Beint í efni
Alviti
← Samráðsgátt
S-32/2018 · Innviðaráðuneytið

Tillaga til þingsályktunar um stefnumótandi byggðaáætlun fyrir árin 2018 til 2024

Tillaga til þingsályktunar um stefnumótandi áætlun í byggðamálum 2018-2024 kynnt í samráðsgátt Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið kynnir drög að tillögu til þingsályktunar um stefnumótandi byggðaáætlun fyrir árin 2018 til 2024 á samráðsgátt um opið samráð stjórnvalda.

Tillaga til þingsályktunar um stefnumótandi áætlun í byggðamálum 2018-2024 kynnt í samráðsgátt Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið kynnir drög að tillögu til þingsályktunar um stefnumótandi byggðaáætlun fyrir árin 2018 til 2024 á samráðsgátt um opið samráð stjórnvalda. Frestur til að skila umsögnum til rennur út kl. 16.00 miðvikudaginn 21. mars 2018. Áætlunin er unnin í samræmi við lög um byggðaáætlun og sóknaráætlanir nr. 69/2015 þar sem kveðið er á um að áætlunin lýsi stefnu ríkisins í byggðamálum hverju sinni og samhæfingu við aðra stefnumótun og áætlanagerð hins opinbera. Byggðaáætluninni er ætlað að stuðla að jákvæðri þróun byggða og að efla samkeppnishæfni þeirra sem og landsins alls. Markmið byggðaáætlunar Byggðamál eru öll þau viðfangsefni sem hafa áhrif á lífsgæði og samkeppnishæfni landshluta, svo sem búsetu, atvinnu og nýsköpun. Þau snúa að eflingu samfélaga, félagsauðs, atvinnulífs, menntunar, menningar, velferðarmála, samgangna, fjarskipta og umhverfis- og auðlindamála. Samkvæmt þessari skilgreiningu eru byggðamál viðfangsefni allra ráðuneyta með einhverjum hætti. Því er mikilvægt að samhæfa byggðasjónarmið sem mest við alla málaflokka hvort heldur er hjá ríki eða sveitarfélögum. Byggðaáætlun setur fram eftirfarandi þrjú markmið: A. Að jafna aðgengi að þjónustu. B. Að jafna tækifæri til atvinnu. C. Að stuðla að sjálfbærri þróun byggða um allt land. Margvíslegar áherslur á sviði byggðamála eru tíundaðar í áætluninni sem eiga að leiða til beinna og skilgreindra aðgerða eða til samþættingar við aðgerðir í öðrum opinberum áætlunum til að framangreindum markmiðum verði náð. Alls eru 50 aðgerðir skilgreindar, sem heyra undir ábyrgðarsvið flestra ráðuneyta, auk þess sem mælikvarðar eru settir við hvert markmið. Fjárheimildir byggðaáætlunar verða nýttar til að fjármagna einstakrar aðgerðir, ýmist alfarið eða með samfjármögnun með ábyrgðaraðilum, eftir því sem fjárheimilir fjárlaga leyfa hverju sinni. Tillaga um skiptingu fjárheimilda byggðaáætlunar milli einstakra aðgerða og forgagnsröðun þeirra í því sambandi er enn í vinnslu. Undirbúningur og samráð Tillaga til þingsályktunar um stefnumótandi byggðaáætlun 2018-2024 hefur verið í vinnslu um nokkurt skeið. Ráðherra byggðamála fól Byggðastofnun að vinna áætlunina samkvæmt nýjum lögum með bréfi dags. 9. mars 2016. Að hálfu Byggðastofnunar var lögð áhersla á opinn mótunarferil og leitað var eftir viðhorfum til þess hvernig byggðaáætlun væri best hagað eftir nýjum lögum, sem og hvernig samspilið ætti að vera við sóknaráætlanir landshlutanna og áætlanir ráðuneyta. Samráðsfundir hafa verið haldnir með samráðsvettvangi sjö landshluta, en hver samráðsvettvangur um sig er skipaður nokkrum tuga einstaklinga úr öllum geirum og svæðum landshlutans og móta sóknaráætlanir þeirra. Með þessum fundum hófst formlegt samráð sem síðan var ræktað á vefsíðu Byggðastofnunar þar sem gögn voru aðgengileg og allir gátu lagt fram tillögur. Til þess að fá sýn á byggðaþróun frá utan að komandi aðila var Framtíðarsetur Íslands fengið til þess að greina sviðsmyndir fyrir búsetuþróun á landinu til ársins 2030 og voru niðurstöður kynntar á opnum fundi í Reykjavík 27. september 2016. Drögum að byggðaáætlun var skilað til ráðherra í janúar 2017 eða um það leyti sem byggðamál voru færð í nýtt ráðuneyti samgöngu- og sveitarstjórna. Haustið 2017 var skipaður verkefnishópur fulltrúa allra skrifstofa samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytisins, Byggðastofnunar og Sambands íslenskra sveitarfélaga til að fullvinna drög Byggðastofnunar. Endurbætt drög hafa síðan verið kynnt öllum ráðuneytum og eru nú sett fram í opið samráðsferli. Frestur til umsagna Frestur til að skila umsögnum til samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytisins rennur út kl. 16 miðvikudaginn 21. mars 2018. Nánari upplýsingar veitir Hólmfríður Sveinsdóttir í netfanginu holmfridur.sveinsdottir@srn.is. Vakin er athygli á því að umsagnir verða birtar opinberlega á vefsíðu þessari um leið og þeim hefur verið skilað.

S-32/2018· Drög að stefnu· Innviðaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 12. mar. 2018 – 21. mar. 2018· 24 umsagnir

Tillaga til þingsályktunar um stefnumótandi byggðaáætlun fyrir árin 2018 til 2024

Tillaga til þingsályktunar um stefnumótandi áætlun í byggðamálum 2018-2024 kynnt í samráðsgátt Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið kynnir drög að tillögu til þingsályktunar um stefnumótandi byggðaáætlun fyrir árin 2018 til 2024 á samráðsgátt um opið samráð stjórnvalda.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-32/2018)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 21. mars 2018
  3. Umsagnarfresti lýkur · 24 umsagnir bárust
  4. Lagt fram á Alþingi (148. þing, mál 480)
  5. Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (27. ágúst 2018)

Drög að tillögu til þingsályktunar um stefnumótandi byggðaáætlun fyrir árin 2018-2024 voru kynnt í samráðsgátt um opið samráð stjórnvalda dagana 12.-21. mars 2018. Áætlunin var unnin í samræmi við lög um byggðaáætlun og sóknaráætlanir nr. 69/2015 þar sem kveðið er á um að áætlunin lýsi stefnu ríkisins í byggðamálum hverju sinni og samhæfingu við aðra stefnumótun og áætlanagerð hins opinbera. Alls bárust 25 umsagnir frá einstaklingum, sveitarfélögum, félagasamtökum og öðrum haghöfum. Umsagnirnar voru gagnlegar og tekið var tillit til þeirra eins og kostur var. Þá munu þær jafnframt nýtast vel við framkvæmd og eftirfylgd byggðaáætlunar. Í nokkrum tilvikum leiddu umsagnir til að bætt var við aðgerð eða áherslu. Áberandi var hve margir sáu ástæðu til að brýna stjórnvöld til að tryggja fjármagn til þeirra aðgerða sem tilgreindar er. Þá þökkuðu margir fyrir það mikla samráð sem haft var við vinnslu áætlunarinnar. Stefnumótandi byggðaáætlun fyrir árin 2018-2024 var samþykkt á Alþingi 11. júní sl. Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið þakkar hér með öllum þeim sem skiluðu inn umsögn.

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (24)
  • #1Vilhjálmur Egilsson
    Sæl. Starfsemi háskóla á landsbyggðinni er afar mikilvæg fyrir þau samfélög sem þeir starfa í. Skólarnir veita nemendum menntun á sínum afmörkuðu starfssviðum og landsbyggðarháskólarnir hafa verið á undan í þróun fjarnáms meðal íslenskra háskóla. Þannig eru 80% allra nemenda Háskólans á Bifröst í fjarnámi. Háskólarnir á landsbyggðinni þjóna íslenskum nemendum um allt land og erlendis auk þess að mennta erlenda nemendur. Landsbyggðarháskólarnir hafa allir átt í fjárhagslegum erfiðleikum á undanförnum árum og verið í mikilli varnarbaráttu. Í drögum að byggðaáætlun er fjallað um háskólam… Lesa alla

    Sæl. Starfsemi háskóla á landsbyggðinni er afar mikilvæg fyrir þau samfélög sem þeir starfa í. Skólarnir veita nemendum menntun á sínum afmörkuðu starfssviðum og landsbyggðarháskólarnir hafa verið á undan í þróun fjarnáms meðal íslenskra háskóla. Þannig eru 80% allra nemenda Háskólans á Bifröst í fjarnámi. Háskólarnir á landsbyggðinni þjóna íslenskum nemendum um allt land og erlendis auk þess að mennta erlenda nemendur. Landsbyggðarháskólarnir hafa allir átt í fjárhagslegum erfiðleikum á undanförnum árum og verið í mikilli varnarbaráttu. Í drögum að byggðaáætlun er fjallað um háskólamenntun á nokkrum stöðum. Í greinargerð er m.a. á bls. 24 rætt um áhyggjur af stöðu landsbyggðarháskólanna. En þegar litið er stefnumörkunarinnar sjálfrar t.d. á bls. 3,5 og 8 kemur ekkert fram um að efla þurfi landsbyggðarháskólana sérstaklega heldur er rætt um rannsóknsetur, aðstöðu til fjarnáms o.s.frv. Að því sem snýr að náminu má allt eins skilja að áherslan eigi að vera á að nemendur á landsbyggðinni eigi að geta sótt fjarnám til háskóla á höfuðborgarsvæðinu. Rekstur háskóla er mikilvæg atvinnugrein í landinu sem mun þurfa að vaxa á næstu áratugum. Það hlýtur að vera mikið byggðamál að þessi atvinnugrein vaxi kröftuglega á landsbyggðinni en verði ekki áfram einn af stóru togkröftunum til höfuðborgarsvæðisins. Háskólar á landsbyggðinni þurfa því að fá ótvíræðan stuðning í byggðaáætlun til að þróast, vaxa og sækja fram. Þjónustusvæði landsbyggðarháskólanna á ekki að einskorðast við landsbyggðina eða Ísland heldur þurfa þeir svigrúm til að geta farið í auknum mæli á alþjóðlegan markað og laðað til sín erlenda nemendur. Vilhjálmur Egilsson, rektor Háskólans á Bifröst

  • #2Gísli Halldór Halldórsson
    Í tillögunni er þessi setning: "Stuðlað verði að því að verslun á dreifbýlum svæðum, fjarri stórum þjónustukjörnum, verði við haldið." Þetta þarf að íhuga betur í ljósi þeirrar öru þróunar sem nú er í stafrænni verslun. Beina þarf sjónum að því að öflug vörudreifing sé á hverjum stað þannig að íbúarnir geti verslað í næsta stórmarkaði eða öðrum verslunum og fengið vöruna senda eða sótt hana á ákveðinn stað í nágrenninu, á sem skemmstum tíma frá kaupum. Ef þessi þjónusta á að ná til vöruflokka s.s. lyfja, áfengis og e.t.v. fleira gæti þurft lagabreytingar til að ná þessum markmiðum um sem bes… Lesa alla

    Í tillögunni er þessi setning: "Stuðlað verði að því að verslun á dreifbýlum svæðum, fjarri stórum þjónustukjörnum, verði við haldið." Þetta þarf að íhuga betur í ljósi þeirrar öru þróunar sem nú er í stafrænni verslun. Beina þarf sjónum að því að öflug vörudreifing sé á hverjum stað þannig að íbúarnir geti verslað í næsta stórmarkaði eða öðrum verslunum og fengið vöruna senda eða sótt hana á ákveðinn stað í nágrenninu, á sem skemmstum tíma frá kaupum. Ef þessi þjónusta á að ná til vöruflokka s.s. lyfja, áfengis og e.t.v. fleira gæti þurft lagabreytingar til að ná þessum markmiðum um sem besta vörudreifingu.

  • #3Samband sveitarfél Suðurnesjum
    148.löggjafarþing 2017-2018 Þingskjal X-X mál. Umsögn: Tillaga til þingsályktunar um stefnumótandi byggðaáætlun fyrir árin 2018-2024. Alþingi ályktar, sbr. lög nr. 69/2015, um byggðaáætlun og sóknaráætlanir að fela ríkisstjórninni að vinna að framkvæmd eftirfarandi stefnu og aðgerðaráætlun í byggðamálum og að gert verði ráð fyrir framkvæmd hennar við gera fjárlaga hvers árs. Samband sveitarfélaga á Suðurnesjum fagnar því að unnið sé að stefnumótandi byggðaáætlun fyrir árin 2018-2024. Í drögum þeim sem til umsagnar kemur fram að byggðaáætlun sé ætlað að stuðla að jákvæðri þróun byggð… Lesa alla

    148.löggjafarþing 2017-2018 Þingskjal X-X mál. Umsögn: Tillaga til þingsályktunar um stefnumótandi byggðaáætlun fyrir árin 2018-2024. Alþingi ályktar, sbr. lög nr. 69/2015, um byggðaáætlun og sóknaráætlanir að fela ríkisstjórninni að vinna að framkvæmd eftirfarandi stefnu og aðgerðaráætlun í byggðamálum og að gert verði ráð fyrir framkvæmd hennar við gera fjárlaga hvers árs. Samband sveitarfélaga á Suðurnesjum fagnar því að unnið sé að stefnumótandi byggðaáætlun fyrir árin 2018-2024. Í drögum þeim sem til umsagnar kemur fram að byggðaáætlun sé ætlað að stuðla að jákvæðri þróun byggð og efla samkeppnishæfni þeirra sem og landsins allt. Í kaflanum „framtíðarsýn og áskoranir“ eru áskoranir taldar upp en vert er að benda á að ekki er einu orði minnst á aðgerðir stjórnvalda til að bregðast við áskorunum sem blasa við svæðum sem skilgreind eru sem Vaxtarsvæði. Lagt er til að bætt sé inn í byggðaáætlun hvernig bregðast eigi við til aðstoðar þeim sveitarfélögum sem takast á við mikla fólksfjölgun. Eftirfarandi ábendingar eiga við kafla Markmið og mælikvarðar. Kafli A - Jafna aðgengi að þjónustu. Þegar kemur að því að meta mælikvarða geti biðtími eftir tíma hjá lækni verið góður mælikvarði. Á Suðurnesjum er biðtími eftir bókuðum tíma á heilsugæslustöð allt að 3 vikur. Kafli B – Jafna tækifæri til atvinnu Fram kemur í þeim kafla að jafna eigi aðstöðu millilandaflugvalla. Gott væri að skýra það með hvaða hætti gera ætti það. Er það t.d. með fleiri aðgerðum en að vinna tillögu um verðjöfnun á eldsneyti eins og fram kemur í B-10? Kafli C – Stuðla að sjálfbærri þróun byggða um land allt. Inn í þessa uppsetningu mætti bætta einnig góðu aðgengi á grunnheilbrigðisþjónustu. Í kafla sem merktur er A.10 – almenningssamgöngur um land allt, kemur fram að tímabil þess verkefnis sé frá 2019-2021. Sá tími er of stuttur ef það er markmið verkefnis að ná fram fjárhagslegri hagræðingu auk betri þjónustu. Meiri líkur eru á því að hægt sé að ná betri samninga með útboði þar sem samningstíminn er allt að sjö árum. Í útboðum gera verktakar ráð fyrir afskriftum af vögnum og með tilliti til tímaramma þá eru þrjú ár of stuttur samningstími og væri til þess fallinn að tilboð í akstur væri dýrari en ella. Kafli A.13 Nærþjónusta við innflytjendur. Þessum kafla er fagnað, sérstaklega í ljósi þess að á Suðurnesjum hefur eftirspurn eftir vinnuafli verið mætt með vinnuafli erlendis frá. Hlutfall innflytjenda á Suðurnesjum var 19,06% árið 2017 og eru Pólverjar langfjölmennasti hópurinn. Hæst er hlutfallið í Sandgerðisbæ eða 21,6% en lægst í Vogum 14,93% . Hlutfall innflytjenda eftir sveitarfélögum 1. janúar 2017 • Reykjanesbær 19,32% • Grindavíkurbær 17,34% • Sandgerðisbær 21,6% • Sveitarfélagið Garður 20,32% • Sveitarfélagið Vogar 14,93% Miðað við þær áætlanir sem Isavia hefur sett fram um aukningu á farþegum í gegnum Keflavíkurflugvöll má búast við verulegri fjölgun starfa. Ekki er hægt að mæta þeirri fjölgun með náttúrulegum hætti og búast má því við því að hlutfalli innflytjanda á Suðurnesjum muni hækka enn frekar á komandi árum. Kafli C1 – Sértæk verkefni sóknaráætlunarsvæða. Markmið þessa kafla er m.a. að bregðast við fólksfækkun sóknaráætlunarsvæðum. Það getur hins vegar verið mikil áskorun að takast á við mikla íbúafjölgun á stuttum tíma. Á síðustu árum hefur orðið gríðarleg fólksfjölgun á Suðurnesjum sem skýrist að miklu leyti af verulega auknum umsvifum á Keflavíkurflugvelli. Þannig voru íbúar Suðurnesja 21.560 árið 2014 en 25.800 í lok árs 2017. Í Reykjanesbæ sem er stærsta einstaka sveitarfélagið á Suðurnesjum hefur fjölgunin orðið 14.254 árið 2014 í 17.810 í lok árs 2017. Hlutfallslega er fjölgun íbúa á landinu er langmest á Suðurnesjum. Íbúafjöldi landsins hefur frá árinu 2000 aukist um 19% eða um 53.480 manns. Meginhluti þessarar aukningar er á höfðaborgarsvæðinu og Suðurnesjum eða 64%. Fjölgun íbúa á Suðurnesjum á þessum tíma er 24%. Ef skoðuð eru árin 2013-2017 fjölgaði íbúum á Suðurnesjum um 21%, meðan íbúum á Suðurlandi fjölgaði um 11% og íbúum á höfuðborgarsvæðinu fjölgaði um 8%. Á síðustu 24 mánuðum hefur íbúum á Suðurnesjum fjölgað um 15%. Nýlega hafa fulltrúar sveitarstjórna á Suðurnesjum hafa lýst yfir áhyggjum vegna þessa þar sem fólksfjölgun á svæðinu hefur verið langt umfram meðaltalsfjölgun á landinu öllu en aukning fjárframlaga ríkisins til stofnana og verkefna á svæðinu hefur á engan hátt fylgt þeirri þróun. Í áætlanagerð ríkisins virðist ekki vera tekið nægjanlegt tillit til þess ef óvenju mikil fólksfjölgun verður á einstökum svæðum. Af þeim sökum er lagt til að m.a. verði skoðað sérstaklega fjárframlög ríkisins til opinberra stofnana og annarra mikilvægra verkefna á svæðinu til þess að íbúar búi við sömu þjónustu og íbúar annarra svæða landsins. Má t.d. geta þess að fjáraukning til Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja var 1% á ári með 0,5% hagræðingarkröfu meðan að íbúum svæðisins fjölgaði um 15%. Kafli C.9 – Náttúruvernd og efling byggða. Inn í þennan kafla Byggðaáætlunar mætti gjarnan setja inn nokkur orð um Jarðvanga (e.Geopark) en Geopark vinnur að því að kveikja áhuga íbúa og gesta á Jörðinni, m.a. með því að vekja athygli á áhugaverðri jarðsögu, fræða og annast landið. Hugtakið Geopark er skilgrein af alþjóðlegum samtökum Geoparka sem nefnast Global Geoparks Network og starfa þau undir verndarvæng UNESCO. Um 100 geoparkar eru aðilar að samtökunum í dag, þ.e. svæði svæði sem innihalda merkilegar jarðminjar og koma þeim á framfæri. Kafli C.12. – Kynning og innleiðing áfangastaðaáætlana. Fram kemur að Markaðsstofur landshluta eigi að vera framkvæmdaaðili þessa verkefnis, sem er afar ánægjulegt og í anda m.a. Sóknaráætlunar. Ljóst er að tryggja þarf lágmarksfjárframlög til Markaðsstofa á Íslandi eigi þau að taka þessa verkefni að sér. Eins og staðan er í dag hefur það ekki verið gert og óvíst um rekstur Markaðsstofanna. Lagt er til að þetta verkefni verði hluti af verkefnum Sóknaráætlana. Með tillögu til þingsályktunar um stefnumótandi byggðaáætlun fyrir árin 2018-2024 fylgir greindargerð. Lagt er til að allar tölulegar upplýsingar sem koma fram í greinargerð séu uppfærðar og fram komi með nákvæmari hætti frá hvað tíma tölulegu gögnin eru. Mikill munu getur verið t.d. á mannfjölda tölum sem safnað er saman í upphafi árs og í lok árs. Það er mikilvægt að halda þessu til haga svo lesandi geti glöggvað sig betur á samhengi. Tölur um hagvöxt sem fram koma í greinargerð eru einnig orðnar nokkuð gamlar en þær eru frá 2009-2015. Spá um mannfjölda þarf einnig að uppfæra en þar kemur fram að í miðspá Hagstofu Íslands að gert er ráð fyrir að íbúar á Suðurnesjum verði 27.307 árið 2024 en skv. ársfjórðungstölum Hagstofu Íslands í lok árs 2017 eru íbúar á Suðurnesjum tæplega 26 þúsund. Að lokum er tekið undir þau orð sem koma fram í drögum að Byggðaáætlun að markmið hennar sé að landið allt sé í blómlegri byggð þar sem landsmenn hafi aðgang að grunnþjónustu, atvinnutækifærum og lífskjörum, óháð efnahag og búsetu. Það verður hins vegar ekki gert með því að horfa aðeins á þau svæði sem búa við fækkun íbúa heldur að tryggja öllum íbúum aðgang að fyrrnefndum gæðum. Því ber að horfa líka til þeirra sveitarfélaga á landinu sem þurfa að takast á við mikla fjölgun íbúa. Virðingarfyllst, Berglind Kristinsdóttir Framkvæmdastjóri Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum.

  • #4Jón Guðmundsson
    Athugasemdir við tillögu til þingsályktunar um stefnumótandi byggðaáætlun fyrir árin 2018-2024. Almennt: Í fyrst lagi er komið árið 2018 og fjárlög ársins þegar afgreidd og áætlunin getur því í fyrsta lagi orðið virk árið 2019. Fyrir utan það að umhverfis og auðlindamál eru aftast í upptalningunni um að hverju byggðamál snúi þá er hlutur þeirra í stefnumótuninni afskaplega rýr. Hér á eftir verða reifuð nokkur atrið sem gætu aukið vægi umhverfis og auðlindamála í byggðaáætluninni. Kafli: Byggðamál Upptalning á því að hverju byggðamál snúi er í setningunni „Þau snúa að eflingu, samféla… Lesa alla

    Athugasemdir við tillögu til þingsályktunar um stefnumótandi byggðaáætlun fyrir árin 2018-2024. Almennt: Í fyrst lagi er komið árið 2018 og fjárlög ársins þegar afgreidd og áætlunin getur því í fyrsta lagi orðið virk árið 2019. Fyrir utan það að umhverfis og auðlindamál eru aftast í upptalningunni um að hverju byggðamál snúi þá er hlutur þeirra í stefnumótuninni afskaplega rýr. Hér á eftir verða reifuð nokkur atrið sem gætu aukið vægi umhverfis og auðlindamála í byggðaáætluninni. Kafli: Byggðamál Upptalning á því að hverju byggðamál snúi er í setningunni „Þau snúa að eflingu, samfélaga. ……….. , og umhverfis- og auðlindamála“. Gerð er tillaga um að í stað orðanna „umhverfis- og auðlindamála“ komi „náttúrulegs umhverfis og sjálfbærri nýtingu auðlinda“ Kafli: Framtíðarsýn og áskoranir Tillaga að viðbót Mikilvæg undirstaða byggða er sá náttúrlegi auður sem þær nýta. Hvort sem um er að ræða fengsæl fiskimið vel gróið og frjósamt land í góðu ástandi eða sérstakt landslag eða aðrar náttúrulegar auðlindir sem þar er að finna. Til þess að byggðir fái þrifist er því mikilvægt að huga að varðveislu þessara auðlinda og að nýting þeirra sé sjálfbær svo komandi kynslóðir byggðalagsins geti einnig byggt sína afkomu á nýtingu þeirra. Það er því miður svo að víða um land hefur þessum auðlindum hnignað vegna ofnýtingar, og annarra áfalla. Þess vegna er ein mikilvægast áskorunin sem byggðirnar standa frami fyrir sú að tryggja að þessar auðlindir verði til staðar og að arðurinn af nýtingu þeirra verði sem mest eftir í viðkomandi byggð en sé ekki sogaður þaðan burt. Kafli: Markmið og mælikvarðar A: Jafna aðgengi að þjónustu Einn liður í þeim áherslum sem upp eru taldar er • „Orkukostnaður heimila verði jafnaður og starf eflt við uppsetningu á varmadælum.“ Án þess að í nokkru sé hallað á varmadælur sem aðferði til að bæta nýtingu raforku til hús hitunnar, þá er verið að þrengja úrlausnarkosti óþarflega mikið. Víða þar sem búskapur er fyrir hendi er hægt að nýta búfjáráburð og annan lífrænan úrgang til orkuvinnslu með loftfirrtu niðurbroti og metanmyndun. Einnig getur viðarkinding úr skógrækt verið valkostur annars staðar. B: Jafna tækifæri til atvinnu: Uppbygging innviða fyrir vinnslu orku og næringarefna úr lífrænum úrgangi/hráefnum (búfjáráburður, lífrænn úrgangur frá heimilum og atvinnurrekstri, seyra, ræktaður lífmassi) getur líka verið liður í því að styrkja grundvöll fyrir fjölbreytt atvinnutækifæri. Einn liður sem talinn er upp undir áherslum • „Stuðlað verði að notkun á vistvænni orku fyrir bíla“ Þetta er óþarflega þröngt og er lagt til að í stað orðanna „fyrir bíla.“ komi „í stað jarðefnaeldsneytis.“ Lagt er til að bætt veriði við einum lið í mælikvarðanna þ.e. • Aðgengi að vistvænu eldsneyti C: Stuðla að sjálfbærri þróun byggða um allt land Sérstakt að nær eingöngu séu taldir hér upp félagslegu þættirnir. Venjulega er talað um þrjár megin stoðir sjálfbærrar þróunar þ.e. efnahagslegar, félagslegar og umhverfislegar. Það hlýtur að vera mikilvægt að horfa til þeirra allra þegar stuðla á að sjálfbærri þróun byggða. Umhverfisþátturinn fær hér sorglega lítið vægi þó verður að meta viðleitnina sem felst í því að „Stefna að í stefnumörkun landshluta sé fjallað um loftslagsbreytingar…“ á því sviði sbr. upptalningu á áherslum. Þar hefði gjarnan mátt kveða skýrar að orði og hreinlega byrja þann lið á að segja að í stað þessa upphafs kæmi „Tryggt skal að í stefnumörkun……“ Aftan við þennan lið er lagt til að komi „ bættri nýtingu á lífrænum úrgangi bæði til vinnslu orku og aukins hringstreymis næringarefna.“ Það er mjög mikilvægt að taka inn í þennan kafla um sjálfbæra þróun, að stuðla þurfi að sjálfbærri nýtingu auðlinda innan hvers byggðalags. Byggðalag sem gengur á auðlindir sínar á sér ekki langra lífdaga auðið. Því þarf að byggja inn í þennan hluta vöktun á ástandi auðlinda og hvernig nýtingu þeirra er háttað. Einn af mælikvörðum fyrir sjálfbæra þróun þarf að vera • Ástand og nýting auðlinda Jafnframt þarf að huga að efnahagslegri afkomu byggðanna og íbúa þeirra. Aðgerðaáætlun. Hér er vísað til tölusettra liða aðgerðaáætlunarinnar A.10: Hér er lagt til að bætt verði við setningu um nýtingu vistvænna orkugjafa í almenningssamgöngum. A. 15: Bætt verði við eftirfarandi setningu. „Möguleikar á vinnslu orku úr lífrænum hráefnum og úrgangi verði nýttir og innviðir til þeirrar nýtingar byggðir upp“ B. 3: á eftir þessum lið komi nýr liður B. Nýr: Stuðningur við nýtingu á lífrænum úrgangi til vinnslu orku og bætts hringstreymis næringarefna. Í lífrænum úrgangi liggur orka sem t.d. má nýta í gegnum loftfirrta gerjun, sem myndar metan. Lífrænn úrgangur frá heimilum og margvíslegri vinnslu auk búfjáráburðar hentar afar vel til vinnslu orku. Í mörgum tilfellum veldur förgun á þessum úrgangur kostnaði hjá sveitarfélögum og fyrirtækjum. Með því að vinna þennan úrgang má nýta bæði orkuna sem í honum er og eins koma næringarefnunum úr honum inn í ræktun og spara þannig tilbúinn áburð. Orkan á formi metans getur nýst sem eldsneyti í stað jarðefnaeldsneytis, til rafmagnsframleiðslu, til upphitunar eða sem orkugjafi í margskonar iðnaði. C: Dálítið vandséð hvers vegna margt af því sem er hér undir en ekki undir öðrum liðum. Hversvegna er liðurinn C. 2 t.d. ekki B-liður. Það sem hér er talið upp til að stuðla að aukinni sjálfbærni byggða er margt hvert mjög góð verkefni en lúta töluvert einhliða að hinni félagslegu stoð sjálfbærrar þróunar. Hinum stoðunum þ.e. þeim efnahagslegu og umhverfislegu er ekki gert jafn hátt undir höfði. Margt af því sem gæti verið undir efnahagslegu stoðinni er undir B- lið aðgerðaráætlunarinnar og því meðtalið. Hins vegar verður umhverfislega stoðin alveg útundan í upptalningunni. Áherslu punkturinn (undir C lið) um loftslagsbreytingar nær ekki inn í aðgerðaáætlunina og er það miður, en endurspeglar samt það misræmi sem er oft á milli góðra orða og yfirlýsinga og raunverulegra aðgerða. Hér er því lagt til að bæta við nokkrum liðum til að staga í þetta áberandi gat sem er í aðgerðaráætluninni þegar kemur að loftslagsmálunum. C. 16 (nýr): Sveitarfélög verði styrkt til að gera heildstæða landnýtingaráætlun þar sem m.a. verði stefnt að því að draga úr losun og auka bindingu gróðurhúsalofttegunda. C. 17 (nýr): Uppbygging innviða til að nýta lifrænan úrgang til orkuvinnslu og bæta hringrás næringarefna. Skoðaðir verði möguleikar á gaslögnum og miðlægri gashreinsun, þar sem nægjanlegt magn lífræns úrgangs er til staðar. C. 18 (nýr): Sveitarfélögin verði styrkt til að bæta skráningu og vöktun á landnýtingu með sérstakri áherslu á loftslagsaðgerðir. C. 19 (nýr): Á svæðum þar sem landgæði hafa rýrnað eða eru rýrnandi verði gert átak í að endurheimta fyrri landgæði með virkri þátttöku sveitarfélaganna. Meðal mögulegra aðgerða má nefna bætta beitarstýringu, tímabundinn niðurskurð búfjár, beinar landgræðslu aðgerðir og endurheimt votlenda. C. 20 (nýr): Stutt verði við fullvinnslu afurða heima í héraði. Undanfarin ár hefur í nafni hagræðingar átt sér stað umtalsverð samþjöppun úrvinnslu afurða t.d. frá landbúnaði. Mikilvægt er að snúa þessu við og efla staðbundna úrvinnslu afurða og nýta þannig frumkvæði og þekkingu heimamanna og auka fjölbreytni í atvinnutækifærum og stuðla að því að meira af arði úrvinnslunnar verði eftir í héraði og draga úr óheyrilegum flutningu landshorna á milli með tilheyrandi umhverfisáhrifum og álagi á vegakerfið.

  • #5Ingibjörg St Sverrisdóttir
    Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn Athugasemdir við tillögu til þingsályktunar um stefnumótandi byggðaáætlun 2018-2019 Samráðsgátt - 20. mars 2018 Hvatt er til þess að innviðir sem þegar eru fyrir hendi verði nýttir og styrktir og sérstök athygli er vakin á starfsemi bókasafna s.s. almennings- og skólasafna. Mikið samstarf er milli bókasafna í landinu og starfsemi þeirra er í flestum tilfellum mjög vel skipulögð. Safnkosturinn er skráður í eitt miðlægt bókasafnskerfi, gegnir.is, sem er rekið af Landskerfi bókasafna, ásamt leitarvélinni leitir.is sem leitar í margvíslegu stafrænu efni… Lesa alla

    Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn Athugasemdir við tillögu til þingsályktunar um stefnumótandi byggðaáætlun 2018-2019 Samráðsgátt - 20. mars 2018 Hvatt er til þess að innviðir sem þegar eru fyrir hendi verði nýttir og styrktir og sérstök athygli er vakin á starfsemi bókasafna s.s. almennings- og skólasafna. Mikið samstarf er milli bókasafna í landinu og starfsemi þeirra er í flestum tilfellum mjög vel skipulögð. Safnkosturinn er skráður í eitt miðlægt bókasafnskerfi, gegnir.is, sem er rekið af Landskerfi bókasafna, ásamt leitarvélinni leitir.is sem leitar í margvíslegu stafrænu efni sem söfnin eiga og kaupa. Einnig má benda á Landsaðgang að stafrænum áskriftum, hvar.is, með aðgangi að völdu fræða og vísindaefni fyrir allar tölvur með íslenskar IP tölur, en bókasöfnin taka þátt í að greiða fyrir efnið. Þróunin innan bókasafnageirans undanfarin ár hefur verið aukið samstarf á sviði upplýsingatækni til að auðvelda landsmönnum aðgang að fagur¬bókmenntum og fjölbreyttu efni á sviði fræða og vísinda. Nýjasta verkefnið er Rafbókasafnið sem flest almenningsbókasöfn á landinu taka þátt í. Athugasemdir: A. Jafna aðgengi að þjónustu Sveitarfélög og landshlutasamtök þeirra verði hvött til að skoða möguleikana á því að styrkja rekstur bókasafna, annarra safna, setra, og sýninga með sameiningu og samrekstri. A.3 Efling rannsókna og vísindastarfsemi Hér er mikilvægt að tryggja gott aðgengi að öflugri bókasafnsþjónustu og aðgengi að fjölbreyttum heimildum og gagnagrunnum. Mikilvægt er að efla grunngerð og afl þessara svæðisbundnu rannsóknakjarna og stuðla að faglegum tengslum þeirra á milli og við háskóla, bókasöfn, rannsóknastofnanir og fyrirtæki. Dæmi um samstarfsaðila: Háskólar rannsóknastofnanir, bókasöfn, þekkingar – og rannsóknasetur. A.9 Verslun í strjálbýli Þetta er skynsamlegt og gott verkefni. Vísað er í Merkur-verkefnið í Noregi, þar sem reynt er að styrkja dreifbýlisverslanir með því að bjóða upp á aðra þjónustu og m.a. talin upp bókasöfn. Hið rétta er að í norska Merkur-verkefninu er boðið upp á bóksölu, en ekki bókasöfn. Sérstök áhersla er lögð á staðbundið efni í sumum þeim verslunum sem sem taka þátt, og þá í samstarfi við norska bóksalafélagið. Hins vegar er efling bókasafna í dreifbýli mikilvæg. Það er t.d. hægt að gera með samstarfi almennings- og skólasafna, samstarfi við aðrar tegundir safna og símenntunarmiðstöðva, að bæta við þá þjónustu sem söfnin veita s.s. fyrir börn og eldri borgara, að vera upplýsingamiðstöð og þjónusta fyrir ferðafólk, veita nýsköpunarverkefnum stuðning, auk samstarfs við ýmis sérsöfn á svæðinu. B.8 Fjarvinnslustöðvar Þetta er afar jákvætt verkefni. Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn rak tímabundið slíka fjarvinnslustöð í Amtsbókasafninu á Akureyri með styrk frá Alþingi, m.a. vegna stafrænnar endurgerðar íslenskra dagblaða á árunum 2007-2011. Safnið er tilbúið að taka þátt í slíku verkefni og vísar í þingsályktun nr. 36/143 um varðveislu menningararfleifðar á stafrænu formi og skýrsluna Varðveisla menningararfleifðar á stafrænu formi á vegum mennta- og menningarmálaráðuneytisins frá 2017. Ingibjörg Steinunn Sverrisdóttir landsbókavörður

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.

S-32/2018: Tillaga til þingsályktunar um stefnumótandi byggðaáætlun fyrir árin 2018 til 2024 · Alviti