Beint í efni
Alviti
← Samráðsgátt
S-8/2021 · Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um skilameðferð lánastofnana og verðbréfafyrirtækja, nr. 70/2020 (forgangsröð krafna við skila- og slitameðferð)

Fjármála- og efnahagsráðherra birtir til umsagnar drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um skilameðferð lánastofnana og verðbréfafyrirtækja, nr. 70/2020 (forgangsröð krafna við skila- og slitameðferð).

Í frumvarpinu er lagt til að efni tilskipunar (ESB) 2017/2399 um um rétthæð ótryggðra skuldagerninga við ógjaldfærnimeðferð verði innleidd í íslenskan rétt. Tilskipun (ESB) 2017/2399, sem sett er til fyllingar ákvæðum tilskipunar 2014/59/ESB (BRRD tilskipunin), kveður á um forgang tiltekinna krafna við ógjaldfærnimeðferð. Efni frumvarpsins tengist lágmarkskröfu um eiginfjárgrunn og hæfar skuldbindingar (MREL-krafa) sem skilavaldi Seðlabanka Íslands er ætlað að ákvarða fyrir hvert fyrirtæki sem heyrir undir gildissvið laganna um skilameðferð lánastofnana og verðbréfafyrirtækja. Frumvarpið kveður á um heildstæðar reglur um forgang krafna, þ.m.t. vegna innstæðna, við skila- og slitameðferð. Af kröfuröðinni má meðal annars vera ljóst hvaða skuldbindingar eru til þess fallnar að uppfylla MREL-kröfu skilavaldsins. Markmið frumvarpsins er að tryggja réttarvissu á fjármálamarkaði. Reglurnar eru mikilvægar fyrir fjármálafyrirtæki sem uppfylla þurfa MREL-kröfu skilavalds. Einnig eru reglurnar mikilvægar fyrir réttarstöðu fjárfesta og lánardrottna enda felst í þeim fyrirsjáanleiki varðandi meðferð krafna ef fjármálafyrirtæki verður tekið til skila- eða slitameðferðar.

S-8/2021· Drög að frumvarpi til laga· Fjármála- og efnahagsráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 11. jan. 2021 – 25. jan. 2021· 1 umsögn

Drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um skilameðferð lánastofnana og verðbréfafyrirtækja, nr. 70/2020 (forgangsröð krafna við skila- og slitameðferð)

Fjármála- og efnahagsráðherra birtir til umsagnar drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um skilameðferð lánastofnana og verðbréfafyrirtækja, nr. 70/2020 (forgangsröð krafna við skila- og slitameðferð).

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-8/2021)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 25. janúar 2021
  3. Umsagnarfresti lýkur · 1 umsögn barst
  4. Lagt fram á Alþingi (151. þing, mál 570)
  5. Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (28. maí 2021)

Ráðherra lagði fram frumvarp um breytingu á lögum um skilameðferð lánastofnana og verðbréfafyrirtækja, nr. 70/2020 (forgangsröð krafna við skila- og slitameðferð) á 151. löggjafarþingi. Ein umsögn barst um málið sem fjallað er um í 5. kafla greinargerðar með frumvarpinu sem var samþykkt sem lög nr. 38/2021.

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (1)

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.

S-8/2021: Drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um skilameðferð lánastofnana og verðbréfafyrirtækja, nr. 70/2020 (forgangsröð krafna við skila- og slitameðferð) · Alviti