Beint í efni
Alviti
← Samráðsgátt
S-52/2018 · Dómsmálaráðuneytið

Frumvarp til laga um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka

Óskað er eftir umsögnum um drög að nýjum heildarlögum um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka.

Starfshópur á vegum dómsmálaráðuneytisins hefur frá því í janúar sl. unnið að innleiðingu á tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 2015/849 frá 20. maí 2015 um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka. Í starfshópnum eiga sæti fulltrúar frá dómsmálaráðuneytinu, atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, fjármála- og efnahagsráðuneytinu, Fjármálaeftirlitinu, héraðssaksóknara og samtökum fjármálafyrirtækja. Um er að ræða heildarendurskoðun á lögum nr. 64/2006 um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka. Meðal helstu breytinga sem finna má í frumvarpinu eru: - Fleiri aðilar eru felldir undir gildissvið laganna sem tilkynningarskyldir aðilar, - Tilkynningarskyldum aðilum verður skylt að framkvæma áhættumat á starfsemi sinni, - Umfang áreiðanleikakannana mun taka mið af áhættumati, - Ítarlegri ákvæði um einstaklinga í áhættuhópi vegna stjórnmálalegra tengsla, - Meiri kröfur gerðar til þess að upplýsingum um raunverulega eigendur sé aflað, - Heimildir skrifstofu fjármálagreininga lögreglu til að kalla eftir upplýsingum auknar, - Samvinna, samhæfing og upplýsingamiðlun milli þeirra stjórnvalda sem koma að málaflokknum efld, - Verulegar breytingar á viðurlagakafla laganna. Athygli er vakin á því að um vinnudrög án greinargerðar er að ræða. Unnið verður áfram með frumvarpið og greinargerð næstu mánuði og fullbúin drög ásamt greinargerð kynnt til umsagnar í samráðsgáttinni í kjölfarið. Jafnframt er vakin athygli á því að endanleg ákvörðun um fyrirkomulag eftirlits, með öðrum en þeim sem falla undir eftirlit Fjármálaeftirlitsins, liggur ekki fyrir. Þar sem innleiðingin felur í sér umfangsmiklar breytingar á núverandi löggjöf þykir ástæða til að gefa hagsmunaaðilum færi á að kynna sér drögin tímanlega og því farin sú leið að birta vinnudrög nefndarinnar til umsagnar.

S-52/2018· Drög að frumvarpi til laga· Dómsmálaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 1. maí 2018 – 23. maí 2018· 1 umsögn

Frumvarp til laga um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka

Óskað er eftir umsögnum um drög að nýjum heildarlögum um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Umsagnarfrestur hefst · til 23. maí 2018
  2. Birt í Samráðsgátt (S-52/2018)
  3. Umsagnarfresti lýkur · 1 umsögn barst
  4. Lagt fram á Alþingi (149. þing, mál 314)
  5. Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (9. apríl 2019)

Frumvarpið var sett á vef Stjórnarráðsins og birt í Samráðsgáttinni til kynningar fyrir almenningi. Ein umsögn barst í gegnum gáttina, frá Samtökum atvinnulífsins. Í umsögninni var gerð athugasemd við að í skilgreiningu á raunverulegum eiganda væri miðað við 10% eignarhald í stað 25% líkt og tilskipunin kveður á um sem lágmarkskröfu. Tekið var fullt tillit til umsagnarinnar. Mælt var fyrir frumvarpinu á Alþingi 7. nóvember 2018 sjá hér á vef Alþingis https://www.althingi.is/thingstorf/thingmalalistar-eftir-thingum/ferill/?ltg=149&mnr=314

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (1)

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.

S-52/2018: Frumvarp til laga um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka · Alviti