Beint í efni
Alviti
← Samráðsgátt
S-24/2019 · Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið

Breyting efnalaga

Lagfæra þarf ýmis ákvæði efnalaga, svo sem að skýra einstök ákvæði nánar, gera nauðsynlegar breytingar vegna Minamatasamningsins, styrkja lagastoð fyrir heimildum til setningar reglugerða vegna innleiðingar á EES-löggjöf og kveða nánar á um frjálst flæði á vörum til þess að gera lögin skýrari og einfaldari í framkvæmd sem og að tryggja jafnræði.

Stefna stjórnvalda er að tryggja að meðferð efna valdi hvorki tjóni á heilsu manna og dýra né á umhverfi. Jafnframt er það stefna stjórnvalda að efna skuldbindingar Íslands um að tryggja frjálst flæði á vörum á innri markaði Evrópska efnahagssvæðisins að því er varðar efni og að koma í veg fyrir ólöglega markaðssetningu. Markmiðið með lagasetningunni er að bæta efnalöggjöfina og að tryggja sé eins og best verður að ákvæði í reglugerðum vegna innleiðingar á efnalöggjöf EES og Minamatasamningsins eigi sér stoð í íslenskum lögum. Efnalög voru sett árið 2013 þar sem sett var lagastoð fyrir fjölmörgum ákvæðum í gildandi löggjöf á EES um efni og efnablöndur. Að fenginni reynslu af beitingu laganna hefur komið í ljós að nokkur ákvæði efnalaga þarf að lagfæra, svo sem að skýra einstök ákvæði nánar, gera nauðsynlegar breytingar vegna Minamatasamningsins, styrkja lagastoð fyrir heimildum til setningar reglugerða vegna innleiðingar á EES-löggjöf og kveða nánar á um frjálst flæði á vörum til þess að gera lögin skýrari og einfaldari í framkvæmd sem og að tryggja jafnræði.

S-24/2019· Áform um lagasetningu· Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 22. jan. 2019 – 1. feb. 2019· 5 umsagnir

Breyting efnalaga

Lagfæra þarf ýmis ákvæði efnalaga, svo sem að skýra einstök ákvæði nánar, gera nauðsynlegar breytingar vegna Minamatasamningsins, styrkja lagastoð fyrir heimildum til setningar reglugerða vegna innleiðingar á EES-löggjöf og kveða nánar á um frjálst flæði á vörum til þess að gera lögin skýrari og einfaldari í framkvæmd sem og að tryggja jafnræði.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-24/2019)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 1. febrúar 2019
  3. Umsagnarfresti lýkur · 5 umsagnir bárust
  4. Lagt fram á Alþingi (149. þing, mál 759)
  5. Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (15. ágúst 2019)

Frumvarpið var sett fram til kynningar í samráðsgátt Stjórnarráðsins 22. janúar 2019 og var umsagnarfrestur til 1. febrúar 2019. Alls bárust fimm umsagnir við frumvarpið í samráðsgátt. Í greinargerð frumvarps til laga um breytingu á efnalögum er gerð grein fyrir þeim. Frumvarpið var lagt fram á Alþingi 26. mars 2019 og varð að lögum nr. 57/2019 hinn 25. júní 2019.

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (5)
  • #1Sigurður Örn Guðleifsson

    Hjálagðar eru ábendingar ráðgjafarnefndar um eftirlit á vegum hins opinbera, skv. lögum nr. 27/1999 um opinberar eftirlitsreglur. Fyrir hönd nefndarinnar, Sigurður Örn Guðleifsson, formaður.

  • #2Kjartan Kjartansson
    Það virðist sem að engin lög nái til geymslu á efnum. Í lögum má finna skýr ákvæði um innflutning efna, pökkun efna í flutningi, förgun efna, notkun efna, hlífðarfatnað við notkun o.s.f.rv. en ekekrt er að finna um hvernig skuli geyma efni í verslunum eða vöruhúsum. Það eru ekki skilgreindar kröfur um loftræstingu eða annan aðbúnað sem þarf að vera til að geymsla efna teljist örugg. Þá mætti jafnvel hafa í huga að flutningur og geymsla ýmissa efna er ekki æskilegur á ýmsum svæðum t.d. vatnsverndarsvæðum. Lögin ættu að úthluta/skilgreina hvaða lagasetning nái til framleiðslu, pökkunar, fl… Lesa alla

    Það virðist sem að engin lög nái til geymslu á efnum. Í lögum má finna skýr ákvæði um innflutning efna, pökkun efna í flutningi, förgun efna, notkun efna, hlífðarfatnað við notkun o.s.f.rv. en ekekrt er að finna um hvernig skuli geyma efni í verslunum eða vöruhúsum. Það eru ekki skilgreindar kröfur um loftræstingu eða annan aðbúnað sem þarf að vera til að geymsla efna teljist örugg. Þá mætti jafnvel hafa í huga að flutningur og geymsla ýmissa efna er ekki æskilegur á ýmsum svæðum t.d. vatnsverndarsvæðum. Lögin ættu að úthluta/skilgreina hvaða lagasetning nái til framleiðslu, pökkunar, flutgnings, geymslu, notkunar, eyðingar og viðbragða vegna slysa á efnum. Þá þarf að skilgreina hverjir hafa eftirlit með hverjum þætti, t.d. vegagerð, lögregla, vinnueftirlit o.þ.h. Reyna ætti eftir megni að styðjast við alþjóða reglugerðir og viðmið. Það er ekki eðlilegt að hvaða efni sem er sé geymt í sama vöruhúsi og matvæli eða heilbrigðisvörur, því lítið rof á umbúðum efnis getur mengað matvælin eða heilbrigðisvörurnar.

  • #3Árný Sigurðardóttir

    Umsögn Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur

  • #4Íris Lind Sæmundsdóttir

    Góðan dag Meðfylgjandi er umsögn OR samstæðunnar við áformaðar breytingar á efnalögum. Bestu kveðjur, Íris Lind

  • #5Elísabet Pálmadóttir

    Meðfylgjandi eru ábendingar varðandi skráningu hættulegra efna til að auka öryggi viðbragðsaðila og um aukna áherslu á notkun óháðra skoðunarstofa við eftirlit.

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.

S-24/2019: Breyting efnalaga · Alviti