Beint í efni
Alviti
← Samráðsgátt
S-80/2019 · Forsætisráðuneytið

Frumvarp til laga um vernd uppljóstrara

Markmið frumvarpsins er að á Íslandi gildi skýr löggjöf um vernd uppljóstrara sem taki mið af ábendingum alþjóðastofnana og fordæmum þeirra nágrannaríkja sem fela í sér bestu framkvæmdina á þessu sviði.

Með uppljóstrurum er átt við starfsmenn sem greina í góðri trú frá upplýsingum eða miðla gögnum um brot á lögum eða aðra ámælisverða háttsemi í starfsemi vinnuveitenda sinna, hvort sem þeir starfa hjá hinu opinbera eða á einkamarkaði. Greint er á milli innri og ytri uppljóstrunar og miðað við að hið síðarnefnda sé jafnan ekki heimilt nema hið fyrrnefnda hafi verið reynt til þrautar. Í frumvarpinu er kveðið á um að miðlun upplýsinga eða gagna, að fullnægðum skilyrðum frumvarpsins, teljist ekki brot á þagnar- eða trúnaðarskyldu viðkomandi og leggi hvorki refsi- né skaðabótabyrgð á hann og geti ekki heldur leitt til stjórnsýsluviðurlaga eða íþyngjandi úrræða að starfsmannarétti. Þá er lagt sérstakt bann við því að láta hvern þann sæta óréttlátri meðferð sem miðlað hefur upplýsingum eða gögnum samkvæmt framansögðu. Lögð er sönnunarbyrði á atvinnurekanda á þann hátt að ef líkur eru leiddar að óréttlátri meðferð skal hann sýna fram á að sú sé ekki raunin og greiða skaðabætur ef það tekst ekki. Mælt er fyrir um að veita skuli starfsmanninum gjafsókn komi til ágreinings fyrir dómi um stöðu starfsmanns m.t.t. framangreindrar verndar. Loks er lagt til að lögfestar verði heimildir til að greina ríkisendurskoðanda og Vinnueftirliti ríkisins frá upplýsingum, sambærilegar þeirri heimild sem nú er að finna í lögum um umboðsmann Alþingis.

S-80/2019· Drög að frumvarpi til laga· Forsætisráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 7. mar. 2019 – 21. mar. 2019· 1 umsögn

Frumvarp til laga um vernd uppljóstrara

Markmið frumvarpsins er að á Íslandi gildi skýr löggjöf um vernd uppljóstrara sem taki mið af ábendingum alþjóðastofnana og fordæmum þeirra nágrannaríkja sem fela í sér bestu framkvæmdina á þessu sviði.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-80/2019)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 21. mars 2019
  3. Umsagnarfresti lýkur · 1 umsögn barst
  4. Lagt fram á Alþingi (150. þing, mál 362)
  5. Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (13. nóvember 2019)

Gerð er grein fyrir niðurstöðum samráðsins í endanlegu frumvarpi forsætisráðherra til laga, sem lagt hefur verið fram á Alþingi.

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (1)
  • #1Samtök atvinnulífsins

    Góðan dag, Meðfylgjandi er umsögn Samtaka atvinnulífsins um frumvarp til laga um vernd uppljóstrara. Virðingarfyllst, f.h. Samtaka atvinnulífsins Heiðrún Björk Gísladóttir

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.

S-80/2019: Frumvarp til laga um vernd uppljóstrara · Alviti