Hlutafélög og einkahlutafélög
EES-innleiðing
Hvar er málið statt?
Nefnd Alþingis fer yfir málið, kallar eftir umsögnum og skilar áliti áður en það fer aftur í þingsal.
- Lagt fram
- 1. umræða
- Í nefnd
- 2. umræða
- 3. umræða
- Niðurstaða
Skráning Alþingis: „Í nefnd eftir 1. umræðu.“
Í stuttu máli
Að innleiða í íslenskan rétt tilskipun (ESB) 2017/828, svonefnda SRD II-tilskipun, og auka gagnsæi í starfsemi skráðra félaga og efla möguleika hluthafa til að veita stjórnendum aðhald.
Lagt fram af Hanna Katrín Friðriksson, atvinnuvegaráðherra (V), fyrir hönd ríkisstjórnarinnar.
- Lagt fram
- 11. september 2026
- Tegund
- Stjórnarmál
- Atkvæðagreiðslur með skrá
- 0
- Umræða í þingsal
- 1 ræður · 7 mín
Málið á mannamáli
Byggt á samantekt sem starfsfólk Alþingis skrifar með frumvarpinu. Orðalagið er þeirra; Alviti hefur aðeins skipt textanum í hluta.
Markmiðið
Að innleiða í íslenskan rétt tilskipun (ESB) 2017/828, svonefnda SRD II-tilskipun, og auka gagnsæi í starfsemi skráðra félaga og efla möguleika hluthafa til að veita stjórnendum aðhald.
Hvað breytist
Lagður er til nýr rammi um samskipti félaga, milliliða og hluthafa. Félög með hlutabréf á skipulegum markaði fengju rétt til að afla upplýsinga frá milliliðum til að auðkenna hluthafa sína. Jafnframt yrði milliliðum, svo sem verðbréfafyrirtækjum, lánastofnunum og verðbréfamiðstöðvum, gert að miðla upplýsingum milli félags og hluthafa og auðvelda hluthöfum að nýta réttindi sín, meðal annars til þátttöku og atkvæðagreiðslu á hluthafafundum.
Þá eru lagðar til ítarlegri reglur um starfskjör stjórnenda og viðskipti við tengda aðila. Félögum með hlutabréf á skipulegum markaði yrði gert að setja ítarlegri starfskjarastefnu og leggja hana fyrir hluthafafund við mikilvægar breytingar og að minnsta kosti á fjögurra ára fresti, birta árlega starfskjaraskýrslu og fá samþykki stjórnar fyrir mikilvægum viðskiptum við tengda aðila. Einnig eru gerðar auknar kröfur um gagnsæi hjá stofnanafjárfestum, eignastýringaraðilum og umboðsráðgjöfum, meðal annars um þátttöku, atkvæðagreiðslur og ráðgjöf vegna þeirra. Loks er lagt til að gildissvið skyldu til að setja starfskjarastefnu verði þrengt þannig að hún taki aðeins til félaga með hlutabréf á skipulegum markaði.
Kostnaður fyrir ríkið
Ekki er gert ráð fyrir áhrifum á ríkissjóð.
Meira úr samantektinni
Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2018/1212 frá 3. september 2018 um lágmarkskröfur varðandi framkvæmd ákvæða tilskipunar Evrópuþingsins og ráðsins 2007/36/EB að því er varðar auðkenningu hluthafa, sendingu upplýsinga og að auðvelda hluthöfum að nýta sér réttindi sín, sem lagt er til að öðlist lagagildi hér á landi, kveður nánar á um sendingu upplýsinga milli félaga, hluthafa og milliliða. Í henni eru meðal annars settar reglur um rafræn og stöðluð snið upplýsinga, svo sem þegar félag óskar eftir upplýsingum um deili á hluthöfum sínum eða sendir fundarboð. Reglugerðin mælir jafnframt fyrir um skamma fresti til að senda tilteknar upplýsingar áfram eftir keðju milliliða. Beiðnir um auðkenningu hluthafa og upplýsingar um fyrirtækjaatburði skal almennt senda áfram í lok sama viðskiptadags en berist þær eftir kl. 16 á viðskiptadegi skal senda þær eigi síðar en kl. 10 næsta viðskiptadag.
Löggjöf á Norðurlöndum
Í Danmörku, Finnlandi, Noregi og Svíþjóð gilda reglur um starfskjarastefnu stjórnenda í skráðum félögum. Í öllum löndunum ber að leggja stefnuna fyrir hluthafafund þegar gerðar eru á henni verulegar breytingar og að minnsta kosti á fjögurra ára fresti. Ákvæði þessa efnis er að finna í 139. gr. danskra laga um hlutafélög og einkahlutafélög (bekendtgørelse af lov om aktie- og anpartsselskaber (selskabsloven), LBK nr 331 af 20/03/2025), í 3. gr. a í 5. kafla finnskra hlutafélagalaga (aktiebolagslag, 624/2006), í 16. gr. a í 6. kafla norskra laga um almenningshlutafélög (lov om allmennaksjeselskaper (allmennaksjeloven), LOV-1997-06-13-45) og í 61. gr. 7. kafla og 51. gr. 8. kafla sænskra hlutafélagalaga (aktiebolagslag, 2005:551). Í Danmörku, Noregi og Svíþjóð tekur hluthafafundur ákvörðun um stefnuna en í Finnlandi er ákvörðun hans ráðgefandi.
Reglur um veruleg viðskipti við tengda aðila eru hins vegar ólíkari milli landanna. Í Danmörku skal æðsta stjórn félags samþykkja slík viðskipti fyrir fram auk þess sem birta ber opinberlega upplýsingar um tiltekin meiriháttar viðskipti, sbr. 139. gr. d í lögum um hlutafélög og einkahlutafélög. Í Finnlandi gilda sérstakar vanhæfisreglur um hluthafa og stjórnarmenn sem tengjast slíkum viðskiptum og skylt er að birta veruleg viðskipti við tengda aðila opinberlega, sbr. 14. gr. a í 5. kafla og 4. gr. a í 6. kafla hlutafélagalaga og 1. gr. a í 8. kafla laga um verðbréfamarkaðinn (värdepappersmarknadslag, 746/2012).
Í Noregi þurfa veruleg viðskipti skráðs félags við tengdan aðila samþykki hluthafafundar ef verðmæti þeirra fer yfir 2,5% af niðurstöðutölu efnahagsreiknings samkvæmt síðasta samþykkta ársreikningi og birta skal upplýsingar um þau opinberlega, sbr. 11., 13. og 15. gr. 3. kafla í lögum um almenningshlutafélög. Í Svíþjóð þarf hluthafafundur að samþykkja viðskipti sem nema að minnsta kosti einni milljón sænskra króna og jafnframt 1% af virði félagsins. Við ákvörðun hluthafafundar eru hlutabréf í eigu tengda aðilans ekki tekin með, sbr. 1.-2. gr. og 7.-8. gr. 16. kafla a í hlutafélagalögum.
Afstaða þingflokkanna
Hanna Katrín FriðrikssonViðreisnatvinnuvegaráðherra
Framsögumaður nefndar: Pawel Bartoszek
Engin atkvæðagreiðsla með skráðum atkvæðum hefur farið fram um málið; ákvarðanir hingað til voru teknar með yfirlýsingu forseta án þess að atkvæði einstakra þingmanna væru skráð.
„Greiddu atkvæði með/á móti“ vísar til skráðra atkvæða í rafrænni atkvæðagreiðslu. Alviti dregur ekki ályktanir um afstöðu þeirra sem ekki greiddu atkvæði.
Af hverju skiptir þetta máli?
Svið sem Alþingi flokkar málið undir. Smelltu til að sjá önnur mál á sama sviði.
- Nefndin sem fjallar um málið
- Efnahags- og viðskiptanefnd
- sendi 1 umsagnabeiðnir · frestur 1. okt. 2026
- Sendu inn umsögn eða erindi
- 6 aðilar
- Atvinnuvegaráðuneyti, Samtök atvinnulífsins, Landssamtök lífeyrissjóða, Nasdaq Iceland hf., Eik fasteignafélag hf. o.fl. · allar umsagnir
- Umræða í þingsal
- 7 mín · 1 ræða
- 1 þingmenn tóku til máls. Lengd umræðu mælir áhuga þingsins, ekki mikilvægi málsins.
- Kostnaður fyrir ríkissjóð
- Ekki er gert ráð fyrir áhrifum á ríkissjóð.
- úr samantekt Alþingis
Allt um málið
Öll gögn, ferill og tölur fyrir þau sem vilja skoða nánar.
Ferill málsins
Hvert skref sem Alþingi hefur skráð: þingskjöl, umræður, atkvæðagreiðslur og umsagnabeiðnir, í tímaröð.
- Þingskjal
- UmræðaUmræða 11 ræður · 7 mín
- Atkvæðagreiðsla· yfirlýsing forseta/mál gengur
- Atkvæðagreiðsla· yfirlýsing forseta/mál gengur
- UmsagnirUmsagnabeiðnir sendar, frestur 2026-10-011 beiðnir um umsögn
Þingskjöl
Frumvarpið sjálft, breytingartillögur, nefndarálit og önnur skjöl eins og Alþingi birtir þau.
Allar atkvæðagreiðslur
Líka ákvarðanir sem voru teknar með yfirlýsingu forseta; þær skilja ekki eftir sig atkvæði einstakra þingmanna.
- yfirlýsing forseta/mál gengur16. september 2026 kl. 16:00Frumvarp gengur til 2. umræðuEngin atkvæðaskrá: ákvörðun tekin án rafrænnar atkvæðagreiðslu.
- yfirlýsing forseta/mál gengur→ efnahags- og viðskiptanefnd16. september 2026 kl. 16:00Frumvarp gengur til nefndarEngin atkvæðaskrá: ákvörðun tekin án rafrænnar atkvæðagreiðslu.
Hverjir tóku til máls
- 1. umræða: 1 ræða · 1 ræðumenn · 7 mín
| Þingmaður | Flokkur | Ræður | Ræðutími |
|---|---|---|---|
| Viðreisn | 1 | 7 mín |
Umsagnir og erindi
Nefndin kallar eftir áliti stofnana, samtaka og almennings. Hér eru þeir sem svöruðu.
Efnahags- og viðskiptanefnd sendi 1 umsagnabeiðnir 17. sep. 2026, frestur 1. okt. 2026.
| Hver sendi | Tegund | Barst | Skjal |
|---|---|---|---|
| Atvinnuvegaráðuneyti | minnisblað | Opna PDF | |
| Samtök atvinnulífsins | umsögn | Opna PDF | |
| Landssamtök lífeyrissjóða | umsögn | Opna PDF | |
| Nasdaq Iceland hf. | umsögn | Opna PDF | |
| Eik fasteignafélag hf. | umsögn | Opna PDF | |
| Arnar Elvarsson | umsögn | Opna PDF |
Tengd mál
Heimild: Alþingi, ferill máls · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)