Beint í efni
Alviti
← Samráðsgátt
S-82/2018 · Mennta- og barnamálaráðuneytið

Áform um frumvarp um samtök um evrópska rannsóknarinnviði (ERIC)

Um er að ræða áform um lagasetningu um ný lög þar sem lagt er til að innleidd verði reglugerð ESB nr. 723/2009 eins og henni var breytt með reglugerð nr. 1261/2013. Reglugerðin fjallar um ERIC-samtök, ERIC stendur fyrir European Research Infrastructure Consortium eða samtök um evrópska rannsóknarinnviði.

Mennta- menningarmálaráðuneyti óskar eftir umsögnum um áform um lagasetningu á nýjum lögum um samtök um evrópska rannsóknarinnviði (ERIC) sem fjalla um innleiðingu reglugerðar ESB nr. 723/2009 eins og henni var breytt með reglugerð nr. 1261/2013. Við upptöku gerðarinnar var það mat ráðuneytanna sem komu að málinu að ekki væri tilefni til lagabreytinga á því stigi. Ástæða þess var að gerðin skapaði umgjörð fyrir Ísland til að taka þátt í verkefnum um uppbyggingu rannsóknarinnviða sem skipulögð væru sem ERIC-samtök, án þess að vitað væri á því stigi hvort Ísland myndi nokkurn tíma taka þátt í slíku verkefni. Var því ekki talið tímabært að mæla fyrir um lagabreytingar til að aðlaga íslenskt lagaumhverfi að hugsanlegri þátttöku Íslands í ERIC-samstarfi, þar sem ekki var vitað hvort af því yrði. Því var gerðin tekin upp án stjórnskipulegs fyrirvara samkvæmt 103. gr. EES-samningsins. ERIC er lagaumgjörð til að liðka fyrir stofnun og rekstri á evrópskum rannsóknarinnviðum. Stjórnvöld eru formlegur aðili að samstarfinu og greiða þátttökugjöld en starfsemin innanlands er á höndum viðeigandi rannsóknarstofnana. ERIC-fyrirkomulagið er viðurkennt rekstrarform í öllum ESB-ríkjum og hefur í för með sér ákveðnar undanþágur t.d. tengdum virðisaukaskatti og vörugjöldum. Í flestum tilfellum mun ERIC rekstrarformið verða nýtt hjá þegar starfandi rannsóknarinnviðum sem hafa náð ákveðinni stærð og þroska og eru talin starfa betur sem ERIC. Það er því mikilvægt að Ísland geti haldið áfram þátttöku í alþjóðlegu rannsóknarinnviðasamstarfi þrátt fyrir breytingu á rekstrarformi í ERIC og því þarf að skapa almenna lagaumgjörð fyrir Ísland til að taka þátt í samstarfi á vettvangi ERIC-samtaka erlendis sem og að geta stofnað ERIC-samtök á Íslandi. Með frumvarpinu yrði settur lagagrundvöllur til að stofna ERIC-samtök á Íslandi ásamt því að setja reglur um þátttöku Íslands í ERIC-samtökum staðsettum erlendis.

S-82/2018· Áform um lagasetningu· Mennta- og barnamálaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 6. júl. 2018 – 7. ágú. 2018· 0 umsagnir

Áform um frumvarp um samtök um evrópska rannsóknarinnviði (ERIC)

Um er að ræða áform um lagasetningu um ný lög þar sem lagt er til að innleidd verði reglugerð ESB nr. 723/2009 eins og henni var breytt með reglugerð nr. 1261/2013. Reglugerðin fjallar um ERIC-samtök, ERIC stendur fyrir European Research Infrastructure Consortium eða samtök um evrópska rannsóknarinnviði.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-82/2018)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 7. ágúst 2018
  3. Umsagnarfresti lýkur · 0 umsagnir bárust
  4. Niðurstöður samráðs birtar
  5. Lagt fram á Alþingi (149. þing, mál 767)
Niðurstöður samráðs (30. október 2018)

Samráði lokið. Engar efnislegar athugasemdir bárust. Frumvarpsgerð er hafin.

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt

Engar umsagnir hafa borist.

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.

S-82/2018: Áform um frumvarp um samtök um evrópska rannsóknarinnviði (ERIC) · Alviti