Beint í efni
Alviti
← Samráðsgátt
S-39/2019 · Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Frumvarp til laga um breytingu á lögum um vátryggingastarfsemi og lögum um vátryggingasamstæður.

Í frumvarpinu eru lagt til að bæta við regluheimildum fyrir Fjármálaeftirlitið auk þess að gera tilteknar reglu- og reglugerðarheimildir skýrari.

Með lögum nr. 100/2016, um vátryggingastarfsemi og lögum nr. 60/2017, um vátryggingasamstæður var megin efni tilskipunar 2009/138/EB, um stofnun og rekstur fyrirtækja á sviði vátrygginga og endurtrygginga, innleitt. Í báðum lögunum eru heimildir fyrir Fjármálaeftirlitið að setja reglur um afmarkaða þætti. Reglurnar byggjast á framkvæmdareglugerð framkvæmdastjórnar ESB. Í frumvarpinu er Fjármálaeftirlitinu veitt heimild til að setja reglur og ráðherra veitt heimild til að setja reglugerð sem byggjast á framkvæmdareglugerðum framkvæmdastjórnar ESB. Auk þess er útfærð nánar heimild ráðherra til að setja reglugerð um áhættulausan vaxtaferil vegna núvirðingar á vátryggingaskuld og heimild Fjármálaeftirlisins til að setja reglur vegna skýrslugerðar vátryggingasamstæðu.

S-39/2019· Drög að frumvarpi til laga· Fjármála- og efnahagsráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 5. feb. 2019 – 13. feb. 2019· 0 umsagnir

Frumvarp til laga um breytingu á lögum um vátryggingastarfsemi og lögum um vátryggingasamstæður.

Í frumvarpinu eru lagt til að bæta við regluheimildum fyrir Fjármálaeftirlitið auk þess að gera tilteknar reglu- og reglugerðarheimildir skýrari.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-39/2019)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 13. febrúar 2019
  3. Umsagnarfresti lýkur · 0 umsagnir bárust
  4. Lagt fram á Alþingi (149. þing, mál 632)
  5. Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (20. maí 2019)

Frumvarpið var birt á samráðsgátt stjórnvalda 5. febrúar 2019. Frestur til umsagna var til 13. febrúar 2019 og bárust engar athugasemdir.

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt

Engar umsagnir hafa borist.

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.

S-39/2019: Frumvarp til laga um breytingu á lögum um vátryggingastarfsemi og lögum um vátryggingasamstæður. · Alviti