Framlög til samgöngumála
Hvar er málið statt?
Staða máls er leidd af þingskjölum og atkvæðagreiðslum.
Í stuttu máli
Að tryggja öruggar og greiðar siglingar við Íslandsstrendur og til hafna með skýrari og heildstæðari reglum um vita, önnur leiðarmerki og siglingaöryggi. Að skýra verkaskiptingu stjórnvalda og tryggja að íslenskar reglur samræmist alþjóðlegum skuldbindingum á þessu sviði.
Flutningsmenn eru ekki skráðir í gögnum Alþingi.
- Lagt fram
- —
- Tegund
- Fyrirspurn (munnleg)
- Atkvæðagreiðslur með skrá
- 0
- Umræða í þingsal
- 4 ræður · 6 mín
Málið á mannamáli
Byggt á samantekt sem starfsfólk Alþingis skrifar með frumvarpinu. Orðalagið er þeirra; Alviti hefur aðeins skipt textanum í hluta.
Markmiðið
Að tryggja öruggar og greiðar siglingar við Íslandsstrendur og til hafna með skýrari og heildstæðari reglum um vita, önnur leiðarmerki og siglingaöryggi. Að skýra verkaskiptingu stjórnvalda og tryggja að íslenskar reglur samræmist alþjóðlegum skuldbindingum á þessu sviði.
Hvað breytist
Lagt er til að núgildandi lög um vitamál víki fyrir nýjum heildarlögum um leiðarmerki og öryggi siglinga. Þau myndu ná til vita, annarra fastra og fljótandi leiðarmerkja og kerfa sem stuðla að öruggum siglingum. Vegagerðin myndi ákveða eða samþykkja gerð og staðsetningu leiðarmerkja, breytingar á þeim og niðurfellingu auk þess að hafa eftirlit með uppsetningu og rekstri þeirra. Samgöngustofa hefði eftirlit með framkvæmd Vegagerðarinnar á þessu sviði. Vegagerðin sæi um landsvita, hafnarstjórnir bæru ábyrgð á leiðarmerkjum hafna og eigendur annarra leiðarmerkja á sínum merkjum.
Ein helsta nýjungin er að staðfest áhættumat siglinga þyrfti að liggja fyrir áður en leyfi yrði veitt til að byggja, breyta eða staðsetja mannvirki með fasta staðsetningu á eða í hafi, svo sem fiskeldiskvíar, sæstrengi og neðansjávarleiðslur. Sá sem óskaði eftir staðfestingu matsins bæri kostnað af gerð þess, málsmeðferð Vegagerðarinnar og þeim ráðstöfunum sem niðurstaðan kynni að kalla á. Jafnframt er lagt til að óheimilt verði að staðsetja mannvirki eða búnað sem hindrar siglingar á svæðum sem ætluð eru til siglinga samkvæmt strandsvæðisskipulagi eða reglugerð. Landhelgisgæslan gæti lokað afmörkuðum hafsvæðum tímabundið vegna leyfðra framkvæmda, aðgerða eða atburða eða þegar siglingaöryggi krefðist þess. Vegagerðin gæti krafist úrbóta að viðlögðum dagsektum þegar önnur úrræði nægðu ekki og lagt á stjórnvaldssektir vegna tiltekinna brota. Loks er lagt til að vitagjald fái heitið öryggisgjald siglinga og hækki um rúm 25% á hvert brúttótonn en fleiri skip verði undanþegin gjaldinu.
Lög sem breytast
Um er að ræða ný lög og við gildistöku þeirra falla úr gildi lög um vitamál, nr. 132/1999. Við gildistöku laganna verða jafnframt breytingar á lögum um Samgöngustofu, stjórnsýslustofnun samgöngumála, nr. 119/2012.
Kostnaður fyrir ríkið
Ekki er gert ráð fyrir að frumvarpið leiði til aukins kostnaðar fyrir ríkissjóð. Lagt er til að hækka öryggisgjald siglinga og fjölga undanþágum frá gjaldinu en ekki kemur fram hvert heildaráhrif breytinganna yrðu á tekjur ríkissjóðs.
Meira úr samantektinni
Í alþjóðasamþykkt um öryggi mannslífa á hafinu (SOLAS) er kveðið á um að aðildarríki skuli, að því marki sem þau telja framkvæmanlegt og nauðsynlegt, sjá fyrir þeim leiðarmerkjum sem umfang siglingaumferðar og áhætta krefjast. Jafnframt skulu ríkin taka mið af alþjóðlegum tilmælum og leiðbeiningum þegar slík merki eru sett upp.
Alþjóðastofnun um leiðarmerki í siglingum (IALA) varð milliríkjastofnun 22. ágúst 2024. Á fyrsta allsherjarþingi hennar í febrúar 2025 var ákveðið að staðlar, tilmæli og leiðbeiningar eldri samtaka IALA skyldu áfram teljast skjöl stofnunarinnar þar til þau yrðu endurskoðuð eða þeim skipt út.
Löggjöf á Norðurlöndum
Á hinum Norðurlöndunum gilda sérstakar reglur um uppsetningu leiðarmerkja, breytingar á þeim og ábyrgð á rekstri og viðhaldi. Verkaskipting stjórnvalda og annarra aðila er þó mismunandi eftir löndum.
Í Danmörku hefur siglingamálastofnunin, Søfartsstyrelsen, um merkingar helstu siglingaleiða og hefur eftirlit með öðrum leiðarmerkjum. Að jafnaði þarf leyfi stofnunarinnar til að setja upp slík merki og ber sá kostnaðinn sem skapar þörf fyrir þau, sbr. 4.–10. gr. reglugerðar um leiðarmerki (bekendtgørelse om farvandsafmærkning i dansk og grønlandsk afmærkningsområde m.v. (afmærkningsbekendtgørelsen), BEK nr 1466 af 29/06/2021).
Í Finnlandi veitir samgöngu- og fjarskiptastofnunin, Transport- och kommunikationsverket (Traficom), leyfi fyrir siglingaöryggismerkjum og getur krafist úrbóta á þeim. Ábyrgð á uppsetningu sjóumferðarmerkja og ljósmerkja er meðal annars skipt milli þeirra sem annast almennar siglingaleiðir og sveitarfélaga, sbr. 49. og 54. gr. sjóumferðarlaga (sjötrafiklag, 782/2019).
Í Noregi þarf leyfi til að setja upp, breyta eða fjarlægja leiðarmerki og geta stjórnvöld skyldað eigendur mannvirkja til að setja upp og viðhalda slíkum merkjum, sbr. 10. gr. laga um hafnir og siglingaleiðir (lov om havner og farvann (havne- og farvannsloven), LOV-2019-06-21-70). Strandstjórnin, Kystverket, hefur eftirlit með viðhaldi samkvæmt reglugerð um merki á siglingaleiðum og leiðsögubúnað (forskrift om farvannsskilt og navigasjonsinnretninger, FOR-2012-12-19-1329).
Í Svíþjóð sér siglingastofnunin, Sjöfartsverket, um tiltekin leiðarmerki en að jafnaði þarf leyfi samgöngustofnunarinnar, Transportstyrelsen, fyrir öðrum slíkum búnaði. Hún hefur jafnframt eftirlit og getur látið bæta úr ágöllum á kostnað þess sem ber ábyrgð á viðhaldi, sbr. 1.–4. gr. 3. kafla reglugerðar um sjóumferð (sjötrafikförordning, 1986:300).
Afstaða þingflokkanna
Flutningsmenn eru ekki skráðir í gögnum Alþingis fyrir þetta mál.
Framsögumaður nefndar: Sigurður Helgi Pálmason
Engin atkvæðagreiðsla með skráðum atkvæðum hefur farið fram um málið.
„Greiddu atkvæði með/á móti“ vísar til skráðra atkvæða í rafrænni atkvæðagreiðslu. Alviti dregur ekki ályktanir um afstöðu þeirra sem ekki greiddu atkvæði.
Af hverju skiptir þetta máli?
- Nefndin sem fjallar um málið
- Umhverfis- og samgöngunefnd
- sendi 1 umsagnabeiðnir · frestur 6. okt. 2026
- Sendu inn umsögn eða erindi
- 8 aðilar
- Innviðaráðuneytið, Samband íslenskra sveitarfélaga, Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi, Vegagerðin, Fagráð um siglingamál o.fl. · allar umsagnir
- Umræða í þingsal
- 6 mín · 4 ræður
- 2 þingmenn tóku til máls. Lengd umræðu mælir áhuga þingsins, ekki mikilvægi málsins.
- Kostnaður fyrir ríkissjóð
- Ekki er gert ráð fyrir að frumvarpið leiði til aukins kostnaðar fyrir ríkissjóð. Lagt er til að hækka öryggisgjald siglinga og fjölga undanþágum frá gjaldinu en ekki kemur fram hvert heildaráhrif breytinganna yrðu á tekjur ríkissjóðs.
- úr samantekt Alþingis
Allt um málið
Öll gögn, ferill og tölur fyrir þau sem vilja skoða nánar.
Ferill málsins
Hvert skref sem Alþingi hefur skráð: þingskjöl, umræður, atkvæðagreiðslur og umsagnabeiðnir, í tímaröð.
- UmsagnirUmsagnabeiðnir sendar, frestur 2026-10-061 beiðnir um umsögn
- UmræðaUmræða4 ræður · 6 mín
Þingskjöl
Frumvarpið sjálft, breytingartillögur, nefndarálit og önnur skjöl eins og Alþingi birtir þau.
Engin þingskjöl hafa borist.
Allar atkvæðagreiðslur
Líka ákvarðanir sem voru teknar með yfirlýsingu forseta; þær skilja ekki eftir sig atkvæði einstakra þingmanna.
Engar atkvæðagreiðslur hafa farið fram um málið.
Hverjir tóku til máls
- Umræða: 4 ræður · 2 ræðumenn · 6 mín
| Þingmaður | Flokkur | Ræður | Ræðutími |
|---|---|---|---|
| Flokkur fólksins | 2 | 4 mín | |
| Framsóknarflokkur | 2 | 3 mín |
Umsagnir og erindi
Nefndin kallar eftir áliti stofnana, samtaka og almennings. Hér eru þeir sem svöruðu.
Umhverfis- og samgöngunefnd sendi 1 umsagnabeiðnir 22. sep. 2026, frestur 6. okt. 2026.
| Hver sendi | Tegund | Barst | Skjal |
|---|---|---|---|
| Innviðaráðuneytið | minnisblað | Opna PDF | |
| Samband íslenskra sveitarfélaga | umsögn | Opna PDF | |
| Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi | kynning | Opna PDF | |
| Innviðaráðuneytið | kynning | Opna PDF | |
| Vegagerðin | umsögn | Opna PDF | |
| Fagráð um siglingamál | umsögn | Opna PDF | |
| Arnar Elvarsson | umsögn | Opna PDF | |
| Fjórðungssamband Vestfirðinga | umsögn | Opna PDF | |
| Hafnasamband Íslands | umsögn | Opna PDF | |
| Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi | umsögn | Opna PDF |
Tengd mál
Engin tengd mál skráð.
Heimild: Alþingi, ferill máls · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)