Beint í efni
Alviti
Þingmál148. þing · 561. mál

Aðgerðir gegn skattundanskotum og skattsvikum

Hert skatteftirlit og skattrannsóknir, aukin upplýsingaöflun o.fl.

LagafrumvarpSamþykktSkattar og tollar

Hvar er málið statt?

Samþykktsíðan 11. jún. 2018

Alþingi hefur samþykkt frumvarpið. Það verður að lögum þegar forseti Íslands hefur staðfest það og það hefur verið birt.

Allur ferillinn
  1. Lagt fram
  2. 1. umræða
  3. Í nefnd
  4. 2. umræða
  5. 3. umræða
  6. Samþykkt

Skráning Alþingis: „Samþykkt sem lög frá Alþingi.“

Í stuttu máli

Að stemma stigu við skattundanskotum og skattsvikum.

Lagt fram af Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra (S), fyrir hönd ríkisstjórnarinnar. Í lokaatkvæðagreiðslu 11. jún. 2018 greiddu 61 atkvæði með og 0 á móti; málið var samþykkt.

Lagt fram
2. maí 2018
Tegund
Stjórnarmál
Atkvæðagreiðslur með skrá
4
Umræða í þingsal
4 ræður · 31 mín

Málið á mannamáli

Byggt á samantekt sem starfsfólk Alþingis skrifar með frumvarpinu. Orðalagið er þeirra; Alviti hefur aðeins skipt textanum í hluta.

Samantekt Alþingis
uppfærð 12. jún. 2018

Markmiðið

Að stemma stigu við skattundanskotum og skattsvikum.

Hvað breytist

Lagt er til að föstum starfsstöðvum félaga í aðildarríkjum Evrópska efnahagssvæðisins, aðildarríkjum stofnsamnings Fríverslunarsamtaka Evrópu eða í Færeyjum, sem staðsettar eru hér á landi, verði heimil samsköttun með innlendum samstæðufélögum. Lagt er til að kveðið sé skýrar á um skilaskyldu launagreiðanda á staðgreiðslu af launum í þeim tilvikum þegar um er að ræða útleigu á vinnuafli.

Gert er ráð fyrir að sett verði á stofn rafrænt skráningarkerfi fyrir erlend atvinnufyrirtæki sem selja öðrum en atvinnufyrirtækjum hér þjónustu sem veitt er rafrænt, fjarskiptaþjónustu og útvarps- og sjónvarpsþjónustu.

Lögð er til breyting á tollfríðindum hópbifreiða sem fluttar eru til landsins tímabundið þegar bifreið er ekki flutt úr landi með þeim ferðamannahópi sem bifreiðin var ætluð við innflutning. Jafnframt er gert ráð fyrir að tollyfirvöldum verði heimilað að fjarlægja skráningarmerki af ökutækjum sem hafa verið flutt inn á grundvelli tollfríðindaákvæða tollalaga, sem heimila tímabundna niðurfellingu tolls vegna ökutækja sem nota á tímabundið hér á landi.

Lög sem breytast

Lög um tekjuskatt, nr. 90/2003. Lög um staðgreiðslu opinberra gjalda, nr. 45/1987. Lög um virðisaukaskatt, nr. 50/1988. Tollalög, nr. 88/2005.

Kostnaður fyrir ríkið

Ákvæði frumvarpsins um að heimild hlutafélaga til samsköttunar nái einnig til fastra starfsstöðva félaga innan Evrópska efnahagssvæðisins gæti hugsanlega haft einhver áhrif á ríkissjóð hvort heldur er til hækkunar eða lækkunar á tekjum. Gert er ráð fyrir 70-80 milljóna kr. einskiptiskostnaði vegna smíði sérstaks skráningarkerfis fyrir einfalda skráningu sem heimiluð verður erlendum aðilum sem selja rafræna þjónustu o.fl. hingað til lands.

Meira úr samantektinni

Milliverðlagning og faktúrufölsun. Skýrsla starfshóps. Fjármála- og efnahagsráðuneytið, júní 2017.

Umfang skattundanskota og tillögur til aðgerða. Skýrsla starfshóps. Fjármála- og efnahagsráðuneytið, júní 2017.

Skattskylda af erlendri ferðaþjónustustarfsemi á Ísland. Skýrsla starfshóps. Fjármála- og efnahagsráðuneytið, júlí 2017.

Afstaða þingflokkanna

Lagt fram af

Framsögumaður nefndar: Óli Björn Kárason

Lokaatkvæðagreiðsla
11. jún. 2018
Samþykkt61 með · 0 á móti
Að samþykkja frumvarpið „Aðgerðir gegn skattundanskotum og skattsvikum“ sem lög. →
Eftir þingflokkum
  • S15–0
  • 2311–0
  • F8–0
  • M7–0
  • Sf7–0
  • 436–0
  • Flf4–0
  • V3–0
Gott að vita um atkvæðin
  • Með – greiddi atkvæði með (já)
  • Á móti – greiddi atkvæði á móti (nei)
  • Sat hjá – var í salnum en tók ekki afstöðu
  • Boðaði fjarvist – tilkynnti fjarvist fyrir fram (t.d. veikindi eða erindi fyrir Alþingi)
  • Fjarverandi – greiddi ekki atkvæði og hafði ekki boðað fjarvist; ástæðan er ekki skráð

Í súlum og reitum: dökkblátt = með, rautt = á móti, grátt = sat hjá, ljóst = fjarverandi. Aðeins rafrænar atkvæðagreiðslur skrá atkvæði hvers þingmanns; Alviti ályktar ekki um ástæður hjásetu eða fjarvista.

„Greiddu atkvæði með/á móti“ vísar til skráðra atkvæða í rafrænni atkvæðagreiðslu. Alviti dregur ekki ályktanir um afstöðu þeirra sem ekki greiddu atkvæði.

Af hverju skiptir þetta máli?

Svið sem Alþingi flokkar málið undir. Smelltu til að sjá önnur mál á sama sviði.

Nefndin sem fjallar um málið
Efnahags- og viðskiptanefnd
sendi 1 umsagnabeiðni · frestur 25. maí 2018
Sendu inn umsögn eða erindi
5 aðilar
Persónuvernd, Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Alþýðusamband Íslands, Samtök ferðaþjónustunnar, Ríkisskattstjóri · allar umsagnir
Umræða í þingsal
31 mín · 4 ræður
4 þingmenn tóku til máls. Lengd umræðu mælir áhuga þingsins, ekki mikilvægi málsins.
Kostnaður fyrir ríkissjóð
Ákvæði frumvarpsins um að heimild hlutafélaga til samsköttunar nái einnig til fastra starfsstöðva félaga innan Evrópska efnahagssvæðisins gæti hugsanlega haft einhver áhrif á ríkissjóð hvort heldur er til hækkunar eða lækkunar á tekjum. Gert er ráð fyrir 70-80 milljóna kr. einskiptiskostnaði vegna smíði sérstaks skráningarkerfis fyrir einfalda skráningu sem heimiluð verður erlendum aðilum sem selja rafræna þjónustu o.fl. hingað til lands.
úr samantekt Alþingis

Orð og atkvæði

Hvað þingmenn sögðu um málið, við hliðina á því hvernig þeir greiddu atkvæði.

Atkvæðin eru úr lokaatkvæðagreiðslunni 11. júní 2018: 61 með, 0 á móti.

Greiddu atkvæði með3 tóku til máls

58 aðrir þingmenn greiddu atkvæði með án þess að taka til máls.

Voru ekki viðstödd atkvæðagreiðsluna1 tók til máls

Tilvitnanir eru orðréttar úr ræðum á vef Alþingis, ekki samantekt. Þar sem þingmaður gerði grein fyrir atkvæði sínu við sjálfa atkvæðagreiðsluna er sú skýring sýnd, annars upphaf lengstu ræðu þingmannsins um málið. Ræðutextar berast frá Alþingi smám saman og tilvitnanir bætast við þegar þeir hafa verið sóttir.

Allt um málið

Öll gögn, ferill og tölur fyrir þau sem vilja skoða nánar.

Áður en málið kom til Alþingis

1 samráðsmál

Ráðuneytið kynnti málið í Samráðsgátt stjórnvalda og almenningi gafst kostur á að senda umsögn, áður en það var lagt fram á Alþingi.

S-41/2018· Drög að frumvarpi til laga· Fjármála- og efnahagsráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 28. mar. 2018 – 13. apr. 2018· 3 umsagnir

Frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum vegna frekari aðgerða gegn skattundanskotum og skattsvikum (hert skatteftirlit og -rannsóknir, aukin upplýsingaöflun o.fl.).

Í frumvarpsdrögunum er gert ráð fyrir ýmsum breytingum á skattalöggjöf, m.a. vegna frekari aðgerða gegn skattundandrætti og -svikum auk fleiri breytinga sem aðallega tengjast skattlagningu lögaðila en einnig einstaklinga

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-41/2018)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 13. apríl 2018
  3. Umsagnarfresti lýkur · 3 umsagnir bárust
  4. Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (4. desember 2018)

Ráðuneytið hefur brugðist við mörgum athugasemdum í frumvarpinu sem var samþykkt á Alþingi sem lög nr. 77/2018 þann 11. júní 2018.

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (3)
  • #1Samtök atvinnulífsins

    Meðfylgjandi er umsögn Samtaka atvinnulífsins um frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum vegna frekari aðgerða gegn skattundanskotum og skattsvikum.

  • #2Gunnar Valur Sveinsson
    Samtök ferðaþjónustunnar (Samtökin) hafa kynnt sér drög að ofangreindu frumvarpi og eru með eftirfarandi ábendingar. Samtökin fagna því að fram sé komið frumvarp til breytinga á lögum sem vinnur gegn skattaundanskotum og skattsvikum. Ákvæði 5. greinar frumvarpsins um tollafreiðslu hópbifreiða er þó ekki samræmi við fjórða lið tillagna starfshóps fjármálaráðherra um skattskyldu af erlendri ferðaþjónustustarfsemi á Íslandi sem lagðar voru fram 13. júlí 2017. Aðrar hugmyndir þess starfshóps eru heldur ekki viðraðar í frumvarpinu og sakna samtökin þess. Samtökin leggja til að hugað verði að… Lesa alla

    Samtök ferðaþjónustunnar (Samtökin) hafa kynnt sér drög að ofangreindu frumvarpi og eru með eftirfarandi ábendingar. Samtökin fagna því að fram sé komið frumvarp til breytinga á lögum sem vinnur gegn skattaundanskotum og skattsvikum. Ákvæði 5. greinar frumvarpsins um tollafreiðslu hópbifreiða er þó ekki samræmi við fjórða lið tillagna starfshóps fjármálaráðherra um skattskyldu af erlendri ferðaþjónustustarfsemi á Íslandi sem lagðar voru fram 13. júlí 2017. Aðrar hugmyndir þess starfshóps eru heldur ekki viðraðar í frumvarpinu og sakna samtökin þess. Samtökin leggja til að hugað verði að innleiðingu umræddra tillagna í fyrirliggjandi frumvarpi og eru þær eftirfarandi: • Þegar fyrir liggur að erlendur ferðaþjónustuaðili þarf að skrá hópferðabifreið í atvinnurekstri á Íslandi skal skráning hjá Samgöngustofu eiga sér stað áður en ökutæki kemur til landsins, eða a.m.k. í síðasta lagi við komuna til landsins. • Að lögfest verði skylda erlendra ferðaþjónustuaðila sem hafa með höndum skattskylda starfsemi hér á landi til að standa skil á skattgreiðslum áður en ökutæki er flutt úr landi, að viðlögðum refsingum eða refsikenndum viðurlögum. Samhliða verði málsmeðferðarreglur skattalaga skoðaðar í slíkum tilvikum með einföldun að leiðarljósi. • Samstarfsvettvangur verði settur á laggirnar með tengiliðum frá Ferðamálastofu, tollstjóra, ríkisskattstjóra, skattrannsóknarstjóra, Vinnumálastofnun, Samgöngustofu og lögreglu til miðlunar upplýsinga og eftir atvikum samstarfs um eftirlit og úrbætur vegna ferðaþjónustustarfsemi á Íslandi. Samstarfsvettvangurinn hafi samráð við hlutaðeigandi ráðuneyti sem og Stjórnstöð ferðamála eftir þörfum hverju sinni. • Sett verði stöðluð gjaldskrá um greiðslu aðflutningsgjalda (bráðabirgðaafgreiðsla) vegna tímabundins innflutnings erlendra hópferðabifreiða til landsins, eða annarra ökutækja sem nota á til atvinnurekstrar, í stað útreiknings út frá áætlaðri leigu. Gjaldið greiðist við komu til landsins en ekki við brottför. • Tekið verði upp ákvæði í lög um virðisaukaskatt sem heimili erlendum ferðaþjónustuaðilum sem hafa með höndum virðisaukaskattsskylda starfsemi hér á landi að skrá sig í gegnum einfaldað rafrænt skráningarkerfi vegna skila á virðisaukaskatti hingað til lands. Á sama hátt yrði metið hvort gera þarf viðeigandi breytingar á lögum um staðgreiðslu opinberra gjalda. • Frekari upplýsingar verði veittar til erlendra ferðaþjónustuaðila sem starfrækja erlendar hópferðabifreiðar hér á landi og til erlendra ferðaskrifstofa sem selja ferðir hingað til lands. Ítarlegri upplýsingagjöf verði á gáttinni www.posting.is fyrir þessa aðila. Þá verði hlekkir settir á vefsíðuna sem vísi á heimasíður mismunandi stofnana og öfugt. • Ákvæði tollalaga er varðar tollfrelsi skemmtiferðaskipa í innanlandssiglingum verði viðhaldið, en þó þannig að lagaumhverfið verði skýrt og þrengt. Skýrt verði í tollalögum og/eða í reglugerð hvað felist í hugtökunum „skemmtiferðaskip“ og „innanlandssiglingar“. • Innheimt verði sérstakt gjald fyrir hvern farþega sem er um borð í skemmtiferðaskipi á meðan á innanlandssiglingum þess stendur sem svarar sem næst til þeirra skatta, tolla og annarra gjalda sem útgerð skips þyrfti annars að inna af hendi ef starfsemi hennar væri skráð hérlendis. Ákvæði um slíka gjaldtöku taki gildi hinn 1. júní 2019. Samtökin gera ráð fyrir að samhliða fyrirliggjandi frumvarpi verði lagt fram frumvarp um breytingar á lögum um útsenda starfsmenn þar sem skyldur erlendra aðila sem starfa hér á landi eru gerðar skýrari. Samtökin áskilja sér rétt að koma með frekari ábendingar á síðari stigum

  • #3Deloitte ehf.

    Meðfylgjandi eru athugasemdir Deloitte ehf.

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Ferill málsins

Hvert skref sem Alþingi hefur skráð: þingskjöl, umræður, atkvæðagreiðslur og umsagnabeiðnir, í tímaröð.

  1. Þingskjal
  2. Umræða
    1. umræða
    1 ræða · 20 mín
  3. Atkvæðagreiðsla
    · yfirlýsing forseta/mál gengur
  4. Atkvæðagreiðsla
    · yfirlýsing forseta/mál gengur
  5. Umsagnir
    Umsagnabeiðnir sendar, frestur til 25. maí 2018
    1 beiðni um umsögn
  6. Þingskjal
  7. Umræða
    2. umræða
    3 ræður · 11 mín
  8. Atkvæðagreiðsla
    Samþykkt · 62 með, 0 á móti
  9. Atkvæðagreiðsla
    Samþykkt · 62 með, 0 á móti
  10. Atkvæðagreiðsla
    Samþykkt · 61 með, 0 á móti
  11. Atkvæðagreiðsla
    · yfirlýsing forseta/mál gengur
  12. Atkvæðagreiðsla
    Samþykkt · 61 með, 0 á móti
  13. Þingskjal
  14. Þingskjal

Þingskjöl

4 skjöl

Frumvarpið sjálft, breytingartillögur, nefndarálit og önnur skjöl eins og Alþingi birtir þau.

Þskj.TegundÚtbýttFlutningsmennSkjal
884Stjórnarfrumvarp2. maí 2018Bjarni BenediktssonLesaPDF
1149Nál. með brtt.7. jún. 2018Óli Björn Kárason, Brynjar Níelsson +6LesaPDF
1232Frumvarp eftir 2. umræðu20. jún. 2018—LesaPDF
1252Lög (samhlj.)11. jún. 2018—LesaPDF

Allar atkvæðagreiðslur

7 alls · 4 með atkvæðaskrá

Líka ákvarðanir sem voru teknar með yfirlýsingu forseta; þær skilja ekki eftir sig atkvæði einstakra þingmanna.

  • yfirlýsing forseta/mál gengur9. maí 2018 kl. 19:51
    Frumvarp gengur til 2. umræðu
    Engin atkvæðaskrá: ákvörðun tekin án rafrænnar atkvæðagreiðslu.
  • yfirlýsing forseta/mál gengur→ efnahags- og viðskiptanefnd9. maí 2018 kl. 19:51
    Frumvarp gengur til nefndar
    Engin atkvæðaskrá: ákvörðun tekin án rafrænnar atkvæðagreiðslu.
  • Samþykkt11. júní 2018 kl. 18:50
    Að samþykkja breytingartillögu í málinu „Aðgerðir gegn skattundanskotum og skattsvikum“.
    • SSjálfstæðisflokkur:15 með · 0 á móti
    • 23Þingflokkur 23:11 með · 0 á móti
    • FFramsóknarflokkur:8 með · 0 á móti
    • MMiðflokkurinn:7 með · 0 á móti
    • SfSamfylkingin:7 með · 0 á móti
    • 43Þingflokkur 43:6 með · 0 á móti
    • FlfFlokkur fólksins:4 með · 0 á móti
    • VViðreisn:4 með · 0 á móti
  • Samþykkt11. júní 2018 kl. 18:50
    Að samþykkja grein eða þingskjal í málinu „Aðgerðir gegn skattundanskotum og skattsvikum“.
    1. gr., svo breytt,
    • SSjálfstæðisflokkur:15 með · 0 á móti
    • 23Þingflokkur 23:11 með · 0 á móti
    • FFramsóknarflokkur:8 með · 0 á móti
    • MMiðflokkurinn:7 með · 0 á móti
    • SfSamfylkingin:7 með · 0 á móti
    • 43Þingflokkur 43:6 með · 0 á móti
    • FlfFlokkur fólksins:4 með · 0 á móti
    • VViðreisn:4 með · 0 á móti
  • Samþykkt11. júní 2018 kl. 18:50
    Að samþykkja grein eða þingskjal í málinu „Aðgerðir gegn skattundanskotum og skattsvikum“.
    2.--5. gr.
    • SSjálfstæðisflokkur:15 með · 0 á móti
    • 23Þingflokkur 23:11 með · 0 á móti
    • FFramsóknarflokkur:7 með · 0 á móti
    • MMiðflokkurinn:7 með · 0 á móti
    • SfSamfylkingin:7 með · 0 á móti
    • 43Þingflokkur 43:6 með · 0 á móti
    • FlfFlokkur fólksins:4 með · 0 á móti
    • VViðreisn:4 með · 0 á móti
  • yfirlýsing forseta/mál gengur11. júní 2018 kl. 18:50
    Frumvarp gengur til 3. umræðu
    Engin atkvæðaskrá: ákvörðun tekin án rafrænnar atkvæðagreiðslu.
  • Samþykkt11. júní 2018 kl. 19:35
    Að samþykkja frumvarpið „Aðgerðir gegn skattundanskotum og skattsvikum“ sem lög.
    • SSjálfstæðisflokkur:15 með · 0 á móti
    • 23Þingflokkur 23:11 með · 0 á móti
    • FFramsóknarflokkur:8 með · 0 á móti
    • MMiðflokkurinn:7 með · 0 á móti
    • SfSamfylkingin:7 með · 0 á móti
    • 43Þingflokkur 43:6 með · 0 á móti
    • FlfFlokkur fólksins:4 með · 0 á móti
    • VViðreisn:3 með · 0 á móti

Hverjir tóku til máls

4 ræður · 31 mín
  • 1. umræða: 1 ræða · 1 ræðumaður · 20 mín
  • 2. umræða: 3 ræður · 3 ræðumenn · 11 mín

Umsagnir og erindi

5 erindi

Nefndin kallar eftir áliti stofnana, samtaka og almennings. Hér eru þeir sem svöruðu.

Efnahags- og viðskiptanefnd sendi 1 umsagnabeiðni 11. maí 2018, frestur 25. maí 2018.

Hver sendiTegundBarstSkjal
PersónuverndumsögnOpna PDF
Fjármála- og efnahagsráðuneytiðminnisblaðOpna PDF
Alþýðusamband ÍslandsumsögnOpna PDF
Samtök ferðaþjónustunnarumsögnOpna PDF
RíkisskattstjóriumsögnOpna PDF

Tengd mál

Heimild: Alþingi, ferill máls · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.