Áður en mál kemur til Alþingis
Frumvörp og þingsályktunartillögur sem ráðuneyti hafa kynnt í Samráðsgátt stjórnvalda: hvað er til umsagnar, hverjir sendu umsagnir, og hvað hefur komið til Alþingis og hvað ekki.
108 mál · sótt 27. október 2026
- Komið til AlþingisS-39/2019· Drög að frumvarpi til laga· Fjármála- og efnahagsráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 5. feb. 2019 – 13. feb. 2019· 0 umsagnir
Frumvarp til laga um breytingu á lögum um vátryggingastarfsemi og lögum um vátryggingasamstæður.
Í frumvarpinu eru lagt til að bæta við regluheimildum fyrir Fjármálaeftirlitið auk þess að gera tilteknar reglu- og reglugerðarheimildir skýrari.
- Komið til AlþingisS-36/2019· Drög að frumvarpi til laga· Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 1. feb. 2019 – 14. feb. 2019· 9 umsagnir
Frumvarp til laga um breytingu á lögum um loftslagsmál, nr. 70/2012
Í frumvarpinu eru lagðar til breytingar á lögum um loftslagsmál með það að markmiði að styrkja umgjörð og stjórnsýslu loftslagsmála og skerpa á ýmsum ákvæðum laganna. Nauðsynlegt er að uppfæra ýmis ákvæði laganna og setja ný ákvæði sem styrkja stjórnsýslu í loftslagsmálum og auðvelda stjórnvöldum að ná settum markmiðum í loftslagsmálum, s.s. um samdrátt í losun gróðurhúsalofttegunda og kolefnishlutleysi.
- Komið til AlþingisS-35/2019· Drög að frumvarpi til laga· Fjármála- og efnahagsráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 31. jan. 2019 – 14. feb. 2019· 1 umsögn
Drög að frumvarpi um breytingu á lögum um bindandi álit.
Drög að frumvarpi um breytingu á lögum nr. 91/1998, um bindandi álit í skattamálum.
- Komið til AlþingisS-34/2019· Drög að frumvarpi til laga· Mennta- og barnamálaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 31. jan. 2019 – 15. feb. 2019· 27 umsagnir
Frumvarp til laga um breytingu á lögum um fjölmiðla, nr. 38/2011 (stuðningur við öflun og miðlun frétta, fréttatengds efnis o.fl.)
Meginefni frumvarpsins er að veita stjórnvöldum heimild til að styðja við rekstur einkarekinna fjölmiðla í formi endurgreiðslu á allt að 25% af tilteknum hluta ritstjórnarkostnaðar.
- Komið til AlþingisS-32/2019· Drög að frumvarpi til laga· Fjármála- og efnahagsráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 30. jan. 2019 – 13. feb. 2019· 1 umsögn
Drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um tekjuskatt (ríki-fyrir-ríki skýrslur)
Frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 90/2003 um tekjuskatt (ríki-fyrir-ríki skýrsla um skattskil).
- Komið til AlþingisS-28/2019· Drög að frumvarpi til laga· Fjármála- og efnahagsráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 24. jan. 2019 – 7. feb. 2019· 0 umsagnir
Drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um aukatekjur ríkissjóðs, með síðari breytingum (gjald vegna þinglýsingar með rafrænni færslu).
Drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um aukatekjur ríkissjóðs, með síðari breytingum, nr. 88/1991 (gjald vegna þinglýsingar með rafrænni færslu).
- Komið til AlþingisS-25/2019· Áform um lagasetningu· Mennta- og barnamálaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 23. jan. 2019 – 4. feb. 2019· 6 umsagnir
Áform um lagabreytingar um menntun og ráðningu kennara og skólastjórnenda við leikskóla, grunnskóla og framhaldsskóla nr. 87/2008
Áformað er að gera breytingar á lögum nr. 87/2008 þar sem meðal annars verður stuðlað að aukinni samfellu og sveigjanleika milli skólastiga með útgáfu eins leyfisbréfs til kennslu.
- Komið til AlþingisS-24/2019· Áform um lagasetningu· Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 22. jan. 2019 – 1. feb. 2019· 5 umsagnir
Breyting efnalaga
Lagfæra þarf ýmis ákvæði efnalaga, svo sem að skýra einstök ákvæði nánar, gera nauðsynlegar breytingar vegna Minamatasamningsins, styrkja lagastoð fyrir heimildum til setningar reglugerða vegna innleiðingar á EES-löggjöf og kveða nánar á um frjálst flæði á vörum til þess að gera lögin skýrari og einfaldari í framkvæmd sem og að tryggja jafnræði.
- Komið til AlþingisS-23/2019· Drög að frumvarpi til laga· Innviðaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 19. jan. 2019 – 1. feb. 2019· 3 umsagnir
Drög að frumvarpi til laga um skráningu einstaklinga
Um er að ræða drög að frumvarpi til laga um skráningu einstaklinga sem koma á í stað laga um þjóðskrá og almannaskráningu nr. 54/1962 sem komin eru til ára sinna.
- Komið til AlþingisS-20/2019· Áform um lagasetningu· Forsætisráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 18. jan. 2019 – 5. feb. 2019· 9 umsagnir
Áformuð lagasetning um vandaða starfshætti í vísindum
Markmiðið er að tryggja eftir megni að siðferðileg viðmið í vísindum séu í heiðri höfð og að góðir vísindalegir starfshættir séu iðkaðir. Það er nauðsynlegt til að hægt sé meta niðurstöður og áreiðanleika rannsókna og til að skapa traust almennings á gildi þeirra.
- Komið til AlþingisS-19/2019· Áform um lagasetningu· Forsætisráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 17. jan. 2019 – 1. feb. 2019· 2 umsagnir
Sameining Seðlabanka Íslands og Fjármálaeftirlitsins
Áform um frumvarp til laga um Seðlabanka Íslands og frumvarp til laga um breytingar á ýmsum lögum vegna sameiningar Seðlabanka Íslands og Fjármálaeftirlitsins.
- Komið til AlþingisS-16/2019· Drög að frumvarpi til laga· Fjármála- og efnahagsráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 15. jan. 2019 – 5. feb. 2019· 1 umsögn
Drög að frumvarpi til laga um milligjöld fyrir kortatengdar greiðslur
Fjármála- og efnahagsráðherra áformar að leggja fram frumvarp til laga til að innleiða reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2015/751 um milligjöld fyrir kortatengdar greiðslur þegar hún hefur verið tekin upp í samninginn um Evrópska efnahagssvæðið.
- Komið til AlþingisS-10/2019· Áform um lagasetningu· Fjármála- og efnahagsráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 11. jan. 2019 – 25. jan. 2019· 1 umsögn
Frumvarp til laga um breytingu á lögum um aukatekjur ríkissjóðs, með síðari breytingum (gjald vegna þinglýsingar með rafrænni færslu).
Áformað er að leggja fram á vorþingi frumvarp til laga um breytingu á lögum um aukatekjur ríkissjóðs, með síðari breytingum, nr. 88/1991 (gjald vegna þinglýsingar með rafrænni færslu).
- Komið til AlþingisS-9/2019· Áform um lagasetningu· Fjármála- og efnahagsráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 11. jan. 2019 – 25. jan. 2019· 0 umsagnir
Áform um frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 90/2003 (ríki-fyrir-ríki skýrsla um skattskil)
Áformað er að leggja fram á vorþingi frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 90/2003 um tekjuskatt (ríki-fyrir-ríki skýrsla um skattskil).
- Komið til AlþingisS-8/2019· Áform um lagasetningu· Fjármála- og efnahagsráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 11. jan. 2019 – 25. jan. 2019· 0 umsagnir
Áform um frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 91/1998, um bindandi álit í skattamálum
Áformað er að leggja fram á vorþingi frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 91/1998, um bindandi álit í skattamálum.
- Komið til AlþingisS-3/2019· Áform um lagasetningu· Heilbrigðisráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 8. jan. 2019 – 27. jan. 2019· 4 umsagnir
Áform um frumvarp til laga um breytingu á lögum um ávana- og fíkniefni (neyslurými)
Áformað er að leggja fram á vorþingi 2019 frumvarp til laga um breytingu á lögum um ávana- og fíkniefni, nr. 65/1974, í því skyni að bæta við ákvæði sem heimilar rekstur og starfsemi neyslurýma að uppfylltum tilteknum skilyrðum.
- Komið til AlþingisS-2/2019· Áform um lagasetningu· Fjármála- og efnahagsráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 15. jan. 2019 – 29. jan. 2019· 0 umsagnir
Áform um frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 100/2016, um vátryggingastarfsemi og lögum nr. 60/2017, um vátryggingasamstæður.
Áformað er að leggja fram frumvarp til breytinga á lögum um vátryggingastarfsemi og vátryggingasamstæðum til að setja lagastoðir fyrir tilteknum reglum Fjármálaeftirlitsins auk þess að gera tilteknar lagastoðir skýrari.
- Komið til AlþingisS-1/2019· Áform um lagasetningu· Fjármála- og efnahagsráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 8. jan. 2019 – 29. jan. 2019· 1 umsögn
Áform um frumvarp til laga um dreifingu vátrygginga ásamt breytingum á lögum um vátryggingarsamninga.
Fjármála- og efnahagsráðuneytið áformar að leggja fram frumvarp til laga um dreifingu vátrygginga og breytingar á lögum um vátryggingarsamninga til að innleiða tilskipun 2016/97/ESB um dreifingu vátrygginga.
Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi. Hlekkur getur vantað þegar heiti málsins breyttist mikið á leiðinni; ritstjóri getur staðfest eða hafnað tengingu.
Hér eru frumvörp, áform um lagasetningu og drög að þingsályktunartillögum. Drög að reglugerðum og önnur mál fara ekki til Alþingis og eru á vef gáttarinnar. Alviti hefur þingmál Alþingis frá 8. september 2015; um eldri samráðsmál sem ekki finnast þar er sagt „óvíst“.
Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda (island.is) · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)