Beint í efni
Alviti
← Samráðsgátt
S-44/2018 · Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 50/1988, um virðisaukaskatt (kaup og sala þjónustu milli landa, áskriftir og sala fréttablaða o.fl.)

Um er að ræða ýmsar breytingar á lögum um virðisaukaskatt er varða: a) kaup og sölu á þjónustu milli landa, b) rafræna sölu og áskriftir tímarita og fréttablaða og c) heimild ferðaþjónustuleyfishafa til færslu innskatts.

Í frumvarpsdrögunum eru lagðar til breytingar á lögum nr. 50/1988, um virðisaukaskatt. Þær breytingar sem lagðar eru fram í drögunum eru þríþættar. Í fyrsta lagi eru lagðar til breytingar á ákvæðum laganna um kaup og sölu á þjónustu milli landa. Breytingarnar eru byggðar á skýrslu starfshóps um kaup og sölu á vöru og þjónustu milli landa sem skilað var til fjármála- og efnahagsráðherra í október 2016. Í öðru lagi eru lagðar til breytingar á ákvæðum laganna um rafræna sölu og áskriftir á tímaritum og fréttablöðum. Um er að ræða breytingar sem byggðar eru á tillögum nefndar um bætt rekstrarumhverfi einkarekinna fjölmiðla, en nefndin skilaði skýrslu til mennta- og menningarmálaráðherra þann 25. janúar sl. Í þriðja og síðasta lagi eru lagðar til breytingar á ákvæðum laganna um heimild ferðaþjónustuleyfishafa til færslu innskatts af aðföngum sínum vegna öflunar og reksturs fólksbifreiða hér á landi í atvinnuskyni.

S-44/2018· Drög að frumvarpi til laga· Fjármála- og efnahagsráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 5. apr. 2018 – 10. apr. 2018· 0 umsagnir

Frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 50/1988, um virðisaukaskatt (kaup og sala þjónustu milli landa, áskriftir og sala fréttablaða o.fl.)

Um er að ræða ýmsar breytingar á lögum um virðisaukaskatt er varða: a) kaup og sölu á þjónustu milli landa, b) rafræna sölu og áskriftir tímarita og fréttablaða og c) heimild ferðaþjónustuleyfishafa til færslu innskatts.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-44/2018)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 10. apríl 2018
  3. Umsagnarfresti lýkur · 0 umsagnir bárust
  4. Lagt fram á Alþingi (148. þing, mál 562)
  5. Niðurstöður samráðs birtar
Innsendar umsagnir í Samráðsgátt

Engar umsagnir hafa borist.

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.

S-44/2018: Frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 50/1988, um virðisaukaskatt (kaup og sala þjónustu milli landa, áskriftir og sala fréttablaða o.fl.) · Alviti