Áður en mál kemur til Alþingis
Frumvörp og þingsályktunartillögur sem ráðuneyti hafa kynnt í Samráðsgátt stjórnvalda: hvað er til umsagnar, hverjir sendu umsagnir, og hvað hefur komið til Alþingis og hvað ekki.
1.238 mál · 5 til umsagnar núna · sótt 29. október 2026
- Ekki komið til AlþingisS-13/2018· Drög að frumvarpi til laga· Innviðaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 15. feb. 2018 – 2. mar. 2018· 0 umsagnir
Frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum til samræmingar á áætlunum samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytisins
Frumvarpið kveður á um lagabreytingar sem nauðsynlegar eru til að ná fram markmiðum um samræmda áætlanagerð í öllum málaflokkum samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytisins.
- Ekki komið til AlþingisS-11/2018· Drög að frumvarpi til laga· Mennta- og barnamálaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 12. feb. 2018 – 26. feb. 2018· 0 umsagnir
Frumvarp til laga um breytingar á lögum um skil menningarverðmæta til annarra landa nr. 57/2011
Innleiðing tilskipunar 2014/60/ESB í landsrétt kallar á breytingar á lögum um skil menningarverðmæta til annarra landa nr. 57/2011, sem taka mið af ákvæðum tilskipunar 93/7/EBE frá 15. mars 1993.
- Ekki komið til AlþingisS-10/2018· Drög að frumvarpi til laga· Mennta- og barnamálaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 9. feb. 2018 – 23. feb. 2018· 1 umsögn
Frumvarp til laga um launasjóð skákmanna
Með þessu frumvarpi er gert ráð fyrir að gildandi lög um launasjóð stórmeistara, nr. 58/1990, verði lögð af og að nýtt fyrirkomulag um laun til afreksskákmanna verði tekið upp.
- Ekki komið til AlþingisS-9/2018· Áform um lagasetningu· Atvinnuvegaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 5. feb. 2018 – 20. feb. 2018· 0 umsagnir
Áform um lagasetningu vegna innleiðingar tilskipunar 2015/2302/ESB um pakkaferðir og samtengda ferðatilhögun
Áformað er að setja löggjöf sem innleiðir tilskipun 2015/2302/ESB um pakkaferðir og samtengda ferðatilhögun. Tilskipunin kemur í stað eldri tilskipunar, 90/314/EBE, sem innleidd var sem lög um alferðir, nr. 80/1994.
- Ekki komið til AlþingisS-8/2018· Áform um lagasetningu· Félags- og húsnæðismálaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 5. feb. 2018 – 28. feb. 2018· 0 umsagnir
Heildarendurskoðun jafnréttislaga
Velferðarráðuneytið óskar eftir umsögnum og tillögum að breytingum á gildandi löggjöf vegna heildarendurskoðunar laga um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla, nr. 10/2008.
- Ekki komið til AlþingisS-7/2018· Áform um lagasetningu· Atvinnuvegaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 5. feb. 2018 – 20. feb. 2018· 0 umsagnir
Áform um lagasetningu um Ferðamálastofu, ferðamálaráð og leyfisveitingar í ferðaþjónustu
Áformað er að setja lög um Ferðamálastofu, ferðamálaráð og leyfisveitingar í ferðaþjónustu sem leysa munu af hólmi núgildandi lög um skipan ferðamála, nr. 73/2005.
- Komið til AlþingisS-3/2018· Áform um lagasetningu· Mennta- og barnamálaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 5. feb. 2018 – 19. feb. 2018· 0 umsagnir
Frumvarp til laga um sameiginlega umsýslu höfundarréttar
Tilgangur frumvarpsins er að innleiða tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2014/26/ESB um sameiginlega umsýslu höfundaréttar og skyldra réttinda og leyfisveitingar yfir landamæri vegna netnotkunar á tónverkum á innri markaðnum.
- Komið til AlþingisS-1/2018· Drög að frumvarpi til laga· Mennta- og barnamálaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 5. feb. 2018 – 19. feb. 2018· 4 umsagnir
Drög að frumvarpi til laga um breytingu á kvikmyndalögum, nr. 137/2001
Frumvarpið kveður á um breytingar á kvikmyndalögum nr. 137/2001, einkum vegna nýrra leiðbeinandi regla frá Eftirlitsstofnun EFTA (ESA) um ríkisaðstoð til kvikmynda og annarra hljóð- og myndmiðlunarverka. Þá eru aðrar breytingar sem nauðsynlegar þykja í ljósi reynslu af beitingu laganna.
Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi. Hlekkur getur vantað þegar heiti málsins breyttist mikið á leiðinni; ritstjóri getur staðfest eða hafnað tengingu.
Hér eru frumvörp, áform um lagasetningu og drög að þingsályktunartillögum. Drög að reglugerðum og önnur mál fara ekki til Alþingis og eru á vef gáttarinnar. Alviti hefur þingmál Alþingis frá 8. september 2015; um eldri samráðsmál sem ekki finnast þar er sagt „óvíst“.
Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda (island.is) · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)