Útlendingar
Tímabundin vernd vegna fjöldaflótta o.fl.
Hvar er málið statt?
Fyrsta umræða: þingmenn ræða málið í þingsal áður en nefnd tekur við því.
- Lagt fram
- 1. umræða
- Í nefnd
- 2. umræða
- 3. umræða
- Niðurstaða
Skráning Alþingis: „Í nefnd eftir 1. umræðu.“
Í stuttu máli
Að laga íslenskt regluverk um tímabundna vernd vegna fjöldaflótta að þróuninni í Evrópu og tryggja að stjórnvöld hafi svigrúm til að taka næstu skref í samræmi við önnur Evrópuríki þegar tímabundinni vernd lýkur.
Lagt fram af Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir, dómsmálaráðherra (V), fyrir hönd ríkisstjórnarinnar.
- Lagt fram
- 16. september 2026
- Tegund
- Stjórnarmál
- Atkvæðagreiðslur með skrá
- 0
- Umræða í þingsal
- 29 ræður · 1 klst. 28 mín
Málið á mannamáli
Byggt á samantekt sem starfsfólk Alþingis skrifar með frumvarpinu. Orðalagið er þeirra; Alviti hefur aðeins skipt textanum í hluta.
Markmiðið
Að laga íslenskt regluverk um tímabundna vernd vegna fjöldaflótta að þróuninni í Evrópu og tryggja að stjórnvöld hafi svigrúm til að taka næstu skref í samræmi við önnur Evrópuríki þegar tímabundinni vernd lýkur.
Hvað breytist
Lagt er til að hámarkstími tímabundinnar verndar vegna fjöldaflótta verði lengdur úr fimm árum í sex. Jafnframt yrði sá tími sem stjórnvöldum er heimilt að fresta meðferð umsóknar um alþjóðlega vernd á meðan tímabundin vernd stendur yfir lengdur úr fimm árum í sex.
Þá yrði felld brott sérstök heimild til að veita mannúðarleyfi að lokinni tímabundinni vernd. Slíkt leyfi gæti síðar orðið grundvöllur ótímabundins dvalarleyfis að uppfylltum skilyrðum. Þeir sem dveljast hér á landi á grundvelli tímabundinnar verndar gætu þó eftir sem áður sótt um dvalarleyfi á öðrum grundvelli samkvæmt almennum reglum, svo sem vegna atvinnu, náms eða fjölskyldusameiningar. Jafnframt yrði áréttað í lögunum að dvalarleyfi á grundvelli tímabundinnar verndar geti ekki orðið grundvöllur ótímabundins dvalarleyfis. Ábyrgð á skipun flóttamannanefndar yrði jafnframt færð til ráðherra útlendingamála.
Loks er lagt til að heitinu „sameiginleg vernd“ verði breytt í „tímabundin vernd“. Sú breyting lýtur einvörðungu að hugtakanotkun og er ekki ætluð til að hafa áhrif á réttarstöðu þeirra sem njóta verndarinnar.
Lög sem breytast
Kostnaður fyrir ríkið
Kemur ekki fram í frumvarpi.
Meira úr samantektinni
Í júlí 2026 ákvað ráð Evrópusambandsins að framlengja tímabundna vernd þeirra sem flúið hafa Úkraínu um eitt ár, til 4. mars 2028, með framkvæmdarákvörðun (ESB) 2026/1912.
Ráð ESB hafði áður, í september 2025, samþykkt tilmæli um hvernig haga mætti lokum tímabundinnar verndar. Þar eru aðildarríkin meðal annars hvött til að auðvelda þeim sem uppfylla skilyrði að fá dvalarleyfi á öðrum grundvelli, svo sem vegna atvinnu, náms eða fjölskyldutengsla, og að undirbúa úrræði fyrir þá sem vilja snúa aftur til Úkraínu af eigin vilja (Tilmæli ráðs ESB frá 16. september 2025 um samræmt fyrirkomulag þegar tímabundinni vernd þeirra sem hrakist hafa á flótta frá Úkraínu lýkur).
Löggjöf á Norðurlöndum
Á Norðurlöndunum gilda ólíkar reglur um möguleika þeirra sem njóta tímabundinnar verndar til að fá dvalarleyfi á öðrum grundvelli og um meðferð hælisumsókna þeirra.
Í Noregi má, þegar fimm ár eru liðin frá fyrstu leyfisveitingu á grundvelli sameiginlegrar verndar, veita annað tímabundið dvalarleyfi sem getur orðið grundvöllur ótímabundins dvalarleyfis. Meðferð hælisumsóknar má jafnframt fresta í allt að fimm ár, sbr. 34. gr. norskra útlendingalaga (lov om utlendingers adgang til riket og deres opphold her (utlendingsloven), LOV-2008-05-15-35).
Í Finnlandi geta þeir sem njóta tímabundinnar verndar fengið nýtt tímabundið dvalarleyfi á öðrum grundvelli ef þeir uppfylla skilyrði fyrir því, sbr. 54. gr. útlendingalaga (utlänningslag, 301/2004). Meðferð hælisumsóknar er að jafnaði stöðvuð á meðan tímabundin vernd gildir. Þegar verndinni lýkur er meðferð umsóknarinnar aðeins haldið áfram ef umsækjandi óskar eftir því, sbr. 111. gr. laganna.
Í Danmörku getur sá sem hefur dvalarleyfi samkvæmt sérlögum um fólk sem flúið hefur Úkraínu (lov om midlertidig opholdstilladelse til personer, der er fordrevet fra Ukraine, LOV nr 324 af 16/03/2022) sótt um dvalarleyfi samkvæmt almennum útlendingalögum meðan hann dvelst í Danmörku og átt rétt á að dvelja þar meðan umsóknin er til meðferðar, sbr. 1. og 29. gr. sérlaganna. Umsókn um alþjóðlega vernd verður hins vegar ekki afgreidd til fulls meðan viðkomandi á rétt á dvalarleyfi samkvæmt sérlögunum, sbr. 1. gr. reglugerðar um frestun meðferðar hælismála þeirra sem falla undir þau (bekendtgørelse om berostillelse af behandling af asylsager for udlændinge omfattet af Ukrainesærloven, BEK nr 1310 af 30/11/2024).
Í Svíþjóð geta þeir sem njóta tímabundinnar verndar vegna stríðsins í Úkraínu, að uppfylltum skilyrðum, sótt um og fengið tiltekin dvalarleyfi meðan þeir eru í Svíþjóð, meðal annars vegna atvinnu, rannsókna eða náms, auk ESB-blákorts, sbr. 3. og 5. gr. laga um dvalarleyfi í tilteknum tilvikum fyrir útlendinga með tímabundna vernd (lag om uppehållstillstånd i vissa fall för utlänningar med tillfälligt skydd, 2026:456). Tímabundin vernd kemur jafnframt ekki í veg fyrir að umsókn um alþjóðlega vernd sé tekin til meðferðar, sbr. 5. gr. 21. kafla útlendingalaga (utlänningslag, 2005:716).
Afstaða þingflokkanna
Þorbjörg Sigríður GunnlaugsdóttirViðreisndómsmálaráðherra
Framsögumaður nefndar: Grímur Grímsson
Engin atkvæðagreiðsla með skráðum atkvæðum hefur farið fram um málið; ákvarðanir hingað til voru teknar með yfirlýsingu forseta án þess að atkvæði einstakra þingmanna væru skráð.
„Greiddu atkvæði með/á móti“ vísar til skráðra atkvæða í rafrænni atkvæðagreiðslu. Alviti dregur ekki ályktanir um afstöðu þeirra sem ekki greiddu atkvæði.
Af hverju skiptir þetta máli?
Svið sem Alþingi flokkar málið undir. Smelltu til að sjá önnur mál á sama sviði.
- Nefndin sem fjallar um málið
- Allsherjar- og menntamálanefnd
- sendi 1 umsagnabeiðnir · frestur 8. okt. 2026
- Sendu inn umsögn eða erindi
- 10 aðilar
- FTA - Félag talsmanna umsækjenda um alþjóðlega vernd, Tetiana Khismatulina, Íslandsdeild Amnesty International, Rauði krossinn á Íslandi, Útlendingastofnun o.fl. · allar umsagnir
- Umræða í þingsal
- 1 klst. 28 mín · 29 ræður
- 7 þingmenn tóku til máls. Lengd umræðu mælir áhuga þingsins, ekki mikilvægi málsins.
- Kostnaður fyrir ríkissjóð
- Kemur ekki fram í frumvarpi.
- úr samantekt Alþingis
Allt um málið
Öll gögn, ferill og tölur fyrir þau sem vilja skoða nánar.
Ferill málsins
Hvert skref sem Alþingi hefur skráð: þingskjöl, umræður, atkvæðagreiðslur og umsagnabeiðnir, í tímaröð.
- Þingskjal
- UmræðaUmræða 129 ræður · 1 klst. 28 mín
- Atkvæðagreiðsla· yfirlýsing forseta/mál gengur
- Atkvæðagreiðsla· yfirlýsing forseta/mál gengur
- UmsagnirUmsagnabeiðnir sendar, frestur 2026-10-081 beiðnir um umsögn
Þingskjöl
Frumvarpið sjálft, breytingartillögur, nefndarálit og önnur skjöl eins og Alþingi birtir þau.
Allar atkvæðagreiðslur
Líka ákvarðanir sem voru teknar með yfirlýsingu forseta; þær skilja ekki eftir sig atkvæði einstakra þingmanna.
- yfirlýsing forseta/mál gengur21. september 2026 kl. 15:42Frumvarp gengur til 2. umræðuEngin atkvæðaskrá: ákvörðun tekin án rafrænnar atkvæðagreiðslu.
- yfirlýsing forseta/mál gengur21. september 2026 kl. 15:42Frumvarp gengur til nefndarEngin atkvæðaskrá: ákvörðun tekin án rafrænnar atkvæðagreiðslu.
Hverjir tóku til máls
- 1. umræða: 29 ræður · 7 ræðumenn · 1 klst. 28 mín
| Þingmaður | Flokkur | Ræður | Ræðutími |
|---|---|---|---|
| Miðflokkurinn | 5 | 24 mín | |
| Viðreisn | 9 | 23 mín | |
| Sjálfstæðisflokkur | 5 | 16 mín | |
| Viðreisn | 3 | 11 mín | |
| Miðflokkurinn | 3 | 9 mín | |
| Framsóknarflokkur | 2 | 3 mín | |
| Sjálfstæðisflokkur | 2 | 2 mín |
Umsagnir og erindi
Nefndin kallar eftir áliti stofnana, samtaka og almennings. Hér eru þeir sem svöruðu.
Allsherjar- og menntamálanefnd sendi 1 umsagnabeiðnir 24. sep. 2026, frestur 8. okt. 2026.
| Hver sendi | Tegund | Barst | Skjal |
|---|---|---|---|
| FTA - Félag talsmanna umsækjenda um alþjóðlega vernd | umsögn | Opna PDF | |
| Tetiana Khismatulina | umsögn | Opna PDF | |
| Íslandsdeild Amnesty International | umsögn | Opna PDF | |
| Rauði krossinn á Íslandi | umsögn | Opna PDF | |
| Útlendingastofnun | umsögn | Opna PDF | |
| Barnaheill og UNICEF á Íslandi | umsögn | Opna PDF | |
| Arnar Elvarsson | umsögn | Opna PDF | |
| Alþýðusamband Íslands | umsögn | Opna PDF | |
| The United Nations High Commissioner for Refugees (UNHCR) | umsögn | Opna PDF | |
| Vladyslav Maliuta | umsögn | Opna PDF |
Tengd mál
- Útlendingartengt
Heimild: Alþingi, ferill máls · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)