Beint í efni
Alviti
Kosningapróf

Hvernig hefðir þú kosið?

Taktu afstöðu til mála sem Alþingi afgreiddi á kjörtímabilinu og sjáðu hvaða þingflokkar og þingmenn kusu líkast þér.

12 mál af handahófi · úr 26 málum kjörtímabilsins

Kjóstu um mál sem Alþingi afgreiddi

  1. 1

    Lestu málið

    Eitt mál í einu, í orðum Alþingis. Tenglar vísa á málið ef þú vilt vita meira.

  2. 2

    Með eða á móti

    Eða slepptu máli sem þú hefur ekki skoðun á. Röðin er af handahófi.

  3. 3

    Sjáðu hverjir kusu eins

    Eftir 5 svör eða fleiri: þingflokkar og þingmenn, raðað eftir samhljómi.

Svörin þín fara hvergi. Þau eru aðeins reiknuð og geymd í þessum vafraflipa.

Hvernig þetta virkar

Hvert mál er frumvarp eða tillaga sem Alþingi greiddi atkvæði um. Svörin þín eru borin saman við lokaatkvæðagreiðsluna.

Afstaða þingflokks er það sem meirihluti þingmanna hans kaus. Hjáseta og fjarvist teljast ekki með.

Hvaða mál eru með

Öll mál kjörtímabilsins þar sem að minnsta kosti fimm þingmenn greiddu atkvæði með og fimm á móti í lokaatkvæðagreiðslu. Fjárlög og fjármálaáætlanir eru ekki með, því um þau er kosið eftir stjórn og stjórnarandstöðu frekar en efni.

Gott að hafa í huga

Þingmenn kjósa oft eftir því hvort flokkur þeirra er í ríkisstjórn eða stjórnarandstöðu. Niðurstaðan segir hvernig þeir kusu, ekki endilega hvað þeim finnst.

Svörin þín eru hvorki vistuð á netþjóni né send neitt.