Beint í efni
Alviti
← Samráðsgátt
S-18/2020 · Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið

Frumvarp til laga um breytingu á lögum um náttúruvernd nr. 60/2013, með síðari breytingum (óbyggt víðerni).

Í frumvarpinu er lögð til lagfæring á skilgreiningu hugtaksins „óbyggt víðerni“.

Eins og ákvæðið er orðað í lögum um náttúruvernd, er ekki unnt að friðlýsa svæði undir friðlýsingarflokknum óbyggð víðerni ef mannvirki eru innan við 5 km fjarlægð frá mörkum svæðis þó svo að þau sjáist ekki vegna landfræðilegra aðstæðna. Í frumvarpi þessu er lagt til að skilgreining hugtaksins „óbyggt víðerni“ verði breytt á þann hátt að mögulegt sé að taka tillit til landfræðilegra aðstæðna við skilgreiningu á óbyggðum víðernum, eins og upphaflega var gert ráð fyrir í frumvarpi til núgildandi laga um náttúruvernd. Með frumvarpinu eru því lagðar til lagfæringar á náttúruverndarlögum til að skýrt sé hvað teljist óbyggð víðerni.

S-18/2020· Drög að frumvarpi til laga· Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 28. jan. 2020 – 11. feb. 2020· 6 umsagnir

Frumvarp til laga um breytingu á lögum um náttúruvernd nr. 60/2013, með síðari breytingum (óbyggt víðerni).

Í frumvarpinu er lögð til lagfæring á skilgreiningu hugtaksins „óbyggt víðerni“.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-18/2020)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 11. febrúar 2020
  3. Umsagnarfresti lýkur · 6 umsagnir bárust
  4. Lagt fram á Alþingi (150. þing, mál 611)
  5. Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (12. október 2020)

Niðurstaða málsins i stuttu máli; Alls bárust 6 umsagnir í Samráðsgátt þar sem m.a. voru lagðar til nokkrar breytingar. Í kaflanum um Samráð í greinargerð með frumvarpinu er gerð grein fyrir viðbrögðum við athugasemdum. Alþingi samþykkti frumvarpið óbreytt þann 20. maí 2020 - lög nr. 43/2020

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (6)
  • #1Finnur Ingimarsson

    Ég legg til að þetta verði aðeins fljótandi og skilgreiningin hlóði því svona: 19. [ Óbyggt víðerni: Svæði í óbyggðum þar sem hægt sé að njóta einveru og náttúrunnar án truflunar af mannvirkjum eða umferð vélknúinna farartækja. Svæðin séu að jafnaði 25 km2 að stærð og í 5 km fjarlægð frá mannvirkjum og öðrum tæknilegum ummerkjum, svo sem raflínum, orkuverum, miðlunarlónum og uppbyggðum vegum. ] 1)

  • #2Umhverfisstofnun

    Umsögn Umhverfisstofnunar um frumvarp til laga um breytingu á lögum um náttúruvernd nr. 60/2013, (óbyggt víðerni).

  • #3Samband íslenskra sveitarfélaga

    Hjálagt sendist umsögn Sambands íslenskra sveitarfélaga um frumvarpið. F.h. sambandsins Guðjón Bragason

  • #4ÓFEIG náttúruvernd
    Ekkert landsvæði á Íslandi nýtur enn í dag friðlýsingar sem óbyggð víðerni, jafnvel þó fyllst tilefni sé til - og skylda. Lagasetningaráformin breyta engu þar um - og eru í raun óþörf þar sem þau breyta ekki gildandi rétti. Gögn unnin upp úr verkefni rannsóknarseturs Háskóla Íslands á Höfn frá janúar 2020 áætla að óbyggð víðerni væru um 83% af landsvæði væntanlegs Hálendisþjóðgarðs á miðhálendinu. Samt yrðu þau ekki vernduð sem slík. ÓFEIG náttúruvernd birtir skýringarkort af þessu í umsögn sinni og hvetur til raunverulegrar verndar óbyggðra víðerna innan slíks þjóðgarðs. Í meðfylgjandi… Lesa alla

    Ekkert landsvæði á Íslandi nýtur enn í dag friðlýsingar sem óbyggð víðerni, jafnvel þó fyllst tilefni sé til - og skylda. Lagasetningaráformin breyta engu þar um - og eru í raun óþörf þar sem þau breyta ekki gildandi rétti. Gögn unnin upp úr verkefni rannsóknarseturs Háskóla Íslands á Höfn frá janúar 2020 áætla að óbyggð víðerni væru um 83% af landsvæði væntanlegs Hálendisþjóðgarðs á miðhálendinu. Samt yrðu þau ekki vernduð sem slík. ÓFEIG náttúruvernd birtir skýringarkort af þessu í umsögn sinni og hvetur til raunverulegrar verndar óbyggðra víðerna innan slíks þjóðgarðs. Í meðfylgjandi umsögn ÓFEIGAR náttúruverndar eru lagðar fram tvær aðrar tillögur sem miða að því að landsvæði með óbyggðum víðernum njóti raunverulegrar verndar, líkt og náttúruverndarlög ætla þeim.

  • #5Anna María Sigurðardóttir

    Meðf. er umsögn Landsvirkjunar við frumvarp til laga um breytingu á lögum um náttúruvernd nr. 60/2013, með síðari breytingum (óbyggt víðerni). Umsögnin verður einnig send í tölvupósti á Skrifstofu landgæða (postur@uar.is). Bestu kveðjur anna.m.sigurdardottir@landsvirkjun.is

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.

S-18/2020: Frumvarp til laga um breytingu á lögum um náttúruvernd nr. 60/2013, með síðari breytingum (óbyggt víðerni). · Alviti