Beint í efni
Alviti
← Samráðsgátt
S-44/2020 · Innviðaráðuneytið

Drög að frumvarpi til laga um skip

Með frumvarpi þessu er ætlað að einfalda lagaumhverfi skipa og koma ákvæðum um þau í ein lög. Í lagasafni er að finna marga lagabálka sem varða þetta efni með einum og öðrum hætti auk fjölmargra reglugerða sem byggja á þeim. Er frumvarp þetta fyrsti liður í því að einfalda og uppfæra þetta víðtæka regluverk í heild þannig að það sé aðgengilegra fyrir þá sem starfa eftir þessum reglum.

Um skip gilda fjölmargir lagabálkar. Má þar nefna lög um einkenning fiskiskipa, nr. 31/1925, lög um skráningu skipa, nr. 115/1985, lög um skipamælingar, nr. 146/2002, lög um eftirlit með skipum, nr. 47/2003, lög um íslenska alþjóðlega skipaskrá, nr. 38/2003 auk sértækra laga. Markmið laganna er hið sama og átti við um lögin sem frumvarpi þessu er ætlað að leysa af hólmi, þ.e. að tryggja öryggi íslenskra skipa, áhafna þeirra og farþega, efla varnir gegn mengun frá skipum og tryggja skilvirka skráningu, merkingu, mælingu og eftirlit með skipum. Þá er þeim ætlað að veita stjórnvöldum nægilegar heimildir til að innleiða þær kröfur sem leiða af skuldbindingum samkvæmt samningnum um Evrópska efnahagssvæðið og öðrum alþjóðlegum skuldbindingum Íslands á sviði sjóréttar er lúta að skipum. Í frumvarpinu er þannig kveðið á um skráningu skipa í skipaskrá sem Samgöngustofa heldur úti, skyldu til að skrá skip sem eru 6 metrar eða lengri, frumskráningu, þurrleiguskráningu, einkarétt, fána, þjóðernis- og skráningarskírteini, afmáningu skráningar o.fl. Jafnframt er kveðið á um merkingu skipa. Það er skylt að merkja hvert skip með nafni, heimili og einkennisbókstaf. Þá er bannað að leyna merkingar eða nema brott eða merkja skip öðru nafni en það er skráð undir. Jafnframt er fjallað um mælingar skipa. Er mælt fyrir um viðmið við mælingar skipa og skyldu til að upplýsa Samgöngustofu um útreikninga. Nær þetta til þess þegar skip er smíðað eða þegar því er breytt. Mælt er fyrir um eftirlitshlutverk Samgöngustofu með að upplýsingar um skip séu réttar sem og útgáfu mælibréfa. Þá eru ákvæði um eftirlit með skipum. Byggt er áfram á því að skoðanir með skipum verði þrenns konar, þ.e. aðalskoðun, milliskoðun og skyndiskoðun. Reglunum er ætlað að vera í samræmi við ákvæði gerða samningsins um Evrópska efnahagssvæðið og annarra viðeigandi alþjóðasamninga, s.s. SOLAS alþjóðasamþykktarinnar. Kveðið er á um farbann sem leggja má á skip sem ekki uppfylla kröfur laga. Loks er fjallað um gjöld og viðurlög fyrir brot gegn lögum þessum og reglugerðum settum með stoð í þeim. Ákvæði um skipagjald er í lögum auk þess sem kveðið er á um þjónustugjöld Samgöngustofu. Viðurlagaákvæði eru annars vegar heimild fyrir Samgöngustofu til að leggja á stjórnvaldssektir og hins vegar að kæra brot til lögreglu. Stjórnvaldssektir sem Samgöngustofa getur lagt á vegna tiltekinna brota gegn ákvæðum þess. Geta sektir sem lagðar eru á einstaklinga geta numið frá 100.000 kr. til 500.000 kr. Sektir sem lagðar eru á lögaðila geta numið frá 500.000 kr. til 2.000.000 kr. Mælt er fyrir um refsingar sem skuli vera sektir eða fangelsi allt að tveim árum. Verði frumvarp þetta að lögum er lagt til að það taki gildi 1. janúar 2022.

S-44/2020· Drög að frumvarpi til laga· Innviðaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 19. feb. 2020 – 9. mar. 2020· 6 umsagnir

Drög að frumvarpi til laga um skip

Með frumvarpi þessu er ætlað að einfalda lagaumhverfi skipa og koma ákvæðum um þau í ein lög. Í lagasafni er að finna marga lagabálka sem varða þetta efni með einum og öðrum hætti auk fjölmargra reglugerða sem byggja á þeim. Er frumvarp þetta fyrsti liður í því að einfalda og uppfæra þetta víðtæka regluverk í heild þannig að það sé aðgengilegra fyrir þá sem starfa eftir þessum reglum.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-44/2020)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 9. mars 2020
  3. Umsagnarfresti lýkur · 6 umsagnir bárust
  4. Lagt fram á Alþingi (151. þing, mál 208)
  5. Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (16. september 2021)

Frumvarp til nýrra laga um skip var samþykkt á Alþingi 31. maí 2021 (lög nr. 66/2021). Umfjöllun um niðurstöður samráðs sem fram fór um frumvarpið er að finna í greinargerð þess.

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (6)
  • #1Árni Sverrisson
    Félag skipstjórnarmanna vill koma eftirfarandi ábendingum að: a) Í lögum um skráningu skipa nr. 115/1985, segir í 1. gr. a. [Samgöngustofa] 1) getur heimilað að fiskiskip sem skráð er á íslenska skipaskrá sé skráð þurrleiguskráningu á erlenda skipaskrá. Samkvæmt 8. grein í frumvarpsdrögunum má ætla að ráðherra einum sé fært þetta vald, en ekki Samgöngustofu eins og ætti að vera. b) Lög um íslenska alþjóðlega skipaskrá eru númer 38/2007 en ekki 38/2003 eins og stendur í samráðsgátt. c) Í samráðsgátt segir að fyrirhuguð lög leysi af hólmi meðal annars lög um íslenska al… Lesa alla

    Félag skipstjórnarmanna vill koma eftirfarandi ábendingum að: a) Í lögum um skráningu skipa nr. 115/1985, segir í 1. gr. a. [Samgöngustofa] 1) getur heimilað að fiskiskip sem skráð er á íslenska skipaskrá sé skráð þurrleiguskráningu á erlenda skipaskrá. Samkvæmt 8. grein í frumvarpsdrögunum má ætla að ráðherra einum sé fært þetta vald, en ekki Samgöngustofu eins og ætti að vera. b) Lög um íslenska alþjóðlega skipaskrá eru númer 38/2007 en ekki 38/2003 eins og stendur í samráðsgátt. c) Í samráðsgátt segir að fyrirhuguð lög leysi af hólmi meðal annars lög um íslenska alþjóðlega skipaskrá nr.38/2007, en svo er ekki. Þau lög falla ekki inn í nýju lögin um skip. Fh. Félags skipstjórnarmanna Árni Sverrisson Páll Ægir Pétursson

  • #2Hilmar Snorrason
    Umsögn um frumvarp til laga um skip. Eftirfarandi athugasemdir geri ég við frumvarpsdrögin: a) 20. gr. Þar kveður á um að merkja skuli hvert skip með nafni, heimili og einkennisbókstaf og því verið að innleiða inn í þessi lög gömul lög um fiskiskip sem tæki þá til allra gerða skipa. Það eru einungis fiskiskip sem skráð eru með einkennisstöfum en sem betur fer eru enn til skip skráð hér á landi sem ekki eru fiskiskip. Því ætti greinin einungis að segja að merkja skuli skip með nafni og heimili. Öll kaupskip og í vaxandi mæli fiskiskip eru nú merkt með svokölluðu IMO númeri. Merkinga fiskiski… Lesa alla

    Umsögn um frumvarp til laga um skip. Eftirfarandi athugasemdir geri ég við frumvarpsdrögin: a) 20. gr. Þar kveður á um að merkja skuli hvert skip með nafni, heimili og einkennisbókstaf og því verið að innleiða inn í þessi lög gömul lög um fiskiskip sem tæki þá til allra gerða skipa. Það eru einungis fiskiskip sem skráð eru með einkennisstöfum en sem betur fer eru enn til skip skráð hér á landi sem ekki eru fiskiskip. Því ætti greinin einungis að segja að merkja skuli skip með nafni og heimili. Öll kaupskip og í vaxandi mæli fiskiskip eru nú merkt með svokölluðu IMO númeri. Merkinga fiskiskipa, farþega og flutningaskipa eru ólíkar og því ekki hægt að ramma í einni setningu í lögum sem þessum. Ráðherra getur síðan sett í reglur um sérmerkingar fiskiskipa. Í því sambandi hefur verið bent á að notkun einkennisbókstafa og númera sé orðið úrelt. Þá hefur marg oft verið lagt til að í stað skipaskrárnúmera skuli þilfarsfiskiskip vera með kallmerki sýnileg líkt og er með skipaskrárnúmer í dag. b) 26. gr. Hér tel ég rétt að setja inn tilvísun í vinnuskilyrði farmanna (MLC samþykktina) og vinnuskilyrði fyrir fiskimenn (C188). c) 31. gr. Það er skoðun mín að ef hægt sé að undanskilja ákveðnar tegundir skipa frá skoðunarskyldu sé verið að draga úr því öryggi sem skipaskoðun hefur í gegnum árin skapað. Í greinagerðinni er talað um að þetta gæti átt við litla báta og skemmtibáta en orðalag greinarinnar á einfaldlega við um allar gerðir skipa. Hér er verið að fara hættulega leið að mínu mati og með öllu óásættanleg fyrir öryggi íslenskra sjómanna. d) Ég tek undir með umsögn Félags skipstjórnarmanna varðandi að þetta frumvarp uppfyllir ekki ákvæði laga nr. 38/2007 um íslenska alþjóðlega skipaskrá. Hilmar Snorrason skólastjóri

  • #3Sigþór Hilmar Guðnason
    Ég hvet stjórnvöld að laga lögin (nr. 38/2007) um íslensku alþjóðlegu skipaskrána sem samþykkt voru á alþingi 27. mars 2007 og setja nýjar reglur um skattlagningu kaupskipaútgerða ásamt áformi þessu um lagasetningu- Lög um skip. Lögin (nr. 38/2007) breyttust í meðförum þingsins frá því sem m.a. hagsmunaðilum hafði verið kynnt í aðdraganda lagasetningarinnar með þeim afleiðingum að lögin urðu strax óvirk. Breytingin fólst í að kaup skips fer eftir þeim kjarasamningum sem gerðir hafa verið við stéttarfélög viðkomandi ríkja þar sem skipverji á lögheimili. Kjarasamningur gildir einungis fyrir f… Lesa alla

    Ég hvet stjórnvöld að laga lögin (nr. 38/2007) um íslensku alþjóðlegu skipaskrána sem samþykkt voru á alþingi 27. mars 2007 og setja nýjar reglur um skattlagningu kaupskipaútgerða ásamt áformi þessu um lagasetningu- Lög um skip. Lögin (nr. 38/2007) breyttust í meðförum þingsins frá því sem m.a. hagsmunaðilum hafði verið kynnt í aðdraganda lagasetningarinnar með þeim afleiðingum að lögin urðu strax óvirk. Breytingin fólst í að kaup skips fer eftir þeim kjarasamningum sem gerðir hafa verið við stéttarfélög viðkomandi ríkja þar sem skipverji á lögheimili. Kjarasamningur gildir einungis fyrir félaga í því stéttarfélagi og ríkisborgara þess ríkis sem stéttarfélag á lögheimili í, enda eru þeir ekki í öðrum stéttarfélögum sem gerður hefur verið kjarasamningur við.” Við brottfall á þessum texta þykir sýnt að íslenskir kjarasamningar skulu gilda um lágmarks kaup og kjör áhafna um borð í öllum skipum sem skráð verða í íslensku alþjólegu skipaskrána.Í raun eyðilagði þetta ákvæði, þessa annars góðu lagasetningu.Algjörlega rústaði henni með þeim afleiðingum að ekkert einasta skip hefur verið skráð í hana frá upphafi. Þarna er veigamikill þáttur sem skilur íslensku alþjólegu skipaskrána frá öðrum skipaskrám s.s. þeirri dönsku „DIS", norsku „NIS” og færeysku „FAS". Í lögum um þær alþjóðlegu skipaskrár eru engar girðingar sambærilegar þessum. Það er glórulaust að hafa þessa girðingu og það vita það allir í þessum alheimsbransa nema við Íslendingar. Jafnframt hvet ég verkalýðshreyfinguna þ.e.a.s þá sem eru á móti að taka 11gr 4mgr út að endurskoða afstöðu sína. Megin ástæða þess að frumvarpi laganna var breytt og lögin svo samþykkt í þeirri mynd sem áður greinir er að mjög hörð andstaða kom frá aðalega ASÍ við frumvarpið í óbreyttri mynd þess. Með tilkomu MLC reglugerðarinnar þá eru áhafnarmeðlimir um heim allan tryggðir með laun og aðbúnað. Það finnst mér nóg ástæða að þeir sem eru á móti að taka 11gr. 4mgr út úr IIS geta kynnt sér þá reglugerð og vonandi séð ljósið. Að lokum vil ég vitna í greinagerð sem kom með frumvarpinu á sínum tíma,segir meðal annars: „Með frumvarpi þessu er lagt til að sett verði á stofn íslensk alþjóðleg skipaskrá sem verði vistuð hjá Siglingastofnun Íslands(síðar Samgöngustofu). Á þessari skipaskrá verði heimilt að skrá kaupskip í millilandasiglingum og farmflutningum innan lands og er markmiðið fyrst og fremst að kaupskip íslensku útgerðanna skrái skipin hér á landi í stað þess að þau séu skráð erlendis og sigli undir erlendum þjóðfána. Einnig er með þessu stefnt að því að erlendar kaupskipaútgerðir sjái hag sinn í því að skrá skip sín hér á landi og er því miðað við að skipaskrá þessi verði fyllilega sambærileg við þer erlendu skipaskrár sem mestra vinsælda njóta. Megináherslan er þó á íslensku útgerðirnar.Ísland er eyja og eru því hvers konar siglingar mjög mikilvægar landi og þjóð enda á þessi atvinnugrein djúpar rætur hér. Gera má ráð fyrir að íslensk alþjóðleg skipskrá hafi í för með sér ýmiss konar hliðarstarfsemi sem líklegt er að hafi jákvæð áhrif á íslenskt atvinnulíf enda hefur þróunin víða verið sú þar sem slíkri skipaskrá hefur verið komið á fót.Náist það markmið að gera íslenska alþjóðlega skipaskrá aðlaðandi kost fyrir erlendar kaupskipaútgerðir má búast við að þar sem skrá skipin hér muni jafnvel koma sér upp aðstöðu hér á landi vegna ýmiss konar umsýslu vegna skipanna. þá má nefna banka- og fjármálastarfsemi ýmiss konar og margvíslega vinnu sérfræðinga, svo sem lögfræðinga og endurskoðenda, sem verður nauðsynleg m.a. vegna stofnunar fyrirtækja og skattamála. Þá má nefna að skip sem skráð verða á íslenska alþjóðlega skipaskrá verða íslensk og lúta íslenskum lögum. Af þvi leiðir að öll skoðun skipanna og eftirlit með þeim verður á ábyrgð íslenskra aðila" Það sem er þó alvarlegast í þessari sorgarsögu IIS fyrir Íslenska þjóð er það í ótryggu ástandi eða stríði getur Ísland ekki kallað skip sín heim eins og "Flag State" ríki gera í þeim aðstæðum, því að við eigum engin. Þá verðum við sambandslaus við umheiminn eyja út í ballarhafi. Við skulum taka smá stund og spá í það. Góðar stundir ! Kv. Sigþór Hilmar Guðnason skipstjóri og farmaður í 30ár.

  • #4Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi (SFS)

    Meðfylgjandi er umsögn SFS

  • #5Samtök iðnaðarins

    Gott kvöld, meðfylgjandi er umsögn Samtaka iðnaðarins og Samtaka skipaframleiðenda um drög að frumvarpi til laga um skip, mál nr. 44/2020. Virðingarfyllst, Björg Ásta Þórðardóttir, lögmaður SI

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.

S-44/2020: Drög að frumvarpi til laga um skip · Alviti