Beint í efni
Alviti
Þingmál158. þing · 4. mál

Varnir gegn snjóflóðum og skriðuföllum o.fl.

Markmið, nýting eigna, framkvæmdaumsjón

Hvar er málið statt?

1. umræðasíðan 9. sep. 2026

Fyrsta umræða: þingmenn ræða málið í þingsal áður en nefnd tekur við því.

Allur ferillinn
  1. Lagt fram
  2. 1. umræða
  3. Í nefnd
  4. 2. umræða
  5. 3. umræða
  6. Niðurstaða

Skráning Alþingis: „Í nefnd eftir 1. umræðu.“

Í stuttu máli

Að skýra og styrkja reglur um varnir gegn snjóflóðum, skriðuföllum og annarri ofanflóðahættu, með sérstakri áherslu á öryggi fólks, nýtingu hættusvæða og ábyrgð á framkvæmd varna. Jafnframt að breyta fjármögnun varnaraðgerða og heimila Vegagerðinni að taka að sér verkefni á sviði ofanflóðavarna.

Lagt fram af Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra (Sf), fyrir hönd ríkisstjórnarinnar.

Lagt fram
9. september 2026
Tegund
Stjórnarmál
Atkvæðagreiðslur með skrá
0
Umræða í þingsal
11 ræður · 28 mín

Málið á mannamáli

Byggt á samantekt sem starfsfólk Alþingis skrifar með frumvarpinu. Orðalagið er þeirra; Alviti hefur aðeins skipt textanum í hluta.

Samantekt Alþingis
uppfærð 11. sep. 2026

Markmiðið

Að skýra og styrkja reglur um varnir gegn snjóflóðum, skriðuföllum og annarri ofanflóðahættu, með sérstakri áherslu á öryggi fólks, nýtingu hættusvæða og ábyrgð á framkvæmd varna. Jafnframt að breyta fjármögnun varnaraðgerða og heimila Vegagerðinni að taka að sér verkefni á sviði ofanflóðavarna.

Hvað breytist

Lagt er til að skýrar verði kveðið á um að meginmarkmið laganna sé að koma í veg fyrir manntjón og slys af völdum ofanflóða, einkum á heimilum og í mennta- og heilbrigðisstofnunum. Veðurstofu Íslands yrði falið að endurskoða hættumat þegar aðstæður eða þekking breytast. Á áður óbyggðum svæðum yrði ekki heimilt að skipuleggja íbúðarbyggð, frístundabyggð eða atvinnustarfsemi nema áhætta vegna ofanflóða væri ásættanleg án þess að reisa þyrfti sérstök varnarvirki. Rekstraraðilar skipulagðra skíðasvæða bæru jafnframt skýra ábyrgð á eftirliti með ofanflóðahættu.

Lagt er til að Ofanflóðasjóður geti greitt allt að 99% kostnaðar við undirbúning, framkvæmd og viðhald varnarvirkja sem og kaup eða eignarnám fasteigna. Hlutdeild sjóðsins í viðhaldi er nú 60% en í öðrum fyrrnefndum verkefnum 90%. Á móti yrði heimild sveitarfélaga til lántöku hjá sjóðnum felld niður. Einnig yrðu reglur um eignir sem keyptar hafa verið eða teknar eignarnámi vegna hættu hertar: almennt yrði óheimilt að dveljast þar frá 1. nóvember til 30. apríl og lögreglustjóra yrði heimilt að láta rýma eign og leggja á sekt allt að 400.000 kr. vegna brota.

Loks er lagt til að Vegagerðin fái skýra lagaheimild til að taka að sér verkefni á sviði ofanflóðavarna fyrir ríki og sveitarfélög á grundvelli samnings.

Lög sem breytast

Lög um varnir gegn snjóflóðum og skriðuföllum, nr. 49/1997. Lög um Vegagerðina, framkvæmdastofnun samgöngumála, nr. 120/2012.

Kostnaður fyrir ríkið

Ekki er gert ráð fyrir áhrifum á ríkissjóð.

Meira úr samantektinni

Í kjölfar mannskæðra ofanflóða á 20. öld, einkum í Súðavík og á Flateyri árið 1995 þar sem 34 létust, var komið á heildstæðu kerfi ofanflóðavarna hér á landi. Samkvæmt Veðurstofu Íslands er hættumat grundvöllur allra aðgerða til að draga úr ofanflóðahættu og birtir stofnunin slíkt mat fyrir þau þéttbýlissvæði þar sem það hefur verið staðfest. Nánari upplýsingar um hættumat og varnarvirki er að finna á vef Veðurstofunnar.

Löggjöf á Norðurlöndum

Hér er borin saman löggjöf á Norðurlöndum um skilyrði fyrir nýrri byggð þar sem náttúruvá ógnar öryggi og hvort unnt sé að mæta hættunni með sérstökum varnarráðstöfunum.

Í Noregi er samkvæmt 1. gr. 28. kafla skipulags- og byggingarlaga (lov om planlegging og byggesaksbehandling (plan- og bygningsloven), LOV-2008-06-27-71) eingöngu heimilt að byggja þar sem fullnægjandi öryggi er fyrir hendi gegn hættu eða verulegu óhagræði af völdum náttúru- eða umhverfisaðstæðna. Sé land ekki talið nógu öruggt ber sveitarfélagi, þegar nauðsyn krefur, að banna mannvirkjagerð eða binda hana sérstökum öryggisskilyrðum. Nánari reglur um skriðu- og snjóflóðahættu er að finna í 3. gr. 7. kafla byggingarreglugerðar (forskrift om tekniske krav til byggverk (byggteknisk forskrift), FOR-2017-06-19-840). Þar eru mannvirki flokkuð eftir mögulegum afleiðingum ofanflóða og gerðar misstrangar öryggiskröfur sem ná má fram með heppilegri staðsetningu, hönnun eða varnarvirkjum.

Í Finnlandi kveður 45. gr. byggingarlaga (bygglag, 751/2023) á um að utan deiliskipulags sé það skilyrði fyrir staðsetningu byggingar að ekki sé hætta á flóðum, hruni eða skriðuföllum á byggingarstað.

Í Svíþjóð mælir 5. gr. 2. kafla skipulags- og byggingarlaga (plan- och bygglag, 2010:900) fyrir um að við skipulagningu og ákvarðanir um byggingarleyfi eða forúrskurði skuli staðsetja byggð og mannvirki á hentugu landi með hliðsjón af öryggi fólks, náttúrulegum aðstæðum á svæðinu og hættu á slysum, flóðum og landrofi.

Í Danmörku kveða skipulagslög (bekendtgørelse af lov om planlægning (planloven), LBK nr 572 af 29/05/2024; sjá einkum 18.-19. tl. 1. mgr. 11. gr. a og 15. gr.) á um að sveitarfélög afmarki svæði sem geta orðið fyrir flóðum eða landrofi og að við nýja uppbyggingu á slíkum svæðum sé gert ráð fyrir nauðsynlegum varnaraðgerðum. Lögin heimila jafnframt að svæði séu höfð án nýrrar byggðar ef byggð þar gæti orðið fyrir hruni, flóði eða öðru tjóni sem stofnað gæti lífi, heilsu eða eignum í hættu.

Regluverk landanna á það sammerkt að náttúruvá getur sett nýrri byggð skorður. Í fyrirliggjandi frumvarpi er hins vegar lagt til að á áður óbyggðum svæðum verði tiltekin mannvirkjagerð aðeins heimil ef áhætta af völdum ofanflóða telst innan ásættanlegra marka án þess að reisa þurfi sérstök varnarvirki. Til samanburðar gera norsku reglurnar beinlínis ráð fyrir að varnarvirki geti verið ein af leiðunum til að uppfylla gildandi öryggiskröfur.

Afstaða þingflokkanna

Lagt fram af

Framsögumaður nefndar: María Rut Kristinsdóttir

Síðasta atkvæðagreiðsla með skrá

Engin atkvæðagreiðsla með skráðum atkvæðum hefur farið fram um málið; ákvarðanir hingað til voru teknar með yfirlýsingu forseta án þess að atkvæði einstakra þingmanna væru skráð.

„Greiddu atkvæði með/á móti“ vísar til skráðra atkvæða í rafrænni atkvæðagreiðslu. Alviti dregur ekki ályktanir um afstöðu þeirra sem ekki greiddu atkvæði.

Af hverju skiptir þetta máli?

Svið sem Alþingi flokkar málið undir. Smelltu til að sjá önnur mál á sama sviði.

Nefndin sem fjallar um málið
Umhverfis- og samgöngunefnd
sendi 1 umsagnabeiðnir · frestur 1. okt. 2026
Sendu inn umsögn eða erindi
18 aðilar
Hvalfjarðarsveit, Umhverfis-, orku- og loftlagsráðuneytið, Akureyrarbær, Fjarðabyggð, Samtök sveitafélaga & atvinnuþróunar á Norðurlandi eystra SSNE o.fl. · allar umsagnir
Umræða í þingsal
28 mín · 11 ræður
4 þingmenn tóku til máls. Lengd umræðu mælir áhuga þingsins, ekki mikilvægi málsins.
Kostnaður fyrir ríkissjóð
Ekki er gert ráð fyrir áhrifum á ríkissjóð.
úr samantekt Alþingis

Allt um málið

Öll gögn, ferill og tölur fyrir þau sem vilja skoða nánar.

Ferill málsins

Hvert skref sem Alþingi hefur skráð: þingskjöl, umræður, atkvæðagreiðslur og umsagnabeiðnir, í tímaröð.

  1. Þingskjal
  2. Umræða
    Umræða 1
    11 ræður · 28 mín
  3. Atkvæðagreiðsla
    · yfirlýsing forseta/mál gengur
  4. Atkvæðagreiðsla
    · yfirlýsing forseta/mál gengur
  5. Umsagnir
    Umsagnabeiðnir sendar, frestur 2026-10-01
    1 beiðnir um umsögn

Þingskjöl

1 skjöl

Frumvarpið sjálft, breytingartillögur, nefndarálit og önnur skjöl eins og Alþingi birtir þau.

Þskj.TegundÚtbýttFlutningsmennSkjal
4Stjórnarfrumvarp9. sep. 2026Jóhann Páll JóhannssonLesaPDF

Allar atkvæðagreiðslur

2 alls · 0 með atkvæðaskrá

Líka ákvarðanir sem voru teknar með yfirlýsingu forseta; þær skilja ekki eftir sig atkvæði einstakra þingmanna.

  • yfirlýsing forseta/mál gengur16. september 2026 kl. 16:38
    Frumvarp gengur til 2. umræðu
    Engin atkvæðaskrá: ákvörðun tekin án rafrænnar atkvæðagreiðslu.
  • yfirlýsing forseta/mál gengur16. september 2026 kl. 16:38
    Frumvarp gengur til nefndar
    Engin atkvæðaskrá: ákvörðun tekin án rafrænnar atkvæðagreiðslu.

Hverjir tóku til máls

11 ræður · 28 mín
  • 1. umræða: 11 ræður · 4 ræðumenn · 28 mín
ÞingmaðurFlokkurRæðurRæðutími
Jóhann Páll JóhannssonSamfylkingin512 mín
Guðlaugur Þór ÞórðarsonSjálfstæðisflokkur310 mín
Þórarinn Ingi PéturssonFramsóknarflokkur25 mín
Bragi Þór ThoroddsenFlokkur fólksins11 mín

Umsagnir og erindi

19 erindi

Nefndin kallar eftir áliti stofnana, samtaka og almennings. Hér eru þeir sem svöruðu.

Umhverfis- og samgöngunefnd sendi 1 umsagnabeiðnir 17. sep. 2026, frestur 1. okt. 2026.

Hver sendiTegundBarstSkjal
HvalfjarðarsveitathugasemdOpna PDF
Umhverfis-, orku- og loftlagsráðuneytiðkynningOpna PDF
AkureyrarbærumsögnOpna PDF
FjarðabyggðumsögnOpna PDF
Samtök sveitafélaga & atvinnuþróunar á Norðurlandi eystra SSNEumsögnOpna PDF
Dýraverndarsamband ÍslandsumsögnOpna PDF
Karl Már EinarssonumsögnOpna PDF
Samband íslenskra sveitarfélagaumsögnOpna PDF
LandverndumsögnOpna PDF
Veðurstofa ÍslandsumsögnOpna PDF
HvalfjarðarsveitumsögnOpna PDF
Arnar Þór StefánssonumsögnOpna PDF
Arnar ElvarssonumsögnOpna PDF
Landssamtökin ÞroskahjálpumsögnOpna PDF
Félag Sumarbúa í SúðavíkumsögnOpna PDF
MúlaþingumsögnOpna PDF
VegagerðinumsögnOpna PDF
ÖBÍ réttindasamtökumsögnOpna PDF
Sveitarfélagið HornafjörðurumsögnOpna PDF

Tengd mál

Heimild: Alþingi, ferill máls · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)