Beint í efni
Alviti
← Samráðsgátt
S-33/2020 · Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Frumvarp til laga um breytingu á lögum um fasteignalán til neytenda, nr. 118/2016.

Fjármála- og efnahagsráðherra birtir til umsagnar drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um fasteignalán til neytenda, nr. 118/2016.

Frumvarpið miðar að því að gera breytingar á lögum um fasteignalán til neytenda með það að markmiði að ljúka að fullu innleiðingu tilskipunar 2014/17/ESB um lánssamninga fyrir neytendur í tengslum við íbúðarhúsnæði og um breytingu á tilskipun 2008/48/EB og 2013/36/ESB og reglugerð (ESB) nr. 1093/2010 (fasteignalánatilskipunin) um heimildir lánamiðlara til að stunda viðskipti yfir landamæri verði tekin upp í íslenskan rétt. Markmið frumvarpsins er einnig að breyta ákvæðum laga um fasteignalán til neytenda, nr. 118/2016, um lán sem tengjast erlendum gjaldmiðlum í þeim tilgangi að neytendum standi til boða að taka lán til kaupa á fasteign hér á landi þó svo að tekjur þeirra séu í öðrum gjaldmiðli en íslenskri krónu. Að lokum er það markmið frumvarpsins að breyta lögum um neytendalán, nr. 33/2013, til að gera neytendum kleift að taka neytendalán í íslenskum krónum hér á landi þó svo þeir séu með tekjur í erlendum gjaldmiðli eða búsettir erlendis, t.d. námsmenn. Frumvarpsdrögin voru birt í samráðsgáttinni í ágúst 2018 án fyrrgreindra tillagna um breytingar á ákvæðum fasteigna- og neytendalánalaga um lán sem tengjast erlendum gjaldmiðlum.

S-33/2020· Drög að frumvarpi til laga· Fjármála- og efnahagsráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 13. feb. 2020 – 19. feb. 2020· 2 umsagnir

Frumvarp til laga um breytingu á lögum um fasteignalán til neytenda, nr. 118/2016.

Fjármála- og efnahagsráðherra birtir til umsagnar drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um fasteignalán til neytenda, nr. 118/2016.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-33/2020)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 19. febrúar 2020
  3. Umsagnarfresti lýkur · 2 umsagnir bárust
  4. Lagt fram á Alþingi (150. þing, mál 607)
  5. Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (16. júní 2021)

Frumvarpið var samþykkt sem lög nr. 62/2020. Í 5. kafla í greinargerð með frumvarpinu er fjallað um umsagnir í samráðsgátt stjórnvalda.

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (2)
  • #1Neytendastofa

    Góðan dag, meðfylgjandi er umsögn Neytendastofu um frumvarpið.

  • #2Hagsmunasamtök heimilanna

    Hagsmunasamtök heimilanna leggjast ekki gegn markmiðum frumvarps þessa, en taka þó undir athugasemdir í umsögn Neytendastofu um lagfæringar á tæknilegri útfærslu lagatexta. Vegna þess stutta tíma sem veittur var til umsagna gafst samtökunum ekki svigrúm til að vinna efnislega umsögn um málið en þess er vænst að hægt verði að koma nánari athugasemdum á framfæri á síðari stigum. Athugasemdir í umsögn samtakanna um fyrra mál þessu tengt nr. S-103/2018 eru jafnframt ítrekaðar.

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.

S-33/2020: Frumvarp til laga um breytingu á lögum um fasteignalán til neytenda, nr. 118/2016. · Alviti