Áður en mál kemur til Alþingis
Frumvörp og þingsályktunartillögur sem ráðuneyti hafa kynnt í Samráðsgátt stjórnvalda: hvað er til umsagnar, hverjir sendu umsagnir, og hvað hefur komið til Alþingis og hvað ekki.
92 mál · sótt 27. október 2026
- Komið til AlþingisS-86/2018· Drög að frumvarpi til laga· Dómsmálaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 2. júl. 2018 – 30. júl. 2018· 0 umsagnir
Breyting á ýmsum lögum vegna afnáms á uppreist æru.
Með frumvarpinu er lagt til að kjörgengisskilyrði til Alþingis og sveitarstjórna verði rýmkuð í ljósi lýðræðissjónarmiða, en að breyting verði gerð á skilyrðum til þess að öðlast lögmannsréttindi og sinna ýmsum störfum og embættum í réttarvörslukerfinu og þau verði gerð strangari.
- Ekki komið til AlþingisS-85/2018· Drög að frumvarpi til laga· Innviðaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 29. jún. 2018 – 10. ágú. 2018· 0 umsagnir
Frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum vegna nýrra laga um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga
Með frumvarpinu eru lagðar til þær lágmarksbreytingar sem gera þarf á lögum sem heyra undir samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið til að ná því markmiði sem felst í nýjum lögum um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsingar nr. 90/2018.
- Komið til AlþingisS-82/2018· Áform um lagasetningu· Mennta- og barnamálaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 6. júl. 2018 – 7. ágú. 2018· 0 umsagnir
Áform um frumvarp um samtök um evrópska rannsóknarinnviði (ERIC)
Um er að ræða áform um lagasetningu um ný lög þar sem lagt er til að innleidd verði reglugerð ESB nr. 723/2009 eins og henni var breytt með reglugerð nr. 1261/2013. Reglugerðin fjallar um ERIC-samtök, ERIC stendur fyrir European Research Infrastructure Consortium eða samtök um evrópska rannsóknarinnviði.
- Komið til AlþingisS-79/2018· Drög að frumvarpi til laga· Innviðaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 21. jún. 2018 – 23. ágú. 2018· 10 umsagnir
Frumvarp til laga um öryggi net- og upplýsingakerfa mikilvægra innviða
Um er að ræða drög að frumvarpi til nýrra laga um öryggi net- og upplýsingakerfa mikilvægra innviða þar sem m.a. er lagt til að innleidd verði tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins nr. 1148/2016/ESB um ráðstafanir til að ná háu sameiginlegu öryggisstigi í net- og upplýsingakerfum innan EES, oft skammstöfuð NIS tilskipuni
- Komið til AlþingisS-76/2018· Áform um lagasetningu· Innviðaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 19. jún. 2018 – 19. júl. 2018· 8 umsagnir
Áform um lagasetningu - Frumvarp til laga um leigubifreiðar
Samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra hefur með hliðsjón af tillögum starfshóps ráðuneytisins um endurskoðun regluverks um leigubifreiðar, tekið ákvörðun um að í ráðuneytinu skuli hefja undirbúning að frumvarpi til nýrra laga um leigubifreiðar með það að markmiði að leggja það fram á haustþingi Alþingis 2019.
- Ekki komið til AlþingisS-75/2018· Drög að frumvarpi til laga· Fjármála- og efnahagsráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 21. jún. 2018 – 19. júl. 2018· 1 umsögn
Frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum vegna brottfalls laga um kjararáð, nr. 130/2016, með síðari breytingum.
Með frumvarpinu er stefnt að breyttu fyrirkomulagi launaákvarðanna þeirra er heyrðu undir ákvörðunarvald kjararáðs samkvæmt lögum nr. 130/2016.
- Komið til AlþingisS-64/2018· Drög að frumvarpi til laga· Innviðaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 7. jún. 2018 – 21. jún. 2018· 2 umsagnir
Drög að frumvarpi til laga um póstþjónustu
Um er að ræða drög að frumvarpi til nýrra laga um póstþjónustu þar sem m.a. er lagt til að innleidd verði tilskipun Evrópuráðsins nr. 6/2008 um afnám einkaréttar á póstþjónustu.
- Komið til AlþingisS-52/2018· Drög að frumvarpi til laga· Dómsmálaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 1. maí 2018 – 23. maí 2018· 1 umsögn
Frumvarp til laga um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka
Óskað er eftir umsögnum um drög að nýjum heildarlögum um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka.
- Komið til AlþingisS-51/2018· Drög að frumvarpi til laga· Fjármála- og efnahagsráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 30. apr. 2018 – 10. maí 2018· 0 umsagnir
Drög að frumvarpi til laga um breyting á lögum nr. 88/1991, um aukatekjur ríkissjóðs, með síðari breytingum (dvalarleyfi vegna samninga við erlend ríki).
Til þess að stuðla að því samningar náist um tímabundna dvöl ungmenna erlendis og hérlendis er lagt til að útlendingar sem hingað koma á grundvelli slíkra samninga verði undanþegnir gjaldi fyrir dvalarleyfi.
- Komið til AlþingisS-44/2018· Drög að frumvarpi til laga· Fjármála- og efnahagsráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 5. apr. 2018 – 10. apr. 2018· 0 umsagnir
Frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 50/1988, um virðisaukaskatt (kaup og sala þjónustu milli landa, áskriftir og sala fréttablaða o.fl.)
Um er að ræða ýmsar breytingar á lögum um virðisaukaskatt er varða: a) kaup og sölu á þjónustu milli landa, b) rafræna sölu og áskriftir tímarita og fréttablaða og c) heimild ferðaþjónustuleyfishafa til færslu innskatts.
- Komið til AlþingisS-41/2018· Drög að frumvarpi til laga· Fjármála- og efnahagsráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 28. mar. 2018 – 13. apr. 2018· 3 umsagnir
Frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum vegna frekari aðgerða gegn skattundanskotum og skattsvikum (hert skatteftirlit og -rannsóknir, aukin upplýsingaöflun o.fl.).
Í frumvarpsdrögunum er gert ráð fyrir ýmsum breytingum á skattalöggjöf, m.a. vegna frekari aðgerða gegn skattundandrætti og -svikum auk fleiri breytinga sem aðallega tengjast skattlagningu lögaðila en einnig einstaklinga
- Komið til AlþingisS-40/2018· Drög að frumvarpi til laga· Atvinnuvegaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 27. mar. 2018 – 17. apr. 2018· 2 umsagnir
Frumvarp til laga um rafræna auðkenningu og traustþjónustu
Frumvarp til laga um rafræna auðkenningu og traustþjónustu. Frumvarpið innleiðir reglugerð ESB nr. 910/2014 eða hina svokölluðu eIDAS reglugerð.
- Ekki komið til AlþingisS-36/2018· Drög að frumvarpi til laga· Mennta- og barnamálaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 15. mar. 2018 – 22. mar. 2018· 1 umsögn
Frumvarp til laga um breytingu á lögum um opinberan stuðning við vísindarannsóknir, nr. 3/2003.
- Ekki komið til AlþingisS-35/2018· Drög að frumvarpi til laga· Atvinnuvegaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 15. mar. 2018 – 22. mar. 2018· 1 umsögn
Frumvarp til breytinga á lögum um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald, nr. 85/2007.
Í frumvarpinu felast breytingar á lögum nr. 85/2007 sem snerta annars vegar ákvæði 17. gr. um tækifærisleyfi og hins vegar nokkur ákvæði er varða heimagistingu, leyfisveitingar, niðurfellingu leyfa og viðurlög við brotum.
- Komið til AlþingisS-32/2018· Drög að stefnu· Innviðaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 12. mar. 2018 – 21. mar. 2018· 24 umsagnir
Tillaga til þingsályktunar um stefnumótandi byggðaáætlun fyrir árin 2018 til 2024
Tillaga til þingsályktunar um stefnumótandi áætlun í byggðamálum 2018-2024 kynnt í samráðsgátt Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið kynnir drög að tillögu til þingsályktunar um stefnumótandi byggðaáætlun fyrir árin 2018 til 2024 á samráðsgátt um opið samráð stjórnvalda.
- Ekki komið til AlþingisS-31/2018· Drög að frumvarpi til laga· Dómsmálaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 9. mar. 2018 – 19. mar. 2018· 12 umsagnir
Frumvarp til nýrra persónuverndarlaga
Um er að ræða drög að frumvarpi til nýrra persónuverndarlaga til innleiðingar á nýrri reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins nr. 2016/679 um persónuvernd, svo nefnd persónuverndarreglugerð.
- Komið til AlþingisS-30/2018· Áform um lagasetningu· Dómsmálaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 9. mar. 2018 – 6. apr. 2018· 3 umsagnir
Breytingar á barnalögum
Hér er um að ræða áform um breytingar á barnalögum nr. 76/2003 sem snúa að því að lögfesta ákvæði um heimild foreldra til þess að semja um skipta búsetu barns auk þess að endurskoða ákvæði barnalaga varðandi framfærslu barns og meðlag. Í tengslum við þessa breytingu á barnalögunum eru tilheyrandi breytingar á ýmsum öðrum lögum.
- Komið til AlþingisS-29/2018· Drög að frumvarpi til laga· Atvinnuvegaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 8. mar. 2018 – 16. mar. 2018· 1 umsögn
Frumvarp til laga um Ferðamálastofu, ferðamálaráð og leyfisveitingar í ferðaþjónustu
Hér er um að ræða drög að frumvarpi til nýrra heildarlaga um Ferðamálastofu, ferðamálaráð og leyfisveitingar í ferðaþjónustu. Frumvarpið felur í sér heildarendurskoðun laga um skipan ferðamála, nr. 73/2005, og munu þau lög falla úr gildi verði frumvarpið að lögum.
- Komið til AlþingisS-25/2018· Drög að frumvarpi til laga· Utanríkisráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 6. mar. 2018 – 13. mar. 2018· 2 umsagnir
Breyting á lögum um Íslandsstofu nr. 38/201
Meginmarkmiðið með frumvarpinu er að efla samstarf atvinnulífs og stjórnvalda við markaðsstarf á erlendum mörkuðum, auka samþættingu og samstarf þeirra aðila sem að koma, nýta fjármuni með markvissari hætti og gera breytingar á rekstrarformi Íslandsstofu.
- Komið til AlþingisS-21/2018· Drög að frumvarpi til laga· Innviðaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 26. feb. 2018 – 16. mar. 2018· 46 umsagnir
Frumvarp til nýrra umferðarlaga
Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið kynnir til umsagnar drög að nýjum umferðarlögum.
- Ekki komið til AlþingisS-19/2018· Drög að frumvarpi til laga· Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 23. feb. 2018 – 9. mar. 2018· 7 umsagnir
Frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 106/2000 um mat á umhverfisáhrifum
Umhverfis- og auðlindaráðuneytið kynnir til umsagnar drög að frumvarpi til innleiðingar á tilskipun 2014/52/ESB um mat á umhverfisáhrifum sem hefur tekið gildi.
- Komið til AlþingisS-17/2018· Drög að frumvarpi til laga· Fjármála- og efnahagsráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 22. feb. 2018 – 28. feb. 2018· 1 umsögn
Frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lagaákvæðum um skatta og gjöld (frádráttur vegna hlutabréfakaupa, skuldajöfnun vegna vangoldinna skatta og gjalda, álagning opinberra gjalda o.fl.).
Í frumvarpsdrögunum eru lagðar til ýmsar breytingar á skattalögum af ólíkum toga.
- Ekki komið til AlþingisS-16/2018· Drög að frumvarpi til laga· Atvinnuvegaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 21. feb. 2018 – 8. mar. 2018· 2 umsagnir
Frumvarp til laga um breytingu á raforkulögum og lögum um Orkustofnun (innleiðing tilskipunar og viðlagaákvæði).
Með frumvarpinu eru gerðar nokkrar breytingar á raforkulögum og lögum um Orkustofnun. Breytingarnar eru tilkomnar vegna innleiðingar þriðju raforkutilskipunar Evrópuþingsins og ráðsins um sameiginlegar reglur um innri markaðinn fyrir raforku.
- Ekki komið til AlþingisS-14/2018· Drög að frumvarpi til laga· Innviðaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 16. feb. 2018 – 2. mar. 2018· 1 umsögn
Frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum vegna samþykktar Alþjóðavinnumálastofnunarinnar um vinnuskilyrði farmanna
Drög að frumvarpi um breytingu á ýmsum lögum vegna samþykktar Alþjóðavinnumálastofnunarinnar um vinnuskilyrði farmanna.
- Ekki komið til AlþingisS-13/2018· Drög að frumvarpi til laga· Innviðaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 15. feb. 2018 – 2. mar. 2018· 0 umsagnir
Frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum til samræmingar á áætlunum samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytisins
Frumvarpið kveður á um lagabreytingar sem nauðsynlegar eru til að ná fram markmiðum um samræmda áætlanagerð í öllum málaflokkum samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytisins.
- Ekki komið til AlþingisS-11/2018· Drög að frumvarpi til laga· Mennta- og barnamálaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 12. feb. 2018 – 26. feb. 2018· 0 umsagnir
Frumvarp til laga um breytingar á lögum um skil menningarverðmæta til annarra landa nr. 57/2011
Innleiðing tilskipunar 2014/60/ESB í landsrétt kallar á breytingar á lögum um skil menningarverðmæta til annarra landa nr. 57/2011, sem taka mið af ákvæðum tilskipunar 93/7/EBE frá 15. mars 1993.
- Ekki komið til AlþingisS-10/2018· Drög að frumvarpi til laga· Mennta- og barnamálaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 9. feb. 2018 – 23. feb. 2018· 1 umsögn
Frumvarp til laga um launasjóð skákmanna
Með þessu frumvarpi er gert ráð fyrir að gildandi lög um launasjóð stórmeistara, nr. 58/1990, verði lögð af og að nýtt fyrirkomulag um laun til afreksskákmanna verði tekið upp.
- Ekki komið til AlþingisS-9/2018· Áform um lagasetningu· Atvinnuvegaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 5. feb. 2018 – 20. feb. 2018· 0 umsagnir
Áform um lagasetningu vegna innleiðingar tilskipunar 2015/2302/ESB um pakkaferðir og samtengda ferðatilhögun
Áformað er að setja löggjöf sem innleiðir tilskipun 2015/2302/ESB um pakkaferðir og samtengda ferðatilhögun. Tilskipunin kemur í stað eldri tilskipunar, 90/314/EBE, sem innleidd var sem lög um alferðir, nr. 80/1994.
- Ekki komið til AlþingisS-8/2018· Áform um lagasetningu· Félags- og húsnæðismálaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 5. feb. 2018 – 28. feb. 2018· 0 umsagnir
Heildarendurskoðun jafnréttislaga
Velferðarráðuneytið óskar eftir umsögnum og tillögum að breytingum á gildandi löggjöf vegna heildarendurskoðunar laga um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla, nr. 10/2008.
- Ekki komið til AlþingisS-7/2018· Áform um lagasetningu· Atvinnuvegaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 5. feb. 2018 – 20. feb. 2018· 0 umsagnir
Áform um lagasetningu um Ferðamálastofu, ferðamálaráð og leyfisveitingar í ferðaþjónustu
Áformað er að setja lög um Ferðamálastofu, ferðamálaráð og leyfisveitingar í ferðaþjónustu sem leysa munu af hólmi núgildandi lög um skipan ferðamála, nr. 73/2005.
Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi. Hlekkur getur vantað þegar heiti málsins breyttist mikið á leiðinni; ritstjóri getur staðfest eða hafnað tengingu.
Hér eru frumvörp, áform um lagasetningu og drög að þingsályktunartillögum. Drög að reglugerðum og önnur mál fara ekki til Alþingis og eru á vef gáttarinnar. Alviti hefur þingmál Alþingis frá 8. september 2015; um eldri samráðsmál sem ekki finnast þar er sagt „óvíst“.
Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda (island.is) · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)