Beint í efni
Alviti
Þingmál158. þing · 98. mál

Ráðgjöf fyrir utanríkisráðherra vegna þjóðaratkvæðagreiðslu

Óundirbúinn fyrirspurnatímiStaða ekki skráð

Hvar er málið statt?

Staða ekki skráð

Staða máls er leidd af þingskjölum og atkvæðagreiðslum.

Allur ferillinn

Í stuttu máli

Að innleiða reglugerð Evrópusambandsins um netöryggisvottun í íslenskan rétt og koma á þeim innlenda ramma sem þarf til að koma í framkvæmd sameiginlegu evrópsku kerfi um netöryggisvottun vara, þjónustu og ferla á sviði upplýsinga- og fjarskiptatækni.

Flutningsmenn eru ekki skráðir í gögnum Alþingi.

Lagt fram
—
Tegund
Óundirbúinn fyrirspurnatími
Atkvæðagreiðslur með skrá
0
Umræða í þingsal
4 ræður · 5 mín

Málið á mannamáli

Byggt á samantekt sem starfsfólk Alþingis skrifar með frumvarpinu. Orðalagið er þeirra; Alviti hefur aðeins skipt textanum í hluta.

Samantekt Alþingis
uppfærð 2. okt. 2026

Markmiðið

Að innleiða reglugerð Evrópusambandsins um netöryggisvottun í íslenskan rétt og koma á þeim innlenda ramma sem þarf til að koma í framkvæmd sameiginlegu evrópsku kerfi um netöryggisvottun vara, þjónustu og ferla á sviði upplýsinga- og fjarskiptatækni.

Hvað breytist

Lagt er til að Fjarskiptastofa verði landsbundið netöryggisvottunaryfirvald á Íslandi og annist útgáfu evrópskra netöryggisvottorða þegar það á við. Slík vottun felur í sér staðfestingu á því að samræmi tiltekinnar vöru, þjónustu eða ferlis við öryggiskröfur evrópsks vottunarkerfis hafi verið metið. Vottunin verður almennt valkvæð og frumvarpið leggur ekki sjálfstæða skyldu á aðila til að afla hennar. Starfsemi Fjarskiptastofu við útgáfu vottorða á að vera aðskilin frá eftirlitsstarfsemi stofnunarinnar.

Lagt er til að Fjarskiptastofa geti falið öðrum hæfum aðilum verkefni við útgáfu vottorða og eftirlit, að hluta eða öllu leyti, meðal annars faggiltum samræmismatsstofum. Sá sem óskar eftir vottun ber kostnað af henni. Fjarskiptastofa fær jafnframt heimildir til að afla upplýsinga, framkvæma úttektir, rannsóknir og prófanir, sinna vettvangsskoðunum, krefjast úrbóta og afturköllunar vottorða og beita dagsektum og stjórnvaldssektum.

Lög sem breytast

Um er að ræða ný lög og við gildistöku þeirra verða breytingar á lögum um Fjarskiptastofu, nr. 75/2021.

Kostnaður fyrir ríkið

Kemur ekki fram í frumvarpi.

Meira úr samantektinni

Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2019/881 frá 17. apríl 2019 um Netöryggisstofnun Evrópusambandsins (ENISA), um netöryggisvottun upplýsinga- og fjarskiptatækni og um niðurfellingu reglugerðar (ESB) nr. 526/2013 (gerð um netöryggi).

Fyrsta vottunarkerfið sem samþykkt hefur verið innan sameiginlegs evrópsks ramma um netöryggisvottun er EUCC (European Common Criteria-based Cybersecurity Certification Scheme). Kerfið er valkvætt og tekur meðal annars til vottunar á tæknilegum íhlutum, vélbúnaði og hugbúnaði. Samkvæmt Netöryggisstofnun Evrópusambandsins (ENISA) hefur verið unnt að gefa út EUCC-vottorð frá því í febrúar 2025.

Löggjöf á Norðurlöndum

Hin Norðurlöndin hafa öll komið á innlendu fyrirkomulagi um evrópska netöryggisvottun, þótt framkvæmd og skipulag útgáfunnar sé mismunandi.

Í Danmörku er Sikkerhedsstyrelsen innlent netöryggisvottunaryfirvald samkvæmt lögum um netöryggisvottun (lov om supplerende bestemmelser til forordningen om ENISA (Den Europæiske Unions Agentur for Cybersikkerhed), om cybersikkerhedscertificering af informations- og kommunikationsteknologi og om ophævelse af forordning (EU) nr. 526/2013 (lov om cybersikkerhedscertificering), LOV nr 780 af 04/05/2021) og getur stofnunin falið samræmismatsstofum að annast útgáfu tiltekinna evrópskra netöryggisvottorða.

Í Finnlandi gegnir Transport- och kommunikationsverket (Traficom) þessu hlutverki samkvæmt lögum um netþol tiltekinna vara og netöryggisvottun (lag om cyberresiliens för vissa produkter och om cybersäkerhetscertifiering, 439/2026). Þar getur stofnunin falið tilkynntri samræmismatsstofu verkefni sem tengjast útgáfu vottorða með hátt fullvissustig fyrir tiltekið evrópskt vottunarkerfi, ýmist með fyrirframsamþykki á hverju vottorði eða þannig að samræmismatsstofan gefi vottorðin út án sérstaks samþykkis Traficom.

Í Noregi fer Nasjonal sikkerhetsmyndighet (NSM) með hlutverk innlends netöryggisvottunaryfirvalds á grundvelli reglugerðar um netöryggisvottun (forskrift om cybersikkerhetssertifisering, FOR-2026-06-23-1250). Vottunaryfirvöld tilnefna samræmismatsstofur samkvæmt reglugerðinni og hafa eftirlit með þeim en samræmismatsstofurnar geta gefið út netöryggisvottorð.

Í Svíþjóð er Försvarets materielverk (FMV) innlent netöryggisvottunaryfirvald samkvæmt reglugerð með viðbótarákvæðum við netöryggisgerð ESB (förordning med kompletterande bestämmelser till EU:s cybersäkerhetsakt, 2021:555) en innan FMV starfar faggilt samræmismatsstofa sem heyrir ekki undir yfirmann stofnunarinnar þegar hún sinnir verkefnum samkvæmt netöryggisgerðinni.

Afstaða þingflokkanna

Flutningsmenn

Flutningsmenn eru ekki skráðir í gögnum Alþingis fyrir þetta mál.

Framsögumaður nefndar: Jónína Björk Óskarsdóttir

Síðasta atkvæðagreiðsla með skrá

Engin atkvæðagreiðsla með skráðum atkvæðum hefur farið fram um málið.

„Greiddu atkvæði með/á móti“ vísar til skráðra atkvæða í rafrænni atkvæðagreiðslu. Alviti dregur ekki ályktanir um afstöðu þeirra sem ekki greiddu atkvæði.

Af hverju skiptir þetta máli?

Nefndin sem fjallar um málið
Umhverfis- og samgöngunefnd
sendi 1 umsagnabeiðnir · frestur 6. okt. 2026
Sendu inn umsögn eða erindi
5 aðilar
Innviðaráðuneytið, Samtök iðnaðarins, Arnar Elvarsson, Fjarskiptastofa, Opin Kerfi · allar umsagnir
Umræða í þingsal
5 mín · 4 ræður
2 þingmenn tóku til máls. Lengd umræðu mælir áhuga þingsins, ekki mikilvægi málsins.
Kostnaður fyrir ríkissjóð
Kemur ekki fram í frumvarpi.
úr samantekt Alþingis

Allt um málið

Öll gögn, ferill og tölur fyrir þau sem vilja skoða nánar.

Ferill málsins

Hvert skref sem Alþingi hefur skráð: þingskjöl, umræður, atkvæðagreiðslur og umsagnabeiðnir, í tímaröð.

  1. Umsagnir
    Umsagnabeiðnir sendar, frestur 2026-10-06
    1 beiðnir um umsögn
  2. Umræða
    Umræða
    4 ræður · 5 mín

Þingskjöl

0 skjöl

Frumvarpið sjálft, breytingartillögur, nefndarálit og önnur skjöl eins og Alþingi birtir þau.

Engin þingskjöl hafa borist.

Allar atkvæðagreiðslur

0 alls · 0 með atkvæðaskrá

Líka ákvarðanir sem voru teknar með yfirlýsingu forseta; þær skilja ekki eftir sig atkvæði einstakra þingmanna.

Engar atkvæðagreiðslur hafa farið fram um málið.

Hverjir tóku til máls

4 ræður · 5 mín
  • Umræða: 4 ræður · 2 ræðumenn · 5 mín
ÞingmaðurFlokkurRæðurRæðutími
Nanna Margrét GunnlaugsdóttirMiðflokkurinn23 mín
Þorgerður Katrín GunnarsdóttirViðreisn22 mín

Umsagnir og erindi

5 erindi

Nefndin kallar eftir áliti stofnana, samtaka og almennings. Hér eru þeir sem svöruðu.

Umhverfis- og samgöngunefnd sendi 1 umsagnabeiðnir 22. sep. 2026, frestur 6. okt. 2026.

Hver sendiTegundBarstSkjal
InnviðaráðuneytiðminnisblaðOpna PDF
Samtök iðnaðarinsumsögnOpna PDF
Arnar ElvarssonumsögnOpna PDF
FjarskiptastofaumsögnOpna PDF
Opin KerfiumsögnOpna PDF

Tengd mál

Engin tengd mál skráð.

Heimild: Alþingi, ferill máls · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)