Beint í efni
Alviti
← Samráðsgátt
S-76/2018 · Innviðaráðuneytið

Áform um lagasetningu - Frumvarp til laga um leigubifreiðar

Samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra hefur með hliðsjón af tillögum starfshóps ráðuneytisins um endurskoðun regluverks um leigubifreiðar, tekið ákvörðun um að í ráðuneytinu skuli hefja undirbúning að frumvarpi til nýrra laga um leigubifreiðar með það að markmiði að leggja það fram á haustþingi Alþingis 2019.

Starfshópur sem skipaður var á vegum samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytisins í október á síðasta ári til að endurskoða í heild regluverk um leigubifreiðaakstur á Íslandi hefur skilað skýrslu með tillögum sínum. Starfshópurinn telur m.a. rétt að afnema fjöldatakmarkanir á útgefnum atvinnuleyfum til leigubifreiðaaksturs og að fallið verði frá lögbundinni stöðvarskyldu. Samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra hefur með hliðsjón af tillögum starfshópsins tekið ákvörðun um að í ráðuneytinu skuli hefja undirbúning að frumvarpi til nýrra laga um leigubifreiðar með það að markmiði að leggja það fram á haustþingi Alþingis 2019. Tilefni endurskoðunarinnar var annars vegar frumkvæðisathugun Eftirlitsstofnunar EFTA á íslenskum leigubifreiðamarkaði og mögulegum hindrunum á aðgengi að honum. Hins vegar rökstutt álit ESA gagnvart Noregi þar sem gerðar eru alvarlegar athugasemdir við aðgangshindranir að norskum leigubifreiðamarkaði. Norsk löggjöf um leigubifreiðar er um margt lík þeirri íslensku. Starfshópnum var falið að leggja fram tillögur til ráðuneytisins um hvort og þá hvaða breytingar væri nauðsynlegt að gera á íslensku regluverki um leigubifreiðaakstur með hliðsjón af áliti ESA gagnvart Noregi og frumkvæðisathugun ESA á Íslandi. Meginmarkmið starfshópsins var að stuðla að góðu aðgengi að hagkvæmri, skilvirkri og öruggri leigubifreiðaþjónustu á Íslandi. Einnig að tryggja að regluverkið væri í fyllsta samræmi við skuldbindingar íslenska ríkisins að EES-rétti og að engar aðgangshindranir fælust í regluverkinu nema þær sem væru réttlætanlegar vegna almannahagsmuna. Starfshópurinn skilaði ráðherra áfangaskýrslu þann 6. febrúar sl. og lokaskýrslu með niðurstöðum starfshópsins var skilað 11. apríl. Sem fyrr segir kemur fram í lokaskýrslu hópsins að starfshópurinn telur rétt að afnema fjöldatakmarkanir á útgefnum atvinnuleyfum til leigubifreiðaaksturs og að fallið verði frá lögbundinni stöðvarskyldu. Þá leggur starfshópurinn til að starfsemi leigubifreiða verði háð skilyrðum sem eiga að tryggja öryggi og gæði þjónustunnar. Tvenns konar leyfi verði til staðar, þ.e. atvinnuleyfi, sem er leyfi til að aka leigubifreið, og rekstrarleyfi, sem er leyfi til að reka eina leigubifreið. Niðurstöður starfshópsins kalla á talsverðar lagabreytingar. Sigurður Ingi Jóhannsson samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra hefur tekið ákvörðun um að í hefja skuli undirbúning að frumvarpi til nýrra laga um leigubifreiðar til framlagningar á haustþingi á Alþingis 2019.

S-76/2018· Áform um lagasetningu· Innviðaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 19. jún. 2018 – 19. júl. 2018· 8 umsagnir

Áform um lagasetningu - Frumvarp til laga um leigubifreiðar

Samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra hefur með hliðsjón af tillögum starfshóps ráðuneytisins um endurskoðun regluverks um leigubifreiðar, tekið ákvörðun um að í ráðuneytinu skuli hefja undirbúning að frumvarpi til nýrra laga um leigubifreiðar með það að markmiði að leggja það fram á haustþingi Alþingis 2019.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-76/2018)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 19. júlí 2018
  3. Umsagnarfresti lýkur · 8 umsagnir bárust
  4. Niðurstöður samráðs birtar
  5. Lagt fram á Alþingi (150. þing, mál 421)
Niðurstöður samráðs (17. maí 2019)

Frumvarp til laga um leigubifreiðar birt í samráðsgátt 17. maí 2019 í samræmi við efni áforma.

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (8)
  • #1Guðjón Ólafur Sigurbjartsson

    Gott er að sjá að hugmyndin er að opna leigubílamarkaðinn væntanlega neytendum í hag. Horfa þarf til hagsmuna neytenda, það er almennings í þessu sambandi. Gæta þarf þess að mögulegt verði að nýta tæknilegar lausnir í anda deilihagkerfisins, samanber lausnina sem fyrirtækið Uber stendur fyrir. Hagkvæmari leigubílar þýða að færri þurfa að eiga og reka eigin bíl og lækkar kostnað við ferðir og samgöngukerfið með betri nýtingu. Guðjón Sigurbjartsson, viðskiptafræðingur og áhugamaður um almannahag og neytendamál :)

  • #2Samkeppniseftirlitið

    Umsögn Samkeppniseftirlitsins - Frumvarp til laga um leigubifreiðar - áform um lagasetningu. Sjá meðfylgjandi viðhengi.

  • #3Neytendastofa

    Umsögn Neytendastofu - Frumvarp til laga um leigubifreiðar - Áform um lagasetningu, sjá umsögn í meðfylgjandi viðhengi.

  • #4Viðskiptaráð Íslands

    Umsögn Viðskiptaráðs Íslands - Frumvarp til laga um leigubifreiðar - áform um lagasetningu. Sjá umsögn í meðfylgjandi viðhengi.

  • #5A-stöðin ehf

    Frumvarp til laga um leigubifreiðar - áform um lagasetningu. Sjá meðfylgjandi viðhengi.

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.

S-76/2018: Áform um lagasetningu - Frumvarp til laga um leigubifreiðar · Alviti