Áður en mál kemur til Alþingis
Frumvörp og þingsályktunartillögur sem ráðuneyti hafa kynnt í Samráðsgátt stjórnvalda: hvað er til umsagnar, hverjir sendu umsagnir, og hvað hefur komið til Alþingis og hvað ekki.
1.236 mál · 5 til umsagnar núna · sótt 28. október 2026
- Ekki komið til AlþingisS-56/2020· Drög að frumvarpi til laga· Fjármála- og efnahagsráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 27. feb. 2020 – 12. mar. 2020· 0 umsagnir
Frumvarp til laga um breytingar á tollalögum (heimildir tollyfirvalda til vinnslu persónuupplýsinga o.fl.)
Frumvarp til laga um breytingar á tollalögum, nr. 88/2005, með síðari breytingum (heimildir tollyfirvalda til vinnslu persónuupplýsinga o.fl.).
- Ekki komið til AlþingisS-52/2020· Drög að frumvarpi til laga· Félags- og húsnæðismálaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 27. feb. 2020 – 6. mar. 2020· 18 umsagnir
Frumvarp til laga um breytingu á húsaleigulögum, nr. 36/1994, með síðari breytingum (skráningarskylda, langtímaleiga og hækkun leigufjárhæðar)
Frumvarpinu er ætlað að bæta húsnæðisöryggi leigjenda með því að koma í veg fyrir óeðlilegar leiguhækkanir og stuðla að langtímaleigu ásamt því að koma á skráningarskyldu leigusamninga og sáttamiðlun.
- Komið til AlþingisS-54/2020· Drög að frumvarpi til laga· Forsætisráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 26. feb. 2020 – 11. mar. 2020· 1 umsögn
Frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 47/2010, um bætur fyrir misgjörðir á stofnunum eða heimilum sem falla undir lög nr. 26/2007 (lokauppgjör)
Fyrirhugað er að leggja fram meðfylgjandi drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum nr. 47/2010, um sanngirnisbætur fyrir misgjörðir á stofnunum eða heimilum sem falla undir lög nr. 26/2007 (lokauppgjör).
- Ekki komið til AlþingisS-53/2020· Drög að frumvarpi til laga· Fjármála- og efnahagsráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 26. feb. 2020 – 10. mar. 2020· 4 umsagnir
Varnarlína milli viðskipta- og fjárfestingarbankastarfsemi
Fjármála- og efnahagsráðherra áformar að leggja fram frumvarp um varnarlínu milli viðskipta- og fjárfestingarbankastarfsemi.
- Komið til AlþingisS-51/2020· Drög að frumvarpi til laga· Dómsmálaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 26. feb. 2020 – 8. mar. 2020· 1 umsögn
Frumvarp til laga um breytingu á lögum um gjaldþrotaskipti o.fl. nr. 21/1991 (atvinnurekstrarbann).
Frumvarp til laga um breytingu á lögum um gjaldþrotaskipti o.fl. nr. 21/1991 (atvinnurekstrarbann). Með frumvarpinu eru lagðar til breytingar á lögum um gjaldþrotaskipti í því skyni að sporna við misnotkun á hlutafélagaforminu og kennitöluflakki í atvinnurekst
- Ekki komið til AlþingisS-49/2020· Drög að frumvarpi til laga· Dómsmálaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 25. feb. 2020 – 3. mar. 2020· 1 umsögn
Frumvarp til laga um breytingu á lögum um stöðu, stjórn og starfshætti þjóðkirkjunnar, lögum um Kristnisjóð, lögum um sóknargjöld og lögum um kirkjugarða, greftrun og líkbrennslu
Drög að frumvarpi um breytingu á lögum um stöðu, stjórn og starfshætti þjóðkirkjunnar, lögum um Kristnisjóð, lögum um sóknargjöld og lögum um kirkjugarða.
- Komið til AlþingisS-48/2020· Drög að frumvarpi til laga· Dómsmálaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 25. feb. 2020 – 5. mar. 2020· 9 umsagnir
Frumvarp til laga um mannanöfn
Dómsmálaráðuneytið kynnir til samráðs drög að frumvarpi til laga um mannanöfn sem felur í sér verulega rýmkun á löggjöf um mannanöfn.
- Komið til AlþingisS-50/2020· Drög að frumvarpi til laga· Dómsmálaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 25. feb. 2020 – 3. mar. 2020· 0 umsagnir
Drög að frumvarpi til laga um Schengen upplýsingakerfið á Íslandi
Um er að ræða drög að frumvarpi til nýrra laga um Schengen upplýsingakerfið á Íslandi til innleiðingar á þremur reglugerðum Evrópusambandsins: reglugerð (EB) nr. 2018/1860, (EB) nr. 2018/1861 og (EB) nr. 2018/1862 um Schengen-upplýsingakerfið.
- Komið til AlþingisS-47/2020· Drög að frumvarpi til laga· Atvinnuvegaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 24. feb. 2020 – 9. mar. 2020· 10 umsagnir
Frumvarp til laga um breytingu á lögum um ársreikninga og lögum um endurskoðendur og endurskoðun (gagnsæi í rekstri stærri óskráðra félaga o.fl.)
Markmið frumvarpsins er að auka traust á og tryggja gagnsæi í upplýsingagjöf fyrirtækja sem almennt má telja að séu þjóðhagslega mikilvæg og varða hagsmuni almennings.
- Komið til AlþingisS-46/2020· Drög að frumvarpi til laga· Forsætisráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 21. feb. 2020 – 5. mar. 2020· 4 umsagnir
Frumvarp til laga um breytingu á upplýsingalögum, nr. 140/2012, með síðari breytingum (réttarstaða þriðja aðila o.fl.)
Með frumvarpinu er lagt til að gerðar verði breytingar á upplýsingalögum í því skyni að bæta og skýra réttarstöðu þriðja aðila, þ.e. þess sem getur átt hagsmuna að gæta af því að veittur verði aðgangur að tilteknum upplýsingum.
- Komið til AlþingisS-44/2020· Drög að frumvarpi til laga· Innviðaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 19. feb. 2020 – 9. mar. 2020· 6 umsagnir
Drög að frumvarpi til laga um skip
Með frumvarpi þessu er ætlað að einfalda lagaumhverfi skipa og koma ákvæðum um þau í ein lög. Í lagasafni er að finna marga lagabálka sem varða þetta efni með einum og öðrum hætti auk fjölmargra reglugerða sem byggja á þeim. Er frumvarp þetta fyrsti liður í því að einfalda og uppfæra þetta víðtæka regluverk í heild þannig að það sé aðgengilegra fyrir þá sem starfa eftir þessum reglum.
- Ekki komið til AlþingisS-43/2020· Drög að frumvarpi til laga· Atvinnuvegaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 17. feb. 2020 – 2. mar. 2020· 0 umsagnir
Frumvarp til innleiðingar á reglugerð (ESB) 2018/302 um ráðstafanir gegn óréttmætri takmörkun á netumferð og annarri mismunun í viðskiptum
Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið kynnir til umsagnar drög að frumvarpi til laga um innleiðingu á reglugerð (ESB) 2018/302.
- Ekki komið til AlþingisS-41/2020· Drög að frumvarpi til laga· Atvinnuvegaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 14. feb. 2020 – 27. feb. 2020· 3 umsagnir
Drög að frumvarpi um breytingu á lögum um stjórn fiskveiða (tengdir aðilar)
Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra kynnir til umsagnar drög að frumvarpi um breytingu á lögum um stjórn fiskveiða (tengdir aðilar).
- Komið til AlþingisS-40/2020· Drög að frumvarpi til laga· Atvinnuvegaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 14. feb. 2020 – 28. feb. 2020· 1 umsögn
Drög að frumvarpi um breytingar á ýmsum lögum á málefnasviði sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra vegna einföldunar regluverks og stjórnsýslu (lög á sviði sjávarútvegs, fiskeldis og lax- og silungs.)
Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra kynnir til umsagnar drög að frumvarpi um breytingar á ýmsum lögum á málefnasviði ráðherra vegna einföldunar regluverks.
- Komið til AlþingisS-38/2020· Drög að frumvarpi til laga· Atvinnuvegaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 14. feb. 2020 – 28. feb. 2020· 2 umsagnir
Drög að frumvarpi um breytingar á ýmsum lögum á málefnasviði sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra vegna einföldunar regluverks og stjórnsýslu (lög á sviði landbúnaðar og matvæla)
Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra kynnir til umsagnar drög að frumvarpi um breytingar á ýmsum lögum á málefnasviði ráðherra vegna einföldunar regluverks.
- Komið til AlþingisS-37/2020· Drög að frumvarpi til laga· Félags- og húsnæðismálaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 14. feb. 2020 – 28. feb. 2020· 1 umsögn
Frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 46/1980, um aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum, með síðari breytingum (vinnutími starfsmanna sem veita notendastýrða persónulega aðstoð).
Með frumvarpinu er gert ráð fyrir að lengja gildistíma ákvæðis til bráðabirgða 9 í lögum um aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum.
- Ekki komið til AlþingisS-36/2020· Drög að frumvarpi til laga· Heilbrigðisráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 13. feb. 2020 – 27. feb. 2020· 4 umsagnir
Frumvarp til laga um breytingu á lögum um slysatryggingar almannatrygginga nr. 45/2015
Í frumvarpi þessu sem samið er í heilbrigðisráðuneytinu eru lagðar til breytingar á lögum, nr. 45/2015, um slysatryggingar almannatrygginga. Forsaga frumvarpsins er sú að þann 9. september 2019 skipaði heilbrigðisráðherra starfshóp og fól honum að endurskoða lögin og móta tillögur að nýju frumvarpi.
- Ekki komið til AlþingisS-35/2020· Drög að frumvarpi til laga· Dómsmálaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 13. feb. 2020 – 20. feb. 2020· 25 umsagnir
Frumvarp til breytinga á áfengislögum
Með frumvarpi þessu eru lagðar til breytingar á áfengislögum, lögum um verslun með áfengi og tóbak og lögum um aukatekjur ríkisins. Breytingarnar fela í sér undanþágu frá einokun Áfengis- og tóbaksverslunar ríkisins á smásölu áfengis til neytenda þannig að lagt er til að heimilaður verði rekstur innlendra vefverslana með áfengi í smásölu til neytenda með þeim takmörkunum sem í frumvarpinu greinir.
- Ekki komið til AlþingisS-34/2020· Drög að frumvarpi til laga· Forsætisráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 13. feb. 2020 – 27. feb. 2020· 35 umsagnir
Frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum er varða eignarráð og nýtingu fasteigna
Markmið frumvarpsins er að skapa stjórnvöldum betri yfirsýn og möguleika til að stýra þróun eignarráða og nýtingar fasteigna, þ.m.t. jarða, í samræmi við landkosti og með hagsmuni samfélagsins og komandi kynslóða að leiðarljósi.
- Komið til AlþingisS-33/2020· Drög að frumvarpi til laga· Fjármála- og efnahagsráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 13. feb. 2020 – 19. feb. 2020· 2 umsagnir
Frumvarp til laga um breytingu á lögum um fasteignalán til neytenda, nr. 118/2016.
Fjármála- og efnahagsráðherra birtir til umsagnar drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um fasteignalán til neytenda, nr. 118/2016.
- Ekki komið til AlþingisS-30/2020· Áform um lagasetningu· Innviðaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 12. feb. 2020 – 26. feb. 2020· 3 umsagnir
Áform um frumvarp til laga um breytingu á umferðarlögum nr. 77/2019
Samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra áformar að leggja fram frumvarp til laga um breytingu á umferðarlögum nr. 77/2019.
- Komið til AlþingisS-29/2020· Drög að frumvarpi til laga· Innviðaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 12. feb. 2020 – 27. feb. 2020· 29 umsagnir
Frumvarp til laga um breytingar á sveitarstjórnarlögum og lögum um tekjustofna sveitarfélaga
Frumvarpið er það fyrsta sem lagt er fram til að ná markmiðum nýsamþykktrar þingsályktunar um stefnumótandi áætlun í málefnum sveitarfélaga fyrir árin 2019-2033 og aðgerðaráætlun fyrir árin 2019-2023.
- Komið til AlþingisS-27/2020· Drög að frumvarpi til laga· Atvinnuvegaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 7. feb. 2020 – 21. feb. 2020· 3 umsagnir
Drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum nr. 45/1997 um vörumerki með síðari breytingum (EES-reglur, málsmeðferð, o.fl.).
Um er að ræða drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum nr. 45/1997 um vörumerki með síðari breytingum. Frumvarpinu er m.a. ætlað að innleiða tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2015/2436/ESB um samræmingu á lögum aðildarríkjanna um vörumerki.
- Komið til AlþingisS-25/2020· Drög að stefnu· Forsætisráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 5. feb. 2020 – 24. feb. 2020· 11 umsagnir
Tillaga til þingsályktunar um forvarnir gegn kynferðislegu og kynbundnu ofbeldi og áreitni, ásamt áætlun fyrir árin 2021–2025.
Þingsályktunartillagan gerir ráð fyrir að forvarnir gegn kynferðislegu og kynbundnu ofbeldi og áreitni verði samþættar við kennslu og starf á öllum skólastigum og eigi sér einnig stað innan frístundaheimila, félagsmiðstöðva og íþrótta- og æskulýðsstarfs.
- Komið til AlþingisS-24/2020· Áform um lagasetningu· Fjármála- og efnahagsráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 5. feb. 2020 – 19. feb. 2020· 1 umsögn
Áform um frumvarp til laga um reglubundna upplýsingaskyldu útgefenda verðbréfa
Fjármála- og efnahagsráðherra áformar að leggja fram frumvarp til laga um reglubundna upplýsingaskyldu útgefenda verðbréfa sem skráð eru á skipulegan markað.
- Ekki komið til AlþingisS-23/2020· Drög að frumvarpi til laga· Heilbrigðisráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 31. jan. 2020 – 21. feb. 2020· 8 umsagnir
Frumvarp til breytinga á lögum um lífsýnasöfn og söfn heilbrigðisupplýsinga, nr. 110/2000 og lögum um vísindarannsóknir á heilbrigðissviði, nr. 44/2014
Frumvarp til breytinga á lögum um lífsýnasöfn og söfn heilbrigðisupplýsinga, nr. 110/2000 og lögum um vísindarannsóknir á heilbrigðissviði, nr. 44/2014
- Ekki komið til AlþingisS-19/2020· Drög að frumvarpi til laga· Mennta- og barnamálaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 28. jan. 2020 – 12. feb. 2020· 3 umsagnir
Frumvarp – breyting á fjölmiðlalögum nr. 38/2011 (EES-innleiðing)
Drög að frumvarpi til breytinga á fjölmiðlalögum nr. 38/2011 vegna fyrirhugaðrar innleiðingar í landsrétt á tilskipun 2018/1808/ESB, frá 14. nóvember 2018, sem breytir tilskipun 2010/13/EB um hljóð- og myndmiðlun.
- Komið til AlþingisS-18/2020· Drög að frumvarpi til laga· Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 28. jan. 2020 – 11. feb. 2020· 6 umsagnir
Frumvarp til laga um breytingu á lögum um náttúruvernd nr. 60/2013, með síðari breytingum (óbyggt víðerni).
Í frumvarpinu er lögð til lagfæring á skilgreiningu hugtaksins „óbyggt víðerni“.
- Ekki komið til AlþingisS-17/2020· Áform um lagasetningu· Mennta- og barnamálaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 28. jan. 2020 – 12. feb. 2020· 0 umsagnir
Áform um frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum á málefnasviði mennta- og menningarmálaráðuneytis vegna gildistöku laga um opinber fjármál nr. 123/2015.
Áformaðar eru nauðsynlegar breytingar og leiðréttingar á ýmsum lögum á málefnasviði mennta- og menningarmálaráðuneytis í kjölfar gildistöku laga um opinber fjármál nr. 123/2015.
- Ekki komið til AlþingisS-16/2020· Drög að frumvarpi til laga· Atvinnuvegaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 28. jan. 2020 – 11. feb. 2020· 2 umsagnir
Frumvarp um breytingu á lögum nr. 72/1994, um merkingar og upplýsingaskyldu varðandi vörur sem tengjast orkunotkun, með síðari breytingum
Drög að frumvarpi til breytinga á lögum á lögum nr. 72/1994, um merkingar og upplýsingaskyldu varðandi vörur sem tengjast orkunotkun, með síðari breytingum
Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi. Hlekkur getur vantað þegar heiti málsins breyttist mikið á leiðinni; ritstjóri getur staðfest eða hafnað tengingu.
Hér eru frumvörp, áform um lagasetningu og drög að þingsályktunartillögum. Drög að reglugerðum og önnur mál fara ekki til Alþingis og eru á vef gáttarinnar. Alviti hefur þingmál Alþingis frá 8. september 2015; um eldri samráðsmál sem ekki finnast þar er sagt „óvíst“.
Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda (island.is) · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)