Frumvarp til nýrra umferðarlaga
Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið kynnir til umsagnar drög að nýjum umferðarlögum.
Ferill í Samráðsgátt
- Birt í Samráðsgátt (S-21/2018)
- Umsagnarfrestur hefst · til 16. mars 2018
- Umsagnarfresti lýkur · 46 umsagnir bárust
- Lagt fram á Alþingi (149. þing, mál 219)
- Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (18. september 2019)
Ráðuneytinu bárust alls 52 umsagnir við frumvarpsdrögin frá hagsmunaaðilum, stjórnvöldum og einstaklingum. Unnið var úr athugasemdum og tók frumvarpið töluverðum breytingum eftir samráðið. Sjá greinargerð um samráð í 9. kafla greinargerðar með frumvarpi til umferðarlaga. Hlekk er að finna hér að neðan.
Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (46)
- #1Unnar Már Sigurbjörnsson
Góðan dag. Í þann kafla umferðarlaga er varðar sviptingu ökuleyfis eða bann við akstri ökumanns vantar alveg lagagrein þar sem lögreglunni er heimilt að banna/stöðva til bráðabirgða akstur ökumanns sem virðist ekki vera þess bær að stjórna ökutæki sökum verulegrar vankunnáttu, þó svo að viðkomandi sýni lögreglunni staðfestingu á ökuréttindum sínum. Það er ærin ástæða til þess að slíkri lagagrein sé komið fyrir í lögunum því úrræði lögregunnar í dag við að stöðva slíkan akstur eru í raun engin. Skemmst er að minnast mannsins sem ók nýverið á öfugum vegarhelmingi yfir fjölda blindhæða á au… Lesa alla
Góðan dag. Í þann kafla umferðarlaga er varðar sviptingu ökuleyfis eða bann við akstri ökumanns vantar alveg lagagrein þar sem lögreglunni er heimilt að banna/stöðva til bráðabirgða akstur ökumanns sem virðist ekki vera þess bær að stjórna ökutæki sökum verulegrar vankunnáttu, þó svo að viðkomandi sýni lögreglunni staðfestingu á ökuréttindum sínum. Það er ærin ástæða til þess að slíkri lagagrein sé komið fyrir í lögunum því úrræði lögregunnar í dag við að stöðva slíkan akstur eru í raun engin. Skemmst er að minnast mannsins sem ók nýverið á öfugum vegarhelmingi yfir fjölda blindhæða á austurlandi vegna þess að hann taldi að skiltið sem stæði á miðjum veginum væri að vísa til hættu á umferð á móti. Lögregluembættin um allt land eiga frásagnir af ýmsum uppákomum þar sem ökumaður bifreiðar (sem oftast nær er erlendur ferðamaður á bílaleigubíl) sýnir svo ekki verði um villst að ökuhæfni viðkomandi er með öllu ófullnægjandi þrátt fyrir að viðkomandi leggi fram ökuskírteini. Starfsfólk bílaleiganna á einnig margar skrautlegar frásagnir eins og að þurfa að útskýra fyrir leigutakanum hvað pedalarnir í gólfinu gera o.m.fl. Ökunám víða um heim er einnig af skornum skammti og fer t.d. fram í ökuhermi eða lokuðu ökugerði en aldrei úti í umferð á vegum. Sum lönd leggja mun meira uppúr utanbókarlærdómi um reglur en litla sem enga áherslu á verklega þáttinn. Ökumenn sem hafa aldrei ekið í umferð eru vart þess búnir að keyra á vegum landsins. Lagagrein af þessu tagi er þess vegna bráðnauðsynleg áður en við horfum upp á fleiri stórslys af völdum vankunnáttu ökumanna. Hlekkir: http://www.ruv.is/frett/ferdamadur-for-vinstra-megin-yfir-blindhaedir http://www.visir.is/g/2017171239944 http://www.dv.is/frettir/2017/12/28/segir-ferdamenn-bilaleigubilum-nytt-vandamal-sennilega-haettulegasti-farartalmi-og-slysavaldur-islenskum-thjodvegum/ http://www.visir.is/g/2017170139796 http://www.visir.is/g/2016161009198
- #2Jóhann Thorarensen
Almennt um uferðalög: Umferðalög ættu að fjalla um hvernig megi sporna við notkun vélknúinna ökutækja. Þar sem af þeim stafa hætta, ónæði og megun. Ef hægt væri að prjóna inn í uferðarlög þræði, sem mundu draga úr þessum áhrifum vélknúinnar umferða þá væri það mjög til bóta. Hér mætti nefna d.t. hámarsk stærð og afl einkabíla, forgang strætó. Það má líka setja aftur inn ákvæði þar sem ökumaður ber alla ábyrgð sínu ökutæki og þá líka ef ekið er á lausagangsfé. Í framhaldinu gætu bændur notað veggirðingar, sem beitarhólf og mundi það auka árvekni ökumanna og fækka öðrum slysum.
- #3Ásbjörn Jóhannesson
Eftirfarandi athugasemd varðar orðanotkun í frumvarpinu, ekki efnisatriði þess. Fyrir nokkrum árum setti Vegagerðin á stofn nefnd, Vegorðanefnd, sem síðan hefur unnið að gerð orðasafns þar sem skilgreind eru og skýrð hugtök sem einkum eru notuð i vegagerð og umferðartækni. Tilgangur Vegagerðarinnar með þessari nefndarskipan var og er að samræma orðanotkun á þessu sviði og koma þannig í veg fyrir misskilning sem annars kynni að hljótast af notkun margra heita á sama hugtakinu. Safnið er í stöðugri endurskoðun. Aðgangur að orðasafninu er öllum heimill og það er aðgengilegt á slóðinni https://… Lesa alla
Eftirfarandi athugasemd varðar orðanotkun í frumvarpinu, ekki efnisatriði þess. Fyrir nokkrum árum setti Vegagerðin á stofn nefnd, Vegorðanefnd, sem síðan hefur unnið að gerð orðasafns þar sem skilgreind eru og skýrð hugtök sem einkum eru notuð i vegagerð og umferðartækni. Tilgangur Vegagerðarinnar með þessari nefndarskipan var og er að samræma orðanotkun á þessu sviði og koma þannig í veg fyrir misskilning sem annars kynni að hljótast af notkun margra heita á sama hugtakinu. Safnið er í stöðugri endurskoðun. Aðgangur að orðasafninu er öllum heimill og það er aðgengilegt á slóðinni https://vegordasafn.vegagerdin.is/ords/f?p=100:HEIM:::::: Vegorðanefnd vill vekja athygli höfunda lagafrumvarpsins á orðasafninu og hvetur þá eindregið til að hagnýta sér það við lokafrágang frumvarpsins. Sem dæmi má nefna að Vegorðanefnd mælir með því að orðið vegræma verði tekið upp í staðinn fyrir vegöxl. Nefndin hefur jafnframt skilgreint fimm gerðir af vegræmum, eftir hlutverki þeirra og staðsetningu í vegþversniðinu, en vísar jafnframt til orðsins vegöxl sem samheitis. Vegorðanefnd mun fúslega veita höfundum lagafrumvarpsins aðstoð sína við orðaval, ef eftir því verður leitað. Fyrirspurnir má senda til Gunnars Bjarnasonar , forstöðumanns jarðefnadeildar Vegagerðarinnar. Netfang hans er gunnar.bjarrnason@vegagerdin.is .
- #4Birgir Fannar Birgisson
Í frumvarpinu er alltof lítið gert til að tryggja öryggi hjólreiðafólks, sem hefur fjölgað mjög mikið frá gildistöku núgildandi umferðarlaga. Viðurlög þarf að setja við þeirri hættu sem alltof oft skapast, t.d. með gáleysislegum framúrakstri ökumanna og almennum skorti á athygli við þverun akbrauta og hjólastíga. Innleiðing hinnar svokölluðu "dönsku" vinstri beygju getur eflaust verið ágæt. En að gera hana að skyldu, með orðalaginu "skal" í staðinn fyrir "má" og fylgja því svo eftir með því að segja hjólreiðafólki að virða að vettugi merkingar sem aðrir fara eftir og gera ráð fyrir að h… Lesa alla
Í frumvarpinu er alltof lítið gert til að tryggja öryggi hjólreiðafólks, sem hefur fjölgað mjög mikið frá gildistöku núgildandi umferðarlaga. Viðurlög þarf að setja við þeirri hættu sem alltof oft skapast, t.d. með gáleysislegum framúrakstri ökumanna og almennum skorti á athygli við þverun akbrauta og hjólastíga. Innleiðing hinnar svokölluðu "dönsku" vinstri beygju getur eflaust verið ágæt. En að gera hana að skyldu, með orðalaginu "skal" í staðinn fyrir "má" og fylgja því svo eftir með því að segja hjólreiðafólki að virða að vettugi merkingar sem aðrir fara eftir og gera ráð fyrir að hjólreiðafólk virði líka, skapar meiri hættu en það kemur í veg fyrir. Nauðsynlegt er að skilgreina hvað er "nægjanlegt bil" við framúrakstur. Þetta er of mikilvægt atriði til að leyfa ökumönnum að skilgreina það sjálfir í hverju tilfelli fyrir sig.
- #5Erlendur Smári Þorsteinsson
Með tilkynningu 27.02.2018 upplýsti samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið um samráð vegna setningu nýrra umferðalaga: https://samradsgatt.island.is/oll-mal/$Cases/Details/?id=21 Það verður að viðurkennast að undirrituðum, sem reyndum hjólreiðamanni, fallast hendur við að lesa breytingarnar um hjólreiðar. Í megindráttum gera þessar breytingar ekkert til að auka öryggi hjólreiðafólks en í staðinn eru gerðar skrýtnar breytingar til að fást við meinta og óútskýrða hættu sem gangandi fólki virðist eiga að stafa af hjólreiðafólki en þær „hættur“ standast enga eðlisfræðirýni, á meðan ekkert er… Lesa alla
Með tilkynningu 27.02.2018 upplýsti samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið um samráð vegna setningu nýrra umferðalaga: https://samradsgatt.island.is/oll-mal/$Cases/Details/?id=21 Það verður að viðurkennast að undirrituðum, sem reyndum hjólreiðamanni, fallast hendur við að lesa breytingarnar um hjólreiðar. Í megindráttum gera þessar breytingar ekkert til að auka öryggi hjólreiðafólks en í staðinn eru gerðar skrýtnar breytingar til að fást við meinta og óútskýrða hættu sem gangandi fólki virðist eiga að stafa af hjólreiðafólki en þær „hættur“ standast enga eðlisfræðirýni, á meðan ekkert er gert til að fylgja eftir ábyrgð bílstjóra gagnvart hjólreiðafólki. Slysaskýrslur Samgöngustofu hafa ítrekað sýnt að gangandi vegfarendum stafar engin hætta af hjólreiðafólki en að sama skapi slasast hjólreiðafólk ítrekað af völdum bíla. Enda er lítil hætta á ferðum ef 80 kg maður á 10 kg reiðhjóli rekst á 80 kg mann en 2 tonna bíll getur valdið gangandi vegfaranda og hjólreiðamanni miklum skaða. Þar sem hjólreiðafólk er í umferðinni með bílum er mikil þörf á því að setja sérstakar ábyrgðarreglur á bílstjóra. Breski Highway Code skilgreinir sérstakan flokk vegfaranda sem „ vulnerable road users“ og það eru pedestrians, cyclists, motorcyclists and horse riders. Einnig er vakin sérstök athygli á children, older and disabled people, and learner and inexperienced drivers and riders. Sjá https://www.gov.uk/guidance/the-highway-code/road-users-requiring-extra-care-204-to-225. Sérkafli um ábyrgð bílstjóra gagnvart mótorhjólum og reiðhjólum má finna í „Motorcyclists and cyclists (rules 211 to 213)“ en þar er sérstaklega bent á að give them plenty of room og að það sé often difficult to see motorcyclists and cyclists. Í frumvarpinu er settar sérstakar reglur í 26. gr. um sérstakar skyldur bílstjóra gagnvart gangandi vegfarendum en nema mér hafi yfirsést mikið þá eru engar reglur settar um skyldur bílstjóra gagnvart hjólreiðamönnum. Þó er þetta hópur sem vantar mikið að sé betur varin í umferðinni. Engar reglur eru settar um að bílar þurfi að gefa hjólreiðamönnum gott pláss eða hvað það pláss sé. Í mörgum löndum í Evrópu og annars staðar eru reglur um að bílar verði að gefa a.m.k. 1,5 metra pláss, sem aftur hefur í för með sér að bílar verða að geta farið örugglega nokkuð yfir á næstu akrein til að taka fram úr, bannað er skjóta sér fram úr hjólreiðamönnum á akreininni sjálfri. Þessar reglur er t.d. á Írlandi, Bretlandi og í Ástralíu og er mikil þörf á því að setja slíka reglu á Íslandi. Breskar reglur um hjólreiðafólk, https://www.gov.uk/guidance/the-highway-code/rules-for-cyclists-59-to-82, nefna sérstaklega að „never ride more than two abreast, and ride in single file on narrow or busy roads and when riding round bends“, þ.e.a.s. að meginreglan er að hjóla í tvöfaldri röð nema að sérstaklega þurfi að hjóla í einfaldri röð. Þessi regla er ítarlega skýrð hér https://www.youtube.com/watch?v=OTGRQgw6PDA frá mörgum sjónahornum og hvers vegna þetta sé öruggara fyrir hjólreiðamenn heldur en einföld röð: Þeir sjást betur og það er fljótlegra að taka fram úr þeim (því röðin er jú helmingi styttri). Í 41. gr. er viðhaldið þeirri meginregla að hjólreiðamenn hjóli í einfaldri röð. Svo segir að þó mega tveir hjólreiðamenn hjóla samhliða þar sem nægilegt rými er og það er unnt án hættu eða óþæginda. Þetta snýr hlutum á haus; öryggi í umferðinni snýst ekki um það verði að vernda þessi viðkvæmu blóm, sem bílstjórar greinilega eru, fyrir óþægindum og pirringi. Hjólreiðamenn hjóla ekki hlið við hlið til að pirra aðra vegfarendur, þeir gera það til að auka sitt eigið öryggi. Núverandi umferðarlög og þessi frumvarpsdrög draga úr öryggi hjólreiðamanna. Mæli ég eindregið með því í báðum tilvikum að taka upp bresku reglurnar. Um þessar og fleiri athugasemdir er nánar fjallað í viðhengi, í samræmi við fyrirmæli. Athugasemdir eru gerðar við gr. 25, 26, 41, 43 og 49.
Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.