Áður en mál kemur til Alþingis
Frumvörp og þingsályktunartillögur sem ráðuneyti hafa kynnt í Samráðsgátt stjórnvalda: hvað er til umsagnar, hverjir sendu umsagnir, og hvað hefur komið til Alþingis og hvað ekki.
819 mál · sótt 28. október 2026
- Komið til AlþingisS-40/2018· Drög að frumvarpi til laga· Atvinnuvegaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 27. mar. 2018 – 17. apr. 2018· 2 umsagnir
Frumvarp til laga um rafræna auðkenningu og traustþjónustu
Frumvarp til laga um rafræna auðkenningu og traustþjónustu. Frumvarpið innleiðir reglugerð ESB nr. 910/2014 eða hina svokölluðu eIDAS reglugerð.
- Komið til AlþingisS-32/2018· Drög að stefnu· Innviðaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 12. mar. 2018 – 21. mar. 2018· 24 umsagnir
Tillaga til þingsályktunar um stefnumótandi byggðaáætlun fyrir árin 2018 til 2024
Tillaga til þingsályktunar um stefnumótandi áætlun í byggðamálum 2018-2024 kynnt í samráðsgátt Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið kynnir drög að tillögu til þingsályktunar um stefnumótandi byggðaáætlun fyrir árin 2018 til 2024 á samráðsgátt um opið samráð stjórnvalda.
- Komið til AlþingisS-30/2018· Áform um lagasetningu· Dómsmálaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 9. mar. 2018 – 6. apr. 2018· 3 umsagnir
Breytingar á barnalögum
Hér er um að ræða áform um breytingar á barnalögum nr. 76/2003 sem snúa að því að lögfesta ákvæði um heimild foreldra til þess að semja um skipta búsetu barns auk þess að endurskoða ákvæði barnalaga varðandi framfærslu barns og meðlag. Í tengslum við þessa breytingu á barnalögunum eru tilheyrandi breytingar á ýmsum öðrum lögum.
- Komið til AlþingisS-29/2018· Drög að frumvarpi til laga· Atvinnuvegaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 8. mar. 2018 – 16. mar. 2018· 1 umsögn
Frumvarp til laga um Ferðamálastofu, ferðamálaráð og leyfisveitingar í ferðaþjónustu
Hér er um að ræða drög að frumvarpi til nýrra heildarlaga um Ferðamálastofu, ferðamálaráð og leyfisveitingar í ferðaþjónustu. Frumvarpið felur í sér heildarendurskoðun laga um skipan ferðamála, nr. 73/2005, og munu þau lög falla úr gildi verði frumvarpið að lögum.
- Komið til AlþingisS-25/2018· Drög að frumvarpi til laga· Utanríkisráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 6. mar. 2018 – 13. mar. 2018· 2 umsagnir
Breyting á lögum um Íslandsstofu nr. 38/201
Meginmarkmiðið með frumvarpinu er að efla samstarf atvinnulífs og stjórnvalda við markaðsstarf á erlendum mörkuðum, auka samþættingu og samstarf þeirra aðila sem að koma, nýta fjármuni með markvissari hætti og gera breytingar á rekstrarformi Íslandsstofu.
- Komið til AlþingisS-21/2018· Drög að frumvarpi til laga· Innviðaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 26. feb. 2018 – 16. mar. 2018· 46 umsagnir
Frumvarp til nýrra umferðarlaga
Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið kynnir til umsagnar drög að nýjum umferðarlögum.
- Komið til AlþingisS-17/2018· Drög að frumvarpi til laga· Fjármála- og efnahagsráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 22. feb. 2018 – 28. feb. 2018· 1 umsögn
Frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lagaákvæðum um skatta og gjöld (frádráttur vegna hlutabréfakaupa, skuldajöfnun vegna vangoldinna skatta og gjalda, álagning opinberra gjalda o.fl.).
Í frumvarpsdrögunum eru lagðar til ýmsar breytingar á skattalögum af ólíkum toga.
- Komið til AlþingisS-3/2018· Áform um lagasetningu· Mennta- og barnamálaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 5. feb. 2018 – 19. feb. 2018· 0 umsagnir
Frumvarp til laga um sameiginlega umsýslu höfundarréttar
Tilgangur frumvarpsins er að innleiða tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2014/26/ESB um sameiginlega umsýslu höfundaréttar og skyldra réttinda og leyfisveitingar yfir landamæri vegna netnotkunar á tónverkum á innri markaðnum.
- Komið til AlþingisS-1/2018· Drög að frumvarpi til laga· Mennta- og barnamálaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 5. feb. 2018 – 19. feb. 2018· 4 umsagnir
Drög að frumvarpi til laga um breytingu á kvikmyndalögum, nr. 137/2001
Frumvarpið kveður á um breytingar á kvikmyndalögum nr. 137/2001, einkum vegna nýrra leiðbeinandi regla frá Eftirlitsstofnun EFTA (ESA) um ríkisaðstoð til kvikmynda og annarra hljóð- og myndmiðlunarverka. Þá eru aðrar breytingar sem nauðsynlegar þykja í ljósi reynslu af beitingu laganna.
Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi. Hlekkur getur vantað þegar heiti málsins breyttist mikið á leiðinni; ritstjóri getur staðfest eða hafnað tengingu.
Hér eru frumvörp, áform um lagasetningu og drög að þingsályktunartillögum. Drög að reglugerðum og önnur mál fara ekki til Alþingis og eru á vef gáttarinnar. Alviti hefur þingmál Alþingis frá 8. september 2015; um eldri samráðsmál sem ekki finnast þar er sagt „óvíst“.
Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda (island.is) · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)