Frumvarp til laga um öryggi net- og upplýsingakerfa mikilvægra innviða
Um er að ræða drög að frumvarpi til nýrra laga um öryggi net- og upplýsingakerfa mikilvægra innviða þar sem m.a. er lagt til að innleidd verði tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins nr. 1148/2016/ESB um ráðstafanir til að ná háu sameiginlegu öryggisstigi í net- og upplýsingakerfum innan EES, oft skammstöfuð NIS tilskipuni
Ferill í Samráðsgátt
- Birt í Samráðsgátt (S-79/2018)
- Umsagnarfrestur hefst · til 23. ágúst 2018
- Umsagnarfresti lýkur · 10 umsagnir bárust
- Lagt fram á Alþingi (149. þing, mál 416)
- Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (18. desember 2018)
Niðurstaða máls er í stuttu máli sú að 14 umsagnir bárust samanlagt um frumvarpið 10 í gegnum samráðsgátt og 4 beint til ráðuneytisins. Gerð er grein fyrir viðbrögðum við umsögnum í niðurstöðuskjali.
Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (10)
- #1Sigrún H Kristjánsdóttir
Sjá umsögn Samgöngustofu í viðhengi.
- #2Samtök atvinnulífsins
Meðfylgjandi er sameiginleg umsögn Samtaka atvinnulífsins og Samtaka iðnaðarins um frumvarp til laga um öryggi net- og upplýsingakerfa mikilvægra innviða.
- #3Grímur Kjartansson
Ekki er viturlegt að þýða „security breaches“ sem öryggisbrot skárra er að þýða það sem öryggisbrest í samræmi nýju lögin um persónuvernd "Öryggisbrestur við vinnslu persónuupplýsinga: Brestur á öryggi sem leiðir til óviljandi eða ólögmætrar eyðingar persónuupplýsinga eða þess að þær glatist, breytist, verði birtar eða aðgangur verði veittur að þeim í leyfisleysi."
- #4Grímur Kjartansson
Viðbót við fyrri umsögn varðandi þýðingu á security breach sem öryggisbrot Við þýðinguna á ISO27001 notuðum við öryggisrof fyrir security breach öryggisbrot gefur til kynna að reglur hafi verið brotnar sbr. lögbrot, en svo þarf ekki að vera Varðandi rekstarsamfellu - Business continuity management systems — Requirements þá leggja staðlanir þar mikla áherslu á mikilvægi fjármagnsflæðis í Business impact analysis sem er eðlilegt varðandi venjuleg fyrirtæki því annars verða þau bara gjaldþrota og hverfa af sjónarsviðinu - en er það nokkuð raunhæft fyrir þessi fyrirtæki?
- #5Árni Steingrímur Sigurðsson
Núverandi 8. gr. veitir ráðherra óásættanlega eftirlitsheimild. Þarna verður að afmarka mjög skýrt að eingöngu megi vakta heilbrigði netumferðar en ekki innihald.
Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.