Áður en mál kemur til Alþingis
Frumvörp og þingsályktunartillögur sem ráðuneyti hafa kynnt í Samráðsgátt stjórnvalda: hvað er til umsagnar, hverjir sendu umsagnir, og hvað hefur komið til Alþingis og hvað ekki.
1.238 mál · 5 til umsagnar núna · sótt 29. október 2026
- Ekki komið til AlþingisS-129/2019· Drög að frumvarpi til laga· Forsætisráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 10. maí 2019 – 30. jún. 2019· 12 umsagnir
Drög að stjórnarskrárákvæði um umhverfisvernd
Formenn þeirra flokka sem nú sitja á Alþingi hafa átt fundi frá upphafi árs 2018 um breytingar á stjórnarskránni og nú eru birt til samráðs tvö ný ákvæði, um umhverfisvernd og um auðlindir náttúru Íslands.
- Ekki komið til AlþingisS-128/2019· Drög að frumvarpi til laga· Forsætisráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 10. maí 2019 – 30. jún. 2019· 26 umsagnir
Drög að stjórnarskrárákvæði um auðlindir náttúru Íslands
Formenn þeirra flokka sem nú sitja á Alþingi hafa átt fundi frá upphafi árs 2018 um breytingar á stjórnarskránni og nú eru birt til samráðs tvö ný ákvæði, um auðlindir náttúru Íslands og um umhverfisvernd.
- Komið til AlþingisS-127/2019· Drög að frumvarpi til laga· Heilbrigðisráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 10. maí 2019 – 3. jún. 2019· 29 umsagnir
Frumvarp til nýrra lyfjalaga
Heilbrigðisráðuneytið kynnir endurskoðuð drög að frumvarpi til nýrra lyfjalaga. Frumvarpið var fyrst kynnt í samráði 21. febrúar sl. og bárust þá 114 umsagnir. Hefur ráðuneytið unnið úr þeim athugasemdum og óskar nú eftir umsögnum um endurskoðað frumvarp til nýrra lyfjalaga. Umsagnarferli lýkur þann 3. júní nk.
- Ekki komið til AlþingisS-118/2019· Drög að frumvarpi til laga· Fjármála- og efnahagsráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 7. maí 2019 – 19. jún. 2019· 0 umsagnir
Meðferð ríkisaðstoðarmála - frumvarpsdrög
Frumvarpsdrög um meðferð ríkisaðstoðarmála.
- Komið til AlþingisS-113/2019· Drög að frumvarpi til laga· Utanríkisráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 17. apr. 2019 – 28. apr. 2019· 0 umsagnir
Frumvarp til laga um ráðstafanir vegna útgöngu Bretlands úr Evrópusambandinu og Evrópska efnahagssvæðinu
Frumvarpið mælir fyrir um ráðstafanir vegna úrsagnar Bretlands úr Evrópusambandinu og EES, hvort sem úrsögn Bretlands verði á grundvelli samnings milli Evrópusambandsins og Bretlands eða án slíks samnings.
- Komið til AlþingisS-99/2019· Drög að frumvarpi til laga· Atvinnuvegaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 22. mar. 2019 – 26. mar. 2019· 5 umsagnir
Frumvarp til laga um breytingu á raforkulögum, nr. 65/2003 (tilvísun í stefnu stjórnvalda um uppbyggingu flutningskerfis raforku)
Með frumvarpinu og tillögunni til breytingar á þingsályktun 26/148 er lagt til að kveðið verði á um að ekki verði ráðist í tengingu raforkukerfis landsins við raforkukerfi annars lands í gegnum sæstreng nema að undangengnu samþykki Alþingis.
- Ekki komið til AlþingisS-98/2019· Drög að frumvarpi til laga· Atvinnuvegaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 22. mar. 2019 – 28. mar. 2019· 3 umsagnir
Frumvarp til laga um breytingar á almennum hegningarlögum, lögum um hlutafélög, lögum um einkahlutafélög og lögum um sjálfseignarstofnanir sem stunda atvinnurekstur
Markmiðið með frumvarpinu er að stemma stigu við misnotkun á hlutafélagaforminu og er kennitöluflakk í atvinnurekstri þar fyrst og fremst undir.
- Komið til AlþingisS-95/2019· Drög að frumvarpi til laga· Mennta- og barnamálaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 15. mar. 2019 – 21. mar. 2019· 1 umsögn
Frumvarp til laga um lýðskóla
Markmið með fyrirhuguðu frumvarpi til laga um lýðskóla er að skapa faglega umgjörð utan um starfsemi lýðskóla m.a. um hvaða skilyrði skólar þurfa að uppfylla til að fá viðurkenningu til að starfa undir heitinu lýðskóli. Ákveðið hefur verið að nota heitið „lýðskóli“ þar sem orðið „háskóli“ er lögverndað fyrir sambærilega starfsemi og myndi kalla á breytingar á lögum um háskóla nr. 63/2006.
- Komið til AlþingisS-94/2019· Drög að frumvarpi til laga· Atvinnuvegaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 14. mar. 2019 – 21. mar. 2019· 1 umsögn
Frumvarp til laga um raunverulega eigendur
Með frumvarpinu eru innleidd ákvæði um raunverulega eigendur í 30. og 31. gr. tilskipunar 2015/849/EB, fjórðu tilskipunar Evrópusambandsins um peningaþvætti, og brugðist við skýrslu FATF um stöðu mála hvað varðar varnir gegn peningaþvætti hér á landi.
- Komið til AlþingisS-89/2019· Drög að frumvarpi til laga· Atvinnuvegaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 12. mar. 2019 – 19. mar. 2019· 13 umsagnir
Frumvarp til laga um breytingu á lögum um fiskveiðar utan lögsögu Íslands (stjórn veiða á makríl)
Með frumvarpi þessu er lagt til að aflamarksstjórn verði tekin upp við veiðar á makríl.
- Komið til AlþingisS-87/2019· Drög að frumvarpi til laga· Atvinnuvegaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 12. mar. 2019 – 19. mar. 2019· 1 umsögn
Frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lagaákvæðum um stjórnsýslu búvörumála (flutningur búnaðarstofu)
Með frumvarpi þessu er lögð til breyting á stjórnsýslu landbúnaðarmála þannig að stjórnsýsluverkefni framleiðslustjórnar verði færð í atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið.
- Ekki komið til AlþingisS-86/2019· Drög að frumvarpi til laga· Atvinnuvegaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 12. mar. 2019 – 19. mar. 2019· 1 umsögn
Frumvarp til laga um félagasamtök til almannaheilla
Með frumvarpinu er lagt til að sett verði heildarlög um félagasamtök til almannaheilla en ekki er í gildi sérstök löggjöf um slík félög í dag. Í frumvarpinu er lagt til að félagasamtök til almannaheilla verði aðgreind frá öðrum félagasamtökum og að settar verði reglur um stofnun, stjórnun og slit slíkra félaga.
- Komið til AlþingisS-85/2019· Drög að frumvarpi til laga· Félags- og húsnæðismálaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 11. mar. 2019 – 24. mar. 2019· 2 umsagnir
Frumvarp til laga um breytingu á húsaleigulögum, nr. 36/1994, með síðari breytingum (bætt réttarstaða leigjenda við lok leigusamnings).
Frumvarpinu er ætlað að auka húsnæðisöryggi þeirra sem hafa fengið íbúðarhúsnæði á leigu hjá vinnuveitanda sínum vegna starfs þannig að þeir eigi rétt á uppsagnarfresti við lok leigusamnings eftir almennum reglum.
- Komið til AlþingisS-84/2019· Drög að frumvarpi til laga· Fjármála- og efnahagsráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 8. mar. 2019 – 22. mar. 2019· 5 umsagnir
Drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um tekjuskatt og lögum um staðgreiðslu skatts á fjármagnstekjur (skattlagning tekna af höfundaréttindum)
Með frumvarpinu er lagt til að höfundagreiðslur sem viðurkennd samtök rétthafa innheimta og greiddar eru til höfunda og/eða annarra einstaklinga sem rétthafa verði skattlagðar sem eignatekjur/fjármagnstekjur.
- Komið til AlþingisS-83/2019· Drög að frumvarpi til laga· Forsætisráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 7. mar. 2019 – 18. mar. 2019· 7 umsagnir
Drög að frumvörpum til laga um sameiningu Seðlabanka Íslands og Fjármálaeftirlitsins
Drög að frumvörpum vegna sameiningar Seðlabanka Íslands og Fjármálaeftirlitsins.
- Komið til AlþingisS-82/2019· Drög að frumvarpi til laga· Dómsmálaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 7. mar. 2019 – 21. mar. 2019· 1 umsögn
Frumvarp til laga um breytingu á lögum um kyrrsetningu, lögbann o.fl., nr. 31/1990, með síðari breytingum (lögbann á tjáningu).
Frumvarp til laga um breytingu á lögum um kyrrsetningu, lögbann o.fl., nr. 31/1990, með síðari breytingum (lögbann á tjáningu).
- Ekki komið til AlþingisS-81/2019· Drög að frumvarpi til laga· Forsætisráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 7. mar. 2019 – 21. mar. 2019· 0 umsagnir
Frumvarp til laga um breytingu á lögum um fjölmiðla, nr. 38/2011, með síðari breytingum (endurkröfur blaðamanna og fjölmiðlaveitna)
Með frumvarpinu er stefnt að því að bæta réttarstöðu starfsmanna blaðamanna vegna greiðslu skaðabóta sem þeim kann að vera gert að greiða vegna tjáningar sem þeir setja fram í starfi sínu.
- Komið til AlþingisS-80/2019· Drög að frumvarpi til laga· Forsætisráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 7. mar. 2019 – 21. mar. 2019· 1 umsögn
Frumvarp til laga um vernd uppljóstrara
Markmið frumvarpsins er að á Íslandi gildi skýr löggjöf um vernd uppljóstrara sem taki mið af ábendingum alþjóðastofnana og fordæmum þeirra nágrannaríkja sem fela í sér bestu framkvæmdina á þessu sviði.
- Komið til AlþingisS-79/2019· Drög að frumvarpi til laga· Forsætisráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 7. mar. 2019 – 21. mar. 2019· 0 umsagnir
Frumvarp til laga um breytingu á upplýsingalögum, nr. 140/2012, með síðari breytingum, og öðrum lögum (útvíkkun gildissviðs upplýsingalaga o.fl.)
Með frumvarpinu eru lagðar til breytingar á upplýsingalögum sem hafa það markmið að styrkja upplýsingarétt almennings.
- Komið til AlþingisS-77/2019· Drög að frumvarpi til laga· Utanríkisráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 6. mar. 2019 – 18. mar. 2019· 0 umsagnir
Um frystingu fjármuna og skráningu aðila á lista yfir þvingunaraðgerðir í tengslum við fjármögnun hryðjuverka og útbreiðslu gereyðingarvopna
- Ekki komið til AlþingisS-76/2019· Áform um lagasetningu· Dómsmálaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 6. mar. 2019 – 25. mar. 2019· 3 umsagnir
Áform um frumvarp um sjálfstæða innlenda mannréttindastofnun
Áformað er að koma á fót sjálfstæðri innlendri mannréttindastofnun (e. National Human Rights Institution), sem uppfyllir svokölluð Parísarviðmið Sameinuðu þjóðanna um mannréttindastofnanir.
- Komið til AlþingisS-75/2019· Drög að frumvarpi til laga· Forsætisráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 5. mar. 2019 – 19. mar. 2019· 4 umsagnir
Frumvarp til laga um heiðarlega starfshætti í vísindum
Markmið með setningu laga á þessu sviði er að stuðla að því að rannsóknir fari fram í samræmi við viðurkennd siðferðisviðmið um heiðarleika í vísindum og auka þannig trúverðugleika vísindastarfs og rannsókna í samfélaginu.
- Ekki komið til AlþingisS-74/2019· Drög að frumvarpi til laga· Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 28. feb. 2019 – 17. mar. 2019· 53 umsagnir
Breyting á lögum um náttúruvernd, nr. 60/2013.
Umhverfis- og auðlindaráðuneytið kynnir til umsagnar drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um náttúruvernd 60/2013. Með frumvarpin eru lagðar til breytingar IV. kafli. laganna um almannarétt, útivist og umgengni og XI. kafla um innflutning og dreifingu á lifandi framandi lífverum
- Ekki komið til AlþingisS-73/2019· Drög að frumvarpi til laga· Félags- og húsnæðismálaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 28. feb. 2019 – 14. mar. 2019· 2 umsagnir
Frumvarp til laga um breytingu á lögum um réttindagæslu fyrir fatlað fólk, nr. 88/2011, með síðari breytingum (nefnd um undanþágu frá banni við beitingu nauðungar, réttindavakt ráðuneytisins o.fl.).
Frumvarpið fjallar um breytingu á lögum um réttindagæslu fyrir fatlað fólk nr. 88/2011.
- Komið til AlþingisS-71/2019· Drög að frumvarpi til laga· Fjármála- og efnahagsráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 26. feb. 2019 – 10. mar. 2019· 1 umsögn
Drög að frumvarpi til laga um dreifingu vátrygginga og frumvarpi til laga um breytingu á lögum um vátryggingarsamninga.
Með frumvörpunum verða ákvæði tilskipunar um dreifingu vátrygginga nr. 2016/97/ESB sem tekin hefur verið upp í EES-samninginn leidd í lög á Íslandi.
- Ekki komið til AlþingisS-70/2019· Drög að frumvarpi til laga· Heilbrigðisráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 26. feb. 2019 – 11. mar. 2019· 0 umsagnir
Frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 41/2007 um landlækni og lýðheilsu.
Drög að frumvarpi til laga um breytingu á 12. gr. laga um landlækni og lýðheilsu. Heimildir laganna til kvörtunar skýrðar nánar og málsmeðferð í kvörtunarmálum einfölduð.
- Ekki komið til AlþingisS-69/2019· Drög að frumvarpi til laga· Mennta- og barnamálaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 25. feb. 2019 – 11. mar. 2019· 0 umsagnir
Drög að frumvarpi um flytjanleika efnisveituþjónustu á netinu yfir landamæri á innri markaðnum
Markmið frumvarpsins er að tryggja að einstaklingar sem ferðast á milli landa innan evrópska efnahagssvæðisins og dvelja þar tímabundið geti nýtt sér áskrift að stafrænu efni sem þeir hafa keypt í sínu heimalandi.
- Ekki komið til AlþingisS-68/2019· Áform um lagasetningu· Fjármála- og efnahagsráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 25. feb. 2019 – 8. mar. 2019· 0 umsagnir
Áform um frumvarp um endurreisn og skilameðferð fjármálafyrirtækja
Áformað er að leggja fram frumvarp til nýrra heildarlaga um endurreisn og skilmeðferð fjármálafyrirtækja sem mun innleiða meginhluta tilskipunar 2014/59/ESB (BRRD tilskipunin).
- Komið til AlþingisS-67/2019· Drög að frumvarpi til laga· Mennta- og barnamálaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 25. feb. 2019 – 11. mar. 2019· 2 umsagnir
Drög að frumvarpi til laga um sameiginlega umsýslu höfundarréttar
Mennta- og menningarmálaráðherra áformar að leggja fram frumvarp til laga um starfshætti sameiginlegra umsýslustofnana sem starfa í þágu rétthafa höfundarréttar. Markmið frumvarpsins er að bæta starfshætti rétthafasamtaka.
- Komið til AlþingisS-66/2019· Áform um lagasetningu· Mennta- og barnamálaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 25. feb. 2019 – 5. mar. 2019· 4 umsagnir
Áform um frumvarp til laga um lýðskóla
Markmið með fyrirhuguðu frumvarpi til laga um lýðskóla er að skapa faglega umgjörð utan um starfsemi lýðskóla m.a. um hvaða skilyrði skólar þurfa að uppfylla til að fá viðurkenningu til að starfa undir heitinu lýðskóli. Ákveðið hefur verið að nota heitið „lýðskóli“ þar sem orðið „háskóli“ er lögverndað fyrir sambærilega starfsemi og myndi kalla á breytingar á lögum um háskóla nr. 63/2006.
Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi. Hlekkur getur vantað þegar heiti málsins breyttist mikið á leiðinni; ritstjóri getur staðfest eða hafnað tengingu.
Hér eru frumvörp, áform um lagasetningu og drög að þingsályktunartillögum. Drög að reglugerðum og önnur mál fara ekki til Alþingis og eru á vef gáttarinnar. Alviti hefur þingmál Alþingis frá 8. september 2015; um eldri samráðsmál sem ekki finnast þar er sagt „óvíst“.
Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda (island.is) · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)