Frumvarp til laga um breytingu á lögum um loftslagsmál, nr. 70/2012
Í frumvarpinu eru lagðar til breytingar á lögum um loftslagsmál með það að markmiði að styrkja umgjörð og stjórnsýslu loftslagsmála og skerpa á ýmsum ákvæðum laganna. Nauðsynlegt er að uppfæra ýmis ákvæði laganna og setja ný ákvæði sem styrkja stjórnsýslu í loftslagsmálum og auðvelda stjórnvöldum að ná settum markmiðum í loftslagsmálum, s.s. um samdrátt í losun gróðurhúsalofttegunda og kolefnishlutleysi.
Ferill í Samráðsgátt
- Birt í Samráðsgátt (S-36/2019)
- Umsagnarfrestur hefst · til 14. febrúar 2019
- Umsagnarfresti lýkur · 9 umsagnir bárust
- Lagt fram á Alþingi (149. þing, mál 758)
- Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (12. desember 2019)
Athugasemdir voru gerðar við 2. gr. frumvarpsins um aðgerðaáætlun
Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (9)
- #1Valdimar Össurarson
Nauðsynlegt er að bæta úr alvarlegum göllum á þessu lagafrumvarpi, en sömu gallar eru á þeirri löggjöf sem því er ætlað að styrkja. Hér falla stjórnvöld í sömu gryfju og áður; að einblína á einn þátt Parísarsáttmálans, sem er losun innanlands, en gleyma öðrum, sem ekki eru þó síður mikilvægir og bindandi fyrir íslensk stjórnvöld. Í 10.grein Parísarsáttmálans skuldbinda aðildarríki sig til þess að styðja tækni sem stuðlar að markmiðum sáttmálans á heimsvísu og miðla henni. Ekkert í aðgerðaráætlun eða löggjöf íslenskra stjórnvalda gefur tilefni til að ætla að þau muni styðja við þessar skuldb… Lesa alla
Nauðsynlegt er að bæta úr alvarlegum göllum á þessu lagafrumvarpi, en sömu gallar eru á þeirri löggjöf sem því er ætlað að styrkja. Hér falla stjórnvöld í sömu gryfju og áður; að einblína á einn þátt Parísarsáttmálans, sem er losun innanlands, en gleyma öðrum, sem ekki eru þó síður mikilvægir og bindandi fyrir íslensk stjórnvöld. Í 10.grein Parísarsáttmálans skuldbinda aðildarríki sig til þess að styðja tækni sem stuðlar að markmiðum sáttmálans á heimsvísu og miðla henni. Ekkert í aðgerðaráætlun eða löggjöf íslenskra stjórnvalda gefur tilefni til að ætla að þau muni styðja við þessar skuldbindingar. Loftslagssjóður sem stjórnvöld hyggjast einhverntíma ætla að setja á fót verður einskisnýtur í þessu efni; honum eru einungis ætlaðar 50 milljónir árlega til að moka ofan í alla skurði landsins og kynna aðgerðir stjórnvalda. Hann mun því ekki styðja neina tækniþróun í samræmi við áðurnefndar skuldbindingar Íslendinga. Tækniþróunarsjóður er stærsti samkeppnissjóður landsins. Honum ber að styðja verkefni sem skilgreind eru af vísinda- og tækniráði, en í ályktunum vt-ráðs er ekki að finna stafkrók um Parísarsamkomulagið eða loftslagsmál. Valorka ehf vinnur að verkefni sem hefur beina skírskotun til Parísarsáttmálans; tækni til nýtingar umfangsmikilla orkulinda sjávarfalla á umhverfisvænan og hagkvæman hátt. Þrátt fyrir að verkefnið hafi staðið undir öllum væntingum í faglegum efnum og sé fremst á heimsvísu í sínum nýtingarflokki hafa stjórnvöld í raun brugðið fæti fyrir það á ýmsan hátt (sjá www.valorka.is) einkum með því að skapa því enga möguleika á stuðningi samkeppnissjóða. Þannig var Orkusjóði meinað að styðja nýsköpun í orkutækni með lagabreytingu árið 2014; þau mistök hafa ekki verið leiðrétt. Þetta verkefni, sem líklega er vænlegasta framlag Íslendinga til loftslagsmarkmiða og orkuskipta Parísarsáttmálans, hefur verið án alls opinbers stuðnings frá miðju ári 2018. Mun forræði þess flytjast úr landi ef stjórnvöld halda áfram að loka augum fyrir skuldbindingum sínum samkvæmt 10.gr Parísarsáttmálans. Með þessum lögum gefst stjórnvöldum færi á að breyta um stefnu og undirbyggja raunhæfan stuðning við þetta verkefni og önnur, í stað þess að kasta öllum tækifærum á glæ eins og verið hefur. Meðfylgjandi er skýrsla sem nýlega var samin í tilefni af því að atvinnuvega- og nýsköpunarráðherra skilaði villandi skýrslu til Alþingis. Þar er dregin fram staðan á heimsvísu varðandi sjávarfallavirkjanir; möguleika og tækifæri sem í þeim felast og hvernig Íslensk stjórnvöld hafa staðið í vegi fyrir þeirri þróun hérlendis.
- #2Samtök atvinnulífsins
Í viðhengi fylgir umsögn Samtaka atvinnulífsins og Samtaka iðnaðarins
- #3Landgræðsla ríkisins
Umsögn Landgræðslunnar er í viðhengi.
- #4Sigurjón Norberg Kjærnested
Góðan daginn Hér fylgir með umsögn Samorku um málið. mbkv.
- #5Landvernd, landgræðslu- og umhverisverndarsamtök Íslands
Sjá viðhengi
Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.