir létt og sterk vín úr íslenskum berjum og öðru íslensku hráefni, og einn framleiðir eimaða drykki frá grunni úr íslensku byggi. Frumvarpið mun útiloka þessa aðila frá því að fá framleiðslusöluleyfi á grundvelli þess að þeir framleiða ekki bjór; þ.e. áfengi sem ekki er gert úr möltuðu og ómöltuðu korni, eða að áfengisprósentan er yfir 12%. Þá væri óskandi að handhafi framleiðslusöluleyfis gæti einnig fengið tímabundið leyfi til að selja vörur sínar utan framleiðslustaðar, t.d. á matarmörkuðum, bjórhátíðum og öðrum slíkum samkomum. Það myndi auka fjölbreytileika slíkra markaða og hátíða, þar sem oft fer saman pörun á mat og drykk í háum gæðaflokki. Að öðru leyti hafa Samtökin ekki athugasemdir við frumvarpið. Frumvarpið munu færa Ísland til samræmis við það sem tíðkast í löndum sem við viljum bera okkur saman við, enda tíðkast slíkt fyrirkomulag á beinni sölu til neytenda á öllum öðrum Norðurlöndunum, sem og löndum vestur Evrópu. Þá mun þetta fyrikomulag styðja við litlu brugghúsin í landinu til að vaxa og dafna, treysta grundvöll fjölda manns sem hafa beinar eða óbeinar tekjur af handverksbrugghúsum, auka fjölbreitni og ferskleika fyrir neytendur, hjálpa við að gera Ísland enn eftirsóttara í augum gesta sem sækja okkur heim, og stuðla að betri áfengismenningu með því að taka burt hindranir fyrir framleiðendur til að koma vöru sinni á markað. Á tímum Covid faraldurs og tilskipunum um lokun bara, jafnt eigin sölustaða sem og annara viðskiptavina smárra framleiðenda, hefur þörf þeirra á að fá að selja beint til viðskiptavinar frá framleiðslustað aukist. Smáir framleiðendur standa frammi fyrir miklum tekjumissi af þessum lokunum og hafa takmarkaða aðstöðu til að koma vöru sinni á markað. Afkoma þeirra og þar með störf fjölda manns eru í hættu nema brugðist verði við. Það er óskandi að frumvarp þetta nái fram að ganga sem fyrst svo koma megi í veg fyrir hrun í þessari grein.

  • #5Guðlaugur Aðalsteinsson

    Íslensku handverksbrugghúsin auðga menningarflóru landsbyggðarinnar og hafa fært líf inn í lítil bæjarfélög og sett sjarma á húsakosti sem að öðrum kosti væru að drabbast niður. Handverksbrugghúsin eru orðnir vinsælir áfangastaðir innlendra- og erlendra ferðamanna og mikilvægt að styðja við bakið á þessu einkaframtaki.

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.

S-200/2020: Frumvarp til breytinga á áfengislögum, sala á framleiðslustað · Alviti