Frumvarp til laga um mannanöfn
Dómsmálaráðuneytið kynnir til samráðs drög að frumvarpi til laga um mannanöfn sem felur í sér verulega rýmkun á löggjöf um mannanöfn.
Ferill í Samráðsgátt
- Birt í Samráðsgátt (S-48/2020)
- Umsagnarfrestur hefst · til 5. mars 2020
- Umsagnarfresti lýkur · 9 umsagnir bárust
- Lagt fram á Alþingi (151. þing, mál 161)
- Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (21. desember 2020)
Alls bárust sjö umsagnir um frumvarpið. Litið var til þeirra við ritun þess. Frumvarpið var lagt fram á Alþingi 9. október 2020.
Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (9)
- #1Eiríkur Rögnvaldsson
Umsögn mín um frumvarpið er í viðhengi.
- #2Nína Kristín Gunnarsdóttir
Sammála þessu frumvarpi. Það eru sjálfsögð mannréttindi að fá að ráða nafni sínu alveg eins og kyni. Börn kynferðisbrotamanna hafa í gegnum árin þurft að burðast með nöfn þeirra á bakinu sem að mínu mati er til skammar.
- #3Svavar Kjarrval Lúthersson
3. gr. Hugsanlega mætti laga orðalag 2. málsl. 1. mgr. þar sem orðinu „eingöngu“ sé sett á eftir fyrsta orðinu. Þó er auðvitað spurning um réttlætingu þess að kveða á um bann við því sem kallað er afbökun á hefðbundnum rithætti nafna, en athugasemdir frumvarpsins um það ákvæði virðast ekki skýra forsendur þess. Slíkar skýringar eru væntanlega við hæfi þar sem frumvarpið beinlínis gengur út á að víkka út heimildir fólk til þess bæði að heita það sem það vill. 4. gr. Viðmiðið í 2. mgr. um að gera megi ráð fyrir að lögmætir hagsmunir bíði tjón af, telst nokkuð matskenndur og of ófyrirsjáanle… Lesa alla
3. gr. Hugsanlega mætti laga orðalag 2. málsl. 1. mgr. þar sem orðinu „eingöngu“ sé sett á eftir fyrsta orðinu. Þó er auðvitað spurning um réttlætingu þess að kveða á um bann við því sem kallað er afbökun á hefðbundnum rithætti nafna, en athugasemdir frumvarpsins um það ákvæði virðast ekki skýra forsendur þess. Slíkar skýringar eru væntanlega við hæfi þar sem frumvarpið beinlínis gengur út á að víkka út heimildir fólk til þess bæði að heita það sem það vill. 4. gr. Viðmiðið í 2. mgr. um að gera megi ráð fyrir að lögmætir hagsmunir bíði tjón af, telst nokkuð matskenndur og of ófyrirsjáanlegt hvaða sjónarmiðum stjórnvöld muni hyggjast beita. Hætta er á að ferli fari að skapast um að leita álits til aðilanna sjálfra um hvort tiltekin nafnotkun fæli mögulega í sér tjón fyrir þann aðila, sem liður í framkvæmd rannsóknarreglunnar, og niðurstaðan ráðist aðallega af því. Þá eru ábyggilega mismunandi sjónarmið eftir því hvort um sé að ræða skráningu nafns skv. skyldu 2. gr. eða síðari nafnbreytingu einstaklingsins sjálfs skv. 6. gr. Þar að auki er ekkert minnst á eða veitt vísbending um hvernig eigi að nálgast úrlausnarefni á við heiti lögaðila sem eru mannsnöfn að viðskeyttri skammstöfun, eða þegar einstaklingur vill breyta nafni sínu yfir í sitt eigið listamannsnafn. 5. gr. Ég mæli með því að sérstaklega verði getið þess að ný ættarnöfn skapi ekki einhvers konar einkarétt til að bera þau, þannig að skapist örugglega ekki endurteknar aðstæður eins og urðu í gildistíð eldri laga er heimiluðu upptöku ættarnafna. Í frumvarpinu er ekki gert sérstaklega ráð fyrir því hvað gerist ef handhafar ættarnafns beiti rétti sínum til að gæta ættarnafnsins fyrir dómstólum, í sambandi við skyldu 1. gr. um skyldu til að gefa barni nafn innan sex mánaða frá fæðingu. Afar líklegt er að slíkt dómsmál gæti verið í ferli í miklu lengri tíma en það, jafnvel fleiri ár að óbreyttu. Mögulega er ástæða til þess að kveða á um flýtimeðferð slíkra mála til að stytta málsmeðferðartímann eftir því sem kostur er. 6. gr. Hvað varðar 2. mgr. er mælt með því að vísað í alla forsjármenn í 1. málsl. til að grípa tilfelli þegar eingöngu eitt forsjárforeldri er til staðar. Hægt væri að gera það með eftirfarandi hætti: „Breyting á eiginnafni og kenninafni barns undir 15 ára aldri er háð því skilyrði að allir forsjármenn þess standi að beiðni um breytingu nafnsins.“ 13. gr. Andmælt er því að ákvæðið þarfnist ekki skýringar. Ákvæðið var heldur ekki sérstaklega útskýrt í athugasemdum frumvarpsins er varð að lögum nr. 45/1996. Þá hefur einnig orðið nokkur þróun á íslenskum rétti á þeim tíma sem ákvæðið var sett í forvera téðra laga, meðal annars með gildistöku MSE og þeirrar breyttu áherslu sem frumvarpið á að innleiða hvað varðar erlend mannanöfn. Hér er bæði um að ræða lögsögumál og heimild ráðherra til að ákveða hana með reglugerð sem ætti samkvæmt lögskýringarfræðunum að hafa betri lagastoð en einfalda tilvísun í umfjöllun samdri í gömlu lagaumhverfi. --- Með áskilnaði um síðari umsögn ef umsagnarbeiðandi telur þörf á.
- #4Hreiðar Eiríksson
Umsögn mín byggir á þeirri almennu afstöðu minni að einstaklingar eigi að ráða persónulegum högum sínum sjálfir, nema ríkir almanna- eða einkahagsmunir krefjist afskipta af málum þeirra. Skal þá farið að reglum um meðalhóf og öðrum málsmeðferðarreglum stjórnsýslsuréttar. Núgildandi lög mæta illa þessum sjónarmiðum. Þau byggja í raun á því að forræði ríkisvaldsins sé algjört og að það sé ríkisvaldið sem heldur úti lista um hvað borgurunum sé heimilt en að allt annað sé óheimilt nema með sértöku leyfi. Ég tel ekki réttlætanlegt að játa ríkisvaldinu slík yfirráð yfir persónulegum högum fólks.… Lesa alla
Umsögn mín byggir á þeirri almennu afstöðu minni að einstaklingar eigi að ráða persónulegum högum sínum sjálfir, nema ríkir almanna- eða einkahagsmunir krefjist afskipta af málum þeirra. Skal þá farið að reglum um meðalhóf og öðrum málsmeðferðarreglum stjórnsýslsuréttar. Núgildandi lög mæta illa þessum sjónarmiðum. Þau byggja í raun á því að forræði ríkisvaldsins sé algjört og að það sé ríkisvaldið sem heldur úti lista um hvað borgurunum sé heimilt en að allt annað sé óheimilt nema með sértöku leyfi. Ég tel ekki réttlætanlegt að játa ríkisvaldinu slík yfirráð yfir persónulegum högum fólks. Ég tel frumvarpið ágætlega til þess fallið að færa fólki það vald sem það á með réttu að hafa yfir jafn persónulegum einkahagsmunum og nöfn þess eru, án þess að raskað sé nokkrum almanna- eða einkahagsmunum. Frumvarpið mætir að mínu mati ágætlega eftirfarandi sjónarmiðum: 1) Fjölmenningarlegur bakgrunnur Íslendinga. Það er staðreynd að sífellt fleiri Íslendingar eiga annan menningarlegan bakgrunn en íslenskan. Fjöldinn allur af Íslendingum er af erlendu foreldri - öðru eða báðum. Þetta fólk hefur auðvitað sama rétt og aðrir Íslendingar til að verja og halda uppi nafnahefð sinni. Hingað til hafa þessir innflytjendur ekki getað nefnt börn sín ættarnöfnum ef þau hafa fæðst á Íslandi en börn þeirra sem fæðst hafa erlendis og fengið þar nafn, hafa haldið sínum ættarnöfnum. Þessi mismunun er að mínu mati ekki réttlætanleg, þar sem hún þjónar engum sýnilegum tilgangi. 2) Íslensk nafnahefð. Þessi hefð var eitt sinn hefð sem fólst í því að börn voru kennd við eiginnafn föður og endin -dóttir eða -son kom þar á eftir. Réðist það af kyni viðkomandi eins og það var ákveðið við fæðingu. Þetta hefur breyst umtalsvert á undangengnum árum. Í fyrsta lagi hefur færst í vöxt að fólk kenni sig við móður í stað föður. Er það í ágætu samræmi við eðli máls og heimilt samkvæmt lögum, þó það sé ekki í samræmi við nafnahefð. Þá er nú samþykkt að einstaklingar skilgreini kyn sitt eða kynleysi sjálfur og þar með verður vart séð að það geti talist á forræði ríkisvaldsins að ákveða hvort viðskeytið -dóttir eða - son sé notað í enda kenninafns. Í þriðja lagi ber nú fjöldi Íslendinga erlendi eigin- og kenninöfn. Allt þetta er hluti af íslenskri nafnahefð eins og hún er nú. 3) Alþjóðleg nafnahefð. Víðast hvar í heiminum er notast við svokölluð ættarnöfn sem kenninöfn. Hin forna íslenska nafnahefð er mönnum framandi. Þetta hefur leitt til vandræða fyrir fólk sem t.d. hefur verið að ferðast með börn, t.a.m. mæður sem hafa verið að ferðast einar með börn sín í öðrum löndum. Þær hafa á stundum átt erfitt meðað útskýra hvers vegna þær hafa með sér börn sem bera önnur kenninöfn en þær og stundum ekki öll sömu kenninöfn þegar um er að ræða börn af mismunandi faðerni. Því hefur verið haldið fram að þetta frumvarp raski íslenskri nafnahefð. Ég tel að það geri það ekki. Í frumvarpinu felst engin hindrun fyrir þá sem vilja halda áfram að nota hið hefðbundna kerfi. Ég reikna með því að flestir geri það. Frumvarpið afléttir hins vegar hindrunum í vegi þeirra sem vilja nota önnur nafnakerfi. Því hefur einnig verið haldið fram að núgildandi lög séu nauðsynleg til að verja börn fyrir þeim tilhneigingum foreldra þeirra að nefna þau einhverjum ónefnum sem yrðu þeim til ama eða erfiðleika í uppvextinum. Ég tel þetta rangt. Í fyrsta lagi er fjöldi nafna á núgildandi mannanafnaskrá sem telja má undarleg eða skrítin mannanöfn og allmörg þeirra hafa orðið fólki til ama, enda nokku aðgengt að fólk geri breytingar á nöfnum sínum er það verður fullorðið. Í öðru lagi tel ég að hægt sé að ná verndarhagsmununum, sem vissulega eru til staðar, með öðru og vægara móti, svo sem gert er í frumvarpinu. Frumvarpið dregur úr afskiptum hins opinbera af einkamálefnum borgaranna. Það er til þess fallið að draga úr kostnaði hins opinbera vegna niðurlagningar mannanafnanefndar. Frumvarpið bregst við brýnu ákalli frá almenningi og jafnar stöðu borgaranna í samfélagi sem er gjörbreytt frá því samfélagi sem lagt var til grundvallar núgildandi lagaumhverfi. Ég mæli því með því að frumvarpið verði samþykkt sem lög frá Alþingi.
- #5Halldór Ármann Sigurðsson
Athugsemdir við drög að frumvarpi um ný mannanafnalög Mér sýnist að þessi lög muni verða mjög til bóta. 3. gr. Fullt nafn og birtingarnafn Hér er ákvæði um að ekki megi afbaka hefðbundinn rithátt nafna. Líkast til er þetta ákvæði til óþurftar. Samkvæmt frumvarpsdrögunum verða nanfgiftir í meginatriðum frjálsar. Menn geta t.d. gefið eða tekið sér „útlenskuleg“ nöfn eins og Eric og ný nöfn eins og Eiríg og það er líkast til snúið að greina á milli slíkra nafna og nafnmynda sem gætu talist fela í sér afbökun á hefðbundnum rithætti, t.d. Eirígur. Einlægast er því að fella þetta ákvæði br… Lesa alla
Athugsemdir við drög að frumvarpi um ný mannanafnalög Mér sýnist að þessi lög muni verða mjög til bóta. 3. gr. Fullt nafn og birtingarnafn Hér er ákvæði um að ekki megi afbaka hefðbundinn rithátt nafna. Líkast til er þetta ákvæði til óþurftar. Samkvæmt frumvarpsdrögunum verða nanfgiftir í meginatriðum frjálsar. Menn geta t.d. gefið eða tekið sér „útlenskuleg“ nöfn eins og Eric og ný nöfn eins og Eiríg og það er líkast til snúið að greina á milli slíkra nafna og nafnmynda sem gætu talist fela í sér afbökun á hefðbundnum rithætti, t.d. Eirígur. Einlægast er því að fella þetta ákvæði brott úr drögunum. 4. gr. Eiginnöfn Nauðsynlegt er að halda í amaákvæðið, eins og lagt er til, en það er ekki alveg einfalt að framfylgja því svo að jafnræðis sé gætt. Úrskurðir um ama mega ekki ráðast af því hvaða starfsmaður Þjóðskrár er „á vakt“ hverju sinni. En líklega mun afar sjaldan reyna á þetta ákvæði og þess vegna er kannski ekki ástæða til að setja upp flókið regluverk í sambandi við ákvæðið. 5. gr. Kenninöfn Það er til bóta að leyfa -bur sem viðlið, en ég sé reyndar ekki neina ástæðu til að leggja hömlur á viðliði. Vilji einhver t.d. nefna sig eða barn sitt Guðrúnarbarn, Hannesarnið, Eiríkssystur eða Maríubróður finnst mér ekki ástæða til að amast við því. Yfirhöfuð tel ég að hvers konar kenninöfn eigi að vera heimil og að hverjum sem er eigi að vera frjálst að velja sér og börnum sínum hvaða kenninafn sem er (þó þannig að ekki teljist ami af). Vilji t.d. einhver sem er óskyldur Thoroddsensfólki kalla sig Thoroddsen á honum að vera það heimilt, að mínu mati. Þetta er líka í meginatriðum sú lausn sem lögð er til í drögunum og er það vel. Þó er hér að finna ákvæði um að „erindið verði ekki afgreitt að svo stöddu ef ættartengsl eða vensl liggja ekki fyrir sem heimila notkun nafnsins“ og að Þjóðskrá skuli „þá birta þeim sem ber eða bera ættarnafnið, og eru lögráða, framangreinda beiðni á vefsíðunni Island.is, og tilgreina að ættarnafnið verði skráð hjá beiðanda ef stofnuninni berast ekki andmæli innan þriggja mánaða um að réttarins til ættarnafnsins verði gætt fyrir dómstólum.“ Ég held að þetta ákvæði sé til óþurftar. Samkvæmt lögum nr. 45/1996 um mannanöfn er rétturinn til að taka upp ættarnafn bundinn því að sýnt sé fram á „að ættingi í beinan legg hafi haft nafnið skráð í þjóðskrá við gildistöku mannanafnalaga haustið 1991 og síðar“, eins og það er orðað á heimasíðu Þjóðkrár. En þessi viðmiðun er auðvitað handahófskennd og það verður enn ljósara ef þessi drög verða að lögum. Verði það mætti ég t.d. ekki taka mér ættarnafnið Briem (þótt ég sé fjarskyldur Briemsfólki, aftur í öldum), a.m.k. ekki athugasemda- eða vandræðalaust, en væntanlega myndi ekkert hamla því að ég tæki upp ættarnafnið Brím, nú eða Briemari eða jafnvel Briemsfrændi. Nú má vera að menn telji keypt ættarnöfn geta skapað nokkur vanda hér, en ég held að það séu óþarfar áhyggjur. Réttarstaða slíkra nafna er afar óljós og sérstök vernd þeirra brýtur í bág við jafnræði. Ég er t.d. meðal annars ættaður af Vestfjörðum, en Vestfjörð er eitt af þessum keyptu ættarnöfnum, og ef þau eiga að njóta verndar táknar það væntanlega það að ég megi ekki taka mér ættarnafnið Vestfjörð athugasemda- eða vandræðalaust. Réttarstaða annarra ættarnafna, sem einfaldlega voru færð í þjóskrá án lagaheimildar, er auðsæilega engin. Að öllu samanlögðu er best og einfaldast að hafa engar hömlur á ættarnöfnum en treysta þess í stað á dómgreind og smekkvísi almennings. Niðurlag Ég átti sæti í nefnd þeirri sem samdi frumvarpið sem síðar varð að lögum nr. 45/1996 um mannanöfn og var formaður mannanafnanefndar um nokkurt skeið. Lögin leiddu til mjög aukins frelsis í mannanafnamálum – gengið var eins langt í þeim efnum og unnt var á þessum tímum. Frumvarpið mætti af þessum sökum afar harðri andspyrnu nokkurra áhrifamikilla þingmanna og mátti engu muna að það yrði fellt í þinginu. En tímarnir hafa breyst og þar með viðhorf almennings til mannanafna og sömuleiðis mín eigin viðhorf. Það er löngu kominn tími til að gerbreyta lögunum, eins og nú er lagt til. Við sem áttum sæti í frumvarpsnefndinni 1994–1996 lögðumst gegn ættarnöfnum, töldum þau vera ógn við íslenska kenninafnasiðinn. En þetta var missýn. Það er ótækt í nútímaþjóðfélagi að stjórna nöfnum, þar með töldum ættarnöfnum, með lagaboði nema að ákaflega takmörkuðu leyti. Eins og Eiríkur Rögnvaldsson bendir á í ágætri umsögn sinni um frumvarpsdrögin verður ekki betur séð en takmarkanir á notkun ættarnafna séu brot á 65. grein stjórnarskrárinnar þar sem segir m.a. að allir skuli „vera jafnir fyrir lögum og njóta mannréttinda án tillits til […] ætternis […].“ Verði þessi drög að lögum, nokkurn veginn óbreytt, er það fagnaðarefni og mikilsvert framfaraskref. Halldór Ármann Sigurðsson
Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.