Beint í efni
Alviti
← Samráðsgátt
S-25/2019 · Mennta- og barnamálaráðuneytið

Áform um lagabreytingar um menntun og ráðningu kennara og skólastjórnenda við leikskóla, grunnskóla og framhaldsskóla nr. 87/2008

Áformað er að gera breytingar á lögum nr. 87/2008 þar sem meðal annars verður stuðlað að aukinni samfellu og sveigjanleika milli skólastiga með útgáfu eins leyfisbréfs til kennslu.

Mennta- og menningarmálaráðuneyti kynnir áform um breytingar á lögum um menntun og ráðningu kennara og skólastjórnenda við leikskóla, grunnskóla og framhaldsskóla nr. 87/2008. Með setningu fyrrgreindra laga voru ríkari kröfur gerðar til menntunar kennara með það að leiðarljósi að skapa nemendum sem bestu mögulegu skilyrði til uppeldis og náms. Markmið þeirra var einnig að auka samfellu milli skólastiga, færa þau nær hvert öðru og stuðla að því að strax í leikskóla hæfist undirbúningur að samfellu í skólastarfi þar sem eitt skólastig tæki við af öðru. Í greinargerð með frumvarpi laganna 2008 kemur fram sú fyrirætlan að gildissvið leyfisbréfa leik-, grunn- og framhaldsskólakennara verði útvíkkuð til aðliggjandi skólastiga þannig að viðkomandi kennari hafi einnig heimild til að kenna ákveðnum aldursflokkum eða á sérsviði sínu. Tilgangurinn var að þannig yrði stuðlað að ákveðnum sveigjanleika milli skólastiga. Markmiðum um sveigjanleika og samfellu milli skólastiga hefur ekki verið náð. Kennarar sem valið hafa að starfa á aðliggjandi skólastigi á grundvelli sérstakrar heimildar annað en leyfisbréf þeirra tilgreinir, hafa verið ráðnir til kennslu sem leiðbeinendur og starf þeirra auglýst árlega. Hefur þetta m.a. haft í för með sér að heimild þeirra til að kenna á aðliggjandi skólastigum hefur ekki verið viðurkennd við ráðningar sem leitt hefur til þess að þeir búa við ófullnægjandi starfsöryggi. Mennta- og menningarmálaráðuneyti hafa borist upplýsingar um að hæfir og reynslumiklir kennarar hafi kosið að láta af störfum sem leiðbeinendur því ekki sé unnt að greiða þeim laun í samræmi við stöðu þeirra, auk þess sem starfsöryggi þeirra sé óviðunandi. Brýnt er að bregðast við ofangreindum vanda og ágalla á lögunum, standa vörð um réttindi og starfsöryggi kennara, auka flæði milli skólastiga, fjölga tækifærum til starfsþróunar kennara og fjölbreytileika í menntakerfinu. Með breytingu á lögum nr. 87/2008 er ætlunin að gefið verði út eitt leyfisbréf til kennslu sem staðfesting á hæfni sem leik-, grunn- og framhaldsskólakennarar þurfa að búa yfir. Gert er ráð fyrir að breytingarnar leiði til aukins sveigjanleika og flæðis kennara milli skólastiga, hvatningu til starfsþróunar, gæði menntunar og fjölbreytileiki verði meiri, auk þess sem stuðlað verði að starfsöryggi kennara. Í breytingunum felst einnig viðurkenning á hæfni og störfum kennara og faglegu sjálfstæði þeirra. Enn fremur eru taldar líkur á að þær leiði til aukinnar skólaþróunar á öllum skólastigum og aukinnar nýliðunar kennara. Með endurskoðun laganna verður enn fremur mælt fyrir um heimild til að fela þar til bæru stjórnvaldi afgreiðslu og útgáfu leyfisbréfa samkvæmt lögum þessum. Samkeppnishæfni þjóða má að hluta rekja til menntunarstigs hennar. Kennarar eru lykilstarfsmenn menntakerfisins, það eru þeir sem leiða breytingar til umbóta og auka gæðin í skólastarfi. Fjölgun á hæfum kennurum styrkir þannig samkeppnishæfni landsins. Brýnt er að hér á landi verði stór hópur kennara sem búi yfir hæfni til að takast á við framtíðaráskoranir sem blasa við næstu árin og áratugi. Íslenskt menntakerfi þarf að búa nemendur þessa lands undir líf og störf í síbreytilegu samfélagi og skapa þeim jöfn tækifæri til menntunar. Hæfir kennarar á öllum skólastigum eru forsenda þess að sú framtíðarsýn verði að veruleika. Stefnt er að því að drög frumvarps þessa efnis verði kynnt í Samráðsgátt síðar í vetur og gefst á hagsmunaaðilum og öðrum áhugasömum einnig kostur á að senda inn umsagnir.

S-25/2019· Áform um lagasetningu· Mennta- og barnamálaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 23. jan. 2019 – 4. feb. 2019· 6 umsagnir

Áform um lagabreytingar um menntun og ráðningu kennara og skólastjórnenda við leikskóla, grunnskóla og framhaldsskóla nr. 87/2008

Áformað er að gera breytingar á lögum nr. 87/2008 þar sem meðal annars verður stuðlað að aukinni samfellu og sveigjanleika milli skólastiga með útgáfu eins leyfisbréfs til kennslu.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-25/2019)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 4. febrúar 2019
  3. Umsagnarfresti lýkur · 6 umsagnir bárust
  4. Lagt fram á Alþingi (149. þing, mál 801)
  5. Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (29. janúar 2020)

Lög um menntun, hæfni og ráðningu kennara og skólastjórnenda við leikskóla, grunnskóla og framhaldsskóla voru samþykkt á Alþingi 1, júlí 2019.

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (6)
  • #1Sigurbjörg Friðriksdóttir

    Sammála þessari breytingu.

  • #2Haraldur Freyr Gíslason

    Sjá viðhengi

  • #3Sigurbjörn Árni Arngrímsson
    Breytingarnar á lögunum munu opna ýmsa möguleika og auka flæði kennara á milli skólastiga. Hins vegar myndast ýmsar flækjur við þessar breytingar. Til að mynda virðast þær stangast á við reglugerð 872/2009 um inntak menntunar leik-, grunn- og framhaldsskólakennara. Þar kemur fram að talsverður munur er gerður á þeim fjölda eininga (ECTS) sem þarf að vera til staðar til að uppfylla skilyrði um menntun leik-, grunn- og framhaldsskólakennara. Leikskólakennari þarf t.d. að hafa lokið eigi minna en 150 einingum í uppeldis- og kennslufræði og inntak faggreina sem tengist námssviðum leikskólans skal… Lesa alla

    Breytingarnar á lögunum munu opna ýmsa möguleika og auka flæði kennara á milli skólastiga. Hins vegar myndast ýmsar flækjur við þessar breytingar. Til að mynda virðast þær stangast á við reglugerð 872/2009 um inntak menntunar leik-, grunn- og framhaldsskólakennara. Þar kemur fram að talsverður munur er gerður á þeim fjölda eininga (ECTS) sem þarf að vera til staðar til að uppfylla skilyrði um menntun leik-, grunn- og framhaldsskólakennara. Leikskólakennari þarf t.d. að hafa lokið eigi minna en 150 einingum í uppeldis- og kennslufræði og inntak faggreina sem tengist námssviðum leikskólans skal eigi vera minna en 90 einingar á meðan framhaldsskólakennari þarf að hafa lokið eigi minna en 60 einingum í uppeldis- og kennslufræði og faggreinin skal eigi vera minna en 180 staðlaðar ­ein­ingar í aðalkennslugrein. Þarna ber talsvert í milli enda langt á milli þessara skólastiga. Ef skólastjórnendum ber skylda til að ráða kennara með leyfisbréf (t.d. leikskólakennara til stærðfræðikennslu í framhaldsskóla eða eðlisfræðikennara úr framhaldsskóla til kennslu í yngstu deild leikskólans) umfram hæfari einstakling sem hefur reynslu eða fagmenntun á sviðinu (þó svo að kennsluréttindin vanti) er verr af stað farið en heima setið. Lagabreytingin þarf að tryggja að fólk með þekkingu á faggreininni gangi fyrir eða standi að minsta kosti jafnfætis fólki án þekkingar á faggreininni en með kennsluréttindi sem upphaflega voru hugsuð til kennslu á öðru skólastigi. Sigurbjörn Árni Arngrímsson Skólameistari Framhaldsskólans á Laugum

  • #4Sara Ósk Halldórsdóttir
    Góðan daginn, Varðandi að gefa eitt leyfisbréf fyrir alla þrjá skóla leik-, grunn- og framhaldsskóla er ég ekki sammála. Mér þykir mjög mikilvægt að einstaklingar sem kenna börnunum okkar séu að læra það sem þeir eru að kenna eða svipuð fræði og þeir eru að kenna. Ég tel að í sumum tilfellum kæmi þetta niður á gæðum kennslunar, ekki endilega alltaf. Ég er leiðbeinandi í dag, ég er í 100% starfshlutfalli að vinna í 20 einingum í Háskóla Íslands við að reyna að klára B.Ed. gráðuna mína í sumar. Ég er að leggja það á mig að læra það sem ég vil kenna til frambúðar. En ég veit fullvel að samn… Lesa alla

    Góðan daginn, Varðandi að gefa eitt leyfisbréf fyrir alla þrjá skóla leik-, grunn- og framhaldsskóla er ég ekki sammála. Mér þykir mjög mikilvægt að einstaklingar sem kenna börnunum okkar séu að læra það sem þeir eru að kenna eða svipuð fræði og þeir eru að kenna. Ég tel að í sumum tilfellum kæmi þetta niður á gæðum kennslunar, ekki endilega alltaf. Ég er leiðbeinandi í dag, ég er í 100% starfshlutfalli að vinna í 20 einingum í Háskóla Íslands við að reyna að klára B.Ed. gráðuna mína í sumar. Ég er að leggja það á mig að læra það sem ég vil kenna til frambúðar. En ég veit fullvel að samningur minn er til eins árs hvert skipti. Ef leikskólakennari og framhaldsskólakennari vilja fá viðeigandi laun í grunnskóla þá er eðlilegt að þeir þurfi að bæta við sig einhverjum fögum í HÍ, hvaða fög það yrðu er hins vegar allt annað mál og má kannski ráðgast við Strakkahlíð hvað þeim þætti mikilvægast fyrir einstaklinga sem hoppa milli skólastiga. Ég tel sérstaklega varhugavert að vera að hleypa leikskólakennurum upp í grunnskóla, án viðeigandi menntunar, og að hleypa grunnskólakennurum upp í framhaldsskóla án viðeigandi menntunar. Hvernig stofnanirnar eru uppsettar er gjörólíkt. Hvaða aumingjavæðing er þetta líka að gefa afslátt af menntun? Haldið þið að hjúkrunarfræðingur fái kannski einhvern tíman að vinna sem læknir á lærri launum? Eða að læknir fái að spreyta sig sem sjúkraþjálfari? Mér finnst þetta algjör vanvirðing við kennarastéttina að segja að öll þessi skólastig séu bara eins og kennarar geti hoppað á milli eins og þeim sýnist þrátt fyrir að vera sérhæfðir í einhverju. Ég verð líka spólandi vitlaus í skapinu, ef að ég er kominn með Masterinn minn, og sæki um stöðu í kennslu yngstu barna í grunnskóla og skólastjórinn hefur leyfi til að taka leikskólakennara fram yfir mig, þegar ég er með sérhæfingu á sviðinu. Hver ætlar að passa að þess sé gætt?? Það mun ENGINN bera virðingu fyrir kennarastarfinu meðan þetta er svona, væl ofan í væl í stað þess að bara taka einhver námskeið í fjarnámi og vera kominn með annað skólastig. MIKIÐ, á móti þessari tillögu. Mbkv. Sara Ósk Halldórsdóttir, Háskólanemi, að sligast stundum undan náms og vinnuálagi en vælir ekki yfir því að vera leiðbeinandi, og læri bara það sem ég ÆTLA að kenna.

  • #5Samband íslenskra sveitarfélaga

    Vinsamlegast sjá meðfylgjandi umsögn Sambands íslenskra sveitarfélaga, við áform um lagabreytingar um menntun og ráðningu kennara og skólastjórnenda, nr. 87/2008. Virðingarfyllst, f.h. sambandsins, Vigdís Häsler, lögmaður

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.

S-25/2019: Áform um lagabreytingar um menntun og ráðningu kennara og skólastjórnenda við leikskóla, grunnskóla og framhaldsskóla nr. 87/2008 · Alviti