Áður en mál kemur til Alþingis
Frumvörp og þingsályktunartillögur sem ráðuneyti hafa kynnt í Samráðsgátt stjórnvalda: hvað er til umsagnar, hverjir sendu umsagnir, og hvað hefur komið til Alþingis og hvað ekki.
71 mál · sótt 27. október 2026
- Komið til AlþingisS-30/2021· Drög að frumvarpi til laga· Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 1. feb. 2021 – 23. feb. 2021· 14 umsagnir
Drög að frumvarpi til laga um umhverfismat framkvæmda og áætlana
Lagt er til að sameina í eitt lög um mat á umhverfisáhrifum og lög um umhverfismat áætlana. Lögð er áhersla á að lögin verði aðgengilegri, málsmeðferð einfölduð og að aðkoma almennings og annarra hagsmunaaðila að ferlinu sé tryggð. Þá eru lagðir til einfaldaðir framkvæmdaflokkar og þeim fækkað úr þremur í tvo.
- Komið til AlþingisS-31/2021· Áform um lagasetningu· Mennta- og barnamálaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 1. feb. 2021 – 16. feb. 2021· 2 umsagnir
Áform um frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum á málefnasviði mennta- og menningarmála (öflun sakavottorðs)
Mennta- og menningarmálaráðuneyti hyggst lögfesta heimild til að endurnýja vottorð, t.d. starfsmanna menntastofnana. Í dag er eingöngu heimild til að afla upplýsinga úr sakaskrá við ráðningu.
- Komið til AlþingisS-29/2021· Drög að frumvarpi til laga· Dómsmálaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 29. jan. 2021 – 8. feb. 2021· 4 umsagnir
Almannavarnir
Núgildandi lög um almannavarnir tóku gildi í júní 2008 og hafa tekið litlum efnislegum breytingum síðan þá. Talsvert hefur reynt á gildandi lög og það fyrirkomulag sem kveðið er á um í lögunum þegar almannavarnarástand skapast og almannavarnarstigi er lýst yfir af ríkislögreglustjóra. Með frumvarpi þessu er leitast við að efla almannavarnir og skýra lagagrunn málaflokksins.
- Komið til AlþingisS-25/2021· Áform um lagasetningu· Fjármála- og efnahagsráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 29. jan. 2021 – 12. feb. 2021· 0 umsagnir
Áform um frumvarp til laga um opinberar framkvæmdir og fasteignaumsýslu ríkisins
Samkvæmt þingmálaskrá er stefnt að því að leggja fram frumvarp til laga um opinberar framkvæmdir og fasteignumsýslu ríkisins sem felur m.a. í sér heildarendurskoðun á núgildandi lögum um skipan opinberra framkvæmda.
- Komið til AlþingisS-24/2021· Drög að frumvarpi til laga· Dómsmálaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 28. jan. 2021 – 4. feb. 2021· 0 umsagnir
Drög að frumvarpi til laga um breytingu á almennum hegningarlögum (mansal)
Með frumvarpinu eru lagðar til breytingar á 1. mgr. 227. gr. a er lúta að refsinæmi mansals, í þeim tilgangi að bæta enn frekar vernd þolenda brotanna og auðvelda málsókn á hendur þeim sem ábyrgir eru fyrir brotunum.
- Komið til AlþingisS-19/2021· Drög að frumvarpi til laga· Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 22. jan. 2021 – 10. feb. 2021· 19 umsagnir
Drög að breytingu á lögum nr. 48/2011, um verndar- og orkunýtingaráætlun (málmeðferð virkjunarkosta í vindorku)
Umhverfis- og auðlindaráðuneytið kynnir til umsagnar drög að breytingum á lögum nr. 48/2011, um verndar- og orkunýtingaráætlun ásamt skilabréfi starfshóps þriggja ráðuneyta sem vann að tillögum um meðferð vindorku innan verndar- og orkunýtingaráætlunar.
- Komið til AlþingisS-17/2021· Áform um lagasetningu· Forsætisráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 21. jan. 2021 – 4. feb. 2021· 3 umsagnir
Brottfall laga um vísitölu byggingarkostnaðar (lagasamræming)
Áformað er að fella úr gildi lög um vísitölu byggingarkostnaðar, nr. 42/1987, og að um mælingar á vísitölu byggingarkostnaðar fari í staðinn samkvæmt lögum um Hagstofu Íslands og opinbera hagskýrslugerð, nr. 163/2007.
- Komið til AlþingisS-15/2021· Áform um lagasetningu· Heilbrigðisráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 19. jan. 2021 – 31. jan. 2021· 25 umsagnir
Áform um frumvarp til laga um breytingu á lögum um ávana- og fíkniefni nr. 65/1974 (afglæpavæðing neysluskammta)
Áformað er að leggja fram frumvarp til laga um breytingu á lögum um ávana- og fíkniefni, nr. 65/1974, um afglæpavæðingu neysluskammta. Frestur til að skila inn umsögnum er til og með 31. janúar 2021.
- Komið til AlþingisS-10/2021· Áform um lagasetningu· Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 18. jan. 2021 – 1. feb. 2021· 8 umsagnir
Áform um frumvarp til laga um breytingar á lögum nr. 70/2012 um loftslagsmál (markmið um kolefnishlutleysi)
Markmið um kolefnishlutlaust Ísland árið 2040 verði lögfest
- Komið til AlþingisS-9/2021· Drög að frumvarpi til laga· Fjármála- og efnahagsráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 14. jan. 2021 – 28. jan. 2021· 1 umsögn
Uppfærð drög að frumvarpi til nýrra laga um gjaldeyrismál
Fjármála- og efnahagsráðherra birtir til umsagnar uppfærð drög að frumvarpi til nýrra laga um gjaldeyrismál ásamt álitsgerð.
- Komið til AlþingisS-8/2021· Drög að frumvarpi til laga· Fjármála- og efnahagsráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 11. jan. 2021 – 25. jan. 2021· 1 umsögn
Drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um skilameðferð lánastofnana og verðbréfafyrirtækja, nr. 70/2020 (forgangsröð krafna við skila- og slitameðferð)
Fjármála- og efnahagsráðherra birtir til umsagnar drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um skilameðferð lánastofnana og verðbréfafyrirtækja, nr. 70/2020 (forgangsröð krafna við skila- og slitameðferð).
Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi. Hlekkur getur vantað þegar heiti málsins breyttist mikið á leiðinni; ritstjóri getur staðfest eða hafnað tengingu.
Hér eru frumvörp, áform um lagasetningu og drög að þingsályktunartillögum. Drög að reglugerðum og önnur mál fara ekki til Alþingis og eru á vef gáttarinnar. Alviti hefur þingmál Alþingis frá 8. september 2015; um eldri samráðsmál sem ekki finnast þar er sagt „óvíst“.
Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda (island.is) · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)