Drög að frumvarpi til laga um breytingu á kvikmyndalögum, nr. 137/2001
Frumvarpið kveður á um breytingar á kvikmyndalögum nr. 137/2001, einkum vegna nýrra leiðbeinandi regla frá Eftirlitsstofnun EFTA (ESA) um ríkisaðstoð til kvikmynda og annarra hljóð- og myndmiðlunarverka. Þá eru aðrar breytingar sem nauðsynlegar þykja í ljósi reynslu af beitingu laganna.
Ferill í Samráðsgátt
- Birt í Samráðsgátt (S-1/2018)
- Umsagnarfrestur hefst · til 19. febrúar 2018
- Umsagnarfresti lýkur · 4 umsagnir bárust
- Lagt fram á Alþingi (148. þing, mál 465)
- Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (20. nóvember 2018)
Samráð var haft við fjármála- og efnahagsráðuneyti vegna ákvæða EES-samningsins um ríkisaðstoð og vegna annarra þjóðréttarsamninga. Frumvarpið var kynnt á samráðsvef Stjórnarráðsins 5. febrúar 2018 og bárust ráðuneytinu nokkrar athugasemdir sem snertu einkum skilgreiningar á hugtökum, skipan í kvikmyndaráð og skipunartíma forstöðumanns. Farið var yfir þær og tekið tillit til þeirra eftir atvikum.
Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (4)
- #1Hjálmar Einarsson
Vinsamlega skoðið viðhengi.
- #2Margrét Örnólfsdóttir
Félag leikskálda og handritshöfunda, FLH, mælist til og gerir í raun þá sjálfsögðu kröfu, að þeirri grein sem fjallar um Kvikmyndaráð og tiltekur samsetningu þess verði breytt á þann veg að félagið fái fulltrúa í Kvikmyndaráð. Samsetning Kvikmyndaráðs eins og hún er nú endurspeglar ekki raunverulegt landslag íslenska kvikmyndageirans á meðan handritshöfundar eiga þar ekki fulltrúa, enda er um að ræða einn mikilvægasta póst kvikmyndagerðarinnar, handritið er grunnur alls, án handrits verður engin kvikmynd eða sjónvarpsefni til. Benda má á að eins og staðan er nú er FLH eina fagfélag kvikmyndage… Lesa alla
Félag leikskálda og handritshöfunda, FLH, mælist til og gerir í raun þá sjálfsögðu kröfu, að þeirri grein sem fjallar um Kvikmyndaráð og tiltekur samsetningu þess verði breytt á þann veg að félagið fái fulltrúa í Kvikmyndaráð. Samsetning Kvikmyndaráðs eins og hún er nú endurspeglar ekki raunverulegt landslag íslenska kvikmyndageirans á meðan handritshöfundar eiga þar ekki fulltrúa, enda er um að ræða einn mikilvægasta póst kvikmyndagerðarinnar, handritið er grunnur alls, án handrits verður engin kvikmynd eða sjónvarpsefni til. Benda má á að eins og staðan er nú er FLH eina fagfélag kvikmyndagerðarinnar sem ekki á setu í Kvikmyndaráði og hefur þar af leiðandi enga formlega aðkomu að vettvangi þar sem teknar eru mikilvægar ákvarðanir sem varða málefni kvikmyndagerðarinnar, þar með talið handritshöfunda. FLH er í forsvari fyrir íslenska handritshöfunda, bæði hér á landi og gagnvart umheiminum, og því réttmætur aðili til að sinna þessu hlutverki. FLH hefur þegar átt samtal við ráðuneytið um erindið, í ráðherratíð Illuga Gunnarssonar, sem og Kvikmyndaráð, og mætt skilningi á báðum stöðum. Það ætti því ekkert að vera því til fyrirstöðu að leiðrétta þetta núna og binda þar með enda á það aðstöðuleysi sem íslenskir handritshöfundar hafa búið við. Fyrir hönd FLH, Margrét Örnólfsdóttir, formaður Félags leikskálda og handritshöfunda
- #3Sveinbjörn I Baldvinsson
Tel eðlilegt að um leið og viturlegar breytingar eru gerðar varðandi ráðningartíma forstöðumanns KMÍ, verði einnig sett tímamörk um ráðningartíma ráðgjafa, sem sumir hverjir hafa starfað óslitið í áraraðir, jafnvel meira en áratug. Slíkt hlýtur að teljast óeðlilegt og á sér ekki hliðstæðu í hinum títtnefndu löndum sem við berum okkur saman við. Ég styð að sjálfsögðu framkomna athugasemd formanns FLH. Með vinsemd og virðingu, Sveinbjörn I. Baldvinsson Handritshöfundur
- #4Friðrik Erlingsson
Ég, undirritaður, styð og tek heilshugar undir kröfu formanns FLH um að fulltrúi félagsins sitji í Kvikmyndaráði, enda er annað óhæfa þegar horft er til mikilvægis handritshöfunda. Áhersla Kvikmyndasjóðs og Miðstöðvar hefur frá upphafi verið mest á kvikmyndina sem slíka, þ.e. niðurstöðuna eða lokapródúkt framleiðslunnar, sem átti þó upphaf sitt í huga höfundar. Það er löngu orðið tímabært að handritshöfundar fái sæti á þeim vettvangi sem þeim ber, svo rödd þeirra, áhrif og hugmyndir megi móta framtíð kvikmyndaiðnaðar á Íslandi. Það eru jú handritshöfundarnir sem eiga upphafið að því að farsæl… Lesa alla
Ég, undirritaður, styð og tek heilshugar undir kröfu formanns FLH um að fulltrúi félagsins sitji í Kvikmyndaráði, enda er annað óhæfa þegar horft er til mikilvægis handritshöfunda. Áhersla Kvikmyndasjóðs og Miðstöðvar hefur frá upphafi verið mest á kvikmyndina sem slíka, þ.e. niðurstöðuna eða lokapródúkt framleiðslunnar, sem átti þó upphaf sitt í huga höfundar. Það er löngu orðið tímabært að handritshöfundar fái sæti á þeim vettvangi sem þeim ber, svo rödd þeirra, áhrif og hugmyndir megi móta framtíð kvikmyndaiðnaðar á Íslandi. Það eru jú handritshöfundarnir sem eiga upphafið að því að farsæl kvikmynd verði framleidd að lokum. Hér má einnig benda á þá þumalputtareglu sem hinn alþjóðlegi kvikmyndabransi hefur sett, sem er sú, að í raun séu aðeins þrír meginhöfundar hverrar kvikmyndar: handritshöfundurinn, leikstjórinn og klipparinn. Þetta eru þau þrjú svið þar sem hver einstaklingur fyrir sig skapar og mótar verkið; hver þáttur er ekki æðri eða mikilvægari hinum, heldur standa þeir jafnfætis þegar kemur að sköpun heildarverksins. Virðingarfyllst, Friðrik Erlingsson, handritshöfundur að Stuttum frakka, Benjamín dúfu, Litlu lirfunni ljótu, Þór- Hetjur Valhallar, Lói-Þú flýgur aldrei einn.
Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.