Beint í efni
Alviti
← Samráðsgátt
S-24/2020 · Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Áform um frumvarp til laga um reglubundna upplýsingaskyldu útgefenda verðbréfa

Fjármála- og efnahagsráðherra áformar að leggja fram frumvarp til laga um reglubundna upplýsingaskyldu útgefenda verðbréfa sem skráð eru á skipulegan markað.

Fjármála- og efnahagsráðherra áformar að leggja fram frumvarp til laga um reglubundna upplýsingaskyldu útgefenda verðbréfa sem skráð eru á skipulegan markað. Með frumvarpinu er lagt til að sett verði ný heildarlög sem innleiða tilskipun 2004/109/EB (gagnsæistilskipunin), með síðari breytingum, í íslenskan rétt. Gagnsæistilskipunin, sem þegar hefur verið innleidd í íslenskan rétt sem hluti af lögum um verðbréfaviðskipti, nr. 108/2007, mælir einkum fyrir um samræmingu reglna um birtingu reglulegra upplýsinga um útgefendur verðbréfa sem tekin hafa verið til viðskipta á skipulegum verðbréfamarkaði og um birtingu upplýsinga um breytingu á verulegum hlut atkvæðisréttar í slíkum útgefendum. Markmið tilskipunarinnar er að samræma kröfur um skyldu útgefenda til að veita upplýsingar og stuðla með því að raunverulegum innri markaði og víðtækri vernd fyrir fjárfesta. Með tilskipun 2013/50ESB voru gerðar breytingar á gagnsæistilskipuninni sem miða að því að auka skilvirkni og einfalda skuldbindingar lítilla og meðalstórra fyrirtækja samhliða því að tryggja fjárfestavernd. Með hliðsjón af þeim öru breytingum sem hafa átt sér stað á lagaumhverfi fjármálamarkaðar á síðustu árum er talið heppilegra að innleiða breytingartilskipunina með því að setja ný heildarlög um reglubundna upplýsingaskyldu útgefenda verðbréfa og fella á brott viðeigandi ákvæði verðbréfaviðskiptalaga.

S-24/2020· Áform um lagasetningu· Fjármála- og efnahagsráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 5. feb. 2020 – 19. feb. 2020· 1 umsögn

Áform um frumvarp til laga um reglubundna upplýsingaskyldu útgefenda verðbréfa

Fjármála- og efnahagsráðherra áformar að leggja fram frumvarp til laga um reglubundna upplýsingaskyldu útgefenda verðbréfa sem skráð eru á skipulegan markað.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-24/2020)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 19. febrúar 2020
  3. Umsagnarfresti lýkur · 1 umsögn barst
  4. Lagt fram á Alþingi (151. þing, mál 341)
  5. Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (13. september 2021)

Máli lauk með því að frumvarp til laga um upplýsingaskyldu útgefenda verðbréfa og flöggunarskyldu var lagt fram á Alþingi og varð að lögum nr. 20/2021.

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (1)

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.

S-24/2020: Áform um frumvarp til laga um reglubundna upplýsingaskyldu útgefenda verðbréfa · Alviti