Beint í efni
Alviti
← Samráðsgátt
S-34/2019 · Mennta- og barnamálaráðuneytið

Frumvarp til laga um breytingu á lögum um fjölmiðla, nr. 38/2011 (stuðningur við öflun og miðlun frétta, fréttatengds efnis o.fl.)

Meginefni frumvarpsins er að veita stjórnvöldum heimild til að styðja við rekstur einkarekinna fjölmiðla í formi endurgreiðslu á allt að 25% af tilteknum hluta ritstjórnarkostnaðar.

Fyrirliggjandi eru drög að frumvarpi til laga um breytingar á fjölmiðlalögum, sem fela í sér heimildir til að veita styrki í formi endurgreiðslu á hluta ritstjórnarkostnaðar einkarekinna fjölmiðla. Frumvarpið er unnið á grundvelli stefnuyfirlýsingar ríkisstjórnar og fjármálaáætlunar 2019 – 2023 þar sem gerð er grein fyrir því að unnið verði að því að bæta rekstrarumhverfi fjölmiðla á tímabilinu. Þá er frumvarpið í samræmi við það meginmarkmið stjórnvalda á sviði fjölmiðlunar að viðhalda og efla lýðræðislega umræðu og lýðræðisþátttöku fólks með því að efla miðlalæsi, stuðla að fjölbreytni, gagnsæi og fjölræði í fjölmiðlum. Þá verði forsendur fyrir hendi til að mismunandi fjölmiðlar fái þrifist svo að almenningur hafi aðgang að fjölbreyttu efni, fréttum, samfélagsumræðu og íslenskri menningu. Í skýrslu nefndar um rekstrarumhverfi einkarekinna fjölmiðla hér á landi, sem skipuð var í lok árs 2016 kemur fram að rekstur einkarekinna fjölmiðla sé svo erfiður að það gefi stjórnvöldum tilefni til að stuðla að bættu rekstrarumhverfi þeirra. Meginefni frumvarpsins: · Styrkir til fjölmiðla í formi endurgreiðslu á allt að 25% af tilteknum hluta ritstjórnarkostnaðar. · Skilyrði um að viðtakendur styrkja uppfylli ýmis skilyrði fjölmiðlalaga, efni þeirra sé fjölbreytt og fyrir allan almenning og byggist á fréttum, fréttatengdu efni og samfélagsumræðu í víðum skilningi. · Þak á hámarksfjárhæð styrkja og heimild til að veita staðbundnum miðlum álag. Helstu skilyrði Þar sem megin markmiðið með aðgerðum stjórnvalda er að tryggja lýðræðislega umræðu og samræður í samfélaginu um málefni þess eru gerðar kröfur um að fjölmiðlarnir uppfylli tiltekin skilyrði til að geta hlotið styrk eða endurgreiðslu á hluta kostnaðar við öflun og miðlun frétta, fréttatengt efni og umfjöllun um samfélagsleg málefni. Helstu skilyrði eru: · Fjölmiðill skal vera skráður eða hafa leyfi til hljóð- eða myndmiðlunar · Fjölmiðill hafi starfað óslitið í tólf mánuði eða lengur fyrir þann tíma er umsókn berst til fjölmiðlanefndar. · Aðalmarkmið fjölmiðils skal vera miðlun frétta, fréttatengds efnis og umfjöllun um samfélagsleg málefni. · Efni fjölmiðilsins skal vera fjölbreytt og fyrir allan almenning á Íslandi. · Prentmiðlar skulu koma út að lágmarki fjörutíu og átta sinnum á ári. Netmiðlar, hljóð- og myndmiðlar og aðrir sambærilegir miðlar skulu miðla nýju efni daglega. · Ritstjórnarefni skal að lágmarki vera 40% af því efni sem birtist í prentmiðlum sem dreift er endurgjaldslaust til lesenda. Ritstjórnarefni í öðrum prentmiðlum og hjá netmiðlum skal að lágmarki vera helmingur af birtu efni. · Einn sjötti hluti ritstjórnarefnis skal byggja á sjálfstæðri frétta- eða heimildaöflun. Endurgreiðsluhæfur kostnaður og endurgreiðslur Gert er ráð fyrir endurgreiðsluhæfur kostnaður verði bundinn við beinan launakostnað blaða- og fréttamanna, ritstjóra og aðstoðarritstjóra, myndatökumanna, ljósmyndara og prófarkalesara auk verktakagreiðslna fyrir sömu störf. Hlutfall endurgreiðslu verði að hámarki vera 25% af kostnaði við frmangreint, þó ekki hærri en 50 millj. kr. til hvers umsækjanda vegna síðastliðins árs. Þá er reglugerðarheimild sem kveður m.a. á um heimild til að veita staðbundnum fjölmiðlum viðbótar endurgreiðslu. Framkvæmd, gildistaka og endurskoðun Gert er ráð fyrir að fjölmiðlanefnd sjái um framkvæmd og að kostnaður við hana verði tekinn af árlegum fjárveitingum til verkefnisins. Lagt er til að lögin taki gildi 1. janúar 2020 og endurgreiðslur miðist við síðast liðið ár. Lögin verði endurskoðuð fyrir 31. desember 2024 . Mat á áhrifum og árangri Til að meta hvort markmið laganna hafi náðst verður gerð úttekt á áhrifum og árangri stuðnings við einkarekna fjölmiðla fyrir lok árs 2023. Athugað verður skoðað hvort stuðningskerfið hafi náð fram þeim markmiðum sem að er stefnt með frumvarpinu. Í því sambandi skal m.a. kanna hvort stuðningskerfið hafi stuðlað að aukningu á miðlun frétta og fréttatengds efnis einkarekinna fjölmiðla, hvort hlutfall efnis sem byggist á sjálfstæðri frétta- eða heimildaöflun hafi aukist, hvort starfsfólki á ritstjórnum fjölmiðla hafi fjölgað og fleira.

S-34/2019· Drög að frumvarpi til laga· Mennta- og barnamálaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 31. jan. 2019 – 15. feb. 2019· 27 umsagnir

Frumvarp til laga um breytingu á lögum um fjölmiðla, nr. 38/2011 (stuðningur við öflun og miðlun frétta, fréttatengds efnis o.fl.)

Meginefni frumvarpsins er að veita stjórnvöldum heimild til að styðja við rekstur einkarekinna fjölmiðla í formi endurgreiðslu á allt að 25% af tilteknum hluta ritstjórnarkostnaðar.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-34/2019)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 15. febrúar 2019
  3. Umsagnarfresti lýkur · 27 umsagnir bárust
  4. Lagt fram á Alþingi (149. þing, mál 919)
  5. Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (12. febrúar 2020)

Frumvarp var lagt fram á Alþingi, á þskj. 645 á 150. löggjafarþingi.

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (27)
  • #1Sigurður Ægisson
    Einhvern veginn finnst mér að minnstu einkareknu fjölmiðlarnir séu ekki inni í þessu væntanlega frumvarpi. Þá á ég við fjölmiðla þar sem sami einstaklingur er ritstjóri, blaðamaður og ljósmyndari. Þeir eru margir í landinu. Minn t.d., Siglfirðingur.is. Hann er að verða níu ára. Og hann er skráður. Þar hafa birst allt að sjö fréttum á dag, en suma daga er ekkert að frétta og þess vegna er ekkert sett í loftið. Enda er hann staðbundinn. Og hvernig á ég að geta tekið mér sumarfrí ef kvöðin er sú að daglega þurfi að birtast frétt? Mér finnst að þau sem að þessu frumvarpi vinna þurfi að hafa… Lesa alla

    Einhvern veginn finnst mér að minnstu einkareknu fjölmiðlarnir séu ekki inni í þessu væntanlega frumvarpi. Þá á ég við fjölmiðla þar sem sami einstaklingur er ritstjóri, blaðamaður og ljósmyndari. Þeir eru margir í landinu. Minn t.d., Siglfirðingur.is. Hann er að verða níu ára. Og hann er skráður. Þar hafa birst allt að sjö fréttum á dag, en suma daga er ekkert að frétta og þess vegna er ekkert sett í loftið. Enda er hann staðbundinn. Og hvernig á ég að geta tekið mér sumarfrí ef kvöðin er sú að daglega þurfi að birtast frétt? Mér finnst að þau sem að þessu frumvarpi vinna þurfi að hafa samband við Fjölmiðlanefnd og fá upp gefið hvernig skiptingin er, hversu margir eru stórir, hversu margir reknir af einum aðila o.s.frv. Að öðrum kosti þarf að breyta nafni frumvarpsins, því það er ekki að tala til allra einkarekinna fjölmiðla í landinu, bara sumra.

  • #2Ólafur Valtýr Hauksson

    Meðfylgjandi eru nokkrar athugasemdir og ábendingar.

  • #3Hafliði Breiðfjörð Guðmundsson
    Athugasemdir frá Fótbolta.net. Við gerum alvarlegar athugasemdir við að samkeppnisstaða fjölmiðla verður gríðarlega skert verði lögin sett samkvæmt lokadrögum. Fótbolti.net er í samkeppni við íþróttasíður mbl.is, Vísis.is, DV/433.is og Fréttablaðsins. Ef ég skil drögin rétt fá allir þessir miðlar endurgreiðsluna. Fótbolti.net mun hinsvegar ekki fá endurgreiðsluna verandi einungis íþróttamiðill. Samkeppnisstaða okkar verður verulega skekkt. Það þýðir að samkeppni um starfsfólk verður nánast vonlaus enda þurfum við að leggja fram 33% meiri pening til að greiða starfsmanni sömu laun… Lesa alla

    Athugasemdir frá Fótbolta.net. Við gerum alvarlegar athugasemdir við að samkeppnisstaða fjölmiðla verður gríðarlega skert verði lögin sett samkvæmt lokadrögum. Fótbolti.net er í samkeppni við íþróttasíður mbl.is, Vísis.is, DV/433.is og Fréttablaðsins. Ef ég skil drögin rétt fá allir þessir miðlar endurgreiðsluna. Fótbolti.net mun hinsvegar ekki fá endurgreiðsluna verandi einungis íþróttamiðill. Samkeppnisstaða okkar verður verulega skekkt. Það þýðir að samkeppni um starfsfólk verður nánast vonlaus enda þurfum við að leggja fram 33% meiri pening til að greiða starfsmanni sömu laun og samkeppnisaðilarnir sem fá 25% endurgreiðslu. Þetta gæti gert út um starfsemi fjölmiðils sem hefur verið rekinn í 17 ár og alltaf greitt alla reikninga og gjöld á réttum tíma. Hvetjum ykkur því til að gæta að því að vernda alla fjölmiðla með setningu laganna en ekki gera rekstur ákveðinna fjölmiðla erfiðari. Hafliði Breiðfjörð Guðmundsson Framkvæmdastjóri Fótbolti.net

  • #4Karl Garðarsson
    Frjáls fjölmiðlun ehf., útgefandi DV, fagnar frumvarpi til laga um breytingu á lögum um fjölmiðla, nr. 38/2011 (stuðningur við öflun og miðlun frétta, fréttatengds efnis o.fl.). Félagið telur það mikilvægt fyrsta skref til að jafna samkeppnisstöðu fjölmiðla. Þó þarf að ganga mun lengra og líta til fleiri þátta. Rekstrarskilyrði einkarekinna fjölmiðla aldrei verið verri en núna. Að óbreyttu stefnir í að margir þeirra fari hreinlega í þrot. Það er nauðsynlegt að sem flestar raddir og skoðanir fái að heyrast í lýðræðisþjóðfélagi og verður því mikilvægi einkarekinna fjölmiðla seint ofmetið. Sa… Lesa alla

    Frjáls fjölmiðlun ehf., útgefandi DV, fagnar frumvarpi til laga um breytingu á lögum um fjölmiðla, nr. 38/2011 (stuðningur við öflun og miðlun frétta, fréttatengds efnis o.fl.). Félagið telur það mikilvægt fyrsta skref til að jafna samkeppnisstöðu fjölmiðla. Þó þarf að ganga mun lengra og líta til fleiri þátta. Rekstrarskilyrði einkarekinna fjölmiðla aldrei verið verri en núna. Að óbreyttu stefnir í að margir þeirra fari hreinlega í þrot. Það er nauðsynlegt að sem flestar raddir og skoðanir fái að heyrast í lýðræðisþjóðfélagi og verður því mikilvægi einkarekinna fjölmiðla seint ofmetið. Samkeppnisstaðan er mjög skekkt vegna stöðu RÚV á markaði. Það vita flestir og því er mikilvægt að endurskoða hlutverk RÚV strax og tryggja stofnuninni það fjármagn sem þarf til að sinna breyttu hlutverki. Með því að setja skorður við aðgengi RÚV á auglýsingamarkaði myndi staða einkarekinna fjölmiðla batna til muna. Varðandi frumvarpsdrögin sjálf gerir Frjáls fjölmiðlun ehf. ekki athugasemdir við einstakar greinar þess. Þó er rétt að benda á eitt atriði sem þyrfti að lagfæra. Gert er ráð fyrir að endurgreiðslur taki m.a. mið af þeim sem vinna við útgáfu blaða. Þar eru t.d. nefndir blaðamenn, ljósmyndarar o.fl. Þar vantar inn í umbrotsmenn, en það eru þeir aðilar sem koma blöðunum í endanlegt horf og setja þau upp í tölvum, þannig að hægt sé að prenta þau. Þessir aðilar þurfa að vera með í upptalningunni. Karl Garðarsson framkvæmdastjóri Frjálsrar fjölmiðlunar ehf.

  • #5Fröken ehf.

    Athugasemdir frá Reykjavík Grapevine. Meðfylgjandi eru athugasemdir og rökstuðningur. Hilmar Steinn Grétarsson, framkvæmdastjóri Fröken ehf. Jón Trausti Sigurðarson, formaður stjórnar útgáfufélags Fröken ehf. Valur Grettisson, Ritstjóri Reykjavík Grapevine

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.

S-34/2019: Frumvarp til laga um breytingu á lögum um fjölmiðla, nr. 38/2011 (stuðningur við öflun og miðlun frétta, fréttatengds efnis o.fl.) · Alviti