Beint í efni
Alviti
← Samráðsgátt
S-87/2019 · Atvinnuvegaráðuneytið

Frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lagaákvæðum um stjórnsýslu búvörumála (flutningur búnaðarstofu)

Með frumvarpi þessu er lögð til breyting á stjórnsýslu landbúnaðarmála þannig að stjórnsýsluverkefni framleiðslustjórnar verði færð í atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið.

Verði frumvarpið að lögum færast stjórnsýsluverkefni framleiðslustjórnar til skrifstofu landbúnaðar- og matvælamála í atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu. Þessi verkefni eru nú á ábyrgð sérstakrar starfseiningar innan Matvælastofnunar, búnaðarstofu. Verkefnin varða stjórn búvöruframleiðslunnar samkvæmt búvörulögum, búnaðarlögum, búvörusamningum og búnaðarlagasamningi. Til þessa telst skráning greiðslumarks lögbýla, framkvæmd beingreiðslna, söfnun hagtalna um búvöruframleiðsluna, eftirlit með ásetningi búfjár, söfnun hjarðbóka o.fl. Flest þessara verkefna voru fram til ársloka 2015 í höndum Bændasamtaka Íslands en voru lögð til Matvælastofnunar með lögum nr. 46. 9. júlí 2015 til samræmis við tillögur Ríkisendurskoðunar þar að lútandi. Með því að koma þessum stjórnsýsluverkefnum á einn stað undir einni yfirstjórn er horft til þess að auka möguleika til forgangsröðunar verkefna í fámennri stjórnsýslu. Með því er ábyrgð af framkvæmd verkefna í tengslum við framkvæmd búvörusamninga færð á einn stað og leitast við að þróa stjórnsýsluna með skilvirkum hætti. Þannig mun t.d. hverfa tvíverknaður sem sprottið hefur af framkvæmd greiðslna til bænda, gerð samninga og umfjöllun álitaefna á tveimur stöðum.

S-87/2019· Drög að frumvarpi til laga· Atvinnuvegaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 12. mar. 2019 – 19. mar. 2019· 1 umsögn

Frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lagaákvæðum um stjórnsýslu búvörumála (flutningur búnaðarstofu)

Með frumvarpi þessu er lögð til breyting á stjórnsýslu landbúnaðarmála þannig að stjórnsýsluverkefni framleiðslustjórnar verði færð í atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-87/2019)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 19. mars 2019
  3. Umsagnarfresti lýkur · 1 umsögn barst
  4. Lagt fram á Alþingi (149. þing, mál 781)
  5. Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (20. desember 2019)

Um samráð er fjallað í kafla 5 í frumvarpi því sem varð að lögum nr. 84/2019, þar sem m.a. er fjallað um innkomna aths. í Samráðsgátt.

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (1)
  • #1Bændasamtök Íslands

    Í viðhengi er að finna sameiginlega umsögn Bændasamtaka Íslands, Landssambands kúabænda og Sambands garðyrkjubænda.

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.

S-87/2019: Frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lagaákvæðum um stjórnsýslu búvörumála (flutningur búnaðarstofu) · Alviti