Beint í efni
Alviti
← Samráðsgátt
S-51/2018 · Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Drög að frumvarpi til laga um breyting á lögum nr. 88/1991, um aukatekjur ríkissjóðs, með síðari breytingum (dvalarleyfi vegna samninga við erlend ríki).

Til þess að stuðla að því samningar náist um tímabundna dvöl ungmenna erlendis og hérlendis er lagt til að útlendingar sem hingað koma á grundvelli slíkra samninga verði undanþegnir gjaldi fyrir dvalarleyfi.

Samkvæmt ákvæði 32. tölul. 1. mgr. 14. gr. laga nr. 88/1991, um aukatekjur ríkissjóðs, ber að greiða 15.000 kr. gjald fyrir afgreiðslu umsóknar um dvalarleyfi hér á landi. Íslenskum stjórnvöldum er heimilt að gera samning við erlent ríki um dvöl ríkisborgara þess hér á landi í þeim tilgangi að kynna sér landið og menningu þess, sbr. 66. gr. laga nr. 80/2016, um útlendinga. Með frumvarpinu er lagt til að þeir sem fá dvalarleyfi á grundvelli slíks samnings verði í ákveðnum tilfellum undanþegnir gjaldtöku fyrir afgreiðslu umsóknar um dvalarleyfi. Þar sem afgreiðslugjaldið er innheimt á grundvelli lögbundinnar gjaldtökuheimildar verður aðeins vikið frá gjaldskyldunni með breytingu á lögum.

S-51/2018· Drög að frumvarpi til laga· Fjármála- og efnahagsráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 30. apr. 2018 – 10. maí 2018· 0 umsagnir

Drög að frumvarpi til laga um breyting á lögum nr. 88/1991, um aukatekjur ríkissjóðs, með síðari breytingum (dvalarleyfi vegna samninga við erlend ríki).

Til þess að stuðla að því samningar náist um tímabundna dvöl ungmenna erlendis og hérlendis er lagt til að útlendingar sem hingað koma á grundvelli slíkra samninga verði undanþegnir gjaldi fyrir dvalarleyfi.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-51/2018)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 10. maí 2018
  3. Umsagnarfresti lýkur · 0 umsagnir bárust
  4. Lagt fram á Alþingi (148. þing, mál 629)
  5. Niðurstöður samráðs birtar
Innsendar umsagnir í Samráðsgátt

Engar umsagnir hafa borist.

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.

S-51/2018: Drög að frumvarpi til laga um breyting á lögum nr. 88/1991, um aukatekjur ríkissjóðs, með síðari breytingum (dvalarleyfi vegna samninga við erlend ríki). · Alviti