Drög að frumvarpi um breytingar á ýmsum lögum á málefnasviði sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra vegna einföldunar regluverks og stjórnsýslu (lög á sviði landbúnaðar og matvæla)
Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra kynnir til umsagnar drög að frumvarpi um breytingar á ýmsum lögum á málefnasviði ráðherra vegna einföldunar regluverks.
Ferill í Samráðsgátt
- Birt í Samráðsgátt (S-38/2020)
- Umsagnarfrestur hefst · til 28. febrúar 2020
- Umsagnarfresti lýkur · 2 umsagnir bárust
- Lagt fram á Alþingi (150. þing, mál 714)
- Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (1. desember 2020)
Frv. var lagt fram með nokkrum breytingum á 150. löggjþ. og varð síðan að lögum með enn öðrum breytingum. Um samráð við undirbúning frv. er fjallað í almennum athugasemdum með því og vísast til þess sem þar segir.
Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (2)
- #1Bændasamtök Íslands
Hjálögð er umsögn Bændasamtaka Íslands ásamt fylgiskjali.
- #2Sigurður Sævar Gunnarsson
Umsögn um Lög nr. 57/1990, um flokkun og mat á gærum og ull Umsagnaraðili er framkvæmdastjóri Ístex sem kaupir um 99% af allri íslenskri ull. Þá snýr þessi umsögn aðeins að ullarhluta laganna. Umsagnaraðili fagnar þeirri viðleitni stjórnvalda að einfalda lög og reglugerðir. Hins vegar eru nokkur atriði í Lögum nr. 57/1990, um flokkun og mat á gærum og ull sem þarf að finna farveg áður lögin verða felld niður. Undirritaður leggur til að lögin verði einfölduð og ,Reglugerð 856/2003 um ullarmat" verði felld niður. Styrkur núverandi laga er ullarmatsnefnd og löggiltir ullarmatsmenn sem lý… Lesa alla
Umsögn um Lög nr. 57/1990, um flokkun og mat á gærum og ull Umsagnaraðili er framkvæmdastjóri Ístex sem kaupir um 99% af allri íslenskri ull. Þá snýr þessi umsögn aðeins að ullarhluta laganna. Umsagnaraðili fagnar þeirri viðleitni stjórnvalda að einfalda lög og reglugerðir. Hins vegar eru nokkur atriði í Lögum nr. 57/1990, um flokkun og mat á gærum og ull sem þarf að finna farveg áður lögin verða felld niður. Undirritaður leggur til að lögin verði einfölduð og ,Reglugerð 856/2003 um ullarmat" verði felld niður. Styrkur núverandi laga er ullarmatsnefnd og löggiltir ullarmatsmenn sem lýst eru í lögunum. Þetta eru lykilatriði í trúverðuleika kerfisins og þess árangurs sem náðst hefur. Þá er lagt til að ,,Reglugerð 856/2003 um ullarmat" verði felld niður. Í staðinn komi staðall sem kaupendur og seljendur komi sér upp. Þetta gefi einfaldara regluverk og skilverkara kerfi sem er betur til þess fallið að ná sem mestum verðmætum úr íslenskri ull. Undanfarin ár hefur verið lagt í talsverða fjárfestingu í kynningar og samtal til bænda um hvernig megi ná mestum verðmætum úr íslenskri ull. Í því sambandi má nefna síðuna www.ullarmat.is og bændafundi. Allt hlutir sem hægt er að styðjast við og nota sem grunn að staðli í ullarviðskiptum, líkt og í mörgum öðrum löndum. Í viðhengi eru hugmynd/drög að nýjum lögum í anda þess að kaupendur og seljendur gera með sér samkomulag um flokka og mat. Ullarmatsnefndin muni halda sínum faglega tilgangi ásamt því að hafa úrskorunarvaldi í ósamkomulagsmálum á milli kaupenda og seljanda. Þá muni löggildingu ullarmatsmann halda sér. Þannig að það er mat mitt að lögin um ull eru í notkun og skipta máli, en hins vegar má einfalda þau og skýra. Sér í lagi losna við gæruhlutann. Þá væri hægt að fella niður reglugerð um ullarmat. Ef eitthvað er óljóst ekki hika við að hafa samband. Ull er gull! Sigurður Sævar Gunnarsson Framkvæmdastjóri Ístex"
Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.