Áður en mál kemur til Alþingis
Frumvörp og þingsályktunartillögur sem ráðuneyti hafa kynnt í Samráðsgátt stjórnvalda: hvað er til umsagnar, hverjir sendu umsagnir, og hvað hefur komið til Alþingis og hvað ekki.
176 mál · sótt 27. október 2026
- Ekki komið til AlþingisS-172/2019· Áform um lagasetningu· Atvinnuvegaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 4. júl. 2019 – 18. júl. 2019· 2 umsagnir
Áform um lagasetningu - Breyting á lögum nr. 3/2006 um ársreikninga og lögum nr. 138/1994 um einkahlutafélög
Áformað er að breyta lögum um ársreikninga til skýringa á ákvæðum laganna um heimild ársreikningaskrár til að krefjast skipta á búi félags sé ársreikningi ekki skilað til ársreikningaskrár innan þess frests sem kveðið er á um í lögunum.
- Ekki komið til AlþingisS-171/2019· Áform um lagasetningu· Atvinnuvegaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 3. júl. 2019 – 17. júl. 2019· 0 umsagnir
Áform um lagasetningu -Frumvarp til laga um breytingu á lögum um ársreikninga, nr. 3/2006, með síðari breytingum (endurskoðunarnefndir, leigusamningar)
Áformaðar eru breyting á lögum um ársreikninga með það í huga að innleiða skuldbindingar vegna EES samningsins, einfalda reikningsskil, sérstaklega minni félaga og bregðast við ábendingum haghafa.
- Komið til AlþingisS-169/2019· Áform um lagasetningu· Forsætisráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 3. júl. 2019 – 31. júl. 2019· 4 umsagnir
Frumvarp til laga um breytingu á upplýsingalögum (Réttarstaða þriðja aðila)
Áformað er að gera breytingar á upplýsingalögum nr. 140/2012 í því skyni að bæta réttarstöðu þriðja aðila, þ.e. þess sem á hagsmuna að gæta af afhendingu upplýsinga, og gera hana skýrari.
- Komið til AlþingisS-168/2019· Áform um lagasetningu· Forsætisráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 3. júl. 2019 – 31. júl. 2019· 3 umsagnir
Frumvarp til laga um breytingu á lögum um Stjórnarráð Íslands (Varnir gegn hagsmunaárekstrum hjá æðstu handhöfum framkvæmdarvalds)
Fyrirhugað er að smíða löggjöf til varnar hagsmunaárekstrum hjá æðstu handhöfum framkvæmdarvalds, m.a. í samræmi við tilmæli GRECO, samtaka ríkja innan Evrópuráðsins gegn spillingu, og starfshóps forsætisráðherra um eflingu trausts á stjórnmálum og stjórnsýslu
- Komið til AlþingisS-167/2019· Áform um lagasetningu· Fjármála- og efnahagsráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 2. júl. 2019 – 16. júl. 2019· 2 umsagnir
Áform um frumvarp til laga um innheimtu opinberra skatta og gjalda
Áform um að leiða í lög heildstæða löggjöf um innheimtu opinberra skatta og gjalda.
- Ekki komið til AlþingisS-166/2019· Drög að frumvarpi til laga· Innviðaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 2. júl. 2019 – 16. júl. 2019· 6 umsagnir
Frumvarp til laga um heimild til að stofna til samvinnu opinberra aðila og einkaaðila um fjármögnun, framkvæmdir og veghald á tilteknum köflum þjóðvega.
Frumvarpinu er ætlað að kveða á um heimildir til að stofna til samvinnu opinberra aðila við einkaaðila um tilteknar vegaframkvæmdir og gjaldtöku vegna þeirra.
- Ekki komið til AlþingisS-165/2019· Drög að frumvarpi til laga· Innviðaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 2. júl. 2019 – 16. júl. 2019· 4 umsagnir
Frumvarp til laga um breytingu á vegalögum nr. 80/2007
Frumvarpinu er ætlað að styrkja heimildir Vegagerðarinnar í vegalögum til gjaldtöku á einstökum vegköflum að undangenginni ákvörðun í samgönguáætlun.
- Ekki komið til AlþingisS-163/2019· Áform um lagasetningu· Fjármála- og efnahagsráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 1. júl. 2019 – 15. júl. 2019· 10 umsagnir
Áform um frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum um skattlagningu ökutækja (Ívilnanir vegna vistvænna ökutækja o.fl.)
Áform um breytingu á ýmsum lögum um skattlagningu ökutækja er lúta að skattalegum ívilnunum og hvötum til að stuðla að orkuskiptum í samgöngum.
- Komið til AlþingisS-162/2019· Drög að frumvarpi til laga· Atvinnuvegaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 28. jún. 2019 – 1. ágú. 2019· 0 umsagnir
Frv. til l. um br. á l. um lax- og silungsveiði
Tillaga um minnih. br. á l. um lax- og silungsv. hvað snertir ábyrgð af kostnaði af arðskrármati.
- Komið til AlþingisS-161/2019· Áform um lagasetningu· Fjármála- og efnahagsráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 28. jún. 2019 – 12. júl. 2019· 3 umsagnir
Áform um frumvarp til laga um breytingu á tollalögum og fleiri lögum.
Áformað er að tollafgreiðsla og tollgæsla, sem tollstjóri annast nú, verði færð til ríkisskattstjóra frá og með 1. janúar 2020.
- Komið til AlþingisS-159/2019· Áform um lagasetningu· Fjármála- og efnahagsráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 28. jún. 2019 – 12. júl. 2019· 1 umsögn
Áform um frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum um skatta og gjöld.
Áformaðar eru ýmsar nauðsynlegar breytingar og leiðréttingar á skattalöggjöf sem tengjast bæði skattlagningu lögaðila og einstaklinga.
- Komið til AlþingisS-158/2019· Áform um lagasetningu· Fjármála- og efnahagsráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 28. jún. 2019 – 26. júl. 2019· 0 umsagnir
Áform um breytingu á tollalögum (rafræn skil og greiðslur, vöruvalsreglur, innflutningur matvæla ofl.)
Áformaskjalið felur í sér áform um ýmsar breytingar á tollalögum nr. 88/2005.
- Komið til AlþingisS-156/2019· Áform um lagasetningu· Innviðaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 27. jún. 2019 – 20. júl. 2019· 6 umsagnir
Áform um frumvarp til laga um landshöfuðlénið .is
Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið áformar að semja nýtt frumvarp til laga um landshöfuðlénið .is.
- Komið til AlþingisS-154/2019· Áform um lagasetningu· Forsætisráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 27. jún. 2019 – 12. júl. 2019· 1 umsögn
Áform um breytingu á lögum um þjóðlendur og ákvörðun marka eignarlanda, þjóðlendna og afrétta, nr. 58/1998.
Áformað er að breyta ákvæðum laga um þjóðlendur og ákvörðun marka eignarlanda, þjóðlendna og afrétta, nr. 58/1998 varðandi verkaskiptingu ríkis og sveitarfélaga, mörkun ríkistekna og málsmeðferð óbyggðanefndar.
- Komið til AlþingisS-152/2019· Annað· Forsætisráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 27. jún. 2019 – 24. júl. 2019· 6 umsagnir
Þingsályktun um framkvæmdaáætlun í jafnréttismálum 2020-2023
Tillaga til þingsályktunar um framkvæmdaáætlun ríkisstjórnarinnar í jafnréttismálum árin 2020–2023, sbr. 11. gr. laga nr. 10/2008, um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla. Framkvæmdaáætlunin er gerð að fengnum tillögum einstakra ráðuneyta, Jafnréttisstofu og kynnt Jafnréttisráði.
- Komið til AlþingisS-148/2019· Áform um lagasetningu· Innviðaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 20. jún. 2019 – 5. júl. 2019· 1 umsögn
Áform um breytingar á lögum um tekjustofna sveitarfélaga nr. 4/1995
Samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra áformar að leggja fram frumvarp til laga til breytinga á lögum um tekjustofna sveitarfélaga nr. 4/1995. Frumvarpið mun fela í sér breytingar á ákvæðum 3. kafla laga um tekjustofna sveitarfélaga er snúa að Jöfnunarsjóði sveitarfélaga.
- Komið til AlþingisS-142/2019· Áform um lagasetningu· Innviðaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 18. jún. 2019 – 16. júl. 2019· 4 umsagnir
Áform um breytingar á lögum um loftferðir nr. 60/1998
Samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra áformar að leggja fram frumvarp til laga til breytinga á lögum um loftferðir nr. 60/1998, með síðari breytingum, til innleiðingar reglugerðar (ESB) 2018/1139 um sameiginlegar reglur á sviði almenningsflugs og stofnun Flugöryggisstofnunar Evrópusambandsins.
- Komið til AlþingisS-132/2019· Drög að frumvarpi til laga· Innviðaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 17. maí 2019 – 20. jún. 2019· 14 umsagnir
Frumvarp til nýrra laga um leigubifreiðar
Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið kynnir til umsagnar drög að frumvarpi til nýrra laga um leigubifreiðar. Markmiðið með frumvarpinu er að auka frelsi á leigubifreiðamarkaðnum og tryggja örugga og góða þjónustu.
- Ekki komið til AlþingisS-130/2019· Drög að frumvarpi til laga· Félags- og húsnæðismálaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 14. maí 2019 – 21. maí 2019· 9 umsagnir
Frumvarp til laga um breytingu á lögum um almennar íbúðir, nr. 52/2016, með síðari breytingum.
Með frumvarpinu eru lagðar til breytingar á lögum um almennar íbúðir til samræmis við yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar um stuðning við lífskjarasamninga. Með því eru einnig lagðar til breytingar á lögunum í ljósi þeirrar reynslu sem komin er á framkvæmd þeirra.
- Ekki komið til AlþingisS-131/2019· Drög að frumvarpi til laga· Félags- og húsnæðismálaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 13. maí 2019 – 20. maí 2019· 3 umsagnir
Frumvarp um búsetuskilyrði í almannatryggingum
Drög að frumvarpi um breytingu á almannatryggingalögum varðandi rétt til örorkulífeyris. Kveðið er á um að réttindi á grundvelli framtíðarbúsetutímabila skuli vera í sama hlutfalli og raunveruleg búseta.
- Ekki komið til AlþingisS-129/2019· Drög að frumvarpi til laga· Forsætisráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 10. maí 2019 – 30. jún. 2019· 12 umsagnir
Drög að stjórnarskrárákvæði um umhverfisvernd
Formenn þeirra flokka sem nú sitja á Alþingi hafa átt fundi frá upphafi árs 2018 um breytingar á stjórnarskránni og nú eru birt til samráðs tvö ný ákvæði, um umhverfisvernd og um auðlindir náttúru Íslands.
- Ekki komið til AlþingisS-128/2019· Drög að frumvarpi til laga· Forsætisráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 10. maí 2019 – 30. jún. 2019· 26 umsagnir
Drög að stjórnarskrárákvæði um auðlindir náttúru Íslands
Formenn þeirra flokka sem nú sitja á Alþingi hafa átt fundi frá upphafi árs 2018 um breytingar á stjórnarskránni og nú eru birt til samráðs tvö ný ákvæði, um auðlindir náttúru Íslands og um umhverfisvernd.
- Komið til AlþingisS-127/2019· Drög að frumvarpi til laga· Heilbrigðisráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 10. maí 2019 – 3. jún. 2019· 29 umsagnir
Frumvarp til nýrra lyfjalaga
Heilbrigðisráðuneytið kynnir endurskoðuð drög að frumvarpi til nýrra lyfjalaga. Frumvarpið var fyrst kynnt í samráði 21. febrúar sl. og bárust þá 114 umsagnir. Hefur ráðuneytið unnið úr þeim athugasemdum og óskar nú eftir umsögnum um endurskoðað frumvarp til nýrra lyfjalaga. Umsagnarferli lýkur þann 3. júní nk.
- Ekki komið til AlþingisS-118/2019· Drög að frumvarpi til laga· Fjármála- og efnahagsráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 7. maí 2019 – 19. jún. 2019· 0 umsagnir
Meðferð ríkisaðstoðarmála - frumvarpsdrög
Frumvarpsdrög um meðferð ríkisaðstoðarmála.
- Komið til AlþingisS-113/2019· Drög að frumvarpi til laga· Utanríkisráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 17. apr. 2019 – 28. apr. 2019· 0 umsagnir
Frumvarp til laga um ráðstafanir vegna útgöngu Bretlands úr Evrópusambandinu og Evrópska efnahagssvæðinu
Frumvarpið mælir fyrir um ráðstafanir vegna úrsagnar Bretlands úr Evrópusambandinu og EES, hvort sem úrsögn Bretlands verði á grundvelli samnings milli Evrópusambandsins og Bretlands eða án slíks samnings.
- Komið til AlþingisS-99/2019· Drög að frumvarpi til laga· Atvinnuvegaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 22. mar. 2019 – 26. mar. 2019· 5 umsagnir
Frumvarp til laga um breytingu á raforkulögum, nr. 65/2003 (tilvísun í stefnu stjórnvalda um uppbyggingu flutningskerfis raforku)
Með frumvarpinu og tillögunni til breytingar á þingsályktun 26/148 er lagt til að kveðið verði á um að ekki verði ráðist í tengingu raforkukerfis landsins við raforkukerfi annars lands í gegnum sæstreng nema að undangengnu samþykki Alþingis.
- Ekki komið til AlþingisS-98/2019· Drög að frumvarpi til laga· Atvinnuvegaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 22. mar. 2019 – 28. mar. 2019· 3 umsagnir
Frumvarp til laga um breytingar á almennum hegningarlögum, lögum um hlutafélög, lögum um einkahlutafélög og lögum um sjálfseignarstofnanir sem stunda atvinnurekstur
Markmiðið með frumvarpinu er að stemma stigu við misnotkun á hlutafélagaforminu og er kennitöluflakk í atvinnurekstri þar fyrst og fremst undir.
- Komið til AlþingisS-95/2019· Drög að frumvarpi til laga· Mennta- og barnamálaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 15. mar. 2019 – 21. mar. 2019· 1 umsögn
Frumvarp til laga um lýðskóla
Markmið með fyrirhuguðu frumvarpi til laga um lýðskóla er að skapa faglega umgjörð utan um starfsemi lýðskóla m.a. um hvaða skilyrði skólar þurfa að uppfylla til að fá viðurkenningu til að starfa undir heitinu lýðskóli. Ákveðið hefur verið að nota heitið „lýðskóli“ þar sem orðið „háskóli“ er lögverndað fyrir sambærilega starfsemi og myndi kalla á breytingar á lögum um háskóla nr. 63/2006.
- Komið til AlþingisS-94/2019· Drög að frumvarpi til laga· Atvinnuvegaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 14. mar. 2019 – 21. mar. 2019· 1 umsögn
Frumvarp til laga um raunverulega eigendur
Með frumvarpinu eru innleidd ákvæði um raunverulega eigendur í 30. og 31. gr. tilskipunar 2015/849/EB, fjórðu tilskipunar Evrópusambandsins um peningaþvætti, og brugðist við skýrslu FATF um stöðu mála hvað varðar varnir gegn peningaþvætti hér á landi.
- Komið til AlþingisS-89/2019· Drög að frumvarpi til laga· Atvinnuvegaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 12. mar. 2019 – 19. mar. 2019· 13 umsagnir
Frumvarp til laga um breytingu á lögum um fiskveiðar utan lögsögu Íslands (stjórn veiða á makríl)
Með frumvarpi þessu er lagt til að aflamarksstjórn verði tekin upp við veiðar á makríl.
Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi. Hlekkur getur vantað þegar heiti málsins breyttist mikið á leiðinni; ritstjóri getur staðfest eða hafnað tengingu.
Hér eru frumvörp, áform um lagasetningu og drög að þingsályktunartillögum. Drög að reglugerðum og önnur mál fara ekki til Alþingis og eru á vef gáttarinnar. Alviti hefur þingmál Alþingis frá 8. september 2015; um eldri samráðsmál sem ekki finnast þar er sagt „óvíst“.
Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda (island.is) · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)