Beint í efni
Alviti
← Samráðsgátt
S-85/2019 · Félags- og húsnæðismálaráðuneytið

Frumvarp til laga um breytingu á húsaleigulögum, nr. 36/1994, með síðari breytingum (bætt réttarstaða leigjenda við lok leigusamnings).

Frumvarpinu er ætlað að auka húsnæðisöryggi þeirra sem hafa fengið íbúðarhúsnæði á leigu hjá vinnuveitanda sínum vegna starfs þannig að þeir eigi rétt á uppsagnarfresti við lok leigusamnings eftir almennum reglum.

Með frumvarpinu er lagt til að 50. gr. húsaleigulaga verði felld brott. Er þar kveðið á um að sé leigjandi starfsmaður leigusala og hafi fengið íbúðarhúsnæði á leigu vegna þess starfs falli leigusamningur niður án sérstakrar uppsagnar láti leigjandi af störfum að eigin ósk, sé löglega vikið úr starfi vegna brota í því eða vegna þess að fyrir fram umsömdum ráðningartíma sé lokið. Ákvæðið hefur verið í lögum allt frá samþykkt laga um húsaleigusamninga, nr. 44/1979, en þar var ákvæðið að finna í 62. gr. laganna. Í athugasemdum við þá grein segir að í henni hafi verið fólgið nýmæli þess efnis að þegar afnot af leiguhúsnæði væru látin í té í tengslum við ráðningu í starf, þá væri ekki heimilt að láta starfsmann víkja úr húsnæðinu fyrirvaralaust samhliða uppsögn úr starfi, nema starfsmaðurinn hefði gerst brotlegur eða hann verið ráðinn tímabundið. Öðrum kosti yrði að segja upp afnotum húsnæðisins með venjulegum hætti. Þætti rétt að girða með þeim hætti fyrir það að menn glötuðu samtímis bæði atvinnu sinni og húsnæði. Bent hefur verið á að af framangreindu ákvæði 50. gr. húsaleigulaga leiði að réttarstaða leigjanda sem leigir íbúðarhúsnæði af vinnuveitanda sínum sé lakari en réttarstaða annarra leigjenda íbúðarhúsnæðis þegar kemur að lokum leigusamnings, þ.e. að leigusamningur falli niður án sérstakrar uppsagnar ólíkt því sem almennt gildir. Þykir eðlilegra að í slíkum tilvikum sé útbúinn hefðbundinn húsaleigusamningur á grundvelli húsaleigulaga og að um samningssamband aðila fari eftir almennum reglum laganna, m.a. hvað lok leigusamnings varðar. Með brottfalli 50. gr. húsaleigulaga samkvæmt frumvarpinu er þannig lagt til grundvallar að í umræddum tilvikum gildi ekki sérregla um lok leigusamnings án uppsagnar heldur almennar reglur húsaleigulaga um uppsögn leigusamnings, sbr. XI. kafla húsaleigulaga. Þannig verði tryggt að réttarstaða leigjanda sem leigir íbúðarhúsnæði af vinnuveitanda sínum sé ekki lakari en réttarstaða annarra leigjenda íbúðarhúsnæðis þegar kemur að lokum leigusamnings. Frumvarpinu er þannig ætlað að bæta réttarstöðu leigjenda sem leigja íbúðarhúsnæði af vinnuveitanda sínum hvað varðar lok leigusamnings þannig að þeir njóti sama réttar til uppsagnarfrests og aðrir leigjendur íbúðarhúsnæðis samkvæmt almennum reglum húsaleigulaga. Þykir breytingin mikilvægur liður í að auka húsnæðisöryggi þeirra sem hafa fengið íbúðarhúsnæði á leigu vegna starfs síns.

S-85/2019· Drög að frumvarpi til laga· Félags- og húsnæðismálaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 11. mar. 2019 – 24. mar. 2019· 2 umsagnir

Frumvarp til laga um breytingu á húsaleigulögum, nr. 36/1994, með síðari breytingum (bætt réttarstaða leigjenda við lok leigusamnings).

Frumvarpinu er ætlað að auka húsnæðisöryggi þeirra sem hafa fengið íbúðarhúsnæði á leigu hjá vinnuveitanda sínum vegna starfs þannig að þeir eigi rétt á uppsagnarfresti við lok leigusamnings eftir almennum reglum.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-85/2019)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 24. mars 2019
  3. Umsagnarfresti lýkur · 2 umsagnir bárust
  4. Lagt fram á Alþingi (149. þing, mál 795)
  5. Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (16. september 2021)

Samráði er lokið. Alls bárust 2 umsagnir um frumvarpið í samráðsgátt auk þess sem þrjár umsagnir bárust ráðuneytinu. Við samningu frumvarpsins var tekið tillit til þeirra athugasemda sem fram komu við samráðið eftir því sem unnt var. Horfið var frá því að fella brott 50. gr. og þess í stað mælt fyrir um tilteknar breytingar á greininni.

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (2)

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.

S-85/2019: Frumvarp til laga um breytingu á húsaleigulögum, nr. 36/1994, með síðari breytingum (bætt réttarstaða leigjenda við lok leigusamnings). · Alviti