Frumvarp til laga um breytingu á lögum um fiskveiðar utan lögsögu Íslands (stjórn veiða á makríl)
Með frumvarpi þessu er lagt til að aflamarksstjórn verði tekin upp við veiðar á makríl.
Ferill í Samráðsgátt
- Birt í Samráðsgátt (S-89/2019)
- Umsagnarfrestur hefst · til 19. mars 2019
- Umsagnarfresti lýkur · 13 umsagnir bárust
- Lagt fram á Alþingi (149. þing, mál 776)
- Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (20. desember 2019)
Niðurstöðum samráðs er lýst í kafla 5. í frumvarpi því sem varð að lögum nr. 49/2019 (stjórn veiða á makríl).
- Frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 151 27. desember 1996, um fiskveiðar utan lögsögu Íslands, með síðari breytingum (stjórn veiða á makríl).
- Frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lagaákvæðum um stjórnsýslu búvörumála (flutningur búnaðarstofu)
Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (13)
- #1Saltver ehf.
Saltver ehf. fer fram á að úthlutunin miðist við árið 2018 eins og fram kemur í einum hluta greinagerðarinar . Saltver mun verða fyrir umtalsverðu fjárhagslegu Tjóni ef niðurskurður í makríll verður eins og menn eru að tala um. Hjá Saltver starfa allt að 50 manns við makríl í landvinnslunni. 15 smábátar stóla á að geta landað hjá okkur, þar sem við og Nesfiskur eru einu fyrirtækin sem verka makríl til manneldis á suðurnesjum.
- #2GunGum ehf.
GunGum ehf. fer fram á að úthlutunin miðist við árið 2018 eins og fram kemur í einum hluta greinagerðarinar . GunGum ehf. mun verða fyrir umtalsverðu fjárhagslegu Tjóni ef niðurskurður í makríll verður eins og menn eru að tala um. GunGum ehf á 3 makrílbáta, og allur sá makrílkvóti sem er á þeim bátum hefur verið keyptur fyrir umtalsverðar upphæðir. Ef niðurskurður verður eins og menn eru að tala um, þá gefur auga leið að GunGum ehf. mun tapa verulegum fjárhagslegum upphæðum. Með von um rétta niðurstöðu. Kveðja GunGum ehf.
- #3Halldór Árnason
149. löggjafarþing 2018–2019. Stjórnarfrumvarp. Ábending til sjávarútvegs-og landbúnaðarráðherra, frá Halldóri Árnasyni, Mýrum 8, Patreksfirði. Varðandi: Frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 151 27. desember 1996, um fiskveiðar utan lögsögu Íslands, með síðari breytingum (stjórn veiða á makríl). Ath. þetta frumvarp er um: „fiskveiðar utan lögsögu Íslands“ smábátar koma aldrei við sögu utan lögsögu. Þeir smábátar sem veitt hafa makríl við Ísland, hafa tekið allan sinn makrílafla nánast upp í fjöru, á mjög takmörkuðum svæðum. Mesta vandamálið hefur verið að stranda ekki… Lesa alla
149. löggjafarþing 2018–2019. Stjórnarfrumvarp. Ábending til sjávarútvegs-og landbúnaðarráðherra, frá Halldóri Árnasyni, Mýrum 8, Patreksfirði. Varðandi: Frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 151 27. desember 1996, um fiskveiðar utan lögsögu Íslands, með síðari breytingum (stjórn veiða á makríl). Ath. þetta frumvarp er um: „fiskveiðar utan lögsögu Íslands“ smábátar koma aldrei við sögu utan lögsögu. Þeir smábátar sem veitt hafa makríl við Ísland, hafa tekið allan sinn makrílafla nánast upp í fjöru, á mjög takmörkuðum svæðum. Mesta vandamálið hefur verið að stranda ekki við veiðarnar! Þarna er kjörið tækifæri til að búa til lög fyrir veiðar smábáta á makríl, sem hægt væri að kalla „Lög innan lögsögu.“ Mín sýn á þetta frumvarp, sem nú er til umræðu er sú, að verið sé að útiloka smábáta frá makrílveiðum. Háttvirtu þingmenn, lítið til Norðmanna, þar eru menn hræddir um að makríll gangi á nytjastofna. Seiði nytjastofna á 1. ári halda sig næst ströndinni, inni á flóum og fjörðum Íslands. Þar fer þessi ránfiskur um og étur það sem fyrst verður á vegi hans, þ.e. seiði og átu nytjastofnanna. Íslendingar eiga að vera ófeimnir við að úthluta veiðiheimildum upp í fjörum, við Ísland þ.e. (sértækar úthlutanir). Fyrir alla muni verið þið svolítið rausnarlegir, því sá afli sem kemur af smábátunum, fer allur í dýrustu pakkningarnar. (Fjöru-)potturinn þarf að vera það vel útilátinn innan lögsögu, að hann dugi þeim bátum sem gerðir eru út með krókum, hverju sinni. Hann sé alls ekki kvótasettur og geti ekki myndað aflviðmið til kvótasetningar, á sömu forsendum og strandveiðarnar hafa gengið út á. Það er staðreynd að fjölmargar smábátaútgerðir hafa lagt í umtalsverðan kostnað við að útbúa sig fyrir makrílveiðar. Allt stefnir í að þær fjárfestingar hafi verið til einskis. Það sorglega við makrílveiðarnar er, að við þekkjum ekki nema þrjú tiltölulega lítil svæði við Ísland, þar sem makríll veiðist á króka. Mikilvægt væri að kanna strandlengju Íslands, með tilliti til nýrra veiðisvæða fyrir krókaveiddan makríl. Munið þið svo eftir strandveiði-frumvarpinu, sem liggur ekki enn fyrir í dag. Veiðarnar ættu að hefjast 2. maí. Það hefur hvorki heyrst hósti né stuna frá ráðamönnum landsins, gagnvart strandveiðum þessa árs. Fyrir alla muni endurvekið ekki kerfið, eins og það var fyrir 2018. Virðingarfyllst Halldór Árnason.
- #4Vinnslustöðin hf.
Umsögn Vinnslustöðvarinnar hf. ásamt fylgiskjölum er í meðfylgjandi í viðhengi.
- #5Reykjaneshöfn
Umsvif Reykjaneshafnar hafa verið töluverð undanfarin ár í tengslum við að þjónusta smábát sem sótt hafa í makrílveiðar. Fyrirhugaðar breytingar sem stefnt er að með þessu frumvarpi mun hafa neikvæð áhrif á þær tekjur sem Reykjaneshöfn hefur af þessari þjónustu. Sama gildir um þær landvinnslur sem tekið hafa á móti þessum afla í gegnum hafnir Reykjaneshafnar. Reykjaneshöfn mælir á móti því að af þessari breytingu verði nema tryggt verði að smábátar eigi sama aðgang að þessum veiðum og þeir hafa haft hingað til.
Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.